Morgunblaðið - 23.08.1994, Síða 34

Morgunblaðið - 23.08.1994, Síða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐJÓN GUNNLAUGSSON, Víðilundi 13, Akureyri, lést á heimili sínu 20. ágúst sl. Guðrún Jónsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskuleg eiginkona mín, VALBORG KRISTJÁNSDÓTTIR, Strandgötu 32, Neskaupstað, sem lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 17. ágúst, verður jarðsungin frá Norðfjarðarkirkju fimmtudaginn 25. ágúst kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Björn Stefánsson. STEINAR ÁGÚSTSSON + Steinar Ágústsson var fæddur í Reykjavík 16. febrúar 1936. Hann lést í Vest- mannaeyjum 7. ágúst síðastlið- inn og fór útförin fram frá Landakirkju 13. ágúst. SUNNUDAGINN 7. ágúst sl. lést Steinar Ágústsson á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja eftir erfíða og stranga baráttu við krabbameinið sem lagði hann að lokum. Kynni mín af Steinari hófust þegar ég fór að starfa fyrir Alþýðuflokkinn í Vestmannaeyjum. Allt frá þeirri stundu varð mér ljóst að Steinar var mikill baráttumaður fyrir jöfn- uði og réttlæti í þjóðfélaginu. Hann hafði ákveðnar skoðanir og hann lá ekkert á þeim og var til, hvar og hvenær sem var, að ræða þau mál í botn. Þá skrifaði hann blaðagreinar og var eftir þeim tekið. Hann hafði sitt að segja, var rökfastur og fylginn sér. Oftar en ekki endaði hann mál sitt með því að beija hnefanum í borðið og þá oftar en einu sinni ef málefnið varð- aði vin hans Jón Baldvin Hannibals- son, en á þeim manni hafði hann miklar mætur. Þegar hann rifjaði upp heimsóknirnar til vina sinna, þeirra Bryndísar og Jóns Baldvins á Vesturgötuna, kom glampi í aug- un. Það var aldrei nein lognmolla í kringum Steinar, hvort sem honum líkuðu hlutirnrir betur eða ver. Hans stíll var með þessum eldheita hætti sem samræmdist vel þeirri hugsjón sem hann barðist fyrir og vann með. Ég hef oft velt þvi fyrir mér hvort Steinar hefði ekki verið einn af þeim sem klifið hefði á tind stjórnmálanna ef hann hefði ekki verið jafn óreglusamur og hann var í gegnum tíðina. Hann hafði sitt að segja en þegar óreglan var sem mest voru eyrun kannski ekki mörg sem hlustuðu. Oft hringdi Steinar og alltaf hafði hann eitthvað til málanna að leggja. Stundum var maður hund- skammaður ef hann var ekki sam- mála því sem verið var að gera og stundum stappaði hann í mann stál- inu ef honum sýndist að þess væri þörf. Ráðin voru góð og ef við vor- um ekki sammála náði það ekkert lengra. Undir það síðasta var veru- lega dregið af Steinari og máttur lítill en þrátt fyrir það var hugurinn mikill og hugsunin skýr. Þó að rödd- in væri brostin hafði hann sitt að segja og þegar ég heimsótti hann undir það síðasta talaði hann af sama sannfæringarkraftinum þó að hann hafi þurft að hvísla. Hann sagði mér frá blaðagreinum sem hann hefði verið að skrifa og þeirri ætlan sinni að efla Alþýðublaðið og stórauka áskrift þess í Vestmanna- eyjum. Hann Steinar bar ekki veikindi sín á torg og þegar maður spurði hann hvernig honum liði þá sagðist hann allur vera að hressast og þetta væri allt að koma hjá sér. Nú ert þú farinn vinur og röddin þögnuð. Megi Guð blessa þig og varðveita. Hafðu þakkir fyrir samfylgdina og allt sem þú hafðir að gefa. Guðmundur Þ. B. Ólafsson. t Ástkær eiginmaður mí.nn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANN PÉTURSSON, Skarðsbraut 9, Akranesi, lést í Sjúkrahúsi Akraness 20. ágúst sl. Útför hans verður gerð frá Akraneskirkju föstudaginn 26. ágúst kl. 14.00. Kristín Svafarsdóttir, og fjölskylda. t Litla dóttir okkar, MÁLFRÍÐUR, sem lést 16. ágúst, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju á morgun, miðviku- daginn 24. ágúst, kl. 13.30. Regína Reginsdóttir, Siguröur Vilmundarson. JÓNA B. ING VARSDÓTTIR + Jóna B. Ingvarsdóttir fædd- ist í Hafnarfirði 28. desem- ber 1907. Hún lést á gjörgæslu- deild Landspítalans 29. júlí síð- astliðinn og fór útför hennar fram frá Kópavogskirkju 12. ágúst. ÞEGAR ég var lítil stelpa var vesturbær Kópavogs sá heimur sem lítil börn elska að alast upp í. Ómal- bikaðar göturnar voru uppspretta endalausra leikja þar sem allir gátu verið allt og ekkert var ómögulegt. Það var sama hvernig viðraði, alltaf voru hrúgur af krökkum alls staðar og leikfélagar á hveiju strái. I minn- inguni eru þetta hamingjuár, ár frelsis og jafnvægis og þar voru líka fastir punktar sem tilveran snerist um. Einn þessara föstu punkta var hún Jóna. Frá því ég man eftir mér bjó hún á Þinghólsbrautinni, í næsta húsi við mig, og var Jóna hans Kjart- ans. Hún var skemmtileg og lífleg kona og eitt af því allra skemmtileg- asta sem ég gerði var að banka upp á hjá henni og spjalla litla stund. Hún var ákaflega ræðin og hlátur- mild og lét sig varða allt sem var að gerast í heimi okkar