Morgunblaðið - 23.08.1994, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1994 19
Deng Xiaoping níræður
Sænsk hneyksli
eftir pöntun
Sóst eftir óþægilegum upplýsingum
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
VALDAMESTI maður kínverska
kommúnistaflokksins, Deng Xia-
oping, varð níræður í gær. Honum
til heiðurs var, meðal annars, sett
upp ljósmyndasýning í Peking þar
sem þessi ónefndi borgarbúi leit
inn.
Stærsta blað landsins, Dngblnð
alþýðunnar, birti á forsíðu tíu ára
gamla mynd sem sýndi leiðtogann
glaðlegan, brosandi og reykjandi
sígarettu, og leiða fréttaskýrend-
ur getum að því, að myndin hafi
átt að slá á myndina af veikluleg-
um og titrandi Deng sem kom
fram í sjónvarpi í febrúar. I leið-
ara blaðsins var Deng hrósað fyr-
ir þjóðfélagsumbætur, sem hafi
gert Kínveijum mögulegt að efn-
ast, og voru þær sagðar jafn mikil-
vægar og marxisminn, lenínism-
inn og hugmyndir leiðtogans
mikla, Maos Tsetungs.
Kommúnistaflokkurinn hefur
veðjað öllu á hugmyndir Dengs
um aukið frelsi í efnahagsmálum,
um leið og alræði flokksins í
sljórnmálum er treyst í sessi. For-
ysta flokksins vill fyrir alla muni
forðast alla óvissu í stjórnmálum,
sem gæti fylgt í kjölfar fráfalls
Dengs, og aftekur með öllu mögu-
Ieika á valdabaráttu að Deng
gengnum.
Deng lét formlega af embætti
í stjórn landsins fyrir fjórum
árum, en hefur í raun ráðið því
að flokkurinn hefur sæst á kapít-
alískar hugmyndir sem einu sinni
voru forboðnar, allt frá verðbréfa-
mörkuðum til fasteigna einstakl-
inga. Efnahagsumbæturnar hafa
komið af stað í Kína einhveijum
hraðasta hagvexti i heiminum, og
hefur hann verið um 13 prósent
tvö ár í röð.
EFTIR hneykslismál í sænsku at-
vinnulífi undanfarna mánuði hafa
forstöðumenn ýmissa öryggis- og
upplýsingaskrifstofa, sem taka að sér
verkefni fyrir einkaaðila, upplýst að
iðulega sé leitað til þeirra eftir upp-
lýsingum, sem komið geti höggi á
leiðandi menn í stjórnmalum og at-
vinnulífi. í Bandaríkjunum er það
alþekkt fyrirbæri að ýmsir hafa at-
vinnu af því að leita eftir slíkum
upplýsingum, en ekki hefur áður
vitnast um slíka starfsemi á Norður-
löndum. Búist er við að einhver
hneykslismál komi brátt upp á yfir-
borðið, því þingkosningar verða í
Svíþjóð í september.
í grein í Svenska Dagbladet í vik-
unni er haft eftir Lars Moberg, yfir-
manni öryggis- og upplýsingafyrir-
tækis, að meðal þeirra, sem starfi í
þessum geira, sá álitið að afsögn
tveggja leiðandi manna í Svíþjóð
undanfarið, eftir að blöðin höfðu birt
fréttir um þá, eigi rætur að rekja til
þess að markvisst hafi verið safnað
upplýsingum um þá og þeim síðan
lekið til fjölmiðla. I vor neyddist Stig
Malm, fyrrum formaður sænska Al-
þýðusambandsins, til að segja af sér,
eftir að blöðin höfðu birt fréttir um
launasamninga, sem hann hafði gert
við yfirmenn í fyrirtækjum, tengdum
verkalýðshreyfingunni.
Aukin eftirspurn
Lars Moberg segir að fyrirtæki,
sem taka að sér að sjá um öryggis-
mál og leita upplýsinga um fólk,
nokkurs konar spæjaraskrifstofur,
fái í æ ríkari mæli beiðnir um að
safna upplýsingum um ákveðna að-
ila. Þær séu þess eðlis, að greinilega
eigi að nota þær annaðhvort til að
ná tökum á viðkomandi, eða til að
koma þeim á framfæri við flölmiðla.
Þeir sem panta slíkar athuganir eru
að leita eftir atriðum, sem orka tví-
mælis á einhvern hátt og sem hafa
á sér hneykslisblæ.
Þessi upplýsingaleit er ný í Sví-
þjóð, en eftirspurnin eykst hröðum
skrefum. Þó það hafi lengi tíðkast
að reyna að koma höggi á til dæmis
pólitíska andstæðinga er það nýtt
að upplýsingum skuli safnað mark-
visst og greitt fyrir þá söfnun. Slík
starfsemi er þróuð bæði í Bandaríkj-
unum og Bretlandi, þar sem stjórn-
málahneyksli eru fastir liðir.
