Morgunblaðið - 29.09.1994, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994 15
NEYTENDUR
STARFSMAÐUR Ingvars og Gylfa smíðar húsgögn fyrir hótel
í Kamchatka.
Islenskar innréttingar
og húsgögri í Kamchatka
ÞÓTT forsvarsmenn sumra ís-
lenskra fyrirtækja hafi undanfarið
sagt „nei takk“ við íslenskri hús-
gagnaframleiðslu gegnir öðru
máli í Kamchatka, sem er austast
í fyrrum Sovétríkjunum.
Islenska húsgagnafyrirtækið
Ingvar og Gylfi hefur nýlokið við
smíði á innréttingum, fataskápum,
rúmgöflum, náttborðum og skrif-
borðum í 23 herbergi í hótel, sem
verið er að byggja og á að verða
orlofshótel fyrir starfsmenn stór-
fyrirtækis þar í landi.
Hermann Gunnarsson, einn for-
svarsmanna Ingvars og Gylfa, seg-
ir ekki algengt að íslensk hús-
gagnafyrirtæki framleiði fyrir er-
lendan markað. Verkefnið hafi ver-
ið mikil lyftistöng fyrir fyrirtækið,
sem er með 13 manns í vinnu.
Eins og mörg fyrirtæki í hús-
gagnaiðnaði gera Ingvar og Gylfi
tilboð í mörg verk á hveiju ári.
Hermann segir að í þessu tilfelli
hafi Verkfræðistofan Hnit hf. ósk-
að tilboða. Hnit hf. hefur til
skamms tíma haft ýmis verkefni
á sínum snærum í Kamchatka fyr-
ir UTRF, sem er stórt útgerðarfyr-
irtæki í höfuðborginni Petropavi-
ovsk. UTRF er að byggja upp
heilsusvæði rétt fyrir utan borg-
ina, en þar er hótelið með íslensku
innréttingunum, sem sendar voru
utan nýverið.
Morgunblaðið/Rax
Pottréttir
og snitsel
FERSKAR kjötvörur hafa
sent frá sér nýjar vörur undir
Óðals-vörumerkinu. Þetta eru
réttir sem eru tilbúnir á
pönnu eða í ofn.
Meðal nýrra rétta eru
svína-, nauta- og folaldasnits-
el, kryddað og skreytt eða
fyllt með t.d. beikoni og osti.
Þá er einnig kryddað buff úr
lamba-, folalda og svínakjöti
og að auki hvítlauksmedister-
pylsa sem inniheldur 50%
hreint svínahakk.
Ný lambahvítlaukssteik er
einnig fáanleg. Sömuleiðis
blanda af svína-, og nauta-
hakki og hálftilbúnir pott-,
eða pönnuréttir úr svína-,
nauta- og kindakjöti. Þeir eru
fullkryddaðir með grænmeti
og á eftir að láta þá sjóða
þar til kjötið er tilbúið á disk-
inn.
Nýr Svali í
stærri fernu
HLUTFALL safa í nýjum
Svala, sem nú er kominn á
markað er 35% en var áður
15%. í stað hvíts sykurs er
ávaxta-, og þrúgusykur. Sýra
í safanum var minnkuð að
ráði tannlæknis, því of mikil
sýra getur valdið því að gler-
ungur tanna leysist upp og
hverfi . I appelsínusvala var
sýra minnkuð um helming frá
því sem áður var. Svalinn er
bættur með C-vítamíni.
Tveggja lítra Svala-femur
munu breytast aðeins á
næstu vikum og verður Svali
einnig seldur í minni umbúð-
um. Þá er að vænta fleiri
bragðtegunda.
Margir eiga erfitt með
að trúa verðinu á Peugeot 405.
v
ísland er sérstætt land með sérstætt umhverfi.
íslendingar þurfa því ööruvísi bíla.
Bíla sem bera þá um misjafna vegi af sama fótvissa Öryggi og íslenski hesturinn.
Bxla með mjúka langa fjöðrun, og sæti sem aldrei þreyta.
Togmiklar vélar í brekkurnar og spameytni sem engir ná sem Frakkar.
Ríkulegan Staöalbúnaö s.s. vökvastýri, veltistýri, fjarstýrðar samlæsingar,
upphituð og hæðarstillanleg sæti og svo margt fleira.
Þaó er von aö fólk nuddi augun eftir aö hafa skoöaó 1995 árgeröina af
Peugeot 405 og litur svo á veröiö. En þér er óhætt aö trúa þessu:
Peugeot 405 GLX: kr. 1.470.000
Nýbýlavegi 2, Kópavogi, sími 42600.