Morgunblaðið - 23.08.1994, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1994 21
LISTIR
Einn glæsilegastibíll landsins
Honda Legend Coupe árgen
Ríkulega búinn, t.d. klæðning að innan úr Ijósu leðri, rafstýrð sæti með
minnisstillingu, tölvustýrð loftkæling samkvæmt hitamæli, rafdrifin huröalokun
fjarstýrð hurðalæsing, hraðalæsing (cruise control), ABS bremsukerfi o.fl.
Ekinn 14.610 km. Verð 3.800.000
HONDA, Vatnagöröum 24, sími 689900
Magnaður
Mótettukór
TONLIST
Skálholtskirkja
ÓRATÓRÍAN SÁL
EFTIR HÁNDEL
Mótettukór Hallgrímskirkju og
hljómsveit undir stjóm Harðar
Askelssonar. Einsöngvarar: Andreas
Schmidt, Hrafnhildur Guðmunds-
dóttir, Karl-Heinz Brandt, Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Margrét Bóasdóttir,
Marta G. Halldórsdóttir, Snorri
Wium og Heimir Wium.
HÖRÐUR Áskelsson, Hann-
fried Lucke og Hrafnhildur
Guðmundsdóttir.
GEISLADISKVÆÐING síðustu
12-14 ára, ásamt leit plötuútgefenda
að óþvældu klassísku efni, hefur
framkallað hálfgerða Ilándel-bylgju.
Það hefur nefnilega komið í ljós, að
ítölsku óperur hans — sem þykja lítt
sviðsvæniegar nú á dögum — henta
ljómandi vel hæg-
indastólum
heimilanna.
Ensku óratór-
íurnar hans gera
það ekki síður.
En þó að óratór-
íur Hándels hafi
flestar haldið vin-
sældum sínum á
heimaslóðum, þá
eru þær enn nán-
ast- óþekktar í
konsertsölum
utan Bretlands;
eða hver man hér
á landi eftir öðru
en Messíasi?
Kannski fer
þetta loks að
breytast. Ef Sál
er marktæk vfs-
bending, þá leyn-
ist sitthvað af
gulli og gimstein-
um meðal óratór-
ía „saxans“ sem
löngu er tímabært að endurvekja,
því tóndrama hans og Charles Jenn-
ens úr Fyrri Samúelsbók var sann-
kölluð opinberun á að hlýða. Fjöl-
breytni, hugmyndaauðgi og drama
þessa 2'h klst. barokverks (frumfl.
1739) eru með ólíkindum.
Flutningur hljómsveitar, einsöngv-
ara og — umfram allt — kórs — var
með enn meiri ólíkindum. Undirritað-
ur hefur engar handbærar upplýs-
ingar um, hvort Sál hafi verið flutt
áður á íslandi, en það má einu gilda,
frammistaða aðstandenda nægði
fyllilega til að gera þennan flutning
að eftirminnilegum atburði í íslenzku
tónlistarlífi.
Fyrir Mótettukórinn var þetta
stórsigur. Nákvæmur og hreinn hef-
ur hann löngum verið, en ég minnist
ekki að hafa heyrt slíka dýpt, slíkan
kraft, slíkan sveigjanleika og slíka
sönggleði frá kórnum áður, og kann
hin frábæra akústík Skálholtskirkju
að hafa verið dropinn sem fyllti gleði-
bikar söngfólksins, auðvitað að
ógleymdri frábærri og gefandi stjórn
Harðar Áskelssonar. Það hvarflaði
að mörgum áheyrandanum þetta
laugardagssíðdegi, hvort hér færi
ekki réttmætur áskorandi að titlinum
„Bezti blandaði kór landsins".
