Morgunblaðið - 11.09.1994, Page 14
14 SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Glæpir í skjóli
frelsis
Kaupmannahafnarbréf
Nýverið fannst flóttamaður frá Eystrasaltslöndunum
myrtur í flóttamannabúðum í Danmörku. Strax kom
upp sá kvittur að morðið væri uppgjör glæpamanna.
Sigrún Davíðsdóttir segir að uppi séu raddir í Dan-
mörku um að strax verði tekið á vandanum, því glæpa-
mennimir séu eldsnöggir að skipuleggja sig. Spuming-
in er hvort löggjöf og afstaða Dana til glæpa sé of
afslöppuð til að standast þeim snúning.
Skipulðgð glæpastarfsemi á borð við
mafíuna og skyld samtök hefur
hingað til verið efni, sem Danir og
aðrar Norðurlandaþjóðir hafa getað
skemmt sér við að fræðast um víðs fjarri
átakastöðunum. Þeir sem fylgjast vel með
í þessum málum eru nú farnir að óttast
að bráðlega verði þetta efni ekki lengur
framandlegt. Vettvangurinn verði hér,
fólk verði sallað niður í uppgjörum stríð-
andi fylkinga, eins og lengi hefur verið
á Ítalíu og nú gerist í Rússlandi. Búðar-
eigendur og aðrir verði krafðir um vernd-
arfé og yfirleitt gerist allt hér í túnfætin-
um eins og það sem þekkist af afspurn.
í vikunni fannst flóttamaður frá Eystra-
saltslöndunum myrtur í flóttamannabúð-
um hér. Strax kom upp sá kvittur að
morðið væri uppgjör glæpamanna. Nú
eru uppi raddir í Danmörku um að strax
verði tekið á vandanum, því glæpamenn-
irnir séu eldsnöggir að skipuleggja sig
og taka til starfa. En spurningin er hvort
löggjöfin og afstaða Dana til glæpa sé
ekki of afslöppuð til að standast þeim
snúning.
Eins og kunnugt er hefur glæpastarf-
semi blómstrað í Austur-Evrópu eftir að
járnagi kommúnistastjórnanna lagðist af.
Ftjáls viðskipti á opnum mörkuðum, sem
hefur tekið áratugi að koma á í Vestur-
Evrópu, áttu að yfirfærast í austurátt í
heilu lagi. Það vill hins vegar gleymast
að svokölluð ftjáls viðskipti eru í raun
undir ýmiss konar eftirliti og háð flókinni
löggjöf, sem á að stýra frelsinu. Þessi
hluti er vanþróaður í flestum Austur-Evr-
ópulöndum og tómarúmið hefur reynst
gróðrarstía fyrir glæpastarfsemi.
Hér vantar ekki löggjöf um verslun
og viðskipti, en hins vegar hafa rússnesk
blöð skrifað um það undanfarið að glæpa-
menn hefðu engu að síður augastað á
Danmörku. Ástæðan er sú hve mildilega
sé tekið á glæpum og hve frelsi á ýmsum
sviðum, sem henta glæpamönnum, sé
mikið. Þeir hafi þegar komið sér fyrir í
Finnlandi, en vegna þess hve Finnland
sé fátækt land sé það ekki freistandi sem
vinnustaður fyrir glæpamenn og smygl-
ara. Hins vegar noti þeir Finnland sem
millilendingu á leið sinni út í heim. Það
eru einkum glæpamenn frá Sovétríkjun-
um fyrrverandi, Eystrasaltslöndunum,
Rúmenar og Pólverjar, sem virðast ætla
að flytja starfsemi sína til Norðurland-
anna.
Hingað til hafa glæpamennirnir meðal
annars notað þá aðferð að koma til Dan-
merkur sem flóttamenn. Þá eru þeir send-
ir í flóttamannabúðir, þar sem þeir eiga
að bíða meðan mál þeirra eru tekin fyr-
ir. Það getur tekið allt að tvö ár og á
meðan hafa þeir svefnstað og fá að borða,
auk þess sem þeir fá vasapening. Lífið í
flóttamannabúðunum er sannarlega ekk-
ert lúxuslíf, því flóttamennirnir geta ekki
tekið að sér vinnu og skólaganga er tak-
mörkuð. Fyrir þá sem koma hingað í
glæpasamlegum erindum er þetta hins
vegar ágætis aðstaða til að stunda iðju
sína. Ýmis mál hafa komið upp, þar sem
flóttamenn hafa stofnað nokkurs konar
samtök og farið í ránsferðir um nágrenn-
ið. Fyrr á árinu var upprættur hópur, sem
gerði' út á að brjótast inn í hverfunum
norður af Kaupmannahöfn, þar sem mik-
ið af vel stæðu fólki býr í einbýlishúsum.
