Morgunblaðið - 29.09.1994, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994 11
FRETTIR
Vinnuveitendasambandið vill fara hægar í sakirnar í vegaframk væmdum
Varað við áhrif-
um á verðlagið
FRAMKVÆMDASTJÓRN Vinnu-
veitendasambands íslands telur að
ekki beri að fara jafnhratt í upp-
byggingu samgöngumannvirkja á
næstu þremur árum og hugmyndir
þær, sem Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra og Halldór Blöndal sam-
gönguráðherra hafa kynnt, gera ráð
fyrir. VSÍ telur að þær hugmyndir
geti stefnt verðlagsmarkmiðum í
tvísýnu og ýtt undir vaxtahækkun.
VSI hvetur þó til þess að flýtt verði
arðsömustu framkvæmdunum, þ.e.
á höfuðborgarsvæðinu. Forsætis-
ráðherra segir sjálfsagt að fara yfir
hugmyndirnar á ný en sagðist telja
að aðgerðir sem þessar væru vel
innan allra hættumarka í þeim
stöðuleika sem nú er og samdrætti
í lánsfjáreftirspurn ríkisins.
Hugmyndir ráðherranna, sem
kynntar voru fyrir skömmu, miðuðu
við að allt að sjö milljarðar króna
bættust við fjárveitingar til fyrir-
hugaðra nýframkvæmda sam-
kvæmt vegaáætlun á næstu þremur
árum. Fjár til þessa yrði aflað með
hækkun benzíngjalds sem þessu
næmi á næstu tíu árum, en fram-
kvæmdirnar sjálfar yrðu að mestu
fjármagnaðar með lánsfé. Gert hef-
ur verið ráð fyrir að viðbótarskatt-
tekjunum verði ráðstafað í hlutfalli
Nær óhugs-
andi að far-
aldurinn
nái hingað
VIÐ þær aðstæður sem hér ríkja
má telja óhugsandi að svartadauða-
faraldur nái útbreiðslu hér á landi,
segir í frétt frá Landlæknisembætt-
inu. Þá er ekki talin ástæða til að
hindra fólk að ferðast til Indlands.
Heilsustofnun þjóðanna hefur
sent Landlæknisembættinu tilkynn-
ingu vegna svartadauðafaraldurs
sem geisar á Indlandi. Þar kemur
fram að um tvennskonar faraldra
er að ræða í ríkjunum Maharashtra
og Gujarat. Fram kemur að sjúk-
linga með einkenni eigi að með-
höndla með sýklalyfjum en til er
bóluefni gegn svartadauða. Ónæm-
ið endist stutt auk þess sem bólu-
efnið hefur aukaverkanir og er því
ekki ráðlagt fyrir aðra en þá sem
eru í miklum áhættuhóp. Er það
eingöngu notað til að hindra svarta-
dauða en er ekki notað þegar far-
aldur er hafinn.
Áhersla er lögð á að ekki er
ástæða til að hindra fólk að ferðast
til Indlands. Er þeim sem koma frá
hugsanlega smituðum svæðum ráð-
lagt að leita læknis ef einkenni
koma innan sex daga frá dvöl á
svæðinu. Ekki er talin þörf á frek-
ari varúðarráðstöfunum að sinni.
--------» ■♦ ♦
Þróunar-
samning-
urvið
Namibíu
ÍSLAND mun veita fjórar milljónir
Bandaríkjadala eða rúmlega 270
millj. fsl. kr. á næstu fjórum árum
vegna þróunarsamstarfs íslands og
Namibíu en nýr samningur um sam-
vinnu landanna var undirritaður í
Wipdhoek 23. september sl.
í nýja samningnum, sem er að
mestu endurnýjun á samstarfs-
samningi landanna frá 1990/91,
verður aukin áhersla lögð á aðstoð
við kennslu og þjálfun skipstjórnar-
manna.
við íbúafjölda einstakra kjördæma
og meirihluti fjárins fari þannig til
framkvæmda á höfuðborgarsvæð-
inu.
Arðsemi ráði forgangsröð
í samþykkt framkváemdastjórnar
VSÍ segir að tekið sé undir mikil-
vægi þess að flýta brýnum og arð-
sömum vegagerðarframkvæmdum,
en þungi þeirra sé á höfuðborgar-
svæðinu. Framkvæmdum beri að
forgangsraða eftir arðsemi.