Að sögn Mobergs berast pantanir
um slíkar persónunjósnir bæði frá
opinberum aðilum og einkaaðilum.
Hann segist nú hafa í athugun þrjá
leiðandi aðila í sænsku þjóðlífí, eftir
að hafa fengið pantanir þar að lút-
andi. Ef þeir sem panta vilja koma
upplýsingunum áleiðis til almennings
er haft samband við blaðamann sem
fær nægja vitneskju um málið til að
geta komið saman frétt. Þegar málið
er komið á kreik eru venjulega ein-
hveijir sem vilja bæta við vitneskjuna
og málið rúllar sjálfkrafa af stað eins
og snjóflóð. Blaðið hefur eftir Mo-
berg að blaðamennirnir séu mikil-
vægasta vopnið í þessu atriði máls-
ins. Ef vel tekst til, frá sjónarhóli
þeirra, sem komu málinu af stað,
lýkur því svo með afsögn þess, sem
málið snýst um.
Það eru öryggis- og eftirlitsfyrir-
tæki í einkaeigu, sem beðin eru um
að leita upplýsinganna. Fyrirtækin
eru undir venjulegu eftirliti hins opin-
bera hvað bókhald og annan rekstur
varðar, en ekki um einstök verkefni.
Meginverkefni flestra fyrirtækjanna
eru næturvarsla og eftirlit á mann-
lausum svæðum, til dæmis bygging-
arlóðum, en njósnastarfsemin er að-
eins lítill hluti reksturs þeirra.
Ernesto Zedillo hrósar sigri í forsetakosningumim í Mexíkó
Með litla per-
sónutöfra en vel
unna stefnuskrá
Mexíkó. Reuter.
Reuter
ERNESTO Zedillo, forsetaframbjóðandi Byltingarfiokksins í
Mexíkó, lýsir yfir sigri sínum í kosningunum sem haldnar voru
á sunnudag.
ERNESTO Zedillo, leiðtogi Bylting-
arflokksins (PRI) sem hrósaði sigri
í forsetakosningunum í Mexíkó á
sunnudaginn, skaut snögglega upp á
stjörnuhimininn í mexíkóskum
stjórnmálum með loforðum um aukið
frelsi í viðskiptum og herta baráttu
gegn djúpstæðri spillingu. Hann er
42 ára, og álitinn hæfur tæknikrati
með vel unna stefnuskrá, en heldur
skorta persónutöfra, og það gæti
reynst honum þrautin þyngri að auka
lýðræði í landinu án þess að missa
völdin sjálfur.
Þegar búið var að telja um 15
prósent atkvæða í gær hafði Zedilio
örugga forystu á Diego Fernandez
de Cevallos í Þjóðarflokknum og
Cuauthemoc Cardenas í Demókrata-
flokknum.
Óspennandi
Zedillo kom fram á sjónarsviðið í
lok mars, eftir að frambjóðandi Bylt-
ingarflokksins, Luis Donaldo Colosio
var myrtur á kosningafundi í Tiju-
ana. Þrátt fyrir andstöðu innan
flokksins tilnefndi fráfarandi forseti
flokksins, Carlos Salinas de Gortari,
Zedillo sem eftirmann sinn og
tryggði þannig frekari framgang
efnahagsumbóta sinna. Það varð úr
að flokksmenn fylktu liði að baki
nýja frambjóðandanum, og sérfræð-
ingar lögðu nótt við dag við að breyta
ímyndinni sem landsmenn höfðu af
honum sem vel gefnum en heldur
óspennandi manni.
„Við höfðum tæpa fimm mánuði
til þess að breyta honum úr óþekkt-
um tæknikrata í forseta," sagði einn
helsti ráðgjafi hans. Lögð var áhersla
á ímyndina um drenginn sem ólst
upp í verkamannastétt, en gat unnið
sig upp með dugnaði og góðum gáf-
um. Faðir Zedillos var rafvirki, móð-
ir hans hjúkrunarkona og sjálfur
gekk hann í lítt þekktan háskóla
áður en hann hélt til náms í útlöndum
og tók að lokum doktorspróf í hag-
fræði frá Yale-háskóla. Fyrir kosn-
ingarnar á sunnudaginn hafði hann
aldrei verið í framboði til opinbers
embættis.
Þungur róður
í kosningabará'ttunni kynnti Ze-
dillo hveija 10 þrepa áætlunina af
annarri um efnahaginn, réttarkerfið,
lýðræðið, landbúnaðinn, fátækt og
heilbrigðismál, auk stjómarfarsins.
