Morgunblaðið - 05.10.1994, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994 35
FRÉTTIR
Söfnunarátak vegna orgelkaupa í Langholtskirkju
Stefnt að smíða-
samningi fyrir jól
SÖFNUNARÁTAK
vegna orgelkaupa í
Langholtskirkju hefur
nú staðið yfir í tvö ár.
Söfnunin hefur gengið
samkvæmt áætlun,
segir í fréttatilkynn-
ingu frá Langholts-
kirkju, og standa nú
yfir ákvarðanatökur
um hvaðan orgelið
verður keypt og vonast
til að samningar um
smíði hljóðfæris verði
í höfn fyrir jól.
Söfnuanrféð kemur
fyrst og fremst frá
föstum styrktaraðilum,
sem greiða ákveðna
upphæð á mánuði flestir 500 kr.,
af sölu hljómdisksins „Það var lag-
ið“, sem gefinn var út haustið 1992
með Kór Langholtskirkju, einsöngv-
urum og Kammersveit Langholts-
kirkju.
Tónleikar
Einu sinni á ári er
efnt til tónleika fyrir
styrktaraðila. og fær
hver þeirra tvo miða.
Þriðju styrktartónleik-
ar orgelssjóðins verða
dagana 6., 7. og 8.
október. Þar munu
koma fram Karlakór-
inn Fóstbræður, Gunn-
ar Kvaran, sellóleikari
og Gísli Magnússon,
píanóleikari. Kór Lang-
holtskirkju ásamt Guð-
rúnu Maríu Finnboga-
dóttur sem var sigur-
vegari í tónvakakeppni
ríkisútvarpsins 1994 og söng lengi
með Kór Langholtskirkju. „The
Boy’s“ Rúnar og Arnar Halldórs-
synir, ungu íslensku strákarnir sem
búa í Noregi og hafa gert þar garð-
inn frægan munu einnig koma
Jón Magnússon.
LANGHOLTSKIRKJA í Reykjavík
fram. Þeir tengjast Langholtskirkju
á skeinmtilegan hátt þar sem afi
þeirra, Kristinn Siguijónsson, var
yfirsmiður kirkjubyggingarinnar og
er í sóknarnefnd kirkjunnar. Erindi
þeirra til íslands er reyndar það að
þeir fermast í Langholtskirkju
sunnudaginn 9. október.
Minningagjafir
Á þessu ári hafa Orgelsjóði Lang-
holtskirkju borist margar peninga-
gjafir. Systurnar Guðný og Val-
gerður Magnúsdætur færðu sjóðn-
um 100.000 króna peningagjöf.
Gjöfin er til minningar um bróður
þeirra Jón Magnússon trésmið sem
lést síðastliðið haust. Einnig barst
sjóðnum 200.000 króna gjöf frá
Erling Aldar Jennasyni sem hann
gaf til minningar um foreldra sína
Svövu Sveinsdóttur og Jenna Jóns-
son. Garðar Þórhallsson hefur fært
sjóðnum peningagjafir til minning-
ar um konu sína Kristínu Sölvadótt-
ur sem var mjög virk í félagi safnað-
arins og sat m.a. í stjórn félagsins.
Amenkufundar
Leifs minnst
með söguhátíð
Fulltrúar 17 ríkja
Bandaríkjanna
kanna nýja við-
skiptakosti
FRÁ næsta fimmtudegi til mánu-
dags verða Ameríkurdagar haldnir
með margvíslegum hætti í Reykja-
vík. Sýningin Americana ’94 verður
í Perlunni og tengdar kynningar í
fjölda verslana. Á þriðja tug Banda-
ríkjamanna kanna nýja gagn-
kvæma viðskiptakosti hér á landi,
þar af 17 fulltrúar jafn margra ríkja
í umboði um 400 bandarískra fyrir-
tækja.
Föstudagskvöldið 7. október
verður Dags Leifs Eiríkssonar
minnst með stórhátíð á Hótel Sögu.
Að henni standa Amerísk-íslenska
verslunarráðið, Sendiráð Bandaríkj-
anna og Verslunarráð íslands, en
hátíðin er jafnframt haustfagnaður
íslensk-ameríska félagsins.
Söguhátíðin hefst með síðdegis-
boði í Átthagasal og heldur síðan
fram með veglegum kvöldverði í
Súlnasal. Þar minnist staðgengill
sendiherra Bandaríkjanna, dr. Eug-
ene D. Schmiel, Leifs Eiríkssonar
og tengsla íslendinga og Banda-
ríkjamanna. Óperusöngkonan Elsa
Waage og Jónas Ingimundarson
píanóleikari flytja söngdagskrá til-
einkaða báðum þjóðum og heimslist
óperunnar. Elsa á að baki söngnám
á íslandi, í Bandaríkjunum og á
Ítalíu og er nú að syngja í Valdi
örlaganna í Þjóðleikhúsinu. Auk
annars mun Hljómsveitin Saga
klass ásamt Guðrúnu Gunnarsdótt-
ur og Reyni Guðmundssyni flytja
kvöldverðartónlist og standa fyrir
hressilegum dansleik.
