Morgunblaðið - 29.09.1994, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994 41
íslensk pör á
leið í úrslitin
BRIDS
Albuqucrquc,
Nýju Mcxíkó
HEIMSMEISTARAMÓTIÐ
í BRIDS
16. september til 1. október.
ÍSLENSK pör áttu í gær góða
möguleika á að komast í úrslit
heimsmeistaramótsins í tvímenn-
ingi. Eftir tvær lotur af fjórum í
undanúrslitum voru Karl Sigur-
hjartarson og Þorlákur Jónsson í
18. sæti og Jakob Kristinsson og
Matthías Þorvaldsson í 48. sæti
en 72 pör spila í úrslitunum sem
hefjast í dag.
Björn Eysteinsson og Aðal-
steinn Jörgensen voru í 129. sæti
af 192 pörum sem spiluðu í undan-
úrslitunum og þurftu því að spila
vel í gær til að ná í úrslitin. Undan-
úrslitunum lauk seint í nótt að
íslenskum tíma.
í kvennaflokki voru Hjördís
Eyþórsdóttir og Ljósbrá Baldurs-
dóttir í 46. sæti af 78 eftir tvær
umferðir í undanúrslitum. 36 pör
komust áfram í úrslitin og með
góðri skor í gær áttu Hjördís og
Ljósbrá góða möguleika að komast
áfram.
í nótt lauk einnig úrslitaleiknum
í Rosenblumsveitakeppninni en
þar mættust sveitir Seymon De-
utsch frá Bandaríkjunum og Erw-
ins Otvosi frá Póllandi. Sveit De-
utch rétt slapp í gegnum fyrstu
síuna í mótinu, þegar sveitum var
fækkað úr 168 í 64; það munaði
raunar svo mjóu að Deutsch var
lagður af stað heim til sín þar sem
hann taldi sveitina enga möguleika
eiga á að komast áfram. En síðan
hefur hún spilað sveita best í
Albuquerque. Með Deutsch spila
Michael Rosenberg, Alan Sontag,
Eddie Kantar, Gaylor Kaisle og
Roger Bates.
I pólsku sveitinni eru þekktir
spilarar, þar á meðal þeir Piotr
Gawrys, Krisztof Lasocki, Cecari
Balicki og Adam Zmudzinski sem
spiluðu úrslitaleikinn gegn Islend-
ingum í Yokohama. Það leit því
allt út fyrir hörku útslitaleik.
Balicki hefur verið í miklu stuði
í Albuquerque eins og sést á þessu
spili sem hann spilaði gegn þýskri
Norður
♦ D
V Á1076
♦ KGIO
♦ ÁG1086
Austur
♦ 10965
■ :#
♦ D9752
Suður
♦ ÁKG873
¥ D2
♦ 532
♦ 43
Vestur Norður Austur Suður
Zmudz. Balicki
1 spaði
2 hjörtu pass pass 2 spaðar
pass 3 hjörtu pass 3 grönd/
Zmudzinski gat ekki sektar-
doblað 2 hjörtu og varð því að
passa og vona að Balicki gæti
doblað. Þegar sú von brást sagði
hann 3 hjörtu til að sýna styrk í
hjarta og sterk spil.
Vestur spilaði út tígli og tían
hélt slag. Balicki hugsaði sig um
dijúga stund og spilaði síðan litlu
laufi úr borði, sem var besta spila-
mennskan ef laufið var 3-3 eða
4-2 með háspili öðru.
Vestur fékk á kóng og spilaði
tígulás og meiri tígli. Og nú var
austur þegar kominn í vanda.
Hann mátti ekki henda laufí því
þá gæti Balicki fríað lauflitinn og
hann mátti augljóslega ekki henda
spaða. Svo hann henti litlu hjarta.
En þegar Balicki lagði niður
laufaás og vestur fylgdi ekki lit
var skipting spilanna ljós. Austur
hlaut að hafa byijað með 4-2-2-5
skiptingu og Balicki tók því hjarta-
ás og spilaði laufagosa.
Ef austur hefði gefið slaginn
gat Balicki spilað fjórum sinnum
spaða og austur hefði orðið að
spila frá laufadrottningunni í lok-
in. Svo austur drap með drottningu
og spilaði spaða, en Balicki stakk
upp spaðaás og tók spaðakóng og
gosa og spilaði austri inn á spaða-
tíu. Hann varð að spila frá 97 í
laufi og gefa blindum tvo síðustu
slagina á 108.
Guðm. Sv. Hermannsson
sveit:
Vestur
♦ 42
▼ KG985
♦ ÁD984
♦ K
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Afmaelisferð í Þórsmörk
laugardaginn 1. október kl.
9.00
Skagfjörðsskáli 40 ára
Félagar sem aðrir eru hvattir til
að fjölmenna í þessa afmælis-
ferð laugardaginn 1. okt. í tilefni
40 ára afmælis Skagfjörðsskála
í Langadal Þórsmörk (sjá einnig
helgarferðina sem kynnt er hér
neðar). Óvenju hagstætt afmæl-
isverð í dagsferðina þannig að
öll fjölskyldan ætti að geta verið
með m.a. frítt f. börn 10 ára og
yngri í fylgd foreldra sinna. Góð
dagskrá í umsjá félagsmanna
m.a. söngur, hljóðfæraleikur,
upplestur, þjóðlegar veitingar,
leitin að „hornsteini" Skag-
fjörðsskála og málverkasýning
(krakkar hafið liti meðferðisl).
Nú er haustlitatíminn í Þórs-
mörkinni.
Pantiö tímanlega eða ( síöasta
lagi fyrir kl. 13.00 á föstudag.
Brottför kl. 9.00 frá BSÍ, austan-
megin, og Mörkinni 6. Ath. að
fyrirhugaðri laugardagsferð á
Þríhyrning er frestað.
Haustlita- og grillveislu-
ferð í Þórsmörk 30/9-2/10
Brottför föstud. kl. 20.00.
Gönguferðir á daginn, kvöldvaka
og grillveisla á laugardagskvöld-
inu. Einnig mögulegt að fara í 2
daga ferð með brottför laugar-
dagsmorgun kl. 9.00. Tilvalið að
vera með og fagna afmæli Skag-
fjörðsskála. Farmiðar á skrif-
stofu, Mörkinni 6.
Ferðafélag Islands.
Frá Sálar-
rannsókna-
félagi
íslands
Breski miðillinn
sambands- og
sannanamiðill
og notast einnig við blóm og lita-
borða í einkafundum sínum. Hun
býður einnig uppá heilun og mun
vera með skyggnilýsingafund
fljótlega.
Bókanir í símum 18130 og
618130.
Stjórnin.
Ódýrara en í Englandi
Ferðatöskur Irá kr. 1.990 til 3.990
íxmpitt b o rgarkringlunni
Helstu hlutverk: Pálmi Gestsson
i Sisurðarson, Sjigurður Skúlason
||| ffij /í wDm * A V
, .. ’ . v' » • EF«5ki 1
Næstu sýningar: 1., 7., 9. og 14, október. ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Síml 11200
JLsfitl