Fréttaskýrendum þótti hann oftar
minna meira á stjórnarandstæðing
en arftaka forsetans, þar sem hann
beitti sér gegn spillingu innan
lögreglunnar og sérsveita hersins og
lofaði að byija nýja lýðræðistíma,
eftir áratuga einræði. Hann leggur
til að stofnaður verði sjóður til þess
að standa straum af verkefnum við
uppbyggingu innanlands og
ráðstöfunum til þess að auka
einkafjárfestingu, og væntir þess að
hagvöxtur aukist um að minnsta
kosti 3,8 prósent fyrir vikið.
Fáir stjórnmála- og fréttaskýrend-
ur hafa efast um ágæti áætlana
Zedillos, en hann hefur verið gagn-
rýndur fyrir að skorta pólitíska hæfi-
leika til þess að fylgja þeim eftir og
koma á jafnvægi í stjórnmálum
landsins. Hann segist vilja styrkja
löggjafarþingið, dreifa valdinu og
bæta samskiptin við aðra flokka.
En þar eð Zedillo verður að líkind-
um fyrsti forsetinn sem er kjörinn
með innan við 50% atkvæða og
stendur frammi fyrir sterkri stjórn-
arandstöðu á þinginu, má búast við
því að hann verði gagntýndur af
meiri óvægni en nokkur foivera
hans. Það er hefð fyrir því í Mexíkó
að forsetinn hafi allt að því alræðis-
vald, en það eykur á vanda Zedillos
að sú hefð sætir nú sífellt meiri gagn-
rýni, bæði innan flokks hans sem
utan.
Dúdajev
sakar
Rússa um
íhlutun
DZHOKHAR Dúdajev, leið-
togi Kákasushéraðsins
Tsjetsjníju, sem hefur lýst yfir
aðskilnaði frá Rússlandi, sak-
aði Rússa um hernaðaríhlutun
í héraðinu á sunnudag. Hann
sagði á útifundi í Grozny að
30 brynvarðar bifreiðar hefðu
farið frá Rússlandi á yfirráða-
svæði andstæðinga hans í
norðurhluta héraðsins. „Þar
eru einnig leiðbeinendur og
málaliðar úr rússneska hern-
um,“ var haft eftir Dúdajev.
Tyminski
fram að nýju
PÓLSKI kaupsýslumaðurinn
Stanislaw Tyminski lýsti því
yfir um helgina að hann hygð-
ist bjóða sig fram að nýju í
forsetakosn-
ingum, sem
haldnar
verða á
næsta ári.
Jafnfram
lýsti Tym-
inski því yfir
að úrslitum
forsetakosn-
inganna árið
1990 hefði verið hagrætt en
þá tapaði Tyminski fyrir Lech
Walesa.
Ólga á fjár-
málamarkaði
RÓRRA var yfir fjármála-
mörkuðum í ísrael í gær eftir
mikla ólgu um helgina, en á
sunnudag hrundi verð hluta-
bréfa um 10% vegna frétta um
að ríkisstjórnin hygðist koma
á fjármagnstekjuskatti. Búist
er við að mikil óvissa muni
ríkja áfram vegna áætlana
stjórnarinnar.
Samstarfi við
sósíalista
hafnað
VINSTRIFLOKKAR í Þýska-
landi höfnuðu í gær samstarfi
við Flokk lýðræðislegs sósíal-
isma (PDS), sem fyrrverandi
kommúnistar í Austur-Þýska-
landi stofnuðu, eftir að hann
hafði lofað að styðja þá ef
þeir færu með sigur af hólmi
í þingkosningunum í október.
Jafnaðarmannaflokkurinn og
Græningjar sögðust ekki ætla
að mynda minnihlutastjórn,
sem yrði að treysta á stuðning
PDS, jafnvel þótt slíkt yrði til
þess að koma stjórn Helmuts
Kohls frá völdum.
Nágrannar
Iraka þinga
ÞRJÚ nágrannaríki íraks með
kúrdíska minnhlutahópa hófu
viðræður í Damaskus á sunnu-
dag til að leita leiða til að
binda enda á bardaga stríð-
andi fylkinga Kúrda í norður-
hluta Iraks. Utanríkisráðherr-
ar Tyrklands, Sýrlands og. ír-
ans tóku þátt í viðræðunum
og Mumtaz Soysal, utanríkis-
ráðherra Tyrklands, sagði að
bardagar milli Föðurlands-
sambands Kúrdistans (PUK)
og Lýðræðisflokks Kúrdistans
(KDP) stefndu öryggi þessa
heimshluta í hættu.