barnanna. Hún fylgdist grannt með öllu og ef við komum ekki nógu reglulega kallaði hún í okkur, fékk fréttir af hinu og þessu og gaukaði að okkur glaðningi í leiðinni. Sælgæti var sjaldan til heima á þessum árum fyrir utan hátíðis- og tyllidaga. En Jóna átti alltaf eitthvað. Ósjaldan sátum við í eldhúsinu með köku og mjólk og ræddum um alla heima og geima, en stundum fékk ég að koma inn í stofu og prófa flygilinn. Það voru hátíðarstundir í huga lítill- ar telpu. Ég held líka ða hún Jóna hafi vitað það. Mér finnst merkilegt til þess að hugsa að þrátt fyrir að Jóna hafi átt barnabörnin og þekkt ógrynni af fólki skyldi hún samt alltaf nenna að taka á móti mér og öllum hinum krökkunum sem bönkuðu upp á. Og hún lét manni líka alltaf finnast maður vera sérstakur. Það eru eiginleikar sem allt of fáir búa yfír. Þegar fjölskylda mín flutti þótti Jónu það ekki góð tíðindi. En hún tók samt þátt í gleðinni sem fylgdi því að eignast nýtt og stærra hús og dásamaði garðinn okkar mikið. Við héldum áfram að heimsækja Jónu og hún kom líka oft í heim- sókn Melgerðið og henn fylgdi mik- ill kraftur og fjör. Eftir því sem árin hafa liðið hef ég sjaldnar komið til hennar á Þing- hólsbrautina. Ekki nema þá helst til að fara með eitthvað eða sækja. En hún fýlgdist alltaf með okkur systkinunum og var iðin að hringja og fá fréttir. Það brást heldur aldrei að hún myndi eftir afmælum, fermingum, útskriftum, brúðkaupum og barns- fæðingum. Og nú er Jóna öll. Það er skrýtið að hugsa til þess að nú sé komið að kveðjustund. Ég get ekki verið við jarðarför vinkonu minnar, en sendi börnum hennar, barnabörnum og öðrum ættingjum samúðarkveðj- ur. Og Jónu minni þakka ég sam- fylgdina. Legg ég nú bæði líf og önd ljúfi Jesú í þína hönd. Síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Ég bið algóðan guð að taka vel á móti Jónu. Bergljót Hreinsdóttir. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR SANDHOLT, Hæðargarði 33, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 24. ágúst kl. 10.30. Þeir, sem vilja minnast hennar, eru beðnir að láta Kristniboðssambandið eða KFUM og KFUK í Reykjavík njóta þess. Stefán Sandholt, Maria I. Aðalsteinsdóttir, Gunnar M. Sandholt, Linda Lea Bogadóttir og barnabörn. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JUDITH SVEINSDÓTTIR, Langholti 14, Akureyri, er lést 14. ágúst sl., verður jarðsungin frá Glerárkirkju þriðjudaginn 23. ágúst kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Kvenfélagið Baldursbrá. Bergsteinn Garðarsson, Barbara, Sigurveig, Jónas, tengdabörn, barnabörn og langömmubörn. ÓLAFUR SKAFTASON + Ólafur Skaftason fæddist í Reykjavík 31. desember 1922. Hann andaðist á Land- spítalanum 9. ágúst síðastliðinn og fór útför hans fram frá Sel- Ijarnarneskirkju 17. ágúst. OKKUR setti hljóð við fregn af andláti Ólafs Skaftasonar. Við höfðum hitt hann hér á Akureyri fyrir mánuði hressan í anda þótt líkamlegt ástand væri bágborið og átt með honum stund. Við kynntumst Ólafi fyrst sem húsverði í Vogaskóla fyrir meira en 30 árum. Engum duldist að þar fór góður maður til orðs og æðis. Með okkur tókst vinátta sem hald- ist hefur síðan. Á unga aldrei fékk hann alvar- legan sjúkdóm sem háði honum alla tíð. Hann gekkst undir ígræðslu á hornhimnu í Svíþjóð og lagaðist sjónin í nokkur ár en fór seinna versnandi og síðustu árin var hann nánast blindur. Fyrir rúmum tveim áratugum greindist Ólafur með MS (mænu- sigg) og ágerðist sá sjúkdómur meira og meira. Hann var bundinn við hjólastól um langt árabil. Margt fleira angraði Ólaf heilsufarslega sem ekki mun talið hér. Flestir hefðu látið bugast við minni áföll en hér eru talin, en svo var ekki með Ólaf. Hann naut þess að lifa. Hann hélt glaðlyndi sínu, kjarki og reisn til hinstu stundar. Hann lifði lífinu lifandi. Ekkert var honum óviðkomandi. Ólafur naut þess alla tíð að ferð- ast. Hann unni gróðri, unni náttúr- unni. Hann var ljósmyndari af guðs náð meðan hann hélt nokkurri sjón. En kannski naut hann tónlistar meira en nokkurs annars. Nú er andi hans ftjáls úr fjötrum illa farins líkama. Gengin er ein af hetjum hversdagsins, hins raun- verulega lífs. Við hjónin og börnin okkar þökk- um liðnu árin og óskum Ólafi alls góðs yfir móðuna miklu. Inger og Kristján. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR FARESTVEIT forstjóri, Garðatorgi 17, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 24. ágúst kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Heimahlynningu Krabbameinsfélags íslands. Guðrún Farestveit, Steinar Farestveit, Cecilia Wenner, Arthur Farestveit, Dröfn H. Farestveit, Edda Farestveit, Gunnsteinn Gíslason, Gerda Farestveit, Þórður G. Guðmundsson, Hákon Einar Farestveit, Guðrún A. Farestveit, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.