Morgunblaðið - 05.10.1994, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
I
I
I
;
i
<
í
i
í
i
I DAG
BRIPS
U m s j ó n Guöm. Páll
Arnarson
SAGNHAFI var fljótur að
átta sig á vandanum í 4
hjörtum. Hann sá að hann
hlyti að gefa tvo slagi á tíg-
ul og einn á laufás. Hjarta-
svíningin yrði því að heppn-
ast og svo var nauðsynlegt
að hitta í laufið.
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
♦ G965
V D75
♦ 632
♦ KG3
Suður
♦ ÁK
V ÁG10962
♦ Á105
♦ 75
Vestur Norður Austur Suður
- - Pass 1 hjarta
Páss 2 hjörtu Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Útspil: tígulnía.
Eftir þessa snöggsoðnu
athugun, drap suður tígul-
gosa austurs strax með
ásnum og spilaði laufið að
KG. Hugmyndin var að
setja þrýsting á vestur áður
en hann fengi tækifæri tii
að undirbúa sig. En vestur
sýndi þess engin merki að
hann væri í vandræðum.
Hann fylgdi fumlaust með
litlu laufi. Sagnhafi yppti
öxlum og lét gosann. Og fór
tvo niður:
Vestur Norður ♦ G965 V D75 ♦ 632 ♦ KG3 Austur
♦ D873 ♦ 1042
V 4 llllll *K83
♦ 987 ♦ KDG4
♦ Á1084 * D962
Suður ♦ ÁK V ÁG10962 ♦ Á105 ♦ 75
Suður spilaði illa. Hann
gaf sér réttilega að austur
ætti hjartakónginn. En mið-
að við þá nauðsynlegu for-
sendu, var útilokað að austur
ætti laufásinn líka. Eftir út-
spilið var hægt að staðsetja
KDG í tígli í austur og í ljósi
þess að austur passaði í upp-
hafi, gat hann ekki bæði
haldið á hjartakóng og laufás
í viðbót. Þá ætti hann 13
punkta og hefði opnað.
Pennavinir
SPÆNSKUR karlmaður
sem getur ekki um aldur
en vill skrifast á við konur
ungar sem gamlar:
German Franco Diaz,
Calvo Sotelo, 52-3-i,
27600 Sarria (Lugo),
Spain.
Arnað heilla
Q r ÁRA afmæli. Hinn 11. ágúst sl. varð níutíu og
t/ tí fimm ára frú Sigurást Friðgeirsdóttir, frá Lauf-
ási, Hellissandi. Sonur Sigurástar, Karl Þorkelsson, varð
sjötíu og fimm ára sama dag. Á myndinni eru fimm ættliðir
í beinan kvenlegg og að baki Sigurástar á myndinni stend-
ur dóttir hennar, Guðríður Þorkelsdóttir. Henni til hliðar
er Sirrý Gunnarsdóttir. Móðir Sirrýar, Guðrún H. Cýrus-
dóttir, heldur á dóttur hennar Öldu Dís Arnardóttur.
fT A ÁRA afmæli. í dag,
tJ5. október, er fimm-
tug Fjóla V. Bjarnadóttir,
hárgreiðslumeistari, Jað-
arsbraut 23, Akranesi.
Eiginmaður hennar er Hin-
rik Haraldsson. Fjóla er
að heiman í dag.
pT /\ ÁRA afmæli. í dag,
tJ U 5. október, er fimm-
tugur Jóhannes Reykdal,
tæknistjóri Frjálsrar
fjölmiðlunar, Hlíðartúni
7, Mosfellsbæ. Hann og
kona hans, Birna Eybjörg
Gunnarsdóttir, eru í dag
stödd í Munchen í Þýska-
landi.
Ljósmyndarinn Jóhannes Long
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 10. september sl. í
Háteigskirkju af sr. Helgu
Soffíu Konráðsdóttur Guð-
ríður Hilmarsdóttir og
Farid Haddad, til heimilis
í Norrköping, Svíþjóð.
PT A ÁRA afmæli. í dag,
tJyJ 5. október, er fimm-
tugur Gústaf Jónsson,
tæknifræðingur, Hörpu-
lundi 6, Garðabæ. Eigin-
kona hans er Erla Árna-
dóttir, viðskiptafræðing-
ur. Þau hjónin taka á móti
gestum í sal Garðaholts,
samkomuhúsi Garðabæjar,
föstudaginn 7. október kl.
18-20.
Ekkert tjón unnið hjá
fyrir-
tækjum með
öryggiskerfi
í frétt í blaðinu í gær
er sagt frá innbroti í ljós-
myndaver í Síðumúla 27.
í fréttinni kemur fram
að töluverða bíræfni þurfi
til innbrots á þennan stað
því öryggisfyrirtækið
Securitas hafi aðsetur
þar. Rétt er að taka fram
að höfuðstöðvar Secur-
itas eru í Síðumúla 23,
en þvottahús og lager
fyrir ræstiefni eru hins
vegar í Síðumúla 27. Á
síðarnefnda staðnum var
ekkert tjón unnið hjá fyr-
irtækjum, sem varin eru
með öryggiskerfi frá
Securitas.
