Morgunblaðið - 29.09.1994, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994 43
Þijátíu ára afmæli Tækniskólans
Fjallað um mennt-
un og atvinnulífið
TÆKNISKÓLI íslands verður þrjá-
tíu ára í haust. Af því tilefni er
boðað til fundar 30. september nk.
kl. 13.30-16.30. Fundurinn verður
í húsnæði skólans, Höfðabakka 9,
Reykjavík. Yfirskrift hans er
Menntun og atvinnulíf.
Fluttur verður fjöldi erinda og
má búast við að viðraðar verði
ýmsar nýjar hugmyndir um tækni-
menntun og tækniskóla hér á landi,
tengsl menntunar og atvinnulífs og
hvernig best sé að haga verk- og
tæknimenntun þegar til framtíðar
er litið.
Að loknum ávörpum Ólafs G.
Einarssonar, menntamálaráðherra,
og Margrétar Björnsdóttur, aðstoð-
armanns iðnaðar-, viðskipta- og
heilbrigðisráðherra, flytur Svein-
björn Björnsson, rektor Háskóla
íslands, erindi um Tækniskóla ís-
lands í samfélagi skólanna, gamlar
og nýjar hugmyndir, og Guðrún
Pétursdóttir, lífeðlisfræðingur og
stjórnarkona í Aflvaka, talar um
Nýsköpun og formlega menntun.
Að loknu kaffihléi talar Davíð
Lúðvíksson, verkfræðingur hjá
Samtökum iðnaðarins, um Tækni-
menntun fyrir íslenskan iðnað, Alda
Möller, matvælafræðingur, þróun-
arstjóri hjá Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna, um Tæknimenntun hjá
sjávarútvegsþjóð, Steinar Steins-
son, fyrrverandi skólastjóri Iðnskól-
ans í Hafnarfirði, um Framlialds-
nám fyrir iðn- og verkmenntað fólk
í Tækniskóla íslands, og að lokum
flytur Guðbrandur Steinþórsson,
rektor Tækniskóla íslands, erindi.
Vígsluafmæli séra Auðar Eirar
KVENNAKIRKIAN stendur fyrir
messu í Suðureyrarkirkju fimmtu-
dagskvöldið 29. september kl. 20.30
en í dag eru tuttugu ár liðin frá því
kona var í fyrsta sinn vígð sem prest-
ur á íslandi. Það var sr. Auður Eir
Vilhjálmsdóttir sem vígðist til Suður-
eyrar 1974 og þjónaði þar í eitt ár.
Messan verður með því sniði sem
tíðkast í Kvennakirkjunni. Sr. Auður
Eir mun predika og konur úr
Kvennakirkjunnir ásamt kirkjukór
Suðureyrarkirkju leiða almennan
söng við undirleik Margrétar Gunn-
arsdóttur.
Neskirkja
Haustlitaferð
Neskirkju
FÉLAGSSTARF aldraðra í Nes-
kirkju hefst á ný laugardaginn 1.
október kl. 14. Þá verður farið til
Þingvaila _til að njóta litadýrðar
haustsins. 1 heimleiðinni verður kom-
ið til Hveragerðis þar sem fram verð-
ur borið kaffi og meðlæti á hlaðborði.
Ætlunin er að breyta svolítið til á
þessu misseri og gera meira af því
að fara í stuttar skoðunarferðir í og
um nágrenni borgarinnar. Þátttöku
þarf ávallt að tilkynna kirkjuverði
kl. 16-18 í síma 16783 í síðasta lagi
á föstudegi.
Einnig verða öðru hvoru fræðslu-
og skemmtifundir í safnaðarheimil-
inu. Nánari tilkynningar verður að
finna í dagbókum dagblaðanna.
------» ♦ ♦----
Ný dögnn með
opið hús
NÝ DÖGUN, samtök um sorg og
sorgarviðbrögð, verður með opið hús
í Gerðubergi fimmtudaginn 29. sept-
ember. í opnu húsi fer fram sjálfs-
hjálparstarf með þeim hætti að syrgj-
endur og aðstandendur þeirra hitta
aðra í sömu stöðu. Sjálfboðaliðar úr
röðum syrgjenda taka á móti nýju
fólki.
Fram að jólum verða opin hús
samtakanna í Gerðubergi kl. 20-22
eftirtalin fimmtudagskvöld: 29. sept-
ember, 20. október, 17. nóvember,
1. desember og 15. desember.
Að öðru leyti verður dagskrá sam-
takanna fram að jólum á þá lund að
6. október verður fyrirlestur um
barnsmissi og í framhaldi af honum
geta foreldrar, sem misst hafa börn,
skráð sig í nærhóp. Og þann 3. nóv-
ember verður fyrirlestur um maka-
missi og þá getur fólk sem misst
hefur maka sinn skráð sig í nærhóp
um makamissi.
Verslunarráð
íslensk list á al-
þjóðamarkað?
EINN reyndasti framkvæmdastjóri
uppboðsfyrirtækisins Sotheby’s í
London, David Battle, mætir á morg-
unverðarfund Verslunarráðsins kl. 8
á föstudagsmorgun.
