Morgunblaðið - 23.06.1994, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
VIKUNNAR
Raðgreiðslurnar bera
hæstu leyfilegu vexti
SOL OG SUMAR UPP A KRIT ?
Hvað kostar að fá lán
fyrir sumarleyfisferðinni.
LANSKJOR: ___
Vaxtaprósenta: 10,2%
Gjalddagar 6, mánaðarl.
Kostn. pr. gjaldd. 100 kr.
LANTOKUKOSTNAÐUR
LánskosÍnMlMrooo.-
Vextir: 6.157,-
Kostn. v. gjaldd.: 600.-
Lántökukostn. alls:
13.757 kr.
Útreikningar
eru fengnir
hjá Visa Island.
Eurocard býður
svipuð kjör, en
kostnaður vegna
gjalddaga er þar
150 kr. pr. gjalddaga.
Gólfdúkar
úr nátt-
úrulegum
efnum
KJARAN hf. hefur nú hafið inn-
flutning á nýjum gólfdúkum, svo-
kölluðum Artoleum-dúkum, fram-
leiddum úr náttúrulegum efnum
og er sýning á þeim í húsakynnum
fyrirtækisins í Síðumúla 14 til
loka júnímánaðar.
Þetta er ný tegund af „linole-
um“ sem er árangur fimm ára
þróunarstarfs hjá Forbo-Kromm-
enie í Hollandi sem er stærsti lin-
oleum-framleiðandi í heimi.
Kostnaður við þróunarstarfið er
nú komin í 3,5 milljarða ísl. króna.
Framleiðslan er byggð á nýrri og
áður óþekktri framleiðsluaðferð
Lakkrís-
neysla
áhættusöm?
HÓFLEG lakkrísneysla kann að
vera áhættuþáttur fyrir háan
blóðþrýsting, skv. niðurstöðum
nýlegrar íslenskrar rannsóknar.
Frá þessu segir í Læknablaðinu.
Fengnir voru 30 heilbrigðir
sjálfboðaliðar til að neyta 100 g
af lakkrís daglega í 4 vikur og
var notast við svartan, íslenskan
lakkrís. Rannsóknin sýndi mark-
verða hækkun á blóðþrýstingi,
bæði hjá körlum og konum, en
meiri hjá konum, og var mest í
3. viku.
nn P^■jKr iggjffr
Eccentrics Naturals
rj^S.
Blues Impression- ists
1.’ ' .«
Poetics Orientals
Nýju dúkunum er skipt í sex
mismunandi litahópa, sem hver
um sig býður upp á ólíkar litasam-
setningar.
og að sögn Halldórs A. Halldórs-
sonar, sölustjóra, sem segir að
hér sé á ferð bylting á gólfdúka-
markaðnum.
Allt frá miðjum 5. áratugnum
hefur linoleum einungis fengist
einlitt eða með marmaraáferð.
Með áður óþekktri framleiðslu-
tækni er nú hægt að raða niður
litum í dúkinn af miklu meiri
nákvæmni en áður var. Artoleum-
dúkum er skipt í sex mismunandi
litahópa og hefur þar ipeð hefð-
bundnum takmörkunum í
mynstursamsetningum verið rutt
úr vegi auk þess sem vænta má
fleiri tilbrigða á næstunni. Þá
býður hver og ein af litalínunum
sex upp á innbyrgðis ólíkar lita-
samsetningar. Loks má geta þess
að fermetrinn kostar staðgreiddur
1.950 krónur.
Tæplega 14 þús. kostn-
aður leggst á 200 þús.
kr. lán, sem borgað er
með jöfnum afborgunum
á 6 mán. Þar af fer rúm-
ur helmingur í lántöku-
kostn. eða 7 þús. kr.
ÞEGAR keyptar eru ferðir til útlanda
hjá ferðaskrifstofunum er hægt að
semja um raðgreiðslur. Algengast er
3ja-6 mánaða greiðslutímabil sumar-
leyfisferða þó dæmi séu um allt að
tíu mánaða jafnar afborganir. Sam-
kvæmt upplýsingum frá ferðaskrif-
stofunum er nokkuð algengt að menn
nýti sér raðgreiðslur þó þeim fylgi
nokkur kostnaður, enda er hér um að
ræða lán á hæstu leyfílegu vöxtum
hverju sinni. Auk þess verða menn
af 5% staðgreiðsluafslætti, sem flestar
ferðaskrifstofur veita viðskiptavinum,
sé ferðin greidd út í hönd.
Verðkönnun vikunnar er að þessu
sinni helguð sumarfríinu, en í því
dæmi sem við ákváðum að taka fyrir,
er gert ráð fyrir 3ja vikna ferð til
útlanda fyrir kjamafjölskylduna, það
er hjón og tvö böm, og gerum við ráð
fyrir að ferðin kosti 200 þúsund krón-
ur. í þeirri tölu er flug báðar leiðir
fyrir alla fjölskyldumeðlimi, flugvalla-
skattar, ferðir til og frá flugvelli, hótel-
kostnaður og íslensk fararstjórn.
