Morgunblaðið - 23.06.1994, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ1994
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ1994 2 5
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDl: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
. Styrmir Gunnarsson.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 691100.
Auglýsingar: 691111. Askriftir: 691122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 691329, frétt-
ir 691181, íþróttir 691156, sérblöð 691222, auglýsingar 691110, skrif-
stofa 681811, gjaldkeri 691115. Áskriftargjald 1.400 kr. á mánuði innan-
lands. í lausasölu 125 kr. eintakið.
HÆTTULEG
KÓREUDEILA
RÚMUM fjórum áratugum eftir Kóreustríðið á sjötta
áratugnum eru blikur á lofti á ný á Kóreuskaga
og ekki er lengur hægt að útiloka að til blóðugra átaka
komi.
Á undanförnum mánuðum hefur orðið ljóst að Kim
Il-sung, einræðisherra norðurhlutans, er reiðubúinn að
hundsa allar alþjóðlegar skuldbindingar til að geta hald-
ið áfram framleiðslu á kjarnorkuvopnum.
Norður-Kóreumenn, sem halda því ennþá staðfastlega
fram að þeir hafi ekki áhuga á kjarnorkuvopnum, hafa
neitað alþjóðlegum eftirlitsmönnum að fylgjast með
kjarnorkuiðnaði þeirra og virt öll fyrirmæii Sameinuðu
þjóðanna að vettugi.
Þessi nýja Kóreudeila er um margt sérstök. Annars
vegar er hún líklega síðasta kaldastríðsdeilan. Kórea
var, rétt eins og Þýskaland á sínum tíma, tákn um
skiptingu heimsbyggðarinnar í tvær hugmyndafræðileg-
ar herbúðir. Nú situr Norður-Kórea eftir sem síðasta
vígi hins stalíníska alræðis. Hins vegar er Kóreudeilan
einnig til marks um það hvaða mynd ríkjadeilur framtíð-
arinnar gætu tekið á sig.
Norður-Kórea er einangrað og fátækt ríki, sem lýtur
stjórn einræðisherra, er svífst einskis. Efnahagslega
og pólitískt skiptir Norður-Kórea engu máli á alþjóða-
vettvangi. Vegna hernaðarmáttar síns og hugsanlegra
gereyðingarvopna ógnar Norður-Kórea hins vegar öllu
umhverfi sínu í þessum hluta Asíu.
Talið er að hinn fjölmenni her Norður-Kóreu geti
með sólarhrings fyrirvara hafið skyndisókn inn í Suður-
Kóreu. Sumir hernaðarsérfræðingar eru jafnvel þeirrar
skoðunar að höfuðborg Japans og herstöðvar Banda-
ríkjamanna þar í landi séu í hættu ef til átaka kemur.
Kim Il-sung hefði engu að tapa í styrjöld og óttast
margir að hann myndi ekki hika við að beita taugagasi
og jafnvel kjarnavopnum þó svo að það myndi kosta
tortímingu Norður-Kóreu. Þetta er því ógn sem ber að
taka mjög alvarlega.
Það gerir líka deiluna enn flóknari að lítið sem ekk-
ert er vitað um áform norður-kóreskra stjórnvalda og
hvað fyrir þeim vakir. Deilan er að því leyti mjög ólík
Persaflóadeilunni, þar sem ljóst var að Saddam Hussein
sóttist eftir yfirráðum yfir nágrannarikjum sínum og
olíuauðlindum þeirra.
Markmið Norður-Kóreumanna eru ekki jafn gegnsæ.
Hugsanlegt er að Norður-Kóreumenn ætli að byggja
upp kjarnorkuvopnaforða til að geta beitt Vesturlönd
þrýstingi og farið fram á efnahagsaðstoð og hagstæðan
markaðsaðgang. Úkraínumenn hafa til að mynda reynt
að leika svipaðan leik.
Þá er margt sem bendir til að leiðtogar Norður-
Kóreu telji að með því að hóta stríði geti þeir samið um
að bandaríska herliðið hverfi á brott frá Suður-Kóreu.
Þar með væri Norður-Kórea komin í óskastöðu gagn-
vart nágrannaríkinu í suðri.
