Morgunblaðið - 11.09.1994, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1994
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
Fálkagata 22 - opið hús
Til sölu neðri hæðin í þessu húsi. íbúðin er 91 fm og
skiptist í samliggjandi skiptanlegar stofur, 2 svefn-
herb., eldhús og bað. Sérinng. Áhv. 4,4 millj. húsbréf.
Verð 7,5 millj. Einnig til sölu kjallaraíbúðin í þessu sama
húsi. íb. sem er 47 fm er ósamþykkt. Verð 3 millj.
Möguleiki að gera eina íbúð úr báðum. Einnig hentugt
fyrir samhenta fjölskyldu.
íbúðirnar verða til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16.
Fasteignamarkaðurinn hf.,
Óðinsgötu 4, símar 11540 og21700.
hÓLl
FASTEIGNASALA
® 10090
SKIPHOLTI 50B, 2. hæðt.v.
Franz iezorski, lögg. fast.saii.
Melabaut 1 - 2ja-3ja
herb. Stór og falleg 2ja herb.
íbúð með sérinng. á jarðhæð. Allt
sér. Nýtt gler. Mikið endurn. lagn-
ir. Gengið beint út í garð. Verð 5,9
millj. Laus. Björg sýnir þér og þín-
um slotið milli kl. 14.00 og 17.00.
Vertu velkomin!
OPIÐHÚSKL. 14-17
Víðimelur 69 - hæð
þessu húsi bjóðum við uppá bráð-
skemmtilega 107 fm hæð auk bíl-
skúrs. Já, gamli góði vesturbærinn
stendur fyrir sínu! 4 svefnherb. og
aukaherb. í kj. með aðgangi að
snyrtingu. Sérgarður og nýtt þak
prýða eignina! Þau Sigmundur og
Ásdís taka vel á móti þér og þínum
í dag á milli kl. 14.00 og 17.00.
Lrttu inn!
Samtún 34
- hæð og ris
dag getur þú skoðað og keypt
afar glæsil. 127 fm hæð og ris í
þessu reisul. húsi. Þetta er eign
sem stendur fyrir sínu! 3 svefn-
herb. og 2 stórar stofur. Fallegur
og skjólsæll garður. Þórunn tekur
á móti þér og fjölskyldunni milli kl.
14.00 og 17.00. Láttu sjá þig!
Selbraut 34 - Seltj.
Þetta afar glæsilega 218 fm raðhús
verður þér til sýnis og sölu í dag
milli kl. 14.00 og 17.00. Húsið sem
er hið vandaðasta í alla staði skart-
ar tvöföldum bílskúr, sérlega vönd-
uðum innréttingum og gegnheilu
parketi. Þetta er eign fyrir vand-
láta. Helga og Stefán taka á móti
þér með opnum örmum milli kl.
14.00 og 17.00. Gakktu í bæinn!
Birkihvammur 11 og 11 a - Kóp.
Þessi glæsilegu parhús sem eru 178 fm með innb. bflsk. eru
öllum áhugasömum til sýnis í dag milli kl. 14.00 og 17.00. Hús-
in eru til afh. strax fullb. að utan og fokh. að innan. Frábær
staður í grónu og veðursælu hverfi í Suðurhlíðum Kóp. Skoðaðu
þessa í dag! Áhv. húsbr. 6 millj. með 5% vöxtum. Teikn. og all-
ar uppl. góðfúslega veittar á staðnum! Vertu velkomin(n).
OPIÐ A HOLII DAG KL. 14-17
BJÖRN BJÖRNSSON
+ Björn Björns-
son fæddist á
Seyðisfirði hinn 25.
desember 1912.
Hann lést á Nes-
kaupstað 5. septem-
ber síðastliðinn.
Björn ólst upp á
Norðfirði og í Nes-
kaupstað. Foreldr-
ar hans voru Björn
Björnsson, kaup-
maður í Neskaup-
stað og ljósmyndari
og eiginkona hans,
Katrín Málfríður
Arngrímsdóttir.
