Morgunblaðið - 05.10.1994, Síða 48

Morgunblaðið - 05.10.1994, Síða 48
L*TT* alltaf á Miðvikudögnm MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK SlMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: IlAFNARSTRÆTl 85 MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK * Ogætilega farið með úrgang frá heilbrigðisstofnunum á höfuðborgarsvæðinu Sjómannasambandið Lyfjaglös og sprautunál- ar sett í jarðvegsgáma GRUNUR leikur á að reynt hafi verið að losna við úrgang frá stórri sjúkrastofnun með jarðvegs- úrgangi á gömlu sorphaugunum í Gufunesi fyrir tveimur til þremur vikum. Oddur Rúnar Hjartar- son, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, segir að atburðurinn sé ekki eins- dæmi. Ögmundur Einarsson, framkvæmdastjóri Sorpu, telur að um vítavert kæruleysi sé að ræða. Hann segir að úrgangurinn geti valdið mikilum skaða sé honum ekki fargað á réttan hátt. Starfs- menn Sorpu hafa orðið fyrir nálarstungum úr gámaúrgangi. Förgun kostar allt að 23 krónur á kg Hei 1 brigðiseftirlit í Reykjavík og nágrenni segja í fréttatilkynningu að borið hafi á úrgangi frá einni eða fleiri heilbrigðisstofnunum í jarðvegs- gámum á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu. Aðallega sé um að ræða glös með lyfjaafgöngum og tóm lyfjaglös en einnig annars konar úrgang, s.s. notaðar sprautunálar. Ekki sé vitað hvaðan úrgangurinn komi en af gerð hans megi ráða að hann komi frá aðgerðarstofnun eða -stofu. Leifar svefnlyfs hafi fundist í úrganginum. Ögmundur Einarsson nefnir að starfsmaður hafi komið auga á tvær fötur með úrgangi frá heilbrigðisstofnun á gömlu sorphaugunum í Gufu- nesi fyrir tveimur til þremur vikum. Hann dregur í efa að horft hafi verið í kostnað við löglega förgun úrgangsins, allt að 23 krónur fyrir kílóið. „Ég trúi ekki að það sé orsökin," segir hann, „heldur algjört kæruleysi. Þó bendir til að fag- menn hafí meðhöndlað efnin og eigi hlut að máli, en þeir geta.hafa beðið starfsmenn sem ekki hafa farið að reglum um að farga efnun- um.“ Sorpa hefur látið heilbrigðiseftirlitið vita þegar vart hefur orðið við tilraunir til ólöglegrar förgunar úrgangsins. Hafi úrgangurinn verið settur í jarðvegsgám er hann losaður beint úr gámnum eins og annar úrgangur. Því hafa þeir sem leið eiga um losunar- stað greiðan aðgang að úrganginum. Rétt leið til að losa sig við lyfjaleifar og skarpa hluti, eins og hnífsblöð og sprautunálar, er hins vegar að skila þeim í þar til gerðu gullituðu, lokuðu og merktu plastíláti til spilliefnamóttöku Sorpu eða í lyfjaverslun sé um lyf að ræða. Skila skal sótt- menguðum úrgangi til Sorpu samkvæmt nánara samkomulagi eða til annarra förgunarstöðva sem kunna að hafa leyfi til móttöku á honum. Með annan úrgang má fara eins og um venjulegt sorp sé að ræða. Ekki í fyrsta sinn Oddur Rúnar Hjartarsson leggur áherslu á að fundurinn nú sé ekki einsdæmi. Svipað hafi kom- ið upp fyrir rúmu ári og hafi allir tannlæknar, heimilislæknar, aðstandendur læknastöðva, heilsugæslustöðva og sjúkrahúsa, í bréfi verið hvattir til að flokka og fara rétt með sóttnæman úrgang. Svör hafi borist frá mörgum og sá sem átt hefði hlut að máli hefði tekið sig á. Hann væri ekki ábyrgur fyrir úrganginum í Gufunesi. Vetrarveið- um í Smugu verði hætt FRAMKVÆMDASTJÓRN Sjó- mannasambands íslands telur rétt að stöðva haust- og vetrarveiðar í Smugunni að teknu tilliti til að- stæðna þar og skorar á samtök skip- stjórnarmanna og útvegsmanna að beita sér fyrir veiðistöðvun yfir mesta hættutímann. Framkvæmdastjórn sambandsins hefur fjallaði um bréf sem Skip- stjóra- og stýrimannafélagið Sindri á Austfjörðum sendi ráðherrum sam- göngu- og sjávarútvegsmála í liðinni viku, en þar er liðsinnis þeirra óskað við að banna veiðar í Smugunni. Stjórnin kveðst í ályktun taka undir varnaðarorð félagsins og vitn- ar í mat veðurfræðinga. Ekki aðeins geti veðurþættir „orðið mjög óhag- stæðir nær