Morgunblaðið - 11.09.1994, Blaðsíða 42
42 SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
LAGT af stað á fornum pallbíl með hljómsveitinni
„Stalla hú“ niður í miðbæ og aftur til baka.
FYLGST með æfingu á Óskinni á litla sviðinu.
LEIKMUNIR og líkön skoðuð.
Opiðhús
Leikfélags
Reykjavíkur
HIÐ árlega opna hús Leikfélags
Reykjavíkur var haldið um síðustu
helgi og lagði fjöldi fólks leið sína
í Borgarleikhúsið til að fylgjast með
æfingum á öllum sviðum og kynnti
sér um leið verkefni vetrarins. Að
sögn Sögu Jónsdóttur hjá Leikfélagi
Reykjavíkur njóta skoðunarferðir
um leikhúsið alltaf mikilla vinsælda
og stórir hópar voru á stöðugu
ferðalagi um leikhúsið með leið-
sögumönnum. Börnin fengu að
máta búninga og leika sér með leik-
muni og gerðu sér ýmislegt fleira
til skemmtunar. „Opið hús er orðið
fastur liður í upphafi leikárs og virð-
ist eiga sívaxandi vinsældum að
fagna,“ sagði Saga.
VICTORIA Sellers
þar sem hún var
ránum
var leidd í hlekkjum í réttarsal
ákærð fyrir aðild að vopnuðum
fyrrum unnusta síns.
►VICTORIA Sellers, dóttir sænsku fegurðardísarinnar
Britt Ekland og enska leikarans Peters Sellers, hefur
lifað heldur ógæfusömu lífi. Victoria er nú 29 ára
gömul og á að baki skrautlegan feril að því er
sænska Aftonblaðið segir. Hún komst nýlega und-
ir hendur laganna varða vegna aðildar að vopnuð-
um ránum sem unnusti hennar stóð fyrir og
hefur hún áður verið handtekin vegna fíkniefna-
mála.
Victoria hefur komið víða við í at-
vinnulegu tilliti. Hún starfaði meðal
annars sem fáklædd og óklædd ljós-
myndafyrirsæta og komst eitt sinn á
miðopnu Playboy. Hún veitti forstöðu
næturklúbbi í Hollywood, starfaði við
símavændi og var um hríð aðstoð-
arframkvæmdastjóri við kroppa-
leigu Heidi Fleiss í Hollywood.
Þessi iðja var mjög ábatasöm
en Victoriu hélst illa á pen-
ingum, enda verið fíkniefna-
fíkill frá 15 ára aldri, og
er nú staurblönk.
Britt gefst upp
Það er ekki aðeins að
sé rúin að fé
heldur hafa vinirnir týnt
tölunni í ólgusjóum lífs-
ins. Britt móðir hennar
er uppgefin á villuráf-
andi dóttur sinni og
segir að héðan í frá
verði hún að spjara sig
án hjálpar úr móður-
garði. „Það er ekki mér
að kenna hvernig kom-
ið er fyrir Victoriu,"
sagði Britt nýlega í viðtali við
Daily Mail. „Það er alltaf auð-
velt að kenna foreldrunum um,
einkum ef þeir eru þekktir."
Erfið æska
Britt Ekland var tvítug þegar
Victoria fæddist og faðirinn, Pet-
er Sellers, sautján árum eldri.
Hann virtist ekki of hrifinn af
barninu og hagaði sér eins og af-
brýðisamur stóri bróðir. „Ég var
ekki góð mamma," segir Britt.
„Ég var of ung og skildi ekki
ábyrgðina sem fylgdi því að eign-
ast barn.“ Þegar Victoria var á
fjórða ári komu þau Britt og Pet-
er Sellers henni fyrir í pössun og
fóru í mánaðar ferðalag. Hálfu
öðru ári síðar var henni komið
fyrir hjá móðurömmunni og hún
hitti mömmu sína ekki nema einu
sinni í mánuði. Um svipað leyti
slitu Britt og Peter samvistir.