Þetta eru engir venjulegir flóttamenn,
heldur oft fólk, sem á þegar glæpaferií
að baki heima fyrir.
En það er ekki aðeins að þessir náung-
ar hrelli Dani með miður þokkalegri iðju
sinni, heldur eitra þeir einnig andrúms-
loftið í flóttamannabúðunum. Þeir eru oft
ofbeldishneigðir og koma illa fram við
aðra í búðunum, bæði flóttamenn og
starfsfólk, hafa í hótunum og hræða fólk.
Því hefur verið talað um að koma upp
sérstökum búðum, þar sem hægt væri
að hafa sh'ka flóttamenn í einangrun frá
öðrum, en ekki síst til að hindra að glæpa-
mennimir snuðri uppi danska bræður í
andanum og koma í veg fyrir að glæpa-
starfsemin verði skipulogð.
Fyrir skömmu kynnti Birthe Weiss
innanríkisráðherra og jafnaðarmaður til-
lögu stjórnarinnar. Hugmyndin er að
þegar flóttamenn komi til landsins verði
sérstakt auga haft á fólki frá Eystrasalts-
löndunum, Rúmeníu og Póllandi, sem
hingað kemur án sérstakra ástæðna, en
annarra landa fólk gæti einnig verið at-
hugað. Þeir sem veki tortryggni við kom-
una til landsins verði ekki sendir í venju-
legar flóttamannabúðir, heldur í einangr-
aðar búðir, þar sem mál þeirra verði af-
greitt á 2-4 sólarhringum, þannig að
þeir nái ekki að hafa samband við neinn
hér og komist ekki til að gera neitt af
sér. Ráðherrann segir þessar móttökur
ætlaðar þeim, sem ekki hafa neinn mögu-
leika á því að fá dvalarleyfi hér, en nota
sér kerfið til að dveljast hér um hríð og
fremja glæpi, eða valda slæmu andrúms-
lofti í venjulegu flóttamannabúðunum.
Þessar hugmyndir hafa verið ræddar
um skeið bæði innan stjórnar og stjórnar-
andstöðu, en útfærsla þeirra hefur verið
harðlega gagnrýnd. Hingað t.il hefur ver-
ið talað um að finna þessum mönnum
stað úti á landi, svo auðvelt væri að hafa
auga með þeim og þeir ættu ógreiðan
aðgang að öðrum. Ráðherrann fékk þó
augastað á lóð í miðbænum, rétt við
Vesturbrú, sem er ein helsta miðstöð eit-
urlyflasölu, vændis og annarrar glæpa-
starfsemi. Reyndar er þetta beint á móti
höfuðstöðvum Kaupmannahafnarlögregl-
unnar og við hlið Ríkislögreglunnar, en
úr þessari átt er engin hrifning yfir stað-
setningunni, vegna nálægðarinnar við
Vesturbrú og miðbæinn yfirleitt.
Fulltrúi Ihaldsflokksins í laganefnd
þingsins, sem hefur haft málið til um-
fjöllunar, sagðist vera skekinn vegna
ákvörðunar ráðherrans. Það fólk, sem
væri um að ræða hér, væri ekki venju-
legt flóttafólk, sem ætti um sárt að binda,
heldur fólk sem gerði út á að komast
hingað í stutt frí, eða til að fremja glæpi.
Þess vegna ætti ekki að taka það neinum
vettlingatökum, heldur föstum tökum,
afgreiða mál jpeirra í snarhasti meðan
það væri einangrað og senda það til baka
sem skjótast. A endanum varð þó úr að
fínna þessum móttökubúðum stað utan-
bæjar.