Ef látið yrði undan hugsanlegum kröfum Norður-
Kóreumanna um efnahagslega umbun yrði það eflaust
til að draga tímabundið úr spennu á Kóreuskaga. Það
gæti aftur á móti haft hrikalegar afleiðingar til lengri
tíma litið ef ekki verður komið í veg fyrir kjarnorku-
áform Norður-Kóreumanna.
Það væri stórhættulegt fordæmi ef einræðisríki á
borð við Norður-Kóreu tækist að storka umheiminum á
þennan hátt og koma sér upp kjarnorkuvopnabúri. Það
myndi ekki bara draga verulega úr pólitískum stöðug-
leika í austurhluta Asíu heldur heiminum öllum. Stjórn-
völd í Norður-Kóreu hefðu varla nokkrar siðferðilegar
efasemdir varðandi útbreiðslu kjarnavopna og þar með
væri búið að opna leið fyrir önnur einræðisríki til að
koma sér upp kjarnorkuvopnum.
ALÞJÓÐADÓMSTÓLLINN
Lagadeilur
um lögsögu
BARENT&HAF
Bjarnarey
Jan Mayen
Miðlína
ISLAND
RUSSLAND
Fiskvemdarsvæði
Norðmanna við Svalbarða
GRÆNLAND
Alþjóðadómstóllinn í Haag hefar komið veru-
—
lega við sögu í landhelgisbaráttu Islendinga.
Guðmundur Sv. Hermannsson rekur þessa
sögu í ljósi þess að undirbúningur virðist haf-
inn af hálfu íslenskra stjórnvalda að vísa þang-
að deilu við Norðmenn vegna fískveiða
við Svalbarða.
Ríkisstjórnin samþykkti á
þriðjudag að leita álits við-
urkenndra erlendra þjóð-
réttarfræðinga á réttar-
stöðunni á fiskverndarsvæði Norð-
manna við Svalbarða. Fyrirhugað
mun vera að leita til sérfræðinga
sem eru vanir málarekstri fyrir Al-
þjóðadómstólnum í Haag og því virð-
ist ríkisstjórnin vera að undirbúa
málssókn gegn Norðmönnum fyrir
dómstólnum.
íslendingar hafa aldrei rekið mál
fyrir dómstólnum því þegar Bretar
og Þjóðveijar kærðu þangað út-
færslu íslensku landhelginnar í 50
mílur árið 1972 neituðu íslendingar
að viðurkenna lögsögu dómstólsins
í málinu og héluu ekki uppi vörnum.
Það mál var þó talsvert annars eðlis
en Svalbarðadeilan nú.
Alþjóðadómstóllinn í Haag kom fyrst
saman 1946 sem arftaki Fasta milli-
ríkjadómstólsins. Samþykktir Al-
þjóðadómstólsins eru hluti af sátt-
mála Sameinuðu þjóðanna og því
eru aðildarríki SÞ sjálfkrafa aðilar
að dómstólnum. Ríki geta skuld-
bundið sig til að hlfta lögsögu dóm-
stólsins um allan lagalegan ágrein-
ing varðandi túlkun samninga en
Island hefur ekki gengist undir þetta
ákvæði fremur en meirihluti aðildar-
þjóða SÞ.
Stærstur hluti mála er fyrir dóm-
stólnum vegna þess að ríki gera með
sér samkomulag um að vísa ágrein-
ingsefnum þangað. í mörgum tilfell-
um er einnig í gildi milliríkjasamning-
ur milli ríkja sem kveður á um að
deilumálum skuli vísað til dómstóls-
ins. Þannig eru í gildi samningar
milli Norðurlandaþjóðanna, sem
gerðir voru árið 1930 í tilefni af Al-
þingishátíðinni, þar sem löndin skuld-
binda sig til að leggja innbyrðis rétt-
ardeilur sínar fyrir Fasta alþjóðadóm-
stólinn eða gerðardóm. A þessum
grundvelli telja sérfræðingar að ís-
lendingar geti vísað Svalbarðadeil-
unni til Alþjóðadómstólsins.
Umdeilt fiskverndarsvæði
Svalbarðadeilan snýst í raun um
það hvort Norðmenn hafi rétt til að
úthluta fiskveiðikvóta á hafinu um-
hverfis Svalbarða. 40 ríki eiga aðild
að svonefndum Svalbarðasamningi
og samkvæmt honum hafa Norð-
menn -full yfirráð yfir eyjunum og
er heimilt að grípa til verndarað-
gerða sem eiga þó að koma jafnt
niður á borgurum aðildarríkjanna.