Gert er ráð fyrir að fjölskyldan
haldi utan í byijun júlí og borgi ferða-
lagið upp á sex mánuðum. Gengið
verður frá kaupum þann 1. júlí, sem
er þá jafnframt fyrsti vaxtadagur, en
fyrsti gjalddagi af sex er 31. júlí og
síðan mánaðarlega uns lánið er að
fullu greitt 31. desember 1994. _Sam-
kvæmt upplýsingum frá VISA Island
eru vextir af raðgreiðslum breytilegir,
en taka má hæstu leyfilegu vexti á
hverjum tíma. Sem stendur nema
vextimir 10,2%. Auk þess leggst 3,5%
lántökukostnaður á upphaflega láns-
upphæð, sem í tilfelli fjölskyldunnar
eru 7 þús. kr. Þá rukkar kortafyrir-
tækið inn 100 kr. þjónustugjald á
hvern gjalddaga og er það eini kostn-
aðurinn, sem korthafinn verður fyrir
af hálfu þess.
Samkvæmt útreikningum þarf fjöl-
skyldan að greiða tæpar 14 þúsundir
króna í kostnað vegna raðgreiðsln-
anna. Hann skiptist þannig að 7.000
kr. fara í stimpil- og lántökugjöld,
vextir nema 6.157 krónum og korta-
fyrirtækið innheimtir 600 krónur
vegna sex gjalddaga. Samtals er þetta
13.757 kr.
Ef lánið er gi-eitt upp fyrir loka-
gjalddaga á skuldari rétt á lækkun
lánskostnaðar, sem nemur þeim vöxt-
um eða öðrum kostnaði sem greiða
átti eftir greiðsludag. Aftur á móti
fellur á lánið vanskilakostnaður sé
ekki greitt á gjalddaga.
Vasasími
Sauðárkróki.
í TILEFNI Sumarsæluviku Skag-
firðinga sem nú stendur yfir tóku
sig saman forsvarsmenn veit-
ingahúsanna á Sauðárkróki og
létu sérbrugga bjór fyrir vikuna.
Bjórinn ber nafn eins af þekkt-
ustu alþýðulistamönnum þessa
Iands, Skagfirðingsins Sölva
Helgasonar, sem gjarnan nefndi
sig Sólon íslandus.
Þegar fyrsta sending af þessum
„eðalvökva" barst til Sauðár-
króks var gestum og gangandi
boðið að bragða á Sólon. Fyrir
því stóðu Elías Guðmundsson
Hótel Mælifelli, Vigfús Vigfússon
Hótel Áningu, María Björk
Ingvadóttir Kaffi Krók, Örn Ingi
Skagfirskur
mjöður á
Sumar-
sæluviku
frkvstj. Sumarsæluviku og Guð-
mundur Jónbjörnsson Pizzahús-
inu Pollanum. Var það mál
manna að bjórinn væri mjög
bragðgóður og ekki talið líklegt
Morgunblaðið/Björn Björnsson
að birgðir entust lengi. Miði flös-
kunnar er ein af teikningum
Sölva Helgasonar, mannsmynd,
líklega sjálfsmynd, með miklu
rósaflúri umhverfis, en á bakhlið
flöskunnar stendur: „Sólon ís-
landus, skagfirskur mjöður“ og
síðan er vísa um Sölva Helgason
eftir ókunnan höfund:
í minnisranni margvitur,
málverkanna snillingur,
Helga sannur Sölvi bur,
Sólon annar, spekingur.
Sólon íslandus verður til sölu
á öllum þeim stöðum, sem hafa
vínveitingaleyfi í Skagafirði, á
meðan á Sumarsæluviku stendur.
Lítill sími sem
jafnvel má fara
með til útlanda
í ágúst er áætlað að nýtt far-
símakerfi verði komið upp hjá
Pósti og síma. Kerfið er staf-
rænt af GSM gerð og er dýr-
ara en venjulega farsíma-
kerfið. Símarnir sem um
ræðir eru fyrirferðarlitlir,
þeir nettustu eru einungis
nokkur hundruð grömm
að þyngd og því auðvelt
að hafa þá í vasa eða
veski. Símana er
góðu móti hægt að nota
innanhúss og lítið mál
að slá á þráðinn þegar
beðið er í biðröð í
banka eða verið að
bíða við kassa í stór-
markaði. Fljótlega
geta íslendingar
notað þennan síma
á ferð um Evrópu.
þýðir að íslendingar á ferð í útlönd-
um geta bara haft símann í vasanum
og hringt frá Evrópu heim til ís-
lands og símtölin fara þá á reikning-
inn heima. Enn hefur ekki verið
ákveðin gjaldskrá fyrir símtöl er-
lendis frá.
Það
Að sögn Hrefnu Ingólfsdótt-
ur upplýsingafulltrúa Pósts og
síma þarf að gera sérstakan
samning um notkun símanna í
landi og um áramót ætti
ninnsta kosti að vera hægt
að notfæra sér kerf-
ið á Norðurlöndum,
í Hollandi og Sviss.
í fyrsta áfanga er
áætlað að kerfið verði
sett upp á höfuðborg-
arsvæðinu og í Kefla-
vík og farsímasamband
á einnig að nást á vegin-
um milli staðanna. Kerf-
ið verður einnig virkt á
Akureyri frá upphafi.
Þegar er farið að prufu-
keyra kerfið á höfuðborg-
arsvæðinu.
Jdýrara en hafa
venjulegan farsíma
Umræddir símar í GSM far-
símakerfinu munu að sögn
Hrefnu kosta frá fimmtíu til
hundrað þúsund krónur og verð-
ur stofngjaldið 4.358 krónur,
ársfjórðungsgjald 1.898 krónur og
mínútan 25 krónur milli 8 og 22 á
virkum dögum og milli 8 og 18 um
helgar. Á öðrum tímum verður sama
gjald og í farsímakerfinu 16.60
krónur mínútan.
f
í
f
í
f
f
f
f
I
i
i
f
I
<
f
s
i
f
f
f