„VSI telur æskilegt að opinberir
aðilar auki við fjárfestingar á sam-
dráttartímum og dragi úr á upp-
gangstímum í efnahagslífi. Á þeim
grundvelli eru að mati VSÍ forsend-
ur fyrir auknum framkvæmdum á
allra næstu misserum," segir í sam-
þykktinni. „Það samræmist á hinn
bóginn illa hugmyndum um sveiflu-
jöfnunarhlutverk opinberra fram-
kvæmda að ákveða umfang þeirra
STJÓRN Læknafélags íslands hef-
ur ákveðið að eftirleiðis verði frjáls
verðlagning á almennuin læknis-
vottorðum. En samkvæmt nýrri
reglugerð heilbrigðisráðherra, sem
tekur gildi 1. október, þurfa sjúkra-
tryggðir að greiða 300-700 krónur
fyrir læknisvottorð á eyðublöðum
Tryggingastofnunar ríkisins vegna
almannatrygginga eða bóta félags-
legrar aðstoðar. Jafnframt er ein-
staklingum gert að greiða fyrir öll
almenn læknisvottorð önnur en
vottorð vegna örorkumats.
Sverrir Bergmann, formaður
Læknafélags íslands sagði að stjórn
Læknafélagsins hefði einnig mót-
mælt því að verið væri að leggja
aukin gjöld á fólk sem er veikt og
á oft í félagslegum erfiðleikum og
þarfnast þessara vottorða.
Hann sagði að í samningi við
heilsugæslulækna frá árinu 1991
kæmi fram að Tryggingastofnun
ríkisins skuldbyndi sig til að greiða
fyrir almenn læknisvottorð. Samn-
ingurinn féll úr gildi um síðustu
til margra ára, a.m.k. ekki þegar
framkvæmdunum'-er öðrum þræði
ætlað að vinna upp slaka í atvinnu."
Hætta á verð- og vaxtahækkun
VSÍ segir að skattahækkun
vegna framkvæmdanna muni valda
því að verðlag hækki um u.þ.b.
0,25%. „Þetta eru mikil verðlags-
áhrif, ekki sízt í ljósi markmiða um
að halda verðbólgu undir 2% á
næstu árum. Allt að 7 milljarða
lánsfjáröflun til viðbótar öðrum
áformum getur ýtt undir vaxta-
hækkun. VSÍ telur því að takmarka
beri umfang framkvæmda við það,
að lántökur leiði ekki til hækkunar
vaxta eðaþensluáhrifa á afmörkuðu
sviði atvinnustarfsemi ogjafnframt
að enga þá áhættu megi taka, sem
stefnt geti verðlagsmarkmiðum í
tvísýnu."
Framkvæmdastjórn VSÍ telur því
„ekki þénanlegt að fara jafnhratt í
áramót og hefur ekki verið samið
á ný en samkvæmt ákvæði í al-
mannatryggingalögum skal samn-
ingur vera milli aðila.
Einhliða ákvörðun
„Þessi samningur gildir því frá
degi til dags þar til um semst,"
sagði Sverrir. „Við lítum svo á að
þetta sé ekki hliðstætt því þegar
ráðherra ákveður hvað sjúklingar
eigi að borga mikið af sérfræði-
gjaldi, heldur sé einhliða verið að
taka út ákvæði sem búið er að semja
um. Þetta eru því vanefndir sem
Tryggingastofnun er gert að fram-
kvæma. Við mótmælum því þar sem
þetta er að okkar mati ekki rétt
aðferð þegar verið er að fjalla um
ákvæði í samningum tveggja aðila.
Við vonumst til að reglugerðin verði
dregin til baka og að samningar
haldi áfram,“ sagði hann. „Þá vakn-
ar sú spurning hvort þetta ákvæði
kæmi inn aftur með í'ormlegum
hætti eins og var. Á meðan þetta
er svona þá verður unnið eftir
uppbyggingu samgöngumannvirkja
og umræddar hugmyndir miða að.“
Guðni Níels Aðalsteinsson, hag-
fræðingur VSÍ, sagði í samtali við
Morgunblaðið að leggja bæri
áherzlu á arðsömustu framkvæmd-
irnar, þ.e. á höfuðborgarsvæðinu,
en ekki að gera áætlanir til fleiri
ára um framkvæmdir um allt land.
Bensínnotkun
Forsætisráðherra sagði að fyrir
skömmu hefði komið í ljós að VSÍ
teldi of stórt hugsað og eðlilegast
að eingöngu yrði framkvæmt á
höfuðborgarsvæðinu. „Ég hafði
gert ráð fyrir því að framkvæmda-
hlutfallið yrði í hlutfalli við bensín
notkun landsmanna, það er að mest
yrði framkvæmt þar sem mest er
keypt,“ sagði Davíð. „Taldi líkleg-
ast að það gæti orði sátt um þessa
aðferð en það er nauðsynlegt að
sæmileg samstaða sé um aðgerðir
af þessu tagi áður en menn fara í
svona lántöku. Hins vegar er það
mat manna að það reyni á þol efna-
hagslífsins að fara svona hratt fram
og þá þarf að fara vandlega yfir
það. Það mætti hugsa sér örlítið
aðrar útfærslur og smærri áfanga,
sem menn geta orðið sáttari við,“
sagði forsætisráðherra.