Þau ríki eiga svo jafnan rétt til veiða
á landi og sjó innan fjögurra mílna
lögsögu og til að nýta
auðlindir á eyjunum.
Norðmenn hafa síðan
lýst yfir 200 mílna fis-
kverndarsvæði umhverfis _________
Svalbarða og vísað í því "
sambandi til laga um efnahagslög-
sögu Noregs. Telja Norðmenn sig
eina hafa rétt til að stjórna þar fisk-
veiðum og úthluta kvótum. Deilurn-
ar nú snúast einkum um það hvort
Norðmenn eigi að þafa eignarrétt á
fiskinum á þessu svæði, en síður um
rétt þeirra til að stjórna þar fiskveið-
unum út frá norskum fiskverndar-
lögum.
4,12 og 50 mílur
Alþjóðadómstóllinn í Haag tengd-
ist að nokkru leyti útfærslu íslensku
landhelginnar í fjórar mílur árið
1952. Skömmu áður hafði dómstóll-
inn kveðið upp úrskurð í landhelgis-
deilu milli Noregs og Bretlands
vegna þess að Norðmenn höfðu
dregið beinar grunnlínur milli ystu
annesja, eyja og skeija og þvert
fyrir mynni flóa og fjarða. Fjögurra
mílna landhelgi íslendinga var svo
ákveðin út frá grunnlínum sem
dregnar voru á sama hátt.
í deilu íslendinga og Breta sem
fylgdi í kjölfarið bauðst ríkisstjórn
Steingríms Steinþórssonar til þess
að vísa málinu til Alþjóðadómstóls-
ins en Bretar höfnuðu því. En árið
1961 var málskotsréttur til dóm-
stólsins hluti af samningum milli
Islendinga og Breta til að leysa lang-
vinnar deilur vegna útfærslu ís-
lensku landhelginnar úr fjórum míl-
um í tólf.
Mpð samningnum viðurkenndu
Bretar 12 mílna landhelgi íslands
og íslenska ríkisstjórnin lýsti því
yfir að hún myndi halda áfram að
vinna að framkvæmd ályktunar Al-
þingis um útfærslu fiskveiðilögsög-
unnar við ísland. Ríkisstjórn Bret-
lands yrði tilkynnt um slíka út-
færslu með sex mánaða fyrirvara
og risi ágreiningur um slíka út-
færslu skyldi honum, ef annar hvor
aðili óskaði, skotið til Alþjóðadóm-
stólsins. Samskonar samningur var
gerður við Þjóðveija.
Deilt um samning
Það var ríkisstjórn Hermanns
Jónassonar sem færði út Iandhelgina
1958 en viðreisnarstjórnin svo-
nefnda_ gerði þessa samn-
Engin alþjóða- inga- Ólafur Thors þáver-
|öa til um víð- andi forsætisráðherra
áw.. llnHhllai safcrði á A1Úngi að hann
attu landhelg. teIdi einna me«a ávinning
af samkomulaginu við
Breta að þaðan í frá myndi ekki
ofbeldi eða hervald skera úr um
hvort aðgerðir íslendinga yrðu virk-
ar, heldur alþjóðalög og réttur eins
og hann væri á hverjum tíma, að
mati óvilhallra dómara. Og í ályktun
Landssambands íslenskra útvegs-
manna var því sérstaklega fagnað
að ríkisstjórn Breta skuldbyndi sig
til að hlíta úrskurði alþjóðadómstóls
um frekari útfærslu landhelginnar.
Stjórnarandstöðuflokkarnir Al-
þýðubandalag og Framsóknarflokk-
ur, sem höfðu verið í ríkisstjórn þeg-
ar landhelgin var færð út 1958,
gagnrýndu samningana hins vegar
harðlega, sérstaklega ákvæðið um
Alþjóðadómstólinn. Hermann Jónas-
son formaður Framsóknarflokksins
sagði á Alþingi að með ákvæðinu
um Alþjóðadómstólinn væru íslend-
ingar að éta ofan í sig að þeir hefðu
haft heimild til að færa út landhelg-
ina án samþykkis Breta og lofuðu
að gera það aldrei aftur.
