Morgunblaðið - 23.06.1994, Side 30

Morgunblaðið - 23.06.1994, Side 30
30 FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1994 MIIMNIIMGAR MORGUNBLAÐIÐ t MAGNÚS GUÐJÓNSSON, Lyngholti 20, Keflavík, varð bráðkvaddur á heimili sínu 16. júní. Hann verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 25. júní kl. 14.00. Sigurbjörg Norðfjörð, ættingjar og vinir. t Ásikær eiginkona mín, RUTH DÓRA GUÐMUNDSSON, fædd Bónavíde, Njálsgötu 15a, lést á Borgarspítalanum þann 21. júní. Guðbjartur Guðmundsson. + 1 ANTON SIGURÐSSON frá Seyðisfirði, Hátúni 10b, varð bráðkvaddur á heimili sínu þriðjudaginn 21. júní. Fyrir hönd vandamanna, Einar Sigurðsson. Elskulegur móðurbróðir minn. ÞORGILS BJARNASON, Fagurhóli, Strandvegi 55, Vestmannaeyjum, andaðist í Hraunbúðum 21. júní. Útförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 25. júní kl. 16.00. Fyrir hönd aðstandenda, Björgvin Jónsson. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, HELGA ERNA EINARSDÓTTIR frá Dalsmynni, Reykjabraut 12, Þorlákshöfn, lést í Sjúkrahúsi Suðurlands þriðjudaginn 21. júní. Sigurður Ólafsson, synir, tengdadóttir og barnabörn. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, KRISTINN JÓNSSON, Akralandi 3, Reykjavík, . sem lést í Landspítalanum þann 16. júní sl., verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 24. júní kl. 13.30. Páli'na S. Kristinsdóttir, Bergur Sveinbjörnsson, Þráinn Kristinsson, Vilborg Pálsdóttir, Ásta Kristinsdóttir, Ásgeir Þ. Kristinsson, Olga Herbertsdóttir, og barnabörn. t Maðurinn minn, HERMANN JÓNSSON, Smáratúni 20, Selfossi, áður bóndi, Norðurhvammi, Mýrdal, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 25. júní kl. 10.30. Fyrir mfna hönd og annarra vandamanna, Guðný Bergrós Jónasdóttir. Lokað Skrifstofur Ríkisendurskoðunar verða lokaðar frá kl. 13.00 í dag, fimmtudag, vegna jarðarfarar KETILS JENSSONAR. ÁSBJÖRG TEITSDÓTTIR + Ásbjörg Teits- dóttir var fædd í Reykjavík 21. október 1918. Hún lést á Sjúkrahúsi Suðurlands 15. júní síðastliðinn. Ábjörg fluttist með for- eldrum sinum, þeim Sigríði Jónsdóttur og Teiti Eyjólfs- syni, í Eyvindart- ungu, næsta bæ við Laugarvatn, árið 1923 og ólst hún þar upp síðan. Hún var elst sjö systk- ina, síðan Ásthjldur, Jón, Eyj- ólfur, Baldur, Ársæll og yngst Hallbjörg. Þeir Eyjólfur og Baldur létust með rúmlega árs millibili, 1992 og 1993. Eftir barnaskóla stundaði Ásbjörg nám í Héraðsskólanum á Laug- arvatni 1936-37 og síðar við Húsmæðraskólann á Lauga- landi í Eyjafirði. Árið 1943 gift- ist hún sveitunga sínum, Eiríki Eyvindssyni, rafvirkjameist- ara, frá Utey í Laugardal. Þau Ásbjörg og Eiríkur eignuðust þrjú börn: 1) Teit, rafvirkja, f. 1944. Hann var áður kvæntur Jónu Svönu Jónsdóttur; sonur þeirra er Eiríkur matreiðslu- maður, búsettur í Danmörku. Síðari kona Teits er Jana Ei- ríksson frá Fredericia í Dan- mörku, börn þeirra eru Birg- itta laganemi og Jakob kenn- aranemi. Teitur féll frá langt um aldur fram árið 1989. 2) Sigríði Erlu, hússfjórnarkenn- ara, f. 1949. Hún giftist Hlöð- veri Erni Olasyni tæknifræð- ingi og eignuðust þau tvo syni, Óla Örn menntaskólanema og Eirík Kristin. Sigríður lést af völdum krabbameins 1987, að- eins 38 ára gömul. 3) Eyvind, viðskiptafræðing, f. 1956. Hann var í sambúð með Eddu Kristjánsdóttur og eiga þau einn son, Eirík Inga. Útför Ásbjargar verður gerð frá Sel- fosskirkju í dag og verður hún lögð til hinstu hvíldar í graf- reitnum á Laugarvatni. MEÐ fáum orðum langar mig að minnast mágkonu minnar, Ás- bjargar Teitsdóttur, Laugarvatni. Við sem þekktum Ásu, en það var hún ávallt kölluð af frændfólki og vinum, vissum að hún hafði í mörg ár barist við þann sjúkdóm, sem að síðustu bar hana ofurliði. Um tíma leit þó út fyrir og var vonað, að hún fengi bata, eftir aðgerð sem hún gekkst undir fyrir tveim árum. Því miður varð það ekki og í