Skráning þátttakenda í þessari
hátíðardagskrá Dags Leifs Eiríks-
sonar, Americana ’94 og á Haust-
fagnað Íslensk-ameríska félagsins
á Hótel Sögu er hjá Verslunarráði
íslands í Húsi verslunarinnar þar
sem opið er kl. 8-16.
-Æ. '■-—
Morgunblaðið/Auður Jónsdóttir
Hauskúpuhúsið
brennt og rifið
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík
kveikti í húsi í Blesugróf á
fimmtudagskvöld og slökkti
eldinn um nóttina. Það sem eft-
ir stóð af húsinu var síðan rifið
á vegum hreinsunardeildar
Reykjavíkurborgar á föstudag.
Ekki hafði verið búið í húsinu
um nokkurt skeið en síðustu
íbúar höfðu málað,á það heldur
ófagra mynd af hauskúpu sem
blasti við vegfarendum sem
áttu leið úr Kópvoginum um
Smiðjuveg og inn á Reykjanes-
braut og var húsið þekkt fyrir
hana.
Bókaverðir
fagna Þjóð-
arbókhlöðu
XII. landsfundur Bókavarðafé-
lags íslands haldinn í Munað-
arnesi dagana 24.-25. septem-
ber 1994 fagnar þeim tímamót-
um í sögu bókasafna á Islandi
sem opnun nýs Landsbókasafns
íslands - Háskólabókasafns er.
Bókaverðir um land allt, á
almennings- og skólasöfnum,
jafnt sem rannsóknarbókasöfn-
um, binda mikiar vonir við hina
nýju stofnun og vænta þess að
hún verði leiðandi afl á öllum
sviðum bókasafnsmála og sam-
einingartákn fyrir bókasöfn um
land allt. Fundurinn óskar ný-
skipuðum landsbókaverði vel-
farnaðar í starfi.
Námskeið um
makróbíó-
tískt fæði
NÁTTÚRULÆKNINGAFÉ-
LAG íslands stendur fyrir nám-
skeiði um „makróbíótískt fæði“
dagana 11. og 12. október. Á
námskeiðinu verður sagt frá
hugmyndum á vak við „makró-
bíótík“, gefnar uppskriftir og
margar þeirra eldaðar á staðn-
um.
Námskeiðið verður haldið í
Matreiðsluskólanum okkar.
Skráning stendur yfir hjá Nátt-
úrulækningafélaginu eða Mat-
reiðsluskólanum okkar.
Gengið um
Vatnsmýri o g
Landakotshæð
í MIÐVIKUDAGSKVÖLD-
GÖNGU Hafnargönguhópsins
5. október verður farið frá
Hafnarhúsinu kl. 20 og gengið
með Tjörninni suður í Vatn-
smýrina og til baka um Landa-
kotshæðina.
Allir eru velkomnir í ferð
með Hafnargönguhópnum.
Bíl stolið
GRÁRRI Subaru-bifreið, með
skráningarnúmer SD-969, var
stolið frá Mávanesi í Garðabæ
aðfaranótt sunnudags.
Þeir sem geta gefið upplýs-
ingar um ferðir bifreiðarinnar
frá þeim tima eru vinsamleg-
ast beðnir um að hafa sam-
band við lögreglu.
MMC Galant Dynamic 16 ventla, 150 hö
4W drif ár. ‘91, hvftur, ek. 59 þ. km„ álfelg-
ur, 5 g. Verö kr. 1.750.000 stgr. Ath. skipti.
MMC Pajero Disel SW árg. 92, ek.
82 þ. km., 5 g„ sóllúga, álfelgur.
Verö kr. 2.950.000 stgr. Ath. skipti.
Subaru Legacy 2.0 árg. '93, ek. 32 þ.
km„ sægrænn, álfelgur. Verð kr.
2.050.000 stgr. Ath. skipti.
Suzuki Vitara JLXI árg. ‘92, ek. 47 þ.
km„ Ijósblár, 5 g.
Verö 1.790.000 stgr. Ath. skipti.
Suzuki Vitara JLX árg. ‘90, ek. 58 þ.km.,
Ijósblár, 3ja dyra, 5 g. Verö kr. 1.050.000 stgr.
Ath. vill dýrari ‘93-'94 4WD, 4ra dyra.
BILATORC
FUNAHOFÐA I
Nissan Patrol GR árg. ‘91, grásans,
gulifallegur bíll, ek. 86 þ. km.
Verö kr. 2.690.000.
Mercedes Benz 260E árg. ‘88, brúnsans.,
sóllúga, álfelgur, ABS. Mjög fallegur blll,
ek. 118 þ. km. Verö kr. 2.750.000.
Suzuki Vitara JLXI árg. ‘92, hvltur,
álfelgur, breiö dekk, ek. 39 þ. km.
Verö kr. 1.790.000.
Mercedes Benz 307D árg. '87, rauður,
11 farþega vsk bill, ek. aðiens 77 þ. km.
Verö kr. 1.450.000.
Dalhatsu Charade TX LTD árg. 91,
hvitur, ek. 37 þ. km. Verð kr. 650.000.
VANTAR NYLEGA BILA A STAÐINN - MIKIL SALA - FRIAR AUGLYSINGAR
NYJA BILAHOLUN FUNAHOFDA T S: