Morgunblaðið - 05.10.1994, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 05.10.1994, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ STEFIMURÆÐA FORSÆTISRÁÐHERRA Mikilvæg umskipti til hins betra Hæstvirtur forseti, góðir íslendingar. Ég flyt nú stefnuræðu ríkisstjórn- ar minnar í fimmta sinn og nú í upphafi kosningavetrar. Þetta þing, sem nú er að hefjast, er loka þing kjörtímabils, sem hefur ekki með öllu verið viðburðasnautt og á ýmsu hefur gengið um efnahagslega af- komu íslensku þjóðarinnar. Það er ef til vill ekki til þess fallið að skapa vellíðan í bijóstum landsmanna, að nefna kosningaþing, því að bitur er reynslan af slíkum þingum. Þá hef- ur ábyrgðarleysið einatt vikið að- haldinu til hliðar, festa horfíð fyrir undanlátssemi og léttúð tekið við af styrkri stjórn. Hvorki ég né þið, hiustendur góðir, höfum gleymt hvernig fyrri stjórn lauk ferli sínum. Síðustu íjóra lífmánuði hennar hækkuðu útgjöld ríkissjóðs um níu þúsund milljónir króna og saup þjóð- in lengi seyðið af þeirri upplausn. Til voru þeir sem gerðu því skóna í sumar að núverandi ríkisstjórn mundi lenda í vandræðum á haust- þingi og ekki ná að koma fram með heilsteypta og skýra fjármálastefnu, sem væri í takt við þann efnahags- lega stöðugleika sem að ríkisstjóm- in hefur tryggt á undanförnum árum. Veruleg hætta væri á að þau markmið sem að menn höfðu sett sér við fjárlagagerð næðust ekki. Jafnvel var fullyrt að umræður um haustkosningar mætti rekja til þessa vanda og menn vildu forðast að afhjúpað yrði að ríkisstjórnin hefði ekki burði til að koma fjárlaga- dæminu saman. Allar þessar vanga- veltur vom staðlausar og fjarri vem- leikanum. Fjárlagaframvarp það, sem fjármálaráðherra hefur nú lagt fram, tekur reyndar af öll tvímæli. Það dylst engum að það fjárlaga- fmmvarp er til þess fallið að auka tiltrú manna og markaða á þeim stöðugleika sem tekist hefur að skapa og hefur verið meiri undan- farin þijú og hálft ár, en oftast áður. Hagvöxtur hefur glæðst Ég minnist þess að iðulega' hefur verið haft á orði að spár opinberra stofnanna um þróun efnahagsmála hafí gjarnan virst taka meira mið af óskhyggju en raunvemleika. Sjálfsagt hefur siíkt álit á spádóm- um og áætlunum hins opinbera stundum átt við rök að styðjast. Því athyglisverðara er að horfa á þjóð- hagsáætlun fyrir það ár sem nú er að líða og bera spár hennar saman við hina raunvemlegu útkomu. Þar kemur margt á óvart, en kannski mest það að raunveruleikinn tekur spánni og áætluninni langt fram og er mun hagstæðari fyrir búskap þjóðarinnar. Eins og fram kemur í þeirri þjóðhagsáætlun, er þingmenn hafa fyrir framan sig, þá hefur framvindan á þessu ári orðið mun jákvæðari á öllum sviðum, en búist var við, þegar áætlunin var kynnt síðastliðið haust. Verðbólgan er minni en þá var reiknað með og viðskiptajöfnuðurinn mun hagstæð- ari. Vextir hafa lækkað og atvinnu- leysi er minna en spáð var. Síðast en ekki síst hefur kaupmáttur ráð- stöfunartekna á mann aukist lítil- lega, en í fyrrahaust var því spáð að hann minnkaði nokkuð á þessu ári. Hagvöxtur hefur glæðst á ný og verður meiri en nokkurt eitt ár síðan 1987, en gert hafði verið ráð fyrir að hagvöxtur yrði neikvæður enn eitt árið er áætlunin var gerð. Þetta em mjög mikil umskipti til hins betra. Hér er ekki spá á ferð heldur raunvemleiki. En þrátt fyrir að allir þessir mikilvægu þættir, verðbólga, viðskiptajöfnuður, vextir, atvinnuleysi, kaupmáttur og hag- vöxtur, séu hagstæðari en gert var ráð fyrir, neitar stjórnarandstaðan Davíð Oddsson, for- sætisráðherra, flutti stefnuræðu á Alþingi í gærkveldi. Ræðan fer í heild hér á eftir. Yfirskrift og millifyr- irsagnir eru blaðsins. enn að trúa því að mikill bati sé að verða í þjóðfélaginu og tönglast á að það sé ekki góð lykt af svo já- kvæðum fréttum. Ég er afar