Morgunblaðið - 23.06.1994, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Tölvuáhugamenn
athucgið,
Eigum fyrirliggjandi vinsælu ExSys tengin:
RADTENGl - EX-4031
• 16 bita raðtengi (RS-232).
• 2 útgangar, 9 og 25 pinna.
• COM 1-4. IRQ 3-15.
• XT / AT samhæft.
FJÖLNOTA IDE-TENGI - EX-3060
• 2FDD og 2HDD.
• Tvö raðtengi. COM 1-4. IRQ 3-5.
• Eitt samhliða tengi.
• Eitt leikjatengi
• AT samhæft.
SAMHLIÐA TENGI - EX-4000
• Eitt samhliða tengi
• LPT 1-3. IRQ 5. 7.
• XT/AT samhæft.
HRAÐVIRKT RAÐTENGI - EX-40311
• Hraðvirkt 16 bita raðtengi (2x 16C450).
• 2 útgangar, 9 og 25 pinna.
• COM 1-4. IRQ3-12, 15.
• Samskiptahraði 50 -115.200 BAUD.
Tæknival
Skeifunni 17 - Sími (91) 681665 - Fax (91) 680664
BOSCH
Verkfæratilboð
BOSCH borvél
— CSB 650 RE
— Verð áður kr. 22.241.
Tilboðsverð kr. 14.950
/
BOSGH hefill — PHO 100
— Verð áður kr. 17.793.
Tilboðsverð kr. 10.950.
\
BOSCH pússikubbur —
PSS 23 — Verð áður kr. 9.327.
Tilboðsverð kr. 6.490.
FYRIRTÆKI, VERKTAKAR OG VÉLALEIGUR !
Bjóðum einnig stórar sem smáar brot- og borvélar á afsláttarverði.
BOSCH fræsari- POF 600 ACE —
Verð áður kr. 26.403.
Tilboðsverð kr. 16.960.
BOSCH slípirokkur — GWS 20-180 — Verð áður kr. 25.920.
Tilboðsverð kr. 17.980.
BOSCH nagari — GNA 2.0
— Verðáður kr. 38.715.
Tilboðsverð kr. 28.670.
BOSCH borvél f. rafhlöður
— GBM 9.6 VES
— Verð áður kr. 32.670.
Tilboðsverð kr. 23.980.
5S3
Hitakútar!
Eigum til á lager 15 - 300
lítra hitakúta frá sænska
fyrirtækinu NIBE.
Bjóðum einnig 5 og 10
lítra kúta frá Siemens.
Úrvalsvara á góðu verði.
SMITH & NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 628300
Símapöntun 91-38825
Sendum í póstkröfu
BRÆÐURNIR
DJ 0RMSS0NHF
Lágmúla 9, sími'38825
I DAG
BRIPS
U m s j ó n (i u ö m . I’ « 11
Arnarson
Á landsliðsæfingu um
síðustu helgi gat hvorugt
NS-parið stilit sig um að
segja 6 hjörtu.
Austur gefur, allir á
hættu.
Norður
♦ 1084
V 4
♦ 80
♦ ÁG107432
Austur
♦ 653
I V 95
111111 ♦ G10543
♦ KD5
Suður
♦ ÁKD9
V KDG8762
♦ Á
♦ 6
Eins og spilin liggja,
stendur slemman með því
að spila spaðanum ofanfrá,
en sagnhafi á öðru borðinu
valdi að svína níunni í loka-
stöðunsi og fór niður. Báðu
megin kom út tígulkóngur
og þegar vestur lenti inni
í öðrum slag á hjartaás
lagði hann vongóður niður
tíguldrottingu. En suður
trompaði og spilaði hjört-
unum til enda. Tók svo tvo
efstu i spaða.
Lokastaðan var þá þessi:
Norður
♦ 8
V -
♦ -
♦ ÁG
Vestur Austur
♦ G V - ♦ - II ♦ 6 V - ♦ -
♦ 98 ♦ KD
Suður
♦ D9
V -
♦ -
♦ 6
Lauf upp og ás og spaði
úr borði. Vissulega hitting-
ur, ef ekkert er vitað um
spil AV. En þar sem sagn-
hafi vann spilið hafði aust-
ur doblað fyrirstöðusögn
norðurs á fjórum laufum!