Traust er gott, en eftirlit betra
Þessi munur á afstöðu innanríkisráð-
herrans annars vegar og íhaldsþing-
mannsins hins vegar segir nokkuð um
mismunandi hugmyndir meðal Dana um
hvernig eigi að taka á glæpum. Á að
láta hart mæta hörðu eða hafa hlutina
fijálsa, því flestir séu hvort sem er heiðar-
legir? Þessi togstreita kemur víða fram
og í umræðum sem varða þessi efni heyr-
ist stundum að traust sé gott, en eftirlit
betra. En það er einmitt eftirlit, sem
danskir stjórnmálamenn eiga margir
hveijir mjög erfitt að sætta sig við. Fjöl-
miðlar fylgja þeim dyggilega eftir og
vaka yfir hveiju skrefi, sem túlka má sem
einhvers konar eftirlit.
Það má nefna ýmis dæmi um þessa
afstöðu. Eitt af þeim skondnari er að
fyrir skömmu strauk glæpamaður nokkur
úr fangelsi hér. Hann var alkunnur fyrir
að hafa flúið þrisvar áður úr fangelsi.
Þrátt fyrir frægð sína á þessu sviði hik-
aði starfsfólk fangelsins ekki við að lána
honum ýmis verkfæri til tómstundaiðju,
eins og þor og ýmsar tegundir tanga og
klippa. Hann brást traustinu og í stað
þess að munda tólin innan fangelsins,
notaði hann þau á fangelsið, sagaði og
klippti og komst út um rimlana.
Undanfarið hefur töluvert verið rætt
hér um eftirlit með barnaklámefni, því
önnur sjónvarpsstöðin hefur sýnt þætti
um danskan Ijósmyndara, sem sagðist
taka slíkar myndir og dreifa. Hingað til
hefur hins vegar verið haldið að slíkt
efni á dönskum markaði væri undantekn-
ingarlaust erlent. Maðurinn dró reyndar
yfirlýsingu sína til baka, en málið er enn
í athugun. Rætt hefur verið um að herða
viðurlög við barnaklámi og gera það sak-
hæft að hafa slíkt efni í fórum sínum,
en ekki aðeins að framleiða það, eins og
nú er. Erling Olsen dómsmálaráðherra
og flokksbróðir Weiss hefur áður sagt
um þær hugmyndir að hann hafi ekki
áhuga á að fara að leita í vösum fólks.
Ekki hefur þó komið til tals að fara að
leita skipulega á fólki í leit að þessu efni,
heldur aðeins að nota viðurlög, þegar til-
efni er til, rétt eins og í svo mörgum
öðrum rannsóknum, en orð hans lýsa
þeirri óbeit, sem margir Danir hafa á
eftirliti.
Fijálsleg fíkniefnalöggjöf og meðferð
þeirra mála hefur orðið til þess að fíkni-
efnaneytendur frá hinum ríkjum Norður-
landanna koma hingað gjarnan til langdv-
ala. í kringum þetta blómstrar vændi,
þar sem gert er út á neyð og umkomu-
leysi ungra stúlkna, sem eru fíkniefna-
neytendur. Og um leið fjölgar ýmiss kon-
ar smáglæpum, sem fíkniefnaneytendur
stunda til að fjármagna neysluna.
Það er alltaf fallegt að trúa fólki og
treysta því, en það er því miður til fólk,
sem nýtir sér þetta hugarfar. Ýmislegt
bendir til að Danir þurfi á næstunni að
sætta sig við að þjóðfélagið er ekki leng-
ur eins og lítið og notalegt sveitaþorp,
þar sem strangt eftirlit er ónauðsynlegt.
Ef þeir gera það ekki, er hætta á að
ýmiss konar óæskileg öfl nýti sér góðlát-
lega afstöðu þeirra.
Sigrún
Davíðsdóttir
Jy/ 9y/ *V/ »v/
pumn> pumip pumn} pumip pumip
Art. 389020 Indoor Art. 389030 Excite
St. 32-39 verð 2.990 St. 39-47 verð 4.980
St. 40-47 verð 3.490
Art 339300 Sky Nubuk
St. 39-47 verð 7.990
Art. 339520 Sky Express
St. 39-47 verð 7.990
puimp pumip pumip pumn^ PumnK
Art. 389060 Court pro
St. 38-47 verð 6.995
Art. 239030 Liberate
St. 35-47 verð 4.990
Art. 2464 Handball
St. 39-47 verð 5.490
Art. 138170 Manhattan
St. 39-47 verð 6.990