upphafi þessa árs kom í ljós að krabbameinið hafði tekið sig upp að nýju. Þar sem Ása var elst systkinanna kom það í hennar hlut að vera stoð og stytta móður sinnar við störfin á stóru sveitaheimili. Samband þeirra mæðgnanna var einstaklega kært alla tíð. Löngu eftir að hún stofnsetti sitt eigið heimili, hélt hún áfram að annast heimilið í Eyvind- artungu, einnig eftir að móðir hennar féll frá. Ása giftist einstaklega traustum og góðum manni, Eiríki Eyvinds- syni. Fyrstu hjúskaparárin bjuggu þau í Eyvindartungu, en síðan bjuggu þau á Laugarvatni, þar sem þau reistu sér fallegt hús. Heimili þeirra hefur ávallt borið vott um viðhorf húsbændanna hvors til ann- ars, þar sem snyrtimennskan hefur verið höfð í hávegum, jafnt úti sem inni. Ása var mikill náttúruunnandi og hreifst af því sem fagurt var. Hún var ávallt tilbúin að láta gott af sér leiða. Vegna starfa Eiríks sem framkvæmdastjóra Sameigna skólanna á Laugarvatni varð ekki komist hjá miklum erli á heimilinu, þar sem Eiríkur þurfti /að leysa hvers manns vanda, og tók Ása virkan þátt í störfum hans. Ása og Eiríkur urðu fyrir mikilli sorg þegar Sigríður Erla, dóttir þeirra, lést árið 1987, þá aðeins 38 ára, frá eiginmanni og tveim ungum sonum. Rúm- lega einu og hálfu ári síðar lést Teitur, sonur þeirra, þá 45 ára gam- all, frá eiginkonu og þrem börnum. Okkur vinum og venslamönnum þeirra Ásu og Eiríks fannst, að hinn Hæsti Höfuðsmiður hefði tek- ið allt of stóran skerf frá þessum góðu hjónum. Sá er þessar línur skrifar fann að viðhorf Ásu til lífs- ins breyttist. Það var þó huggun harmi gegn, að Ása hafði mikið yndi af dóttursonum sínum í Graf- arvogi, sem hún hlúði að eftir bestu getu og fór hún ófáar ferðir til Reykjavíkur til að vera í sem nán- ustum tengslum við þá. Eiríkur Ingi, sonur Eyvindar, dvaldi löng- um hjá afa sínum og ömmu og veit ég að hann var augasteinn ömmu sinnar. Það kom sér vel að hann dvaldi hjá þeim síðustu vik- urnar, sem hún gat verið heima. Ása hafði einnig mikil og góð tengsl við börn og tengdadóttur í Dan- mörku, en fjarlægðin hamlaði þó að samskiptin gætu verið eins góð og hún hefði kosið. Eitt af því síð- asta sem hún óskaði sér var, að stráð yrði íslenskri mold á grafreit Teits sonar hennar í Danmörku. Þessa ósk uppfyllti Hlöðver tengda- sonur hennar skömmu áður en hún dó. Hafi hann þökk fyrir. Ása var ákaflega dagfarsprúð og glæsileg kona og var ein af þeim, sem hafði efni á að gefa, án þess að ætlast til endurgjalds. Hún var einstök. Hún var fyrirmynd systkina sinna sem ég veit að hún dáði og bar hag þeirra og fjöl- skyldna þeirra fyrir bijósti. Ása og Eiríkur voru eiginlega allt í öllu, hvað viðkom tengslum vina og vandamanna. Hjá henni var allt ávallt í stakri reglu. Hógværð og æðruleysi voru henni í blóð borin og hún var elskuð af öllum sem hana þekktu. Ása var einstaklega barngóð kona enda hændust börn að henni. Við Halla erum henni þakklát fyrir hversu góð hún var börnunum okkar og var ávallt reiðubúin að taka þau í tímabundið fóstur, ef á þurfti að halda. Hún var líka þeirra uppáhaldsfrænka, sem þau virtu og dáðu, enda fundu þau þann hlýleika og elsku, sem streymdi frá henni. Að leiðarlokum er ég þakklátur fyrir að hafa átt þessa mætu konu sem vin í 44 ár. Við fráfall Ásu er sár harmur kveðinn að Eiríki eiginmanni henn- ar, Eyvindi og fjölskyldum. Kæri Eiríkur, við Halla og börn- in sendum þér og fjölskyldu þinn innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Ásbjargar Teitsdóttur. Helgi Jónsson. Svo víst sem það er að „allrar veraldar vegur“ endar á einn hátt er staðreyndin sjálf ætíð jafnóvæg- in. Það sannaðist enn við þá sorgar- fregn að ein þeirra kvenna sem lengst hafa staðið fyrir heimili hér á Laugarvatni, Ásbjörg Teitsdóttir frá Eyvindartungu væri látin. Þau hjónin, Asbjörg og eftirlif- andi eiginmaður hennar, Eiríkur Eyvindsson, hafa