Morgunblaðið - 23.06.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1994 21
LISTIR
Ný ljóðabók eftir
Matthías Johaunessen
Matthías Johannessen
HINN 17. júní gaf Bókmenntafélagið
Hringskuggar út ljóðabókina Land mitt
og jörð eftir Matthías Johannessen.
Bókin er 53 síður að stærð í A5-broti.
Kápumynd gerðí Gylfi Gíslason mynd-
listarmaður.
í fréttatilkynningu útgefanda segir að
heiti bókarinnar, Land mitt og jörð, gefi
glögga mynd af yrkisefni skáldsins og
óþarft sé að fara nánar út í þá sálma hér.
Verð bókarinnar í verslunum er 980
krónur, en 750 krónur til féiagsmanna
Bókmenntafélagsins Hringskugga. Þess
má að lokum geta, að 50 eintök eru tölu-
sett og árituð af skáldinu.
FRÍÐUR Sigurðardóttir og Halla Soffía Jónasdóttir með
undirleikara sínum Kára Gestssyni.
Tónleikar á
Dalvík
TÓNLEIKAR verða í Dalvíkurkirkju á
morgun föstudaginn 24. júní kl. 21. Fríð-
ur Sigurðardóttir sópran og Halla S. Jóns-
dóttir sópran syngja einsöng og tvísöng.
Kári Gestsson leikur með á píanó.
A efnisskrá eru íslensk tvísöngslög í
meirihluta, en einnig eru einsöngslög eft-
ir Sibelius, Börresen o. fl. íslenskir höf-
undar eru Eyþór Stefánsson, Pétur Sig-
urðsson, Jón BJörnsson, Bjarni Þorsteins-
son, Sigurður Þórðarson, Þórarinn Guð-
mundsson, Friðrik Jónsson, Karl Ó. Run-
ólfsson, Sigurður Demetz Fransson,
Björgvin Þór Valdimarsson og Ingi T.
Lárusson.
Miðasala er við innganginn.
Nýjar bækur
■ Af blöðum Jóns forseta er
komin út. Tilefnið er 50 ára af-
mæli lýðveldis íslendinga og var
útgáfudagur, fæðingardagur Jóns
Sigurðssonar forseta, þann 17.
júní. í kynningu útefanda segir:
yJón Sigurðsson var ekki forseti
Islands en hann var forseti íslend-
inga í huglægum skilningi, frelsis-
hetja og leiðtogi á torsóttri braut
okkar til sjálfstæðis. Sem slíkan
þekkjum við hann, en höfum síður
gefið gaum að öðru sem þessi ein-
staklega skarpskyggni og afkasta-
mikli fræði- og stjórnmálamaður
fékkst við og ritaði um. í málum
fóstuijarðarinnar lét hann sér ekk-
ert óviðkomandi sem miðað gat til
framfara í landinu.
Af blöðum Jóns forseta er sýnis-
bók ritverka hans um önnur efni
en sjálfstæðismálið. I henni er að
finna ritgerðir um skólamál, versl-
unaiTnál og heilbrigðismál. Tvær
ritgerðir eru mestar - um skóla-
mál og verslunarmál. Þær eru svo
ítarlegar og efnismiklar að hvor
fyrir sig nægir í heila bók og báð-
ar eru brautryðjandi verk. Af blöð-
um Jóns forseta er ætluð öllum
íslendigum því að öll hljótum við
að vilja kynnast nánar þjóðskör-
ungi okkar sem við tengjum landi
okkar og sjálfstæði með þjóðhátíð-
ardeginum, fæðingardegi hans.
Auk ritgerða Jóns Sigurðssonar
er í bókinni aðgengileg ævisaga
hans eftir Sverri Jakobsson sagn-
fræðing sem valdi ritgerðirnar.
Sverrir skrifar einnig stuttan inn-
gang 'að hverri ritgerð og skýring-
ar við þær.“
Af blöðum Jóns forseta, sem
kemur út á 50 ára afmæli íslenska
lýðveldisins, er bæði vegleg og
falleg - sannkallað hátíðarrit.
Bókin er 320 bls. prýdd um 20
myndum og kostar 4975 krónut',
en er boðin á kynningarverði í
sumar, 3980 krónur. Prentsmiðjan
Oddi hf. í Reykjavík sá um prentun
og bókband og útgefandi er Al-
menna bókafélagið hf.
Drogtir
Kjólar
Blússur
Pils
Ódýr náttfatna&ur g
11
Maestro
Maestro
Maestro
Maestra
Maestro
Tvöfaldið möguleika ykkar
- með því að velja Maestro debetkort!
Það er snjall leikur að hafa kreditkort frá einu
fyrirtæki - en debetkort frá öðru. Með því móti
tryggið þið ykkur aðgang að fleiri en einu
greiðsluneti um allan heim.
Fáið ykkur Maestro debetkort í næsta banka eða sparisjóði.
r r
MEISTARIA SINU SVIÐI!
Maestro
Maestro
Maestro
Maestro
Maestro