LEIÐRETT
Formaður
framkvæmdaslj órnar
ekki
framkvæmdastjóri
í myndatexta með
grein um flokksþing Al-
þýðuflokksins í blaðinu í
gær var Guðmundur
Oddsson ranglega titlað-
ur framkvæmdastjóri Al-
þýðuflokksins. Hið rétta
er að Guðmundur er for-
maður framkvæmda-
stjórnar Alþýðuflokksins
en Sigurður Tómas
Björgvinsson er fram-
kvæmdastjóri flokksins.
Eru viðkomandi beðnir
velvirðingar á þessu.
Auðsholt í
Biskupstungnahreppi
í frétt Morgunblaðsins
í gær um laka kartöflu-
uppskeru var í mynda-
texta sagði að bærinn
Auðsholt væri í Hruna-
mannahreppi en svo er
ekki hann er í Biskupst-
ungnahreppi. Morgun-
blaðið biðst velvirðingar
á þessum mistökum.
Ása er 14 ára gömul
Morgunblaðið skýrði
frá vinningshöfum Bin-
gólottósins í blaðinu í gær
og var þar sagt að annar
vinningshafinn Ása
Andrésdóttir væri 13 ára
og úr Garðabæ hið rétta
er að hún er 14 ára úr
Bessastaðahreppi.
STJÖRNUSPÁ
cftir Franccs Drakc
YOG
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994 39
Afmælisbarn dagsins: Þú
býrð yfirgóðum hæfileik-
um, en dreifðu ekki kröft-
unum um of.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Varastu óþarfa hlédrægni
og hafðu hreinskilni að leið-
arljósi í samskiptum við ást-
vin. Þér hættir til að eyða
of miklu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú getur þurft að leysa
vanda vinar í dag. Þú þarft
ekki að kosta of miklu til
þótt þú bjóðir heim félögum
og vinum í kvöld.
Tvíburar
(21.maí-20,júmj
Þú færð góðar fréttir varð-
andi vinnuna, en þarft að
varast tilhneigingu til að slá
slöku við. Skemmtanalífið
heillar.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þótt þú viljir njóta lífsins er
óþarfi að eyða of miklu í
skemmtanir. Samkvæmi
sem þú sækir stendur fram
á nótt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Varastu óþarfa gagnrýni í
garð ættingja. Þótt þú verðir
fyrir töfum gefst þér tæki-
færi til að koma hugmyndum
þínum á framfæri.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) &£
Láttu ekki smáatriðin vefjast
fyrir þér í dag, líttu á heildar-
myndina. Vinur réttir hjálp-
arhönd, og þér berast góðar
fréttir.
Vog
(23. sept. -22. október)
Það tekur lengri tíma en þú
ætlaðir að ljúka verkefni í
vinnunni. Þér gefst þó tími
til að sækja vinafund, en
eyddu ekki of miklu.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember) ®)ij0
Einhver óvissa ríkir í sam-
bandi ástvina árdegis, er úr
rætist þegar á daginn líður.
Gættu rausæis í peningamál-
um.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. desember)
Þú hefur tilhneigingu til að
fresta til morguns því sem
þú getur gert í dag. Þér ber-
ast góðar fréttir frá ijar-
stöddum vini.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú þarft ekki að hafa
áhyggjur þótt þú vcrðir fyrir
einhverjum töfum í dag. Þú
nýtur þess að blanda geði
við aðra í kvöld.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Ástvinur kann að meta af-
stöðu þína þótt starfsfélagi
geri það ekki. Farðu vand-
lega yfir kostnaðaráætlun
varðandi ferðalag.
Fiskar
(19. febrúar-20. mars) !£k
Vertu ekki með óþarfa
áhyggjur vegna verkefnis í
vinnunni. Lausnin reynist
þér auðfundin ef þú leggur
þig fram.
Stjörnuspdna d ad lesa sem
dœgradvöl. Spdr af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni visindalegra staóreynda.
Kynningarfundur
DALE
CARNEGIE®
Þjálfun
Fimmtudagskvöld kl.
20.30 að Sogavegi 69
Námskeiðið
-■ Eylcurhæfni og árangur einstaklingsins
-■ Byggir upp leiðtogahæfnina
-■ fiæfírminni þitt og einbeitingarkraftinn
-■ Skapar sjálfstraust og þor
■ Árangursríkari tj á n i n g
-■ Beislar streitu og óþarfa áhyggjur
~U Eykur eldmóðinn og gerir þig hæfari í
daglegu lífi
Fjárfesting í menntun skilar þér aröi ævilangt.
Innritun og upplýsingar í síma: 812411
II
0
STJORNUNARSKOLINN
Konráð Adolphsson. Einkaumboð fyrir Dale Carnegie® námskeiðin.