búið hér á Laug- arvatni allt frá því að þau giftu sig, og hafa skilað, hvort um sig og sameiginlega, umfangsmiklu og mikilsverðu ævistarfi sem gera þarf rækileg skil þegar skráð verð- ur sagan af uppbyggingu og mótun skólaseturs á Laugarvatni. Fyrr á árum mátti stundum sjá og heyra þau ummæli um fyrir- myndarhúsmæður að þær hefðu búið mönnum sínum (ekki sjálfum sér eða börnum sínum) fallegt heimili. Slíkt þykir nú - og er - karlveldisorðbragð og óviðeigandi. Hitt er jafnvíst að sú siðmenning sem víða hefur tekist í heimilis- haldi hér á landi á þessari öld - í þrifnaði, mataræði, smekkvísi og alúð í smáu sem stóru - er einhver mikilvægasta forsenda góðs upp- eldis, heilbrigðrar sjálfsímyndar og sjálfsvirðingar. Þar eiga vel mennt- aðar konur í húsfreyjustöðu lang- stærstan hlut. Og sú sem hér er kvödd var óveriju glæsilegur full- trúi þeirra. Hún var oft nefnd Ása hans Eiríks manna á meðal og kunni því áreiðanlega vel enda voru þau svo samvalin og samtaka sem hugsast gat, einnig í mótun síns fallega heimilis. En engum kunn- ugum duldist að Ása lagði í það metnað sinn framar öðru. Það kom snemma í hlut Eiríks að annast marga verklega þætti í starfsemi skólanna, fyrst í rafvæð- ingu og rafveitu, en síðar í allri sameiginlegri þjónustu ríkisskól- anna og umsýslu þeirra eigna sem þeim var falin með stofnun Sam- eigna skólanna árið 1953 og sér- stökum samningi þar um sem enn er í fullu gíldi. En Eiríkur hefur verið framkvæmdastjóri Sameign- anna frá upphafi. Því starfi hafa fylgt mikil umsvif sem Eiríkur mætti með viðbrögðum sem nokkur dæmi eru enn um hjá fólki af hans kynslóð: hann gaf starfinu sjálfan sig og heimili sitt allt og óskipt. Árið 1949 reistu þau Ása eigið hús og þangað var lengi vel stefnt öllum erindum sem Eiríkur þurfti að sinna. Þar hefur verið afar gest- kvæmt og öllum tekið opnum örm- um. Hjá Ásu voru allir jafnmikils metnir; moldugur upp úr hitaveitu- skurði kom ég oft í góðgerðir hjá henni fyrr á árum og mætti sama brosinu og góðvildinni sem ætíð fann hvað kom sér best. Heimili þeirra hjóna er mar- grómað fyrir smekkvísi og myndar- skap, utan húss sem innan, hreint, fágað og fallegt, án óþarfa íburðar og því öllum til fyrirmyndar. í hart- nær 40 ár hef ég verið tíður gestur hjá þeim og aldrei minnist ég þess að hafa séð blett eða hrukku á nokkrum hlut eða neitt úr stað fært, svo fullkomin regla er þar ríkjandi. Enda þótt starfsvettvangur Ásu væri lengst og mest bundinn heim- ili hennar var hún óspör á krafta sína í annarra þágu. Þannig var hún stoð og stytta móður sinnar og heimilisins í Eyvindartungu alla tíð, ekki síst eftir að Jón bróðir hennar, sem þar býr enn, missti konu sína frá þremur ungum börn- um árið 1961. Bæði hafa þau Eirík- ur verið virk og bætandi í því sem til heilla horfir í samfélaginu: Ása var meðal stofnfélaga Kvenfélags Laugdæla og Eiríkur átti mestan þátt í stofnun Lionsklúbbs í Laugardalnum. Hér er gengin góð og mikilhæf kona sem kvödd er með virðingu og þökk. Fyrir 15 árum kenndi Ása fyrst þess sjúkdóms sem nú hefur sigrað hana eins og svo marga aðra, þ.e. krabbameins. Hún gekkst þá undir aðgerð og náði allgóðum bata. Fyr- ir rúmum tveimur árum gekkst hún undir aðra stóra aðgerð og enn leit út fyrir að hún fengi heilsu á ný. Svo fór þó ekki, hún veiktist aftur á sl. vetri og nú báru tilraun- ir til lækninga lítinn árangur; þó komst hún á fætur og fylgdi raun- ar fötum lengst af þar til heilsu hennar hrakaði snögglega rúmri viku áður en hún lést. Og reisn sinni hélt hún til hinstu stundar. Á sama tíma og Ása var sjálf haldin banvænum sjúkdómi varð hún fyrir sárum raunum og ást- vinamissi. Tvö barna hennar dóu í blóma lífsins og tveir bræðra henn- ar á síðustu tveimur árum, báðir af völdum sama sjúkdóms og hún. Hún beitti ætíð kröftum sínum til

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.