Sagnhafi gat því með
nokkru öryggi eignað hon-
um laufhjónin og þar með
aðeins einn spaða.
Vestur
♦ G72
V Á103
♦ KD872
♦ 98
Farsi
VELVAKANDI
svarar í sínia 691100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Sjónvarpið stóð
sig vel
MIG langar að þakka
Sjónvarpinu sirstaklega
vel fyrir góða og
skemmtilega dagskrá frá
Þingvöllum 17. júní. Sér-
staklega vil ég þakka
fólki Dagsljóss fyrir góða
dagskrá. Þessi útsending
var þeim sem sátu heima
ákaflega mikilvæg.
Ingibjörg
Tapað/fundið
Úr tapaðist
KVENÚR með gylltri
skífu og trosnaðri svartri
leðuról tapaðist í tívolíinu
í Fjölskyldugarðinum 17.
júní. Upplýsingar í síma
93-71431.
Myndavél tapaðist
á Þingvöllum
PANASONIC C310 EF
tapaðist á Þingvöllum
17. júní við stóra sýn-
ingartjaldið. Eigandinn
sér eftir vélinni en þó
aðallega eftir filmunni.
Ef einhver hefur fundið
vélina þá eru uppl. í síma
672311.
Myndavél tapaðist
OLYMPUS-myndavél í
gráu hulstri tapaðist á
Þingvöllum í grennd við
stóra tjaldið 17. júní.
Finnandi vinsamlega
hringi í síma 686516.
Gleraugu
töpuðust
GLERAUGU töpuðust
19. júní á tónleikum í
Laugardalahöllinni. Ef
einhver hefur fundið
gleraugu þá vinsamlega
hringið í síma 44712.
Úr fannst
ÚR FANNST við Voga-
skóla fyrir nokkru. Eig-
andi fær úrið afhent
gegn greinargóðri lýs-
ingu. Upplýsingar í síma
888321.
Kápa tapaðist á
Hótel Loftleiðum
DJÚPRAUÐ síð kasmír-
ullarkápa af gerðinni
Escada var tekin I mfs-
gripum úr fatahengi á
Hótel Loftieiðum eftir
fund í Víkingasal 27.
apríl sl. Viti einhver hvað
um kápuna hefur orðið
er hann vinsamlega beð-
inn að hafa samband við
Guðvarð á Hótel Loft-
leiðum í síma 22322 eða
Guðrúnu í síma 695795.
Lyklakippa í
Ingólfskaffi
LYKLAKIPPA með
nokkrum lyklum á fannst
í Ingólfskaffi laugardag-
inn 18. júní. Uppl. í símn
77001.
Gæludýr
Týndur
páfagaukur
BLÁR páfagaukur með
ljósum yrjum og ljósbláa
vængi hvarf sl. sunnu-
dag frá Baldursgötu.
Hans er sárt saknað og
ef einhver hefur fundið
hann þá vinsamlega
hringi hann í síma
24643, 42278 eða
25859.
Kettlingur gefins
FJÖGURRA mánaða
gamall svartur og hvítur
fresskettlingur fæst gef-
ins á gott heimili. Ein-
staklega blíður og góður.
Uppl. í síma 25859.
Kettlingar
FIMM failegir fímm
vikna kettlingar fást gef-
ins á góð heimili. Upplýs-
ingar í síma 75501 eftir
kl. 16.
Kettlingar
FIMM fallegir kettlingar
fást gefíns. Upplýsingar
í síma 653672 eftir kl.
14.
Víkveiji skrifar...