Björn lauk gagnfræðaprófi á
Akureyri og sat Samvinnuskól-
ann 1932-1933, starfaði við
verslun föður síns í Neskaup-
stað 1933-1941, hjá Pöntunar-
félagi alþýðu þar í bæ 1942-
1945, en rak síðan eigin verslun
þar til 1982. Eftirlifandi eigin-
kona Bjöms er Guðlaug Ing-
varsdóttir. Þeim hjónum varð
níu bama auðið. Bjöm starfaði
mikið að félagsmálum, var
lengi í stjóm íþróttafélagsins
Þróttar í Neskaupstað, um
skeið formaður Rauða kross
deildar Norðfjarðar, formaður
Stangaveiðifélags
Neskaupstaðar, for-
maður Verslunar-
mannafélags Norð-
fjarðar og forseti
Rotaryklúbbs Norð-
fjarðar. Þá átti hann
sæti í stjórn Náttúru-
verndarsamtaka
Austurlands og
Sparisjóðs Norð-
fjarðar. Bjöm var
varamaður Sjálf-
stæðisflokksins í bæj-
arsljórn Neskaup-
staðar og sat í fjölda
nefnda á vegum
flokksins. Þá var hann umboðs-
maður Morgunblaðsins í Nes-
kaupstað í mörg ár. Útför hans
fer fram frá Norðfjarðarkirkju
á morgun, mánudag.
VINUR minn og lærifaðir Bjöm
Bjömsson kaupmaður í Neskaupstað
er látinn. Mér finnst það passa hon-
um Birni svo vel að kveðja um Ieið
og farfuglamir, á leið sinni inn í lita-
dýrð haustsins fyrir handan.
Bjöm rak umfangsmikla verslun
í Neskaupstað en það er ekki ætlun
mín að tíunda það sem þessi athafna-
maður afrekaði á langri starfsævi,
FASTEIGH ER FRAMTlD
FASTEIGNAÉjí^MIÐLUN
SIMI 68 77 68
Sl'ERRlR KRISTJA\SS0\ L0GGILTUR FASTElG\ASAL
SUÐURLANDSBRAUT 12, 108 REYKJAVIK. FAX 687072
Sýningarsalur - opinn frá 13-15 f dag
Dalatangi - Mosfellsbæ
Falleg ca 144 fm raðhús á tveimur hæðum með innb. bílsk. Efri
hæð er nýstandsett m.a. nýtt eldhús og beykiparket á gólfum.
Áhv. 2,4 millj. veðd. Verð 10,7 millj.
Grafarvogur - einb.
Fallegt ca 200 fm einb. (timburhús) á einni hæð með innb. bílsk.
Á hæðinni eru m.a. rúmg. stofur, 5 svefnh., fallegt eldhús o.fl.
Fallegur garður. Útsýni. Áhv. ca 7,3 millj.
Reynimelur
Vorum að fá í sölu fallega ca 90 fm 4ra herb. íb. í fjölbhúsi. 3
svefnh. Rúmgóð og vel skipulögð íbúð. Stórar svalir. Verð 7,9 millj.
Fossvogur - einbýli
Til sölu stórt og mikið einbýlishús. Aðalíbúð og innb. bílskúr á
hæðinni. Lítil íbúð og mikið rými í kj.
Bjartahlíð - Mosfellsbæ
Til sölu mjög vel teiknað einbýli á einni hæð með innb. bílskúr. I húsinu er gert
ráð fyrir 3-4 svefnh. o.fl. Lóð verður grófslóttuö. Húsið verður afhent á fyrsta
byggingarstigi, þ.e. klárað að utan, fokh. Húsið er klætt utan með Stonaflex og
Aluzink á þaki. Húsið er því svo til viðhaldsfrítt. Mahogní í hurðum. Húsið er tilb.
til afh. strax. Áhv. eru húsbróf kr. 6,3 millj. og 1,1 millj. til 3ja ára. Verð á fyrsta
stigi kr. 8,2 millj. Verð á öðru stigi þá tilb. til innr. kr. 10 millj. Þetta hús er þann-
ig hannað að það passar bæði fyrir þann sem er að minnka við sig og eins hinn
sem þarf aö hafa allt að 4 svefnh.
Fitjar - Kjalarnesi
Herrasetur!
Til sölu 640 fm einbýli með ca 60 fm innb. bílskúr. Lítill blómaskáli og hesthús
fylgir. Mikil eign sem hefur verið notuð sem einbýli og einnig sem meðferðarheim-
ili. Eign sem gefur mikla möguleika s.s. 2-3 íbúðir, heimili fyrir meðferöaraðila,
fólagastarfsemi o.fl. o.fl. Falleg staðsetning við Leirvogsá. Mikið útsýni. Ýmis eigna-
skipti koma til greina.
heldur minnast góðs vinar sem tók
mig stelpukrakka í vinnu á haustdög-
um fyrir 45 árum. Ég verð honum
ævinlega þakklát fyrir allt það sem
hann kenndi mér á þeim 5 árum sem
ég vann hjá honum í Verslun Bjöms
Björnssonar, það var góður skóli.
„Með því að deila rétt gjöfum jarð-
arinnar, fáið þið auð og allsnægtir.