Lúðvík Jósepsson þingmaður Al-
þýðubandalagsins og fyrrverandi
sjávarútvegsráðherra sagði meðal
annars í þingræðu að ísland hefði
afsalað sér einhliða rétti til frekari
útfærslu fiskveiðilögsögunnar og
taldi það algera blekkingu að halda
því fram að raunverulega væri
hægt að láta Alþjóðadómstólinn
skera úr um deilur varðandi stærð
landhelginnar. Ástæðan væri sú,
að engin alþjóðalög væru til um
víðáttu landhelgi.
Lífshagsmunamál
Undir lok sjöunda áratugarins
hófst viðreisnarstjórnin handa við
að undirbúa frekari útfærslu land-
helginnar. í mars 1971 var reynt
að ná samkomulagi milli stjórnar
og stjórnarandstöðu um stefnu i
málinu en stjórnarandstæðingar
kröfðust þess að landhelgissamning-
unum við Breta og Þjóðveija yrði
sagt upp. Ríkisstjórnin vildi hins
vegar ekki ganga eins langt.
Ný vinstri stjórn tók við völdum
um mitt árið 1971 og í febrúar 1972
samþykkti Alþingi samhljóða þings-
ályktunartillögu um útfærslu land-
helginnar í 50 mílur þar
sem sagði að ákvæði samn-
inganna við Breta og Þjóð-
verja teldust ekki lengur
bindandi fyrir íslendinga. í
apríl vísuðu Bretar form-
lega deilumálinu um gildi samning-
anna frá 1961 til Alþjóðadómstóls-
ins. Mánuði síðar vísuðu Þjóðveijar
sínum samningi til dómstólsins.
íslenska ríkisstjórnin lagði
áherslu á að forsendur samningsins
frá 1961 væru brostnar vegna ger-
breyttra aðstæðna. Sagði Ólafur
Jóhannesson þáverandi forsætisráð-
herra í þingræðu að ólíklegt væri
að samningarnir hefðu verið gerðir
hefðu menn þá séð fyrir framvind-
una í fiskveiðum, fískveiðitækni og
réttarskoðun í_ landhelgismálum. Og
í bréfi Einars Ágústssonar utanríkis-
ráðherra til dómstólsins í lok maí
1972 segir að þar sem samningnum
hafi verið slitið hafi dómstóllinn ekki
lögsögu í málinu.
Mjög var um það deilt meðal ís-
lenskra stjórnmálamanna hvort ís-
lendingar ættu að veija málið fyrir
Alþjóðadómstólnum. Lúðvík Jóseps-
son segir í bók sinni Landhelgismál-
ið að alþýðubandalagsmenn hafi tal-
ið að ef Islendingar viðurkenndu
lögsögurétt dómstólsins væri úti um
allar tilraunir til að stækka lögsög-
una um sinn, og ef íslendingar sendu
fulltrúa til að taka þátt í mála-
rekstri fyrir dómnum yrðu þeir óhjá-
kvæmilega að hlíta úrskurði hans.
Jóhann Hafstein formaður Sjálf-
stæðisflokksins sagði hins vegar í
viðtali við Morgunblaðið á þessum
tíma, að me_ð því að senda málsvara
sinn gætu Islendingar engum rétti
glatað en aðeins styrkt réttarstöðu
sína.
Mættu ekki
Utanríkisráðherra tilkynnti Al-
þjóðadómstólnum formlega 29. júlí
1972 að íslendingar viðurkenndu
ekki lögsögurétt dómstólsins í land-
helgismálinu og myndu því ekki taka
þátt í málflutningi fyrir dómnum.
17. ágúst kvað dómstóllinn síðan
upp bráðabirgðaúrskurð um að ís-
lendingar ættu að hætta við að fram-
fylgja reglugerð um útfærslu land-
helginnar. I febrúar árið eftir úr-
skurðaði dómstóllinn að hann hefði
lögsögu í málinu á grundvelli samn-
inganna frá 1961. Og árið 1974
kvað dómstóllinn upp efnisdóm í
málinu, sem að hluta til
var hliðhollur Islending-
um þar sem útfærslan í
50 sjómílur var ekki talin
almennt brot á þjóðarétti.
Meginniðurstaða dóms-
ins var þó sú að íslendingar yrðu
að virða söguleg réttindi Breta og
Þjóðveija á íslandsmiðum og veita
þeim tímabundin veiðiréttindi innan
Iandhelginnar í samræmi við það.
