Morgunblaðið - 05.10.1994, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.10.1994, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994 ERLEIMT MORGUNBLAÐIÐ Forsetakosningarnar í Brazilíu Yfirburðasig- ur Cardoso Sao Paulo. Reuter. FERNANDO Henrique Cardoso, jafnaðarmaður og talsmaður mark- aðshyggju, sigi'aði með yfirburðum í forsetakosningunum í Brazilíu á mánudag. Fékk hann næstum sex milljónum atkvæða meira en aðrir frambjóðendur samtals ef marka má skoðanakannanir á kjörstöðum en talning hófst í gær og lýkur ekki fyrr en í næstu viku. Lula missti niður forskotið Ljóst þykir, að ekki þarf að kjósa á milli Cardosos og helsta keppi- nauts hans, vinstrimannsins Luiz Inacio Lula da Silva, í annarri umferð og stuðningsmenn Cardos- os eru þegar farnir að velta fyrir sér skipan stjórnar hans. Fyrir aðeins þremur mánuðum hafði Lula gott forskot á aðra frambjóð- endur en það breyttist næstum á einni nóttu þegar barátta Cardos- os, þáverandi efnahagsmálaráð- herra, fór að skila árangri. Verð- lagshækkanir fóru úr 50% á mán- uði í 2% í september. Cardoso, sem er félagsfræðingur að mennt, hrökklaðist í útlegð á valdatíma herforingjanna í Brazilíu en varð síðan einn af forystumönn- um jafnaðarmannaflokksins þegar hann var stofnaður 1988. í útlegð- inni færðist hann hugmyndafræði- lega inn á miðjuna og meðframbjóð- andi hans nú var Marco Maciel úr Lýðræðislega sambandsfloftknum, sem er hægriflokkur. Síðasti lýðræðislega kjörinn for- seti Brazilíu, Fernando Collor de Mello, sagði af sér 1992 vegna mútuþægni og annarra hneykslis- mála og var Cardoso einn helsti gagnrýnandi hans og hann studdi- Lula gegn Mello í kosningunum 1990. Ber sig vel DÍANA prinsessa af Wales, ræðir við liðsmenn væntanlegs Afríku- leiðangurs í Kensingtonhöll í gær. Viðstaddir sögðu að hún hefði verið kát, hún virtist ekk- ert láta á sig fá útkomu bókar þar sem lýst er meintu ástarævin- týri hennar og James Hewitts, fyrrverandi liðsforingja og reið- kennara prinsessunnar, meðan hún var enn gift Karli Breta- prins. Höfundur bókarinnar, Anna Pasternak, fullyrti í gær að Hewitt myndi ekkert fá greitt fyrir bókina en fjölmiðlar hafa sagt að hann fengi sem svarar 300 milljónum króna. Bresku slúðurblöðin fordæmdu Hewitt ákaft en birtu jafnframt tilvitn- anir í bókina á forsíðu. Mótmæla á IMF-fundi GRÆNFRIÐUNGAR stóðu fyrir mótmælum á fundi Alþjóðagjald- eyrissjóðsins (IMF) í Madrid í gær, köstuðu fölsuðum dollaraseðlum yfir þá sem sátu fundinn og breiddu út borða sem á stóð: „Enga dollara til eyðingar óson- lagsins". Eru talsmenn IMF ákaf- lega reiðir vegna þessa atviks og segja grænfriðunga hafa rofið traust sjóðsins, sem hafði veitt þeim aðgang að fundum IMF, en það hefur ekki gerst áður. Klifr- uðu grænfriðungar upp eftir lofti fundarsalarins og létu seðlunum rigna yfir fundarmenn, sem komu frá 179 löndum, í þann mund er Lewis Preston, forseti IMF, var að ljúka ræðu sinni. Með þessu vildu grænfriðungar vekja athygli á því að IMF veitti fé til fyrir- tækja sem eyðilegðu umhverfið, auk þess sem hann græfi undan aðgerðum til að koma í veg fyrir frekari eyðingu ósonlagsins. Á myndinni er einn mótmælenda, Bretinn John Mead, leiddur á brott. Fyrsta stefnuræða Tony Blair á þingi Verkamannaflokksins Blair reynir að róa vinstrivæng flokksins Blackpool. Rcuter. TONY Blair, leiðtogi Verkamannaflokksins í Bret- landi, flutti fyrstu stefnuræðu sína í gær á árs- fundi flokksins í Blackpool og sagði að flokkurinn ætti nú að endurspegla viðhorf þorra breskra kjósenda. Var þessum orðum tekið með langvinnu lófataki en nokkrir ákafir vinstrimenn á borð við Arthur Scargill, leiðtoga námumanna, tóku engan þátt í fagnaðarlátunum, þeir sátu steinþegjandi. Blair fullvissaði fundarmenn um að þótt hann legði áherslu á „nútímalega“ stefnu væri hann ekki að segja skilið við grundvailargildi vinstri- stefnunnar. „Sósíalismi- - við ættum að hætta að biðjast afsökunar á að nota orðið“, sagði hann. Fiokksleiðtoginn reyndi jafnframt að róa mið- stéttarfólk með því að bæta við að hans tegund af sósíalisma merkti ekki miðstýringu af hálfu ríkisvaldsins. Skoðanir hans