Morgunblaðið - 29.09.1994, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994 23
Kúrekar
í kröggum
KVIKMYNPIR
Iláskólabíö
KÚREKAR f NEW YORK
„THE COWBOY WAY“ ★ ★
Leikstjóri: Gregg Champion. Hand-
rit: Bill Wittliff. Framleiðandi: Brian
Grazer. Aðalhlutverk: Woody Harr-
elson, Kiefer Sutherland, Dylan
McDermott, Emie Hudson, Cara
Buono. Universal. 1994.
KRÓKÓDÍLA-DUNDEE hefur
undanfarin ár getið af sér ófáar
eftirlíkingar þar sem hinn strang-
heiðarlegi sveitamaður lendir í vill-
um í stórborginni. í
Kúrekum í New York
með Woody Harrelson
og Kiefer Sutherland
segir af kúrekum
tveimur frá Nýju-Mex-
íkó sem halda til New
York í leit að vini sínum
og dóttur hans og þykir
borgarmenningin held-
ur framandleg. Eins og
tíðkast í þessum mynd-
um er siðmenningin öll
í borgum en villi-
mennskan upp til sveita
og reynt er að spila á
þær andstæður en „Kú-
rekum“ tekst ekki að gera neitt
nýtt úr því og þótt Woody reyni
hvað hann getur að halda uppi fjör-
inu dugar það ekki til. Þetta er
gamanhasarmynd sem ekki er nógu
fyndin og býður ekki upp á almenni-
legan hasar fyrr en rétt í lokin.
Stærsti gallinn liggur í handrit-
inu eftir Bill Wittliff sem er glopp-
ótt og gersamlega laust við allan
frumleika. Hér er stuðst við fyrir-
fram gefnar formúlur. Woody og
Kiefer mynda klassískan gríndúett
þar sem annar (Woody) er í trúðs-
hlutverkinu en hinn er alvarlegi
náunginn með ábyrgðarkenndina.
Þeim kemur illa saman í byijun,
svosem eins og klisjan hljóðar uppá,
vegna atburða í fortíðinni en hætt-
urnar í New York, sem er enginn
kántríbær, þjappar þeim saman.
Þetta er margþvælt efni hvort sem
í ævintýramyndum eins og „Rom-
ancing the Stone“ eða nútímavestr-
um eins og þessum. Þótt Woody
og Kiefer séu engir Robert Redford
og Paul Newman komast þeir að
mestu klakklaust frá hlutverkun-
um. Woody er í bragðmeiri rullunni
eins og gefur að skilja. Hún að lík-
indum sérsaumuð á hann því hann
gæti sem best verið fjörugri tví-
burabróðir Woodys í gamanþáttun-
um Staupasteini.
Þeir félagar komast á slóð Dyl-
ans McDermotts sem er óþokkinn
í sögunni og stundar hvíta þræla-
sölu en er ekkert sérstaklega ógn-
vekjandi í sínum svarta leðurfrakka
og með sitt snyrtilega þriggja daga
skegg. Talandi um skort á frum-
leika!
Kúrekar í New York kemur þann-
ig í fáu á óvart en heldur sig við
troðnar slóðir afþreyingariðnaðar-
ins; þess var ekki langt að bíða að
Woody og Kiefer þeystu á hestum
um stórborgina. Gamansemin er
ekki upp á marga fiska og hasarinn
ekki heldur en Woody og Kiefer
bjarga því sem bjargað verður.
Arnaldur Indriðason
ATRIÐI úr bandarísku gamanmyndinni
„The Cowboy Way“.
Margt býr
í tölvunni
KVIKMYNPIR
Saga Bíó
(„GHOST IN THE
MACHINE") ★ ★
Leikstjóri Rachel Talalay. Handrit
William Davies og William Osbome.
Tónlist Graeme Revell. Aðalleikend-
ur Karen Allen, Chris Mulkey, Ted
Marcoix. Bandarísk. 20th Century
Fox 1994
ÞAÐ hlaut að koma að því að
gerð yrði hátæknidraugamynd, það
er komið fram á síðasta áratug ald-
arinnar. Fjöldamorðingi gengur laus
í borginni, hefur þann sið að ræna
minnisbókum fórnarlamba sinna
áður en hann lætur til skarar skríða.
Tekst að nappa einni slíkri frá frá-
skilinni móðir (Karen Allen), sem
býr ein með syni sínum, 13 ára tölvu-
snillingi. Sjálfur telst morðinginn í
þeim hópi, en áður en honum tekst
að kála AUen og syni lendir kauði í
bílslysi og gefur upp andann í snið-
myndatökutæki á spítala. Þar lendir
sálin svört í hugbúnaði spítalans,
sem aftur tengist umfangsmiklu
tölvuneti og nú gerir hann Allen
allan þann miska sem hann getur
og með aðstoð tölvutækninnar virð-
ast honum flestar leiðir færar. Það
hefur engan tilgang fyrir Allen að
kalla á særingamann af gamla skól-
anum, heldur útsmogið, landsfrægt
tölvuséní (Chris Mulkey) og hefst
hann handa við að særa ófögnuðinn
úr tækjunum.
í tölvuheiminum er vel þekktur
hópur manna sem kallaðir eru hack-
ers á ensku, en hafa hlotið, a.m.k.
í þessari þýðingu, heitið „hjakkari",
á íslenskunni. Þeir gera sér það til
dundurs að komast inní tölvubanka
og einkatölvur almennings og gera
fólki oftast lífið leitt með framferði
sínu. Hreinsa útaf bankareikningum,
fella úr gildi kreditkort, ökuskír-
teini, geta haft áhrif á allar tölvu-
færslur viðkomandi. Hjakkarinn hér
er dauður og þarf hátækniklókindi
til að koma fyrir þessari nútímalegu
afturgöngu. Öll er tæknivinnan í
myndinni vel unnin, tölvugrafíkin
og brellurnar með ágætum og kemur
þessi smámynd talsvert á óvart.
Bæði er efpið frumlegt, hnyttið og
úrvinnslan mikið betri en maður átti
von á. Hins vegar eru höfundar og
leikstjóri Ghost in the Machine, sem
mætti flokka eins vel undir fantasíu
og hrollvekju, full uppteknir við
galdra tölvugrafíkurinnar, persón-
urnar lítið spennandi. Hér er tví-
mælalaust komin mynd sem gleðja
mun tölvufrík þjóðarinnar og hefði
með meiri yfirlegu getað orðið at-
hyglisverð tímamótamynd. Það er
engin spurning að leikstjórinn, Rac-
hel Talalay, sem á að baki síðustu
myndina um Freddy karlinn Krueger
og kenndur er við martraðir í Alm-
stræti, á eftir að gera betur.
Sæbjörn Valdimarsson
t
P.S. Náðu þér strax í miða - síðast varð uppselt!
Við vonum svo sannarlega
að það verði til
miðar
handa öllum
fyrir þáttinn á laugardaginn,
því það gleður okkur ekkert meir en að sjá
vinningana streyma út tii þeirra sem spila með og
styrkja í leiðinni uppbyggingarstarf á
Hrafnistuheimilinum.
Vinsældír BINGÓLOTTÓSINS eru slíkar að
fjölmargir hafa ekki enn átt þess kost að spila
með vegna þess að allir miðar hafa selst upp.
Náðu þér I miða
strax
því sölu lýkur kl. 16:00 á laugardögum
og þá getur orðið biðröð.
Góða skemmtun.