En þegar hér var komið sögu
höfðu aðstæður gerbreyst. Samið
hafði verið við Breta og Þjóðveija í
lok ársins 1973 um lausn landhelgis-
deilunnar og undirbúningur að 200
mílna fiskveiðilögsögu var þegar
hafinn.
Útfærsla
landhelgi lífs
hagsmunir
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðufiokksins,
um lausnarbeiðni félagsmálaráðherra
Setti J óhönnu
engin skilyrði
Formaður Alþýðuflokks-
ins greinir í samtali við
Agnesi Bragadóttur
frá sínum sjónarmiðum
varðandi lausnarbeiðni
Jóhönnu Sigurðardóttur,
félagsmálaráðherra.
Jón Baldvin Hannibalsson, for-
maður Alþýðuflokksins, seg-
ist hafa flutt Jóhönnu Sigurð-
ardóttur, félagsmálaráðherra,
skilaboð frá æðstu stofnun Alþýðu-
flokksins, flokksþinginu, á þriggja
tíma fundi þeirra síðastliðinn sunnu-
dag. „Eg setti Jóhönnu Sigurðardótt-
ur engin skilyrði af neinu tagi,“ sagði
Jón Baldvin þegar Morgunblaðið náði
tali af honum í Helsinki í Finnlandi
síðdegis í gær. Jón Baldvin er væntan-
legur til landsins síðdegis í dag og í
kvöld er að hans sögn áætlað að þing-
flokkur Alþýðuflokksins komi saman
til fundar.
Jón Baldvin segir að félagsmála-
ráðherra hafi tilkynnt sér símleiðis á
mánudagskvöld að hún hefði í hyggju,
fyrir ríkisstjórnarfund á þriðjudag,
að leggja fram lausnarbeiðni sína til
forsætisráðherra. „Þetta var endan-
leg ákvörðun, að hennar sögn, sem
ég fékk engu um breytt,“ segir Jón
Baldvin.
Jón Baldvin kvaðst hafa verið önn-
um kafinn á fundum í Helsinki í Finn-
landi og því hefði hann lítt fylgst með
fjölmiðlaumfjöllun hér heima um
málið, eða hvaða skýringar félags-
málaráðherra hefði gefið opinberlega
á afsögn sinni.
„Að svo miklu leyti sem hún hefur
borið við málefnalegum ágreiningi,
hef ég þetta eitt um málið að segja,“
sagði Jón Baldvin: „Félagsmálaráð-
herra efndi til þess sem hún kallaði
uppgjör á nýafstöðnu flokksþingi, um
forystu flokksins og boðaði stefnu-
breytingar í ýmsum greinum. Flokks-
þingið kvað upp úr um það mál. Það
fór fram kosning um forystu flokksins
og sú kosning varð afdráttarlaus. Að
því er varðar meintan málefnaágrein-
ing, þá kom enginn málefnaágrein-
ingur fram á þinginu. Það er m.a.
staðfest af því að mikilvægasta álykt-
un þingsins, stjórnmálaályktun, var
samþykkt í einu hljóði. Félagsmála-
ráðherra virti þingið reyndar ekki
þess, að sækja þingið eftir að form-
annskjör þafði farið fram eða taka
þátt í umræðum um málefnalegar
niðurstöður. Þetta eru staðreyndir
málsins."
Jón Baldvin var spurður um hvað
væri hæft í því að hann hefði í sam-
tali sínu við Jóhönnu á sunnudag sett
henni skilyrði: „Ég hef heyrt að það
hafi verið staðhæft í íjölmiðlum að
ég sem formaður flokksins hafi sett
henni einhver skilyrði. Af því tilefni
vil ég taka skýrt fram að fyrir því
er ekki flugufótur. Ég setti Jóhönnu
Sigurðardóttur engin skilyrði af neinu
tagi. Að því erþetta mál varðar, skipt-
ir það eitt máli úr samtali okkar, að
ég minnti á niðurstöður flokksþings-
ins, og spurði hvort það stæði, að hún
eins og aðrir forystumenn flokksins,
myndi una niðurstöðum flokksþings-
ins og starfa af heilindum með.okkur
hinum að því að framfylgja þeirri
stefnu sem flokksþingið mótaði. Það
eru ekki skilyrði — það eru skilaboð
frá æðstu stofnun Alþýðuflokksins
og þeim skilaboðum hljótum við öll
að hlíta.“
Jóhanna Sigurðardóttir Davíð Oddsson
„FélagsmálaráðKerra
efndi til þess sem hún
kallaði uppgjörá nýaf-
stöðnu flokksþingi, um
forystu flokksins og
boðaði stefnubreytingar
íýmsum greinum.