ákvæðum samningsins en þessi
ákvæði sem einhliða eru tekin út
leiða til fijálsrar verðlagningar hjá
læknum."
Kosið á
Hólmavík
KOSIÐ verður til sveitarstjórnar í
Hólmavík nk. laugardag, 1. október,
en sem kunnugt er voru kosningarn-
ar í vor úrskurðaðar ógildar. Á kjör-
skrá eru 343. Þrír listar eru í kjöri,
H-listi almennra borgara, L-listi
framfarasinnaðra borgara og N-listi
nýs framboðs sjálfstæðismanna og
óháðra.
Kosið er í tveimur kjördeildum, í
Hólmavík og á Nauteyri. Kjörfundur
hefst kl. 10.
Ný sveitarstjórn tekur við á
Hólmavík 15. október. Fráfarandi
sveitarstjórn hefur þá stjórnað sveit-
arfélaginu í tæplega fjögur og hálft
ár.
AKUREYRl
Listasafnið
á Akureyri
Sýnir verk
Guðmundar
frá Miðdal
í Grænlandi
SÝNING á verkum Guðmundar
Einarssonar frá Miðdal verður opn-
uð í Ammassalik Museum á Græn-
landi næstkomandi laugardag, 1.
október. Sýnd verða verk sem hann
hefur gert af grænlensku lands-
lagi, dýrum og öðrum grænlenskum
fyrirmyndum. Sýningin er á vegum
Listasafnsins á Ákureyri í samvinnu
við fjölskyldu Guðmundar og bygg-
ir að miklu leyti á sýningu á verkum
hans sem var í Listasafninum í
apríl á síðasta ári.
Á sýningunni mun Ari Trausti
Guðmundsson flytja fyrirlestur um
Guðmund Einarsson og Haraldur
Ingi Haraldsson flytja fyrirlestur
með myndasýningu um íslensk
þjóðsagnadýr.
Sýningin í Ammassalik er að til-
efni þess að bærinn heldur upp á
100 ára afmæli sitt og er hún styrkt
af Grænlandssjóðnum.
Sigurður Árni
sýnir í Lista-
safninu
SIGURÐUR Árni Sigurðsson opnar
sýningu á verkum sínum í öllum
þremur sölum Listasafnsins á Akur-
eyri á laugardaginn, 1. október.
Hann er fæddur á Akureyri árið
1963, nam við Myndlistaskólann á
Akureyri 1983-1984 og við Mynd-
lista- og handíðaskóla Islands árin
1984-1987. Þá hélt Sigurður til
framhaldsnáms í Frakklandi við
École Nationale d’Art de Cergy-
Pontoise 1987-1990 og við Institut
des Hautes Études en Arts Plastiqu-
es, París 1990-1991.
Sýningin í Listasafninum á Akur-
eyri er 10. einkasýning Sigurðar
en hann hefur verið iðinn við sýn-
ingarhald bæði hér heima og erlend-
is. Hann hefur tekið þátt í 14 sam-
sýningum, gefið út þijú bókverk og
verk hans eru í eigu safna á ís-
landi, í Frakkiandi, Sviss og Þýska-
landi.
Sigurður Árni hefur undanfarin
ár búið í Frakklandi og starfað að
list sinni og þar hafa verk hans
vakið athygli líkt og víðar i Evrópu
þar sem hann hefur sýnt.
Sýningin í Listasafninu á Ak-
ureyri stendur til 2. nóvember.
Safnið er opið alla daga nema
mánudaga frá kl. 14-18.
Barparið
aftur á
fjalirnar
SÝNINGAR Leikfélags Akureyrar
á leikritinu BarPar eftir Jim Cartw-
eight undir leikstjórn Hávars Sigur-
jónssonar hefjast aftur annað kvöld,
föstudagskvöldið 30. september í
Þorpinu, Höfðahlíð 1 og verður það
53. sýning þessa verks. Þessi
tveggja manna kabarett sló í gegn
á síðasta leikári, en þá bryddaði
LA upp á þeirri nýjung að innrétta
lítið leikhús sérstaklega fyrir þessa
sýningu sem gekk fyrir fullu húsi
frá janúar fram í maí en þá var
barinn settur niður á Listahátíð í
Reykjavík.
Sunna Borg og Þráinn Karlsson
fara með öll hlutverk leiksins, 14
að tölu og hafa þau hlotið lof fyrir
túlkun sína á Barparinu og gestum
þeirra.
Guðrún J. Bachmann þýddi leik-
ritið, Ingvar Björnsson hannaði lýs-
ingu og leikmynd og búningar eru
eftir Helgu I. Stefánsdóttur.
Læknafélag Islands sendir frá sér ályktun
Frjáls verðlagning á
almenn læknisvottorð