Morgunblaðið - 05.10.1994, Síða 7

Morgunblaðið - 05.10.1994, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994 7 FRETTIR Jón Baldvin um sam- þykkt þing-flokks Ekki annarra kosta völ „EF ég hef tekið rétt eftir, hefur forsætisráðherra sagt að þetta séu mál Alþýðuflokksins og vitnað í því efni til fordæma varðandi sam- steypustjórnir fyrr. Ég er sammála þessu mati forsætisráðherra," segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis- ráðherra og formaður Alþýðuflokks- ins um þau ummæli Davíðs Oddsson- ar forsætisráðherra í fréttum ríkis- fjöimiðlanna um helgina að af- greiðsla þingflokks Alþýðuflokks varðandi málefni Guðmundar Árna Stefánssonar sé ekki endanleg, ótjóst sé hvað Ríkisendurskoðun eigi að gera í málinu og það sé vont fyrir viðkomandi ráðherra, Alþýðuflokk- inn og ríkisstjómina að halda því opnu með þessum hætti. Jón Baldvin sagði það ranghermi sem fram hefði komið í einum fjölm- iðli að þingflokkur Alþýðuflokksins hefði óskað eftir að Ríkisendurskoð- un gæfi út siðferðisvottorð handa fyrrverandi heilbrigðisráðherra. „Það hefur ekki hvarflað að nokkrum manni. Það er ekki hlutverk Rík- isendurskoðunar. Málið snýst um það, að ýmsir talsmenn stjórnarand- stöðunnar og aðrir hafa haft á orði að það þyrfti að rannsaka betur allan málabúnað. Þeir hafa véfengt að skýrsla fyrrverandi heilbrigðisráð- herra sé seinasta orðið um málið. Þegar ráðherra stendur frammi fyrir því að greinargerð sem hann leggur fram sé rengd þá er ekki annarra kosta völ en að leita til eftirlitsstofn- unar Alþingis, sem getur þá tekið af öll tvímæli um það hvort öll kurl séu komin til grafar, hvort rétt sé frá sagt og lagt á það mat hvort fram komin gagnrýni sé réttmæt eða hvort embættisfærsla ráðherra sé í samræmi við réttar stjórnsýslureglur og venjur,“ sagði Jón Baldvin og benti jafnframt á að ríkisendurskoð- andi hefði fallist á að taka verkefnið að sér. > 6 Frumvarp um takmörkun veiða á síld til bræðslu kynnt SJAVARUTVEGSRAÐHERRA kynnti í gær í ríkisstjórn frumvarp til laga um takmörkun á ráðstöfun síldar til bræðslu. Á seinasta Alþingi var samþykkt að fela ráðherra að skipa nefnd til þess að kanna möguleika á hvernig helst mætti nýta síld í ríkara mæli til menneldis en verið hefur. Nefnd- in skilaði áliti fyrir skömmu þar sem m.a. er lagt til að komið verði á fót sérstakri samráðsnefnd vinnslu- fyrirtækja og útgerða til þess að greiða fyrir að þetta gangi eftir. Nefndin lagði jafnframt til að sjávarútvegsráðherra yrði veitt heimild til þess að takmarka síld- veiðar til mjölvinnslu, ef ríkar ástæður væru til og að fenginni umsögn samráðsnefndar. „Hug- myndin er sú að auka þau verð- mæti sem til verða með sítdveiðum og vinnslu. Vandinn er fyrst og fremst sá að verið hefur mjög lágt verð á saltsíld og vinnsluaðilar henn- ar hafa þess vegna átt í erfiðleikum með að keppa við mjölið og auðvitað er það svo að ekki er hægt að taka ráðin af markaðinum í þessu efni. Það er þó samdóma álit flestra að með góðu skipulagi sé hægt að stækka markaðina fyrir unna síld og greiða fyrir því að vinnsluaðilarn- ir fái meira af síld til vinnslu,“ seg- ir Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra og kveðst telja hagkvæm- astu leiðina til að ná því markmiði vera samvinna kaupenda og selj- enda. „Við föllumst þó á að nauð- synlegt geti verið fyrir ráðherra að hafa heimild til að grípa inn í, en það verður ekki gert nema brýna nauðsyn beri til.“ \~ Sameining bændasamtaka Lög end- urskoðuð SAMKVÆMT frumvarpi um samein- ingu Búnaðarfélags íslands og Stétt- arsambands bænda halda núverandi starfsmenn Búnaðarfélagsins óbreyttum réttindum sínum í lífeyris- sjóði opinberra starfsmanna eftir sameininguna. Landbúnaðarráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í gær frumvarp um sameiningu Búnaðarfélags Islands og Stéttarsambands bænda í ein heildarsamtök bænda. Sú sameining var samþýkkt á aðalfundi Stéttar- sambandsins og á aukabúnaðarþingi í haust. Búnaðarfélaginu og Stéttasam- bandinu eru lagðar ýmsar skyldur á herðar í fjölmörgum lögum, og sam- kvæmt nýja lagafrumvarpinu yfir- taka ný bændasamtök þessar skyldur þar til öll þessi lög hafa verið endur- skoðuð. Að sögn Sigurgeirs Þorgeirs- sonar aðstoðarmanns landbúnaða- ráðherra kemur meðal annars til endurskoðunar hvaða tengsl samtök- in muni hafa við ríkið. Búnaðarfélag Islands fær óbreytt framlag á fjárlögum næsta árs, sam- kvæmt fjárlagafrumvarpinu. Gert er ráð fyrir að félagið fái 75,9 milljónir í almennan rekstur og 3,8 milljónir í uppbætur á lífeyri starfsmanna. 29. október. Kartöfluuppskeran er mikil í ár. Um leið og við hvetjum landsmenn til að borða þessa hollu, bragðgóðu og ódýru fæðu bjóðum við þeim að taka þátt í lukkupotti Ágætis. Þátttökuseðlar leiksins eru á Ágætis kartöflupokum. Það eina sem þátttakendur þurfa að gera er að klippa miðann af pokanum og setja hann í Ágætis póstkassa eða senda til Bylgjunnar, Lynghálsi 5, frá 1. til 29. október. Dregið verður úr lukkupottinum á hverjum virkum degi á Bylgjunni. Þrjú hundruð heppnir þátttakendur fá 1000 kr. úttektarmiða á Hard Rock Cafe. Og sá allra heppnasti fær nýjan Renault Twingo frá Bílaumboðinu hf. að verðmæti kr. 838.000.-, sem dreginn verður út laugardaginn 5. nóvember í beinni útsendingu á Bylgjunni Renault

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.