Morgunblaðið - 11.09.1994, Síða 1
88 SÍÐUR B/C
206. TBL. 82. ARG.
SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1994
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Operusöngur
styrkir gler
VISINDAMENN við Alfreds-háskóla í
New York hafa notað háu nóturnar í
söng Lucianos Pavar-
ottis til að búa til „ofur-
gler“. Þeir dýfðu glerr-
úðum ofan í bráðna
efnablöndu og stilltu
síðan hljómflutnings-
tæki á fullan styrk.
Hyóðbylgjurnar frá
aríum Pavarottis hjálp-
uðu til við að fylla upp
í örsmáar rifur, sem
eru ósýnilegar berum
augum en veikja glerið. Þannig varð
glerið fimm sinnum sterkara.
Pavarotti
Komast apar
í himnaríki?
ERKIBISKUPINN af York, dr. John
Habgood, sagði á ráðstefnu breskra vís-
indamanna á dögunum að rannsóknir á
öpum væru sérlega athyglisverðar
vegna þess að þær gætu leitt í ljós að
dýr hefðu sálir og gætu því komist til
himna. Nokkrir bókstafstrúarmenn
brugðust ókvæða við ummælum erki-
biskupsins og sögðu þau ganga í ber-
högg við hefðbundnar kenningar kirkj-
unnar. Erkidjákninn af York, George
Austin, sem er oft ósammála biskupnum,
kvaðst ekki vilja andmæla honum að
þessu sinni. „Ég yrði fyrir miklum von-
brigðum ef ég færi til himna og kæmist
að því að hundurinn biði mín þar ekki.“
Morgunblaðið/Þorkell
Fjör í laugunum
Zhírínovskíj
fjölgar Rússum
VLADÍMÍR Zhírínovskíj, þjóðernis-
sinninn öfgafulli í Rússlandi, hyggst
geta að minnsta kosti 70 börn vítt og
breitt um landið, frá
Eystrasalti í vestri til
Kyrrahafs í austri.
Zhírínovskíj segir það
mikið áhyggjuefni að
Rússar séu ekki nógu
duglegir við að fjölga
sér og því hafi hann
ákveðið að leggja sitt
af mörkum og búa til
herskara af litlum zhír-
ínovskum. Hann gaf út
fyrirmæli um að „a.m.k. eitt barn sem
getið er af formanninum sjálfum fæðist
í hverri svæðisdeild flokksins". Ráðgert
er að flokkur Zhírínovskíjs, sem er með
70 svæðisdeildir, standi straum af kostn-
aði mannfjölgunarátaksins. Aðspurður
sagði einn af samstarfsmönnum Zhír-
ínovskíjs að leiðtoginn yrði sjálfur að
svara því hvort stofnaður yrði sæðis-
banki eða hefðbundnum getnaðarað-
ferðum beitt.
Zhírínovskij
Kúbustjórn hótar að beita
valdi til að stöðva flóttann
Havana. Reuter.
STJÓRN Kúbu tilkynnti í gær að valdi yrði
beitt ef nauðsyn krefur til að stöðva Kúb-
veija, sem reyna að flýja á bátum og flekum
til Bandaríkjanna, eftir að hafa náð sam-
komulagi við Bandaríkjastjórn í deilunni um
fjöldaflóttann að undanförnu.
Fjölmiðlar á Kúbu birtu yfirlýsingu frá
stjórninni um að frá hádegi í gær fengju
Kúbveijar þijá sólarhringa til að flytja fleyt-
ur sínar og efni í fleka af ströndinni og
nota það til annarra hluta. Þessa þrjá daga
yrðu eigendur fleytanna ekki handteknir og
þær ekki gerðar upptækar. Á hádegi á þriðju-
dag yrðu hins vegar allir flóttamenn stöðvað-
ir, þótt beita yrði valdi, og flekarnir teknir
í vörslu lögreglu.
Kúbveijar verði samvinnuþýðir
Stjórnin hvatti Kúbveija til að vera sam-
vinnuþýðir. Hún sagði að vegna stærðar
strandarinnar væri ógjörningur að koma í
veg fybr að enginn gæti flúíð, en lagði
áherslu á að þeir sem flýðu kæmust ekki til
Bandaríkjanna.
Daginn áður hafði stjórnin á Kúbu náð
samkomulagi við Bandaríkjamenn, sem
skuldbundu sig til að veita a.m.k 20.000
Kúbveijum dvalarleyfi á ári. Auk þess fengju
nánir ættingjar bandarískra borgara að fara
til Bandaríkjanna og 4-6.000 Kúbveijar,
sem þegar bíða eftir ántunum, fengju land-
vist á næsta ári.
30.000 Kúbveijar, sem hafa þegar flúið,
geta valið um að dvelja áfram í flóttamanna-
búðum í óákveðinn tíma eða snúa aftur til
Kúbu.
Upplausn í Kanada?
Montrcal. Reuter.
í BÓK, sem gefin var út í gær, er því
spáð að Kanada leysist upp fyrir aldamót
og að átök blossi þar upp.
Höfundurinn, Lansing Lamont, fyrrver-
andi yfirfréttaritari Time í Kanada, spáir
því að skriðdrekar verði sendir á göturnar
vegna óeirða og hermdarverka.
Fylkjakosningar verða í Kanada á
mánudag og samkvæmt skoðanakönnun-
um er Parti Quebecois, flokkur aðskilnað-
arsinna í Quebec, með mikið forskot og
líklegur til að ná meirihluta. Flokkurinn
hyggst efna til þjóðaratkvæðis um að-
skilnað frá Kanada komist hann til valda.
Ef marka má kannanir er meirihluti Qu-
ebec-búa ekki hlynntur aðskilnaði.
Lamont telur að þótt Quebec-búar vilji
ekki aðskilnað nú muni þeir segja skilið
við Kanada fyrir aldamót. Flestir frétta-
skýrendur sögðu spádóma hans ekki
raunsæja.
Ekki ástæða
til annars
en að vera
bjartsýnn
„Gullgröftuf í Smugunni
STRAKARNIR
ÍSKÍRISSKÓGI
22 VIDSKIPTI/ATVINNULÍF
o
Á
HðFUÐ-
BÖU