En ef þið deilið ekki af kærleika og
réttsýni, verða sumir ágjamir og
aðrir svangir."
Þessi orð úr Spámanninum koma
mér í hug er ég minnist fyrstu dag-
anna í Bjömsbúðinni. Þar var rétt-
sýni í hávegum höfð. Þegar kom að
því að kenna mér að nota kvarða og
mæla álnavöru, varð ég að vera ná-
kvæm því ég mátti hvorugan snuða,
kaupmanninn eða viðskiptavininn.
Eins var það með vogina, sama ná-
kvæmnin.
Annað er mér líka minnisstætt frá
þessum dögum, það var að koma svo
vel fram við viðskiptavininn að ég
ætti það skilið að hann verslaði við
mig aftur. Það verða báðir að vera
ánægðir, sá sem selur og sá sem
kaupir, á því byggjast góð viðskipti.
Þar lærði ég líka hve nauðsynlegt
það er að þekkja vöruna sem maður
- er að selja.
í Konungs skuggsjá segir: „Kaup-
maður er sæmdarheiti.“ Engan mann
þekki ég sem bar það sæmdarheiti
betur en Bjöm á Bakka. En Bjöm
var ekki einn og á Bakka var ekki
bara Bjömsbúðin. Þar var líka nota-
lega heimilið þeirra Bjöms og Laugu
og þar fæddust börnin þeirra níu.
Hann sagði mér stoltur frá því að
þau ættu þijú og hálft dúsín af böm-
um. Það lýsir hans skemmtilegu
glettni, hann var fljótur að koma
auga á spaugilegu hliðamar. Bjöm
og Lauga, svo samrýnd vom þessi
hjón að maður talaði aldrei um ann-
að þeirra án þess að geta hins.
Það var ekki bara búðin, sparisjóð-
urinn og Sjálfstæðisflokkurinn sem
Bjöm hafði áhuga á. Hann hafði
þann yndislega eiginleika að njóta
alls þess fegursta í umhverfinu, ekki
bara stórfenglegra fjalla og fossa,
heldur líka þess smáa og fíngerða í
flórunni. Þó held ég að fuglamir
hafi heillað hann mest og þakklát
er ég fyrir seinustu gjöfína frá þeim
hjónum, fuglamyndimar eftir Bjöm
eldri.
Þessi náttúmunnandi lagði líka
sitt af mörkum í ræktun blóma og
trjáa. Það sjáum við í paradísinni
þeirra, Bakkaseli. Þar er myndarleg-
ur skógur og einnig við heimilið
þeirra, Litla Bakka.
Það er mannbætandi að umgang-
ast fólk eins og Bjöm og Laugu og
þakka ég hveija stund sem við áttum
saman. Það er bjart yfír þeim minn-
ingum. Það dimmir um stund í Nes-
kaupstað við fráfall Bjöms.
Elsku Lauga mín, innilegar sam-
úðarkveðjur sendi ég þér og fjöl-
skyldunni allri.
Ég kveð góðan vin með virðingu
og þökk. Megi Guðs blessun fylgja
Bimi Bjömssyni.
Bertha.
Fallinn er frá einn dyggasti stuðn-
ingsmaður Sparisjóðs Norðfjarðar.
Bjöm Bjömsson gerðist ábyrgðar-
maður sjóðsins 1944, var varamaður
í stjórn 1957-1971 og 1975-1979
en aðalmaður kjörinn af bæjarstjóm
Neskaupstaðar 1970-1974 og
1978-1994.
Öll störf Bjöms einkenndust af
trúmennsku og velvilja. Það er ekki
síst verk hans að Sparisjóður Norð-
fjarðar er enn til sem sjálfstæð stofn-
un, enda hafði hann óbilandi trú á
að það væri byggðarlaginu fyrir
bestu til lengri tíma litið.
Það er margs að minnast eftir
margra ára samstarf sem var ein-
staklega ánægjulegt að öllu leyti.
Þeir þættir í lífi Björns sem risu
hæst voru óumdeilanlega ást hans á
því byggðarlagi sem ól hann ásamt
umhyggju og eljusemi fyrir fjöl-
skyldu sinni sem borið hefur jafn
ríkan ávöxt og þeir sem til þekkja
vita best.
Stjórnendur Sparisjóðs Norðfjarð-
ar þakka vináttu og eftirminnilega
samfylgd og votta Guðlaugu og böm-
um þeirra og öðrum ástvinum inni-
lega samúð.
Sveinn Arnason,
sparisjódsstjóri,
Reynir Zoega,
stjórnarformaður.