Morgunblaðið - 29.09.1994, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994 33
m m MfHnuMR!
IfíSÍluÍÍHHÍÍÍ
ELFA-LVI
Einfaldir eða tvöfaldir olíufylltir
rafmagnsofnar350 - 2000w. ^
Hæð 30, 50 eða 59 cm.
ELFA-OSO
Hitakútar úr ryðfríu stáli. Stærðir
30- 300 lítra, útvegum aðrar stærðir
frá 400-10.000 lítra.
ELFA-VARMEBARONEN
Hitatúba/ rafketill 12kw, 230v.
1 fasa. Útvegum aðrar stærðir allt
að 1200kw.
ELFA-VORTICE
Rafmagnsþilofnar, 600 - 2000w.
Elfa rafhitunarbúnaðurinn er þraut-
reyndur við íslenskar aðstæður.
HAGSTÆTT VERÐ OG gg /»/
GREIÐSLUSKILMÁLAR.
Einar Farestveit & Co.hff.
Borgartúni 28 - & 622901 og 622900
'J Guðni B. Einarsson ^
skemmtir gestum til kl. 3
föstudags- og laugardagskvöld.
MAMMA ROSA, Hamraborg 11, simi 42166
Nýbýlavegi 22, sími 46085
Fostudags- og laugardagskvold
MjollHálmog
GunnarTrveevason
Smiðjuvegi 14 (rauð gata)
í Kópavogi, sími: 87 70 99
Amia Vilhjálms og
Carðar Karbson
. flytja hressilega danstónlist
* föstudag og laugardag
‘ STÓRT BARDANSGÓLF!
MINNINGAR
GUNNAR NIELSEN
BJÖRNSSON
+ Gunnar Nielsen Björnsson
fæddist i Reykjavík 23. apríl
1943. Hann lést á Borgarspítal-
anum 15. september síðastliðinn
og var útför hans gerð frá Foss-
vogskapellu 22. september.
VINUR okkar Gunnar Nielsen
Björnsson er látinn. Eftir stöndum
við undrandi og ringluð. Gunnar sem
alltaf var við höndina og alltaf fyrst-
ur að bjóða sig fram til hjálpar og
aðstoðar. Hvernig gat þetta gerst?
Við kynntumst Gunnari í Vinafé-
laginu þar sem hann var einn af
mörgum stofnendum þess. Hann
vann félaginu af heilum hug og vildi
allt gera til að vegur þess væri sem
mestur.
Ég man ekki eftir að hann vant-
aði á nokkurn fund félagsins. Venju-
lega var hann fyrsti maðurinn sem
ég mætti á fundunum.
Hann tók að sér spilakvöldin og
voru þau oft mjög skemmtileg og
þá kunni Gunnar vel við sig í góðra
vina hópi.
Það er óhætt að segja að Gunnar
væri vinur vina sinna. Það fengum
við að reyna í félaginu. Vissi hann
að einhver ætti í erfiðleikum var
hann kominn til hjálpar. Þau eru ófá
kvöldin sem hann sat hjá örvænting-
arfulium vini og talaði í hann kjark
og hætti ekki fyrr en hann sá brosin
birtast. Uppgjöf var honum ekki að
skapi.
Hann varð gjaldkeri félagsins á
árinu og leysti hann það vel af hendi,
eins og allt það sem hann tók sér
fyrir hendur í félaginu og verður
erfítt að fínna mann í hans stað.
Við í Vinafélaginu sendum ætt-
ingjum Gunnars okkar innilegustu
samúðarkveðjur um leið og við þökk-
um honum alla þá vináttu sem hann
sýndi okkur.
F.h. Vinafélagsins
Hulda Elvý.
SVAVAING VARSDÓTTIR OG
ÖGMUNDUR SIG URÐSSON
Nú er rétti tíminn til að spara og taka slátur. Á Sláturmarkaði GOÐA,
Kirkjusandi v/Laugamesveg, færðu 5 Borgamesslátur ffá aðeins
2.445 kr. og einnig nýtt kjöt og innmat á góðu verði.