þakk- látur fyrir að deiia ekki pólitísku lyktarskyni með stjórnarandstöð- unni, fyrst það leiðir menn á þvílík- ar villigötur. Þegar litið er yfir efnahagssögu íslands og efnahagsstjóm, þá blasa við ótal dæmi um einkennilegar uppákomur. Sífelldar glímur hafa verið við árviss vandamál, þannig að sjaldnast hefur náðst að leggja línur til lengri tíma. Við munum öll eftir því að þennan 1. júní eða hinn 1. september eða 1. desember væm öll mál í uppnámi og tilefni til þess að gripið yrði til smáskammtalækn- inga af efnahagslegu tagi til þess að bjarga í hom. Oftar en ekki var þá gripið til millifærslna, stundum í stómm stíl, til að bjarga því sem aflaga fór. Því miður var alltof oft tjaldað til einnar nætur. Á þessu kjörtímabili hefur þessi mynd ekki horft þannig við nokkrum manni. Festa hefur ríkt, jafnvægi, vinnu- friður og stöðugleiki. Að sönnu skul- um við ekki draga úr því að þjóðin hefur orðið að takast á við mikinn samdrátt, sem jafna má við kreppu, vegna minnkandi þjóðartekna en hún hefur staðið hana af sér. Þau skilyrði sem sköpuð hafa verið fyrir íslenskt atvinnulíf hafa gert okkur kleift að komast betur frá þeirri kreppu en spár stóðu til. Vissulega hafa ytri aðstæður verið óhagstæðar allt fram undir það síðasta og auð- vitað hefur það umhverfí sett fram- kvæmd stjómarstefnunnar þrengri skorður en ella hefði verið og þá ekki síst haft áhrif á fjármál ríkis- ins. Ríkisstjórninni og aðilum vinnu- markaðarins var ljóst að forgangs- verkefni við þessar aðstæður væri að efla atvinnulíf landsmanna, upp- sprettu lífskjara og velmegunar. Það varð því að ganga fyrir öðru að koma á stöðugleika í efnahagsmál- um óg tryggja undirstöðurnar, rekstur atvinnufyrirtækjanna. Hverfa varð frá þeim smáskammta- lækningum sem vom svo algengar í tíð síðustu ríkisstjómar en grípa hins vegar til markvissra aðgerða sem miðuðu að því að skapa tryggt ástand og ömggan gmndvöll sem að fólk og fyrirtæki gætu byggt á til lengri tíma og með því brotist út úr margra ára kyrrstöðu. Margvíslegar skipulagsbreyting- ar hafa verið gerðar í hagkerfínu og þá jafnan í þeim tilgangi að auka fijálsræði og um leið samkeppni í efnahags- og atvinnulífínu og gera leikreglumar skilvirkari og réttlát- Davíð Oddsson ari. Það var annað höfuðmarkmið ríkisstjórnarinnar að leiða samning- ana um Evrópska efnahagssvæðið til lykta með farsælum hætti og með þeim að tryggja íslendingum, jafnt einstaklingum sem fyrirtækj- um þeirra, alla þá nýju möguleika sem Evrópa hefur upp á að bjóða og um leið íslenskum neytendum verulegan ávinning. Atvinnulífið hefur styrkst Þegar ég flutti stefnuræðu mína hér fyrir ári gat ég aðeins sagt að nokkrar vísbendingar væru um að efnahagsástandið færi nú hægt batnandi. Stjórnarandstæðingar gerðu þá hvað þeir gátu til þess að telja fólki trú um að þarna væri verið að draga upp mynd, sem ætti sér enga stoð. Þegar þessi bata- merki urðu skýrari með sumrinu og frá því var greint, var uppi sami söngurinn. En nú er svo komið að þjóðin öll skynjar efnahagsbatann, en stjómarandstaðan hefur allt til þessa dags haldið dauðahaldi í kreppuna. Það er eins og henni sé meinilla við að nú sé bjartari tíð framundan og allt erfiðið sé að skila árangri. Ég vona að háttvirtir stjórnarandstæðingar beri gæfu til þess hér í kvöld að líta örlítið bjart- ari augum til framtíðar. Hugsanlegt er að talsmenn stjórnarandstöðunn- ar hafí bakþanka vegna eigin um- mæla um efnahagsaðgerðir ríkis- stjórnarinnar. Ég býst ekki við að margir séu búnir að gleyma þeim fullyrðingum þeirra að þær ráðstaf- anir myndu leiða til efnahagslegrar kollsteypu, óðaverðbólgan mundi fara af stað á nýjan leik og ekki yrði við neitt ráðið. Vandinn var orðinn svo hrikalegur sögðu þeir í júní í fyrra að engri venjulegri meiri- hlutastjórn væri ætlandi að taka á honum. Nú