Meðal gullkorna sem skrifari
hefur séð er ráðamenn
reyna að afsaka umferðaröng-
þveitið á Þingvöllum síðasta föstu-
dag er að fólk hafi lagt allt of
seint af stað. Hveiju hefði það
breytt ef allur þorri fólks hefði
lagt af stað strax er Mosfellsheið-
in opnaðist eftir austurför þjóð-
höfðingjanna? Hefði það ekki bara
þýtt að öngþveitið hefði orðið
mikiu fyrr og fólk þurft að dúsa
í enn fleiri klukkustundir á fjórum
hjólum í vegarkantinum? Spyr sá
sem ekki veit.
Óbreyttir lögregluþjónar starf-
andi við slæmar aðstæður á Mos-
fellsheiðinni og víðar fengu kaldar
kveðjur frá vegfarendum. Svo sem
í lagi og ekki óeðlilegt að kveðjurn-
ar væru kaldar. Hins vegar var
sá skætingur og dónaskapur sem
þessir vesalings menn urðu fyrir
frá sumum óþarfi því þeir gerðu
flestir það sem í þeirra valdi stóð.
Þeir höfðu hins vegar litlar sem
engar upplýsingar frá yfirmönnum
og vissu lítið meira en almenning-
ur hvað var að gerast.
xxx
að er varla hægt að vinna
með þessu, varð kunningja
Víkveija að orði þegar hann ræddi
þann tíma sem fer í að horfa á
íþróttasjónvarp og sinna öðrum
áhugamálum þessa dagana. Út-
sendingar frá heimsmeistaramót-
inu í knattspyrnu eru tímafrekar
og komu að hluta til samtímis og
síðan í kjölfar ameríska körfubolt-
ans. Áhugi fólks á þessu efni er
að sjálfsögðu mjög misjafn og
þeir sem lítið eru fyrir knattspyrnu
bölva og ragna. Hinir eru að sjálf-
sögðu í skýjunum, reyndar svolítið
þreytulegir og gráir á vangann,
en ánægðir eigi að síður. Ahugi
fyrir þessári keppni er með ólíkind-
um mikill um allan heim og segir
það sína sögu um vinsældir og
útbreiðslu íþróttagreinarinnar.
xxx
Nú þegar menn eru að mestu
hættir að segja sögur af
þjóðhátíðinni og hversu lengi þeir
sátu í bíl sínum eða, eftir atvikum,
hve snöggir þeir voru á milli staða
er næsta víst að íþróttafréttamenn
og ambögur þeirra verði næsta
umræðuefni svo mjög sem þeir eru
áberandi í sjónvarpi og útvarpi
þessa dagana.
Því miður virðast fréttamenn-
irnir of oft vera illa undirbúnir.
Sem dæmi má nefna að í frétta-
tíma um síðustu helgi var sagt frá
því að spennandi holukeppni í golfi
hefði endað 9-8. Slík úrslit segja
þeim sem til þekkja, að keppnin
hafi alls ekki verið spennandi,
þvert á móti spennulaus einstefna
og öruggur sigur annars kylfings-
ins. í lýsingu frá fijálsíþrótta-
keppni síðasta laugardag stóð ekki
steinn yfir steini. í 400 metra
hlaupi hafði einhver piltur örugga
forystu, í sjónvarpinu, þangað til
kom að endasprettinum, þá dróst
hann aftur úr. Ekki nema von því
hann var einfaldlega ekki meðal
keppenda! Sama var upp á ten-
ingnum í fleiri greinum þessa
fijálsíþróttamóts.
Frá HM-fótboltanum í Banda-
ríkjunum berast upplýsingar seint
til áhorfenda frá þeim sem mat-
reiða efnið vestan hafs. Frétta-
maðurinn sem lýsir þarf því að
vera vel undirbúinn og fylgjast vel
með svo hann geti verið á undan
áhorfandanum heima í stofu að
skynja það sem gerst hefur og
koma því á framfæri. Það er ekki
nóg að lýsa aðeins því sem allir
sjá. Það er til mikilla bóta hjá
íþróttafréttamönnum sjónvarps að
fá sérfræðinga sér til trausts og
halds eins og verið hefur í útsend-
ingum frá HM í vikunni.