Of langt mál yrði að telja upp
gæsahúðaraugnablikin; tónverkið
var fleytifullt af snjöllum atriðum,
sem sum vissu fram á Messías, sum
alla leið fram á síðklassísku og frum-
rómantísku skeiðin. Á stangli mætti
nefna Dauðamarsinn og org-
el/flautudúóið, „draugamúsíkina“ í
Endor, öll stemningsmálverkin í
millispils-„sinfóníum“, klukkuspils-
atriðið er konur hylla sigur Davíðs á
Golíat. .. Staðirnir eru legíó. Sumu
virðist maður hafa heyrt ávæning af
í seinni tíma tónverkum (t.d. klukku-
spili drengjanna í Töfraflautu Moz-
arts (‘Das klinget so herrlich’)). Sumt
endurómar fyrri tíma (stefið úr 3ja
radda invensjón Bachs í a-moll er
t.d. nauðalíkt orgelintrói Allegro-
kafla sinfóníunnar í öðrum þætti (eft-
ir kórinn Is there a man, í þeim kór
er svo reyndar strófa (‘He makes
them yield to virtue’s charms’) sem
minnir sterklega á In dulci jubilol).
Þannig mætti halda áfram, en eft-
ir situr, hvað tónlistin er samt sem
áður ótrúlega fersk og frumleg á
257. aldursári.
Einsöngvarar stóðu sig með stakri
prýði. Stjarnan meðal hinna erlendu
gesta var, eins og við var að búast,
barytonsöngvar-
inn Andreas
Schmidt, sem
hafði greinilega
öll tögl og hagldir
á hlutverki Sáls.
Bar hann að öðr-
um ólöstuðum af
hvað varðar tján-
ingardýpt og
textatúlkun, auk
þess sem rödd
hans — e.k. sam-
bland af Kieth
Engen, Franz
Crass og Fischer-
Dieskau — er
sannkallað hun-
ang fyrir eyrað.
Er á engan hallað,
þótt fullyrt sé, að
aðeins Sigrún
Hjálmtýsdóttir í
hlutverki Merabar
hafi staðið þess-
um hvalreka sum-
arsins á sporði,
aríunni Author af
söng af frábærri
með hápunkti í
peace, sem hún
geislandi mýkt.
Það sást ekki gjörla, aftast úrtroð-
fullri kirkjunni, hvort upptökuhljóð-
nemar væru mættir á staðinn. Hafi
svo ekki verið, er það skandall.
Ríkarður Ö. Pálsson
.. ...*'«■*
STARFSFÓLKIÐ sem stóð að afgreiðslu bókanna, Lilja, Guðný, Anna og Sesselía.
Bókatilboð Fróða
ÖLLUM skuldlausum áskrifendum hjá tímaritaút-
gáfunni Fróða stóð til boða að fá ókeypis bók fyrir
1. ágúst sl. I fréttatilkynningu frá útgáfunni kemur
fram að alls lögðu um 500 manns leið sína á skrif-
stofu fyrirtækisins í sumar til að ná sér í bók fyrir
sumarleyfið.
Áskrifendur gátu valið milli 10 titla úr ólíkum flokk-
um bóka, barnabóka, ævisagna, skáidsagna, ungl-
ingabóka og heimildarbóka. Sú bók sem naut mestra
vinsælda var spennusagan Ekki er allt sem sýnist
eftir Jeffrey Archer, saga Rósu Ingólfsdóttur skráð
af Jónínu Leósdóttir fylgdi fast á eftir og ævisaga
Sigurðar Ólafssonar, I söngvarans jóreyk skráð af
Ragnheiði Davíðsdóttur, var þriðja vinsælasta bókin.
■■ H&M Rowells
PONTUNAR-
m
RCWELLS
300 SIÐNA PONTUNARLISTI SENDUR HEIM
Náðu þér í nýja haust- og vetrarlistann frá H&M Rowells,
300 blaðsíður af góðum og fallegum fatnaði á dömur,
herra og börn á mjög hagstæðu verði.
Hringdu í síma
91 884422
eða fylltu út þessa auglýsingu og sendu okkur í pósti og
þú færð listann sendan um hæl gegn 350 kr. greiðslu.
NAFN
HEIMILISFANG
POSTNR./STAÐUR
» FYRIR ALLA f
►FJOLSKYLDUNNN
H&M Rowells ► Kringlunni 7
103 Reykjavík^Fax91-884428
UTSALA io-6o
O
Opið lammrdag
kl. 10-16.
o AFSL.
©
SPORTBÚDIN
Ármúla 40.Simar 813555 og 813655