yrði þjóðstjórn að koma til. Það gleður þá vonandi nú, eins og alla aðra, að þessi ríkisstjórn hefur tekið á þeim vanda og leyst hann. Það er eðlilegt að spurt sé, hvers vegna efnahagssamdrátturinn hér á landi hefur ekki leitt til þess, að atvinnuleysi hafi rokið upp í 15-20% eins og gerst hefur í mörgum ríkjum Evrópu. Meginástæðan er auðvitað sú að íslensk stjórnvöld bragðust fyrr við, gengu fyrr á hólm við kreppuna og áttu náið samráð við lykilsamtök og stofnanir samfélags- ins. Almennum aðgerðum var beitt til þess að treysta stöðu hins ís- lenska atvinnulífs, gengi krónunnar var lagað að þörfum útflutningsfyr- irtækjanna, skattar voru lækkaðir, kaupmáttur almennings var varinn með lækkun virðisaukaskatts á matvælum og um leið var hamlað gegn atvinnuleysi með tímabundn- um atvinnuskapandi framkvæmd- um. Þess var þó jafnan gætt við allar þessar ákvarðanir að ekkert færi úr hömlu og stöðugleikanum væri ekki stefnt í voða. Það tókst að skapa skiining á þessum viðhorf- um í þjóðfélaginu, og kjarasamning- arnir í maí 1993 tóku mið af aðstæð- um þjóðarbúsins og efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Þær ákvarðanir sem aðilar vinnumarkaðarins höfðu þrek til að axla eiga sinn dtjúga þátt í þeim mikla árangri sem þjóð- in hefur náð. • Það var ánægjulegt að samstaða náðist um það í maí síðastliðnum að láta nokkurn ávinn- ing þessara aðgerða skila sér til launþeganna í landinu. Það var ekki síður ánægjulegt að eitt meginbar- áttumál verkalýðshreyfingarinnar í mörgum undanfarandi kjarasamn- ingum, lækkun vaxta, sem stjórn- völd höfðu um árabil heitið að beita sér fyrir, gekk nú fyrst fram eftir að efnahagslegi stöðugleikinn kom til. Þegar ríkisstjórnin tók við völd- um, var raunávöxtunarkrafa ríkis- verðbréfa á Verðbréfaþingi 8,15% en er nú 4,86%. Ríkissjóður er þann- ig að fjármagna halla sinn, sem tekist hefur að koma nokkrum bönd- um á, við mun lægra vaxtastig en hann gerði fyrir tíð þessarar ríkis- stjórnar. Skattgreiðendur framtíð- arinnar hagnast á því. En meira máli skiptir að fjármagnskostnaður almennings og fyrirtækjanna hefur lækkað verulega. í því felast raun- verulegar kjarabætur. Erlendar skuldir greiddar niður Á þessu ári verður hagvöxtur hér á landi meiri en nokkurt eitt ár síð- an 1987 og á næsta ári eru góðar horfur á áframhaldandi vexti. Þann- ig hefur okkur tekist að ijúfa tíma- bil stöðnunar og samdráttar sem ríkt hafði undanfarin 7 ár. Þessi umskipti eiga sér að hluta skýringu í auknum afla á fjarlægum miðum og einnig auknum umsvifum í okkar helstu viðskiptalöndum. En hitt skipti sköpum að ríkisstjórnin hefur fylgt aðhaldssamri efnahagsstefnu og aðilar vinnumarkaðarins hafa lagt raunsætt mat á þjóðhagsleg skilyrði. Vissulega er hagvöxturinn enn minni en hann hefur verið að meðaltali þau 50 ár sem lýðveldi hefur verið á íslandi, en þá er rétt að hafa í huga að á meðan við gát- um aukið sjávaraflann með útfærslu fiskveiðilögsögunnar voru skilyrði hagvaxtar góð og uppbygging lífs- kjara hröð. En vissulega hefur þessi vöxtur verið óstöðugur eins og fjölmjörg dæmi em um. Þannig hef- ur landsframleiðslan dregist saman 11 sinnum á síðustu 50 árum. Þetta eru mun fleiri samdráttarskeið en aðrar þjóðir með sambærilegan efnahag hafa þurft að ganga í gegn- um. Við skulum einnig hafa hugfast að slíkar sveiflur leiða til þess að lífskjör eru ótryggari á íslandi en í þeim löndum þar sem hagvöxtur er jafnari og stöðugri. Vegna þessara sveiflna hefur óstöðugleiki verið helsti efnahagsvandi Islendinga í Árið 1993 greiddum við erlendar raunskuldir okkar niður um rúmar 6 þúsund milljónir króna. Á þessu ári greiðum við niður raunskuldir þjóðar- innar um 9 þúsund milljónir og væntanlega um 8 þúsund milljónir á því næsta. marga áratugi. Allar ríkisstjórnir hafa þurft að glíma við