Þar mun hann fjalla um alþjóðleg-
an listaverkamarkað, hvort þar sjáist
íslensk listaverk eða hvort þau eigi
erindi á þann vettvang. Sérstakir
fyrirspyrjendur verða Jón Asbergs-
son, framkvæmdastjóri Útflutnings-
ráðs, Ingólfur Arnarion myndlistar-
maður og Þórunn Hafstein, deildar-
stjóri í menntamálaráðuneytinu. Að
auki mun fyrirlesarinn svara spurn-
ingum annarra fundarmanna.
Fundurinn verður í Skálanum á
Hótel Sögu og hefst með snöggum
morgunverði kl. 8. Fundarlok verða
ekki síðar en kl. 9.30. Aðgangur er
opinn gegn greiðslu fundargjalds, en
tilkynna verður þátttöku fyrirfram
til Verslunarráðs íslands.
Bifreið stolið
BIFREIÐINNI JX 862, sem er
ljósgrá fjórhjóladrifin skutbifreið af
gerðinni Mitsubishi Lancer, árgerð
1993, var stolið frá Víðivangi í Hafn-
arfirði aðfaranótt miðvikudags.
Bifreiðin er með skíðaboga á
toppnum. Ef einhver hefur orðið bif-
reiðarinnar var síðan henni var stolið
er hann vinsamlegast beðinn um að
láta lögregluna vita.
b r é f a b i n d i
Þið hringið - við sendum
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS • Hátún 10c
Símar: 688476 og 688459 • Fax: 28819
FRÉTTIR
Morgunblaðið/pþ
200 börn í Vatnaskógi
SÍÐUSTU helgina í september
var landsmót æskulýðsfélaga
kirkjunnar í sumarbúðunum í
Vatnaskógi. Komu alls um 200
ungmenni á þetta sameiginlega
mót, m.a. sóknarprestarnir frá
Hólmavík og Mosfelli í Grímsnesi
með börn frá sér í fyrsta sinni.
Fræðsluefni mótsins var kross-
inn og í tilefni af fræðsluviðfang-
inu voru þrír krossar reistir til
að minna á Golgata. Utskýrðu
sóknarprestar fyrir unglingun-
um hvaða gildi þessir krossar
hafa fyrir þá í dag, tæplega tvö
þúsund árum síðar.
U mhverf isráðuneytið
Fundirum
skipulag
UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ hef-
ur í samráði við landshlutasamtök
sveitarfélaganna ákveðið að efna
til funda með forsvarsmönnum
sveitarstjórna, formönnum heil-
brigðisnefnda, skipulagsnefnda,
byggingarnefnda og náttúruvernd-
arnefnda sem og starfsmönnum
nefndanna.
Össur Skarphéðinsson, um-
hverfisráðherra, mun ásamt starfs-
fólki ráðuneytisins gefa yfirlit yfir
starfsemi og skipulag ráðuneytis-
ins og stofnana þess, hvar leita
megi upplýsinga varðandi um-
hverfismál og lýsa helstu áherslum
í umhverfismálum á næstunni. Þá
munu fulltrúar heimamanna lýsa
sjónarmiðum er varða byggðarlög
þeirra.
Á Norðurlandi í kvöld
Fyrstu fundirnir hafa þegar ver-
ið haldnir á Vestíjörðum, Vest-
urlandi, Suðurlandi, Austurlandi
og tveimur stöðum á Norðurlandi
eystra, en aðrir eru fyrirhugaðir
29. september á Akureyri og Sauð-
árkróki, 30. september á Blönduósi
og Hólmavík, 14. október í Vík í
Mýrdal, 20. október á Suðurnesjum
og 21. október á höfuðborgarsvæð-
inu. "
FARSÍM AKERFIÐ
GSM farsímakerfið
Póstur og sími hefur tekið í notkun
nýtt farsímakerfi hér á landi. Kerfið
kallast GSM (Global System for
Mobile Communication) og er
stafrænt farsímakerfi fyrir
talsímaþjónustu innanlands og milli
landa.
Fyrst um sinn nær GSM kerfið aðeins
til höfuðborgarsvæðisins, Suðurnesja
og Akureyrarsvæðisins en það verður
síðan byggt upp í áföngum út frá
helstu þéttbýlissvæðum landsins.
Alþjóðlegt kerfi
Notandi fær einnig aðgang að GSM
farsímakerfum í öðrum Evrópulöndum eftir
að nauðsynlegir samningar hafa verið gerðir.
GSM kortið - lykillinn að kerfinu
Áskrift að GSM kerfinu er bundin við kort,
svokallað GSM kort sem stungið er í símann.
Kortið er í senn lykill að kerfinu og
persónulegt númer þess sem er notandi
og greiðandi þjónustunnar.
Kynntu þér nýja GSM farsímakerfið og
stígðu skref í átt til framtíðarfjarskipta.
Allar nánari upplýsingar um GSM
farsímakerfið er að fá hjá seljendum
farsímatækja.
Þeir eru:
Bónusradíó, Bræðurnir Ormsson hf.,
Hátækni hf., Heimilistæki hf., Hljómbær hf.,
ístel hf., Nýherji hf., Radíóbúðin hf.,
Radíómiðun hf., Símvirkinn - Símtæki hf.,
Smith & Norland hf., söludeildir Pósts
og síma í Ármúla, Kirkjustræti,
Kringlunni og á póst- og
símstöðvum um land allt.
PÓSTUR OG SÍMI