fyrirvaralaust, heldur einnig að talsverð sigling getur ver- ið fyrir höndum í hlýrri sjó, þar sem aðstæður eru nokkuð skárri". ■ „Ráða ekki/6 Innsiglað hjá Hag- virki-Kletti VERKTAKAFYRIRTÆKIÐ Hag- virki-Klettur var innsiglað síðdegis í gær vegna vangoldinna opinberra gjalda. Jóhann Bergþórsson, fram- kvæmdastjóri Hagvirkis-Kletts, seg- ist allt eins eiga von á að þetta þýði endalok fyrirtækisins. Hann sagðist ekki sjá lausn á vanda þess. Hagvirki-Klettur skuldar 30-40 milljónir í vörsluskatta, aðallega virðisaukaskatt og staðgreiðslu. Jó- hann sagðist hafa boðið sýslumanni Hafnarfjarðar að borga inn á skuld- ina, en hann hefði hafnað því. „Emb- ættið vill meira en ég get innt af hendi. Ef það eru hagsmunir ríkis- sjóðs að hafna greiðslum sem aug- sýnilega bæta stöðuna þá verða þeir að bera ábyrgð á því,“ sagði Jóhann. Guðmundur Sophusson, sýslu- maður í Hafnarfirði, sagði að sýslu- mannsembættið hefði gert ítrekaðar tilraunir til að innheimta skattaskuld hjá Hagvirki-Kletti. Ekki hefði verið hægt að gefa fyrirtækinu iengri frest. Hann sagði að Hagvirki-Klett- ur hefði borgað inn á skuidina, en ekki nægilega mikið að mati emb- ættisins. ----♦-------- Alvarlegl bifhjólaslys NÍTJÁN ára gamall Húnvetningur var fluttur mikið slasaður á Borgar- spítala eftir bifhjólaslys á Húnabraut á Blönduósi síðdegis í gær. Lögregla á Blönduósi sagði að ungi maðurinn hefði ekið ónúmeruðu hjóli og svo virtist sem hann hefði misst stjórn á því. Hann var með vinnuhjálm en ekki bifhjólahjálm á höfði og hlaut höfuðáverka, innvort- is meiðsl og beinbrot þegar hann skall í götuna. Maðurinn var í vinnu- samfestingi. Samkvæmt upplýsingum frá Borgarspítala er maðurinn alvarlega slasaður. Hann var við vinnu á Blönduósi en er búsettur í nærliggj- andi sveit. Morgunblaðið/Árni Sæbcrg HALLDOR Blöndai samgönguráðherra hlustar íbygginn á umræður um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi í gærkvöldi og Sighvat- ur Björgvinsson viðskiptaráðherra og Össur Skarphéðinsson umhverfisráðherra slá á létta strengi. Davíð Oddsson forsætisráðherra um kvótakröfur í Barentshafi Kemur til álita að tengja kvótann við stofnstærð DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagði í stefnuræðu á Alþingi í gær- kvöldi að til greina kæmi af háli'u íslendinga að tengja þann kvóta, sem íslendingum kynni að verða úthlutað í Barentshafi, við stofnstærð Bar- entshafsþorsksins. „I slíkum tilfellum getur kvóti farið alveg niður í nánast ekki neitt ef stofnstærð fer niður fyrir ákveðin mörk,“ sagði Davíð. Forsætisráðherra nefndi sem fordæmi fyrir þessu fyrirkomulagi samning um veiðar á Alaskaufsa í Norður-Kyrrahafi, svokallaðan „kleinuhringssamning". „Kleinuhringsgatið“ er alþjóð- legt hafsvæði í Beringshafi, umluk- ið lögsögu Rússlands annars vegar og Bandaríkjanna hins vegar. Um árabil var stunduð þar gífurleg of- veiði á Alaskaufsa og hrundi árs- veiðin þannig úr 1,4 milljónum tonna árið 1989 niður í tíu þúsund tonn árið 1992. Til að bregðast við þessum vanda var 11. febrúar síð- astliðinn gert samkomulag sex ríkja um veiðistjórnun í „gatinu“; Rússlands, Bandaríkjanna, Japans, Kína, Suður-Kóreu og Póllands. Kvóti miðaður við lífmassa Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins gerir samkomulagið ráð fyrir að aðildarríkin reyni að semja um skiptingu kvóta. Semjist ekki er sóknarkvóti settur á veiðar á svæðinu, þ.e. ákveðinn heildarkvóti sem skip aðildarríkjanna keppa síð- an um þar til hann er uppurinn. Ströng eftirlitsákvæði eiga að tryggja að ekki sé veitt meira en sem nemur heildarkvótanum. Eitt meginatriði samningsins, og það sem forsætisráðherra vísar til, er að kvótinn miðast við lífmassa ufsastofnsins. Sjálfstæðri vísinda- nefnd er falið að reikna út stofn- stærðina og kvótinn er síðan reikn- aður út sem fyrirframákveðið hlut- fall af lífmassanum. Sé lífmassinn undir ákveðinni stærð er enginn kