Morgunblaðið - 23.06.1994, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ1994 37
FRÉTTIR
Vitni vantar
UM KL. 16 föstudaginn 17. júní
síðastliðinn voru tveir eða þrír
menn á ferð við Þingvallaveg
skammt ofan við Ljósafossvirkjun
með um tíu hesta og voru sex
þeirra, að talið er, lausir. Tveir
hestanna hlupu upp á veg og lentu
þar á bíl sem var í bílaröð á leið
frá Þingvöllum. í öðrum hestinum
hékk einhvers konar spotti, líkiega
vír, sem slóst í bílinn. Auk þess
sem hesturinn straukst utan í
hann.
Lögreglan á Selfossi biður þá
menn sem þessum hestum fylgdu
að hafa samband við lögreglustöð-
ina á Selfossi í síma 98-21111.
Islandskvöld
í Norræna
húsinu
FIMMTUDAGINN 23. júní kl. 20
verður fyrsta Islandskvöldið eða
Opna húsið í Norræna húsinu á
þessusumri.
Á íslandskvöldinu eru haldnir
fyririestrar um land og þjóð og er
þessi dagskrá einkum ætluð
Norðurlandabúum. Fyrirlestrarnir
eru því fluttir á einhverju Norður-
landamálanna. Fyrirlesararnir eru
allir sérfræðingar á sínu sviði og
efnið fjölbreytt eftir því: Jarð-
fræði, þókmenntir, handritin, um-
hverfismál, íslenskir fuglar, kvik-
myndir og rímur. Að loknum fyrir-
lestri og kaffihléi verður sýnd kvik-
mynd frá íslandi.
Fyrsti fyrirlesarinn á íslands-
kvöldi verður Ari Trausti Guð-
mundsson jarðeðlisfræðingur.
Hann talar á norsku um landa-
fræði íslands, eldíjöll og heita
hveri. Islands geologi, vulkaner og
varme kilder. Bókasafn og kaffi-
stofa eru opin til kl. 22 á fimmtu-
dagskvöldum.
Fimmtudaginn 30. júní fjallar
Dagný Kristjánsdóttir bókmennta-
fræðingur um íslenskar bókmenntir.
Aðgangur er ókeypis og allir eru
velkomnir.
• •
Okumanns
jeppa leitað
LÖGREGLAN í Reykjavík óskar
eftir að hafa tal af vitnum að
árekstri, sem varð föstudaginn 27.
maí í miðbæ Reykjavíkur. Sérstak-
lega er óskað eftir að ökumaður
blás Pajero-jeppa gefi sig fram.
Um kl. 8.40 að morgni þessa
dags skullu Mitsubishi Galant og
Volvo saman á gatnamótum
Lækjargötu, Kalkofnsvegar og
Hverfisgötu. Ökumenn greinir á
um stöðu umferðarljósanna. Talið
er að ökumaður á bláum Mitsubis-
hi Pajero jeppa hafi orðið vitni að
árekstrinum og er hann beðinn að
hafa samband við slysarannsókna-
deild lögreglunnar, sem og aðrir
þeir sem gætu veitt upplýsingar.
Fjölskyldu-
hátíð á Búðum
á Jónsmessu
KVENNAKLÚBBUR íslands
stendur fyrir fjölskylduhátíð á
Búðum á Jónsmessu. Sigríður
Ævarsdóttir formaðúr klúbbsins
sagði að hátíðin væri hugsuð til
þess að ijölskyldur tengdust og
fólk gerði eitthvað saman. Það
verður frítt inn á hátíðina og á
tjaldstæði.
Sigríður segir að grilluð lúða
verði á boðstólnum á laugardags-
kvöldið, útskriftanemar Leiklista-
skólans munu sýna Draum á Jóns-
messunótt í hrauninu á miðnætti
á föstudaginn. Og að sjálfsögðu
verði velt sér uppúr dögginni á
Jónsmessunótt. Fjörur verða
gengnar og rusli safnað á klyfja-
hesta, og það feijað burt á bátum.
Hátíðin mun standa frá föstudegi
til sunnudagskvölds.
j1 þvottavéIar
eru á um það bil
27.000* íslenskum heimilum
AEG þvottavélar eru á tvöfalt fleiri heimilum
er næstalgengasta þvottavélategundin.
Yfir 85% þeirra, sem eiga AEG þvottavél, mundu vilja kaupa AEG aftur.
Hvað segir þetta þér um gæði AEG þvottavéla? Eða AEG yfirleitt?
Þriggja ára ábyrgð
á öllum AEG þvottavélum
þvottavélar eru framleiddar í Þýskalandi.
AEG Lavamat 508
VinduhraSi 800 sn/mín,
tekur 5 kg., sér hitavalrofi,
ullarforskrift, orkusparnaðar-
forskrift, orkunotkun 2,1 kwst
á lengsta kerfi, einföld og
traustvekjandi. Kr. 75.149.
Stgr. kr. 69.889.
AEG Lavamat 920
Vinduhraði 700/1000 +
áfangavindingu, tekur 5 kg„
sér hitavalrofi, sérstök
ullarforskrift, orkusparna&ar-
forskrift, UKS kerfi (jafnar tau
í tromlu fyrir vindingu),
sér hnappur fyrir viðbótarskolun,
orkunotkun 2,0 kwst á lengsta
kerfi. Kr. 88.765 Stgr. 82.551.
AEG Lavamat 9451
Vinduhraði 700/1000/1200 +
áfangavinding, tekur 5 kg„
sér hitavalrofi, sérstök
ullarforskrift, orkusparnaðar-
forskrift, UKS kerfi (jafnar tau í
tromlu fyrir vindingu),
froðuskynjunarkerfi,
sér hnappur fyrir viðbótarskolun,
orkunotkun 1,9 á lengsta kerfi.
Kr. 99.832 Stgr. 92.844.
Umbobsmenn um land allt
‘Samkvæmt markaðskönnun
Hagvangs í des. 1993.
B R Æ Ð U R N I R
ORMSSONHF
Lágmúla 8, Sími 38820
ÓTRÚLEGT VERÐ!
AMICA eldavélar
Undirhiti, yfirhiti, blástur, grill, blástursgrill.
Keramik yfirborð eða emelerað yfirborð.
VERÐ FRÁ KR. 34.590,-
STAÐGREITT KR. 32.860,-
Funahöfða 19, sími 875680.
Blab allra landsmanna!
-kjarni málsins!