Flokksþingið kvað upp
úr um það mál.H
- Hver verður næsti félagsmála-
ráðherra?
„Það ætla ég ekki að tilkynna sím-
leiðis frá útlöndum. Það verður til-
kynnt, þegar sú ákvörðun liggur fyr-
ir. Menn verða að hafa í huga að
afsagnarbeiðni ráðherra fer um hend-
ur forsætisráðherra. Það er forsætis-
ráðherra sem tekur við henni og á
rétt á að áskilja sér einhvern tíma til
þess að íhuga slíkt, og leita samráðs,
m.a. við formann og forystu sam-
starfsflokksins. Hins vegar er það
lagakvöð, að um leið og forseti, að
beiðni forsætisráðherra, staðfestir
lausnarbeiðni, verður jafnframt á
sama tíma að staðfesta hver fari með
forsvar viðkomandi ráðuneytis. Þess-
ar ákvarðanir verða teknar þegar ég
er kominn heim og hef haft ráðrúm
til eðlilegs samráðs við samstarfsfólk
mitt.“
- Forsætisráðherra greindi frá því
í ijölmiðlum í gær að þú hefðir í
gærmorgun greint honum frá því
hver yrði félagsmálaráðherra, en það
væri í þínum verkahring að greina
frá því opinberlega. Hvað vilt þú segja
um þetta?
„Þetta er á misskilningi byggt, en
hvernig hann er til kominn,
kann ég ekki að skýra,“
svaraði Jón Baldvin.
- Rannveig Guðmunds-
dóttir, formaður þingflokks Þ*
Alþýðuflokksins, hefur sagt
í fjölmiðlum að formaður
flokksins hafi ekki umboð
þingflokksins til þess að
ákveða einn hver verði fé-
lagsmálaráðherra. Hvað
segir formaðurinn um það?
„Ég hef aldrei leitað eftir
því umboði.“
- Hvenær finnst þér eðli-
legt að Jóhanna Sigurðar-
dóttir hætti sem félags-
málaráðherra?
„Það er ákvörðunarefni
forsætisráðherra, að höfðu
samráði við mig og þing-
flokk Alþýðuflokksins.“
— Hvenær mun það
liggja fyrir hver tekur við
af Jóhönnu?
„Ég geri ráð fyrir því að
það liggi fyrir fljótlega eftir
að ég er kominn heim.“
- Liggur fyrir ákvörðun
um það hvort óbreyttur
þingmaður verður gerður
að ráðherra, eða hvort ein-
hver ráðherra Alþýðu-
flokksins muni bæta við sig
verkefnum í ríkisstjórn?
„Nei, á þessari stundu liggur engin
slík ákvörðun fyrir.“
- Er formaður Alþýðuflokksins
hræddur um það, í kjölfar lausnar-
beiðni Jóhönnu, að hún hyggi á sér-
framboð? -t
„Ég hef ekki hugmynd um hver
eru áform félagsmálaráðherra. Hún
hefur ekki skýrt mér frá þeim.“
- Forsætisráðherra og sjávarút-
vegsráðherra hafa greint frá þeirri
skoðun sinni, hér í Morgunblaðinu og
víðar, að brotthvarf Jóhönnu Sigurð-
ardóttur úr ríkisstjórn veiki Alþýðu-
flokkinn í ríkisstjórnarsamstarfinu.
Ert þú sammála þessu mati samráð-
herra þinna úr Sjálfstæðisflokki?
„Óeining í forystuliði er ævinlega
til þess fallin að veikja flokka, meðan
hún stendur yfir.“
- Ertu þeirrar skoðunar að brott- *
hvarf Jóhönnu úr ríkisstjórn auki lík-
ur á því að gengið verði til alþing-
iskosninga í haust?
„Nei, ég held að hugsanlegar
haustkosningar ráðist af öðru,“ sagði
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður
Alþýðuflokksins og utanríkisráð-
herra, að lokum.