byggðust einfaldlega á þeirri sannfæringu að einstaklingnum væri best borgið í öflugu samfélagi. Flokkur BJairs hefur mikið forskot í skoðanakönnunum á íhaldsflokk Johns Majors forsætisráðherra en kosið verður í síðasta lagi 1997. í lok ræðu sinnar sagði Blair að ef liðsmenn flokksins ætluðu sér að binda enda á 15 ára óslit- inn valdaferil íhaldsmanna yrðu þeir að koma því á framfæri að „Nýi Verkamannaflokkurinn" væri nútímalegur flokkur á tímum breytinga. Hann hvatti fólk á vinstrivængnum til að beijast með sér. „Eg vil að þið vinnið með mér að þessu verk- efni, þess óska ég af heilum hug og öllu hjarta. Með varfærni getum við ekki sigrað í næstu kosn- ingum en með hugrekki getum við það“. Nýi leiðtoginn er 41 árs gamall og talinn nær miðju en nokkur leiðtogi Verkamannaflokksins síðustu áratugi. Hann hefur reynst íhaldsmönnum skeinuhættur í baráttunni um miðjufylgið með því að beita sér fyrir hefðbundnum hægrimálum eins og lögum og reglu. Hann hefur einnig varað við skattahækkunum og sagt að ekki verði hægt að auka velferð nema hagvöxtur aukist. Ilik og tortryggni Þótt Blair væri fagnað er ljóst að víða kraum- ar undir niðri. Fréttaskýrendur segja að margir fulltrúar á fundinum séu hikandi og tortryggnir, þeir vilji að væntanleg ríkisstjórn Blairs tryggi betur hagsmuni almennings en stjórn íhalds- flokksins sem ávallt hugsi fyrst og fremst um hagsmuni fyrirtækjanna. Er kosið var í trúnaðarstöður á mánudag kom í ljós að andstaðan við stefnubreytingu Blairs er sterk. Tveir fulltrúar af ysta vinstrivæng voru óvænt kjörnir í flokkstjórn, helstu valdastofnun flokksins. Einnig kröfðust verkalýðsleiðtogar þess að settar yrðu fram ákvqðnar og afdráttar- lausar tillögur um lágmarkslaun auk aðgerða gegn atvinnuleysi. Scargill og Tony Benn, einn þekktasti fulltrúi vinstrivængsins, fluttu báðir ræður í anda hefðbundins sósíalisma og var mjög vel tekið. Norski fjárlaga- hallinn minnkar STJÓRN norska Verkamanna- flokksins spáir því að fjárlaga- hallinn minnki um þriðjung á næsta ári vegna aukinna tekna af Norðursjávarolíu, minna atvinnuleysis og minni ríkisút- gjalda. Sigbjorn Johnsen íjár- málaráðherra sagði þegar hann kynnti fjárlagafrumvarp- ið á þinginu að búist væri við 2,75% hagvexti á næsta ári, en talið er að hann verði 4,5% í ár. Kohl hyggst hætta 1998 HELMUT Kohi, kanslari Þýskalands, sagði í sjónvarps- viðtali á mánudagskvöld að héldi stjórn hans velli í þing- kosningunum 16. þessa mán- aðar myndi hann aðeins gegna kanslaraembættinu í eitt kjör- tímabil til viðbótar. Kohl er 64 ára að aldri og hefur verið kanslari í 12 ár. Flugvöllurinn í Belgrad opnaður ÁKVEÐIÐ hefut' verið að slaka á refsiaðgerðunum gegn Júgóslavíu, þ.e. Serbíu og Svartfjallalandi, og í dag verð- ur heimilt að opna alþjóðaflug- völlinn í Belgrad að nýju og hefja ferjusiglingar til Itálíu. Júgóslavíu verður einnig heim- ilt að taka þátt í íþrótta- og menningarsamskiptum. Þetta var ákveðið eftir að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fékk skýrslu þar sem fram kemur að Serbía sé hætt að sjá Bosn- íu-Serbum fyrir vopnum. Scalfaro deil- ir á stjórnina OSCAR Luigi Scalfaro, forseti Ítalíu, deildi. í gær á stjórn Silvios Berlusconi forsætisráð- herra og sagði hana hafa meinað honum um þann stjórnarskrárbundna rétt sinn að fá að lesa fjárlagafrum- varpið áður en það var lagt fyrir þingið. Samkvæmt stjórnarskránni verður forset- inn að undirrita fjárlagafrum- varpið ekki síðar en 30. sept- ember. Scalfaro kvaðst hafa fengið það á síðustu stundu og ákveðið að undirrita það af ótta við að töf gæti haft slæm áhrif á fjármálamarkaði. ESB undirbýr nánari tengsl við A-Evrópu UTANRÍKISRÁÐHERRAR Evrópusambandsins (ESB) samþykktu í gær í grundvall- aratriðum áætlun um nánari tengsl við sex Mið- og Austur- Evrópuríki. Samkvæmt áætl- uninni taka ríkin sex m.a. þátt í leiðtogafundum ESB einu sinni á ári og fundi utanríkis- ráðherra og dómsmálaráð- herra tvisvar á ári. Ekki náð- ist samkomulag um hvenær áætlunin skyldi taka gildi og embættismönnum var falið að ganga frá ýmsum smáatriðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.