BRITT Ekland með Victoriu
tveggja ára gamla.
MÆÐGURNAR Britt Ekland og Vict-
oria Sellers árið 1986.
PETER Sellers
og Britt með ný-
fæddu dótturina
í janúar 1965.
Sagan segir að
Peter hafi ekki
verið yfir sig
hrifinn af föður-
hlutverkinu og
hagað sér eins og
afbrýðisamur
krakki.
Á flækingi
Eftir skilnaðinn við Peter hefur
Britt verið í tygjum við nokkra
karla. Victoriu lynti ekki við stjúp-
föður sinn, Rod Stewart. „Við
heilsumst ef við hittumst, en hann
er sá eini af mönnuin mömmu sem
ég hef ekkert samband við,“ sagði
Victoria í viðtali í fyrra. Victoria
bjó löngum hjá föður sínum á riví-
erunni og varð þeim vel til vina.
Peter Sellers var upp á kvenhönd-
ina og vinkonur komu og fóru.
Victoria átti bágt með að sætta
sig við þennan kvennafans og
fannst hún oft vera fyrir.
Nú hefur Victoria slitið tengslin
við smábófann sem kom henni í
steininn og eignast nýjan kærasta.
Sá þykir meira mannsefni og eru
bundnar vonir við að hann styðji
Victoriu til dyggðugs lífefnis.
Fólk
V andræðabarnið
Victoria
kSKOLABIO
SÍMIZ2MU
Það er sama hvem þu spyrð að lokinni sýningu. Allir fíla
þessa rcemu í botn og vilja sjá hana aftur og aftur og
aftur og aftur og aftur og aftur og aftur og aftur og aftur
og aftur og aftur og aftur og afturx>g aftur og aftur og
aftur og aftur og aftur og aftur, Ogaftur og aftur og aftur
og aftur og aftur og aftur og aftpr.
aftur og aftur og aftur og aft
og aftur
aftur og
40.000 manns í Reykjavík
og nýtt glæsilegt met á
Akureyri, 5.000 gestir.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Á SÝNINGUNNI, f.v. Ragnhildur Sif Reynisdóttir, Sigrún Sig-
valdadóttir, Brynja Dís Björnsdóttir og Hildur Inga Björnsdóttir.
Hildur Inga í Portinu
Hildur Inga Björnsdóttir, Dura, opn-
aði myndlistarsýningu undir heitinu
Um konu frá konu í Portinu í Hafnar-
firði 3. september. Þetta er fyrsta
einkasýning Hildar Ingu sem síðast-
liðin tvö ár hefur stundað myndlist-
arnám í Mílanó við Accademia di
Belle Arti di Brera. Hún lauk námi
í grafískri hönnun við Myndlista- og
handíðaskóla íslands árið 1992.
Verk Hildar Ingu eru unnin með
akríl og blandaðri tækni á pappír og
skírskota til hugsunar og líðanar
kvenna í íslensku samfélagi.
GESTIR við opnunina.
Frjálslyndur
forseti
Vaclav Havel,
forseti Tékk-
lands, var í hópi
115 þúsund
áheyrenda á
tónleikum
bresku popp-
hljómsveitarinn-
ar Pink Floyd,
sem haldnir voru
á Strahov leik-
vanginum í Prag
síðastliðið miðvikudagskvöld. Havel,
sem er 58 ára gamall, þykir fijáls-
lyndur í skoðunum og er sagður
hallur undir tónlist af léttara taginu,
þótt hann sé jafnframt menningar-
frömuður hinn mesti, enda virtur
leikritahöfundur. Havel bauð liðs-
mönnum Pink Floyd til kvöldvarðar
daginn fyrir tónleikana og herma
fregnir að forsetinn og forsöngvari
sveitarinnar, David Gilmor, hafi átt
í innilegum samræðum langt fram
eftir nóttu þar sem hin margvísleg-
ustu málefni bar á góma, svo sem
innganga Tékklands í NATO og gildi
popptónlistar í samfélagi nútímans.