Morgunblaðið - 23.06.1994, Side 42

Morgunblaðið - 23.06.1994, Side 42
42 FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Tekur myndir fyrir tímarit í Boston KATRÍN Elvarsdóttir lauk námi úr Listaháskóla í Boston árið 1992 og hefur unnið við tískuljósmynd- ún í Boston og París. Hún tekur að sér allskyns verkefni á því sviði og hafa ljósmyndir hennar m.a. birst í nokkrum tímaritum í Bos- ton. „Eftir að ég útskrifaðist var ég dugleg við að ganga á milli fyrir- tækja og sýna ljósmyndamöppuna mína. Þegar ég fór síðan að fá úthlutað verkefnum varð auðveld- ara að koma sér að. Markaðurinn í tískuljósmyndun í Boston er það lítill að eftir að maður er búinn að fá birtingu nokkrum sinnum hefur maður fest sig nokkurn veg- inn í sessi, að því gefnu að eitt- hvað sé í það varið.“ Katrín hyggst dvelja í Boston allavega á næstunni eða þar til eiginmaður hennar Kristinn R. Þórisson hefur lokið námi. Eftir það er allt óráðið. Efst til vinstri má sjá ljósmynd Katrínar sem hún tók fyrir tímaritið „Stuff Magazine" en innfellda myndin er af búðar- gluggaútstillingu sem unnin var eftir ljósmyndinni. Myndin til hægri sýnir aprílhefti „Stuff Magazine" en ljósmynd Katrín- ar prýðir forsíðuna. FOLK George Michael tapar dómsmáli gegn Sony ►GEORGE Michael tapaði máli sem hann höfðaði fyrir dómstól- um í Bretlandi til að reyna að losna undan samningi sínum við útgáfufyrirtækið Sony. Líklegt er að réttarhöldin hafi kostað poppstjörnuna um 320 milljónir ísl. króna. Astæðan fyrir máls- höfðuninni var sú að hann taldi samninginn hefta listamanns- frelsi sitt og hann fengi of lágt hlutfall af hagnaðinum í sinn hlut. George Michael samdi við Sony til fimmtán ára, árið 1988. Við réttarhöldin kom það fram að Michael taldi Sony ekki hafa stutt við bakið á sér sem skyldi þegar hann reyndi að varpa af sér kyntáknsímyndinni og segja skilið við gelgjupoppið árið 1990. Þegar hann hefði neitað að gera tónlistarmyndbönd við plötuna „Listen Without Prejudice," hefði það valdið því að Sony hefði ekkert sinnt henni í kynningum sínum og með því hefði Sony hreinlega „drepið" plötuna. Dómarinn sagði í dómsúrskurði sínum að hann teldi forsendur samningsins frá árinu 1988 full- nægjandi og skilmálar hans væru að öllu leyti raunsæir og sann- gjarnir. A fréttamannafundi sem hald- inn var eftir dómsúrskurðinn sagðist George Michael ætla að áfrýja dómnum og halda áfram baráttunni fyrir réttindum tón- listarmanna sem væru arðrændir George Michael á gelgjuárum sínum sem poppari. af stórum útgáfufyrirtækjum. Hann sagði kjarna málsins vera þann að tónlistarmenn hefðu engin réttindi, jafnvel ekki til að segja upp og fæstir hefðu tíma eða efni til þess að standa fyrir máli sínu eins og hann væri að gera. „Jafnvel þó að ég semdi, spilaði og borgaði fyrir tónlist mína, myndi ég aldrei eiga neitt í henni,“ sagði Michael við frétta- menn. David Hughes talsmaður hljómplötufyrirtækisins EMI sagði hinsvegar að enginn hefði hagnast á sigri Michaels: „Það hefði verið þungt högg fyrir tón- listariðnaðinn." GEORGE Michael á leið til réttarhaldanna. Á morgun: Veröld Waynes 2 ÞETTA ER NÁTTÚRULEGA BILUN EN WAYNE OG GARTH ERU MÆTTIR AFTUR. HÁSKÓLABÍÓ, BORGARBÍÓ AKUREYRI, WAYNESTOCK. LIÐ Flugleiða, efri röð frá vinstri: Einar Guðlaugsson einnig liðs- stjóri, Gylfi Magnússon og Sturla Frostason. Neðri röð frá vinstri: Ómar Arason, Þorsteinn Geirharðsson og Snorri Ómarsson. Héldu uppi merki Islands ►FLUGLEIÐIR sigruðu í Evr- ópukeppni flugfélaga í golfi sem haldin var á Oberaula-golf- vellinum í Þýskalandi 17. júní síðastliðinn. Þetta var frækileg- ur sigur því til þessa hafa stóru flugfélögin verið allsráðandi í keppninni. Það sem gerði sigur- inn jafnvel enn sætari var að flugfélagið Cargolux lenti í öðru sæti en Islendingar voru í meirihluta í keppnisliði þeirra. Þorsteinn Geirharðsson úr liði Flugleiða gerði sér síðan lítið fyrir og sigraði einstaklings- keppnina. Sturla Frostason söng við góðar undirtektir á lokaathöfninni. Það vekur at- hygli að í liði Flugleiða voru feðgar, þeir Omar Arason og Snorri Omarsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.