slíkan vanda. Hann hefur birst í margvíslegum myndum, ekki síst í viðvarandi við- skiptahalla, mikilli erlendri skulda- söfnun og þrálátri verðbólgu, stund- um óðaverðbólgu. Á þessum fimm- tíu árum, sem við höfum algjörlega haft öll mál í okkar höndum, þá hefur aðeins níu sinnum verið af- gangur á viðskiptajöfnuði við út- lönd. í fyrsta sinn á þessu tímabili hillir nú undir að afgangur verði í utanríkisviðskiptum í þijú ár í röð 1993, 1994 og 1995. Þessi árangur er í raun þjóðarsigur. Hvað þýðir þessi niðurstaða á mæltu máli? Hún þýðir að árið 1993 greiddum við erlendar raunskuldir okkar niður um •( rúmar 6 þúsund milljónir króna. Á þessu ári greiðum við niður raun- skuldir þjóðarinnar um 9 þúsund milljónir og væntanlega um 8 þús- und milljónir á því næsta. Þetta þýðir með öðrum orðum að á þrem- ur árum greiðum við niður erlendar raunskuldir okkar um 23 milljarða króna. Það er sannkallaður þjóðar- sigur. Meðan þannig er haldið á málum, þá þarf enginn maður í þessu landi að óttast að þjóðin sé á þeirri braut sem frændur okkar Færeyingar lentu á, illu heilli. En við vorum á þeirri braut. Af henni var horfíð og á hana má ekki aftur fara. Verðbólga nær engin .. I I fyrsta sinn í sögu Iýðveldisins [ næst sá árangur, að verðbólga verði. j innan við 5% á ári fjögur ár í röð, 1992-1995. Nú er raunhæft að (j halda verðbólgunni um eða innan .[ við 2%, þannig að ekki á að vera , hætta á, ef af festu er stjórnað, að verðbólgan skekki viðskiptagrund- völl okkar við erlendar þjóðir. Við höfum aldrei verið nær því en nú að festa stöðugleikann í sessi og aldrei nær því að skapa forsendur fyrir stöðugum og jöfnum hagvexti. Það er því afar mikið í húfí að þess- ari skýru efnahagsstefnu, sem nú- verandi ríkisstjórn hefur fylgt fram, sé haldið og hvergi frá henni vikið. Þessi stefna leggur grunninn að því, að við getum byggt upp þróttm- ikið og fjölbreytt atvinnulíf á næstu ámm. Á undanförnum sjö árum hafa launþegar þurft að horfa upp á kaupmátt sinn falla ótt og títt. Aldrei þó jafnmikið og í tíð síðustu ríkisstjórnar, er kaupmáttur launa- fólks hrapaði stöðugt, ekki síst árin 1989 og 1990. Síðan hefur kaup- máttur minnkað lítillega en nú á þessu ári hefur tekist að varðveita hann og reyndar hefur hann aðeins aukist síðustu mánuðina. Nú þegar kjarasamningar fara í hönd, er í fyrsta sinn í langan tíma hægt að gera ráð fyrir að þeir samningar ekki aðeins tryggi kaupmátt, heldur geti aukið hann, ef vel er á haldið og allrar varfærni gætt. Þetta kjörtímabil, sem nú er senn liðið, og það á undan því, eru lýs- andi dæmi um tvo ólíka kosti í stjórn efnahagsmála. í kosningum á vori komanda verður einkum tekist á um þá tvo kosti og ætti það val að vera auðvelt. Stjórnmálamenn fortíðarinnar hafa stundum haldið því fram, að vexti sé hægt að lækka með hand- afli eða tala þá niður. Ekkert er í raun fjær sannleikanum en fullyrð- ing af slíku tagi. Með yfirlýsingum j og aðgerðum stjórnvalda er vissu- lega hægt að stuðla að því að vext- , ir lækki. Ógætileg ummæli áhrifa- , manna eða peningastofnana geta til skamms tíma haft óheppileg áhrif á vaxtastöðuna, en meginatriðið er ; þó það að nokkrir grundvallarþættir efnahagslífsins séu í lagi, ef að tak- , ast á að lækka vexti. Þessi atriði voru ekki í lagi, en úr því hefur ,i verið bætt og þess vegna hefur tek- ist að lækka vextina og einmitt þess vegna er líklegt að vextir muni í framtíðinni lækka enn meir. Ég skal nefna nokkur dæmi um for- sendur sem þurfa að vera til staðar til að tryggja lágt vaxtastig þannig að atvinnulífið og einstaklingarnir njóti góðs af. Mikilvægt er að við- skiptajöfnuður við erlendar þjóðir sé hagfelldur. Áríðandi er að ríkis- sjóðshalli fari ekki úr böndum. Þýð- ingamikið er að nýsparnaður sé tölu-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.