Morgunblaðið - 23.06.1994, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
TUI5 15 YOUR REPORTCARD?
YOU SOT ALL'lA'S"ÍU;OU)!
HOW PIP YOU DO IT 7
l M A &00D STUDEMT...
I SHOLU UP ONTIME.AND
/I DO UUHAT l'M TOLD..._
vr
Er þetta einkunnaspjaldið þitt?
Þú fékkst A í öllu! Vá! Hvernig
fórstu að því?
Ég er góður nemandi... ég mæti
á réttum tíma, og geri það sem
mér er sagt...
og ég lita á milli línanna!
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
Olögmæt notkun
á vörumerki
Svargrein í tilefni
fréttar
Frá GMÞ Bílaverkstæðinu hf.:
G.M. Bílaverkstæðið hf. hefur fengið
úrskurð Samkeppnisráðs um að skilti
fyrirtækisins svipi um of til skrásetts
vörumerkis GM, en Bílheimar hf. eru
umboðsaðilar þess merkis. Er því
fyrirtækinu gert að breyta merkinu
og hefur það verið gert og fyrirtæk-
ið fengið nýtt heiti: GÞM Bílaverk-
stæðið hf. Það stendur fyrir General
Motors Þjónusta og veitir því við-
skiptavinum upplýsingar um sérhæf-
ingu og þjónustu þessa fyrirtækis
að Fosshálsi 27, sem er aðili að Bíl-
greinasambandi íslands og innan
þess eru einungis viðurkennd bif-
reiðaverkstæði. Svo vill til að um-
boðsfyrirtækið flutti í sömu götu og
GMÞ bifreiðaverkstæðið - því stutt
Danskar
kveðjur til
Islendinga
VINIR íslands senda hjartanlegar
hamingjuóskir í tilefni 50 ára afmæl-
isins._ Sérstaklega sendum við þeim
115 íslendingum kveðjur, sem hafa
stundað nám við St. Restrup-skól-
ann, en einnig öðrum landsmönnum,
sem hefur tekist að byggja upp svo
gott samfélag við erfið skilyrði.
Hjartanlegar kveðjur
Bergljót og Svend Haugaard.
er þar í góða þjónustu - og gerði
það að verkum að Bílheimar hf. (sem
ranglega er sagt vera skráð G.M.
Bílheimar í frétt Morgunblaðsins 15.
júní sl.) urðu viðkvæmir fyrir heiti
þjónustuverkstæðisins.
Rétt er að árétta að tilurð GMÞ
bílaverkstæðisins (áður G.M. Bíla-
verkstæðisins) varð með þeim hætti
að við eignaskipti Jötuns (SIS) ósk-
uðu nýir eigendur eftir því að'nýtt
sjálfstætt verkstæði yrði stofnað því
gerður yrði við það þjónustusamning-
ur. Með slíkt vilyrði, sem ekki var
efnt, var hið nýja þjónustuverkstæði
stofnað að Fosshálsi 27. En nýju
umboðseigendurnir ákváðu að reka
sjálfir þjónustuverkstæði og er það
af hinu góða fyrir viðskiptavini að
hér ríki samkeppni. Við GMÞ Bíla-
verkstæðið starfa bifvélavirkjameist-
arar, nokkrir af fyrrum starfsmönn-
um Jötuns, með áralanga sérhæfingu
í viðgerðum á GM, Opel og Isuzu.
Allur tækjabúnaður er hinn full-
komnasti. Nýjustu bilanagreiningar-
tæki eru til staðar. GMÞ Bílaverk-
stæðið kaupir varahluti hjá umboðinu
en flytur sjálft inn marga varahluti
til að lækka allan kostnað sem frek-
ast er kostur. Einnig eru sérpantaðir
varahlutir að ósk eigenda.
G.M. Bílaverkstæðið hefur aldrei
auglýst að það væri viðurkennt af
innflytjanda. Það telur ekki ástæðu
til að auglýsa hvað það sé ekki.
Markmið auglýsinga er jafnan annað
og uppbyggilegra. Með hinu nýja
heiti þjónustuverkstæðisins „GMÞ
Bílaverkstæðið hf.“ mun það kapp-
kosta að veita bíleigendum gæða-
þjónustu á sanngjörnum kjörum.
GMÞ BÍLAVERKSTÆÐIÐ HF,
Fosshálsi 27, Reykjavík.
Athugasemd við gagn-
rýni Agústu Johnsen
Frá Magréti Þorvaldsdóttur:
í SÍÐUSTU viku birti Ágústa John-
son grein hér í Morgunblaðinu sem
gagnrýni á viðtal mitt við Sóleyju
Jóhannsdóttur 7. júní um nýjar og
breyttar áherslur í líkamsrækt. Þar
sem Ágústa er mjög óvægin og grein
hennar hlaðin meinfýsi í garð viðmæ-
lenda míns, verður því ekki tekið
athugasemdalaust.
Sóley var beðin um að veita um-
rætt viðtal. Upplýsingar til almenn-
ings um líkamsrækt í líkamsræktar-
stöðvum hafa verið mjög takmarkað-
ar. Fólk vill gjarnan fá meiri fræðslu
um áherslur í líkamsrækt enda er
hún talin auka heilbrigði og vera
mjög mikilvæg í allri heilsuvernd.
Þegar fólk kaupir sér tíma á líkams-
ræktarstöðvum, veit það sjaldnast
að hvetju það gengur — það verður
njótandi eða þolandi allt eftir því
hvort æfingarnar henta þeim eða
ekki.
Viðbrögð við viðtalinu hafa verið
óvenju mikil. Hægari æfingar — frá-
bært, segir fólk, — tímabært að
málið sé tekið fyrir. Hér virðist vera
fjöldi fólks sem gjarnan vildi sækja
líkamsræktartíma reglulega ef
tryggt væri að æfingarnar væru við
hæfi og bæru tilætlaðan árangur.
Margir sem sótt hafa tíma á líkams-
ræktarstöðvum hafa verið settir í svo
hraðar og erfiðar æfingar að þeir
hafa hreinlega gefíst upp. Ástæðan
fyrir því að Sóley var beðin um viðtal-
ið var sú, að þær líkamsæfingar sem
hún hefur boðið upp á hafa reynst
mörgum vel sem gefist hafa upp
annars staðar, greinarhöfundur þar
með talinn. Þess má geta hér, að
gefnu .tilefni, að greinarhöfundur
hefur kynnt sér málin m.a. með því
að sækja líkamsræktartíma í stúdíói
Ágústu Johnson.
Eróbik virðist vera teygjanlegt
hugtak, hér á landi hefur það verið
notað yfir hraðar líkamsæfingar og
verið auglýst sem slíkt. Þessar æf-
ingar henta vafalaust mörgum — en
ekki öllum og var viðtalið ekki síst
ætlað þeim til fróðleiks og uppörvun-
ar.
Ágústu skal bent á að tilgangurinn
með komu á líkamsræktarstöð er að
auka styrk og vellíðan en ekki að
örmagnast. Það er ekki nóg að hafa
uppgötvað „geislaspilarann“, það
þarf líka að gera sér grein fyrir því
hvernig á að stilla hann.
MARGRÉT ÞORVALDSDÓTTIR
Gagnasafn
Morgunblaðsins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður fram-
vegis varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskil-
ur sér rétt til að ráðstafa efninu
þaðan, hvort sem er með endur-
birtingu eða á annan hátt. Þeir
sem afhenda blaðinu efni til
birtingar teljast samþykkja
þetta, ef ekki fylgir fyrirvari
hér að lútandi.