+ Svava Ingvars-
dóttir var
fædd í Neðradal
undir Eyjafjöllum
5. ágúst 1911. Hún
lést 16. maí 1992 á
Sjúkrahúsi Vest-
mannaeyja. For-
eldrar hennar
voru Ingvar Ing-
varsson og Guð-
björg Ólafsdóttir.
Hún fluttist ung til
Eyja og vann við
ýmis störf þar til
hún giftist Ög-
mundi Sigurðssyni
5. október 1940. Ögmundur
Sigurðsson var fæddur á Fag-
urhóli i Vestmannaeyjum 7.
janúar 1911. Hann lést á
Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 22.
september síðastliðinn. For-
eldrar hans voru Sigurður
Jónsson og Þóranna Ögmunds-
dóttir. Hann ólst upp í Landa-
koti til átta ára aldurs, var þá
sendur í fóstur í Kerlingadal í
V-Skaftafellssýslu til 17 ára
aldurs. Kom þá tii Eyja og
stundaði ýmis störf til lands og
sjávar. Ögmundur og Svava
áttu saman fimm börn. Eitt
þeirra lést í frumbernsku. Út-
för Ögmundar fer fram frá
Landakirkju í dag.
NÚ ÞEGAR Mundi tengdafaðir minn
er allur langar mig að minnast þeirra
beggja saman. Svava lést fyrir
tveimur árum eftir erfið veikindi sem
hún átti við að stríða í mörg ár en
andlát hennar bar snöggt að. Kvöld-
ið áður þegar ég var hjá henni og
var að kveðja hana sagði hún að við
þyrftum engar áhyggjur að hafa af
sér, að það væri allt í lagi með sig.
Og henni sem var svo þungt að hún
átti erfitt með mál en þannig var
hún Svava, kvartaði aldrei. Við sem
þekktum hana vel vissum betur hvað
hún átti erfítt oft á tíðum, en alltaf
var hún jafn jákvæð og dugleg, sá
um heimilið, gerði allt af veikum
mætti fram á síðasta dag.
Svava reyndist mér sem besta
móðir og við sátum oft lengi við eld-
húsborðið yfír kaffíbolla og spjölluð-
um mikið. Ég gat alltaf talað við
Svövu um öll mín vandamál, betri
trúnaðarvin var ekki hægt að eiga.
Ég kom inn á heimilið til Svövu og
Munda árið 1966 og var vel tekið.
Við áttum ávallt gott samband.
Eftir að Svava lést var Mundi einn
í húsinu sínu og svoleiðis vildi hann
vera á meðan hann gat eins og hann
sagði við mig: „Hafdís mín, á meðan
ég get hugsað um mig sjálfur þá
vil ég vera hér, mér leiðist ekkert
og það er allt í lagi með mig.“
Við hittumst yfírleitt á hveijum
degi og það verða mikil viðbrigði að
skreppa ekki niður á „Strembó“ eins
og við sögðum. Yngvi hitti pabba
sinn á hveijum degi og fóru þeir þá
í bíltúr um alla eyju, þetta var bara
fastur liður, enda sérstaklega gott
samband og veit ég að hann á eftir
að sakna hans mikið og við öll, en
þetta er víst leið okkar allra og nú
veit ég að Munda líður vel, hann er
laus við allar þjáningar og hann er
með henni Svövu sinni á ný.
Það er margs að minnast sem
ekki verður sett á blað, en ég geymi
í hjarta mínu. Að lokum við ég þakka
fyrir að hafa fengið að kynnast mín-
um elskulegu tengdaforeldrum og
þakka fyrir allt. Við kveðjum þau
með söknuði.
Guð blessi minningu þeirra.
Hafdís Daníelsdóttir
og fjölskylda.
Sláturmarkaður GOÐA er opinn mánudaga
til föstudaga kl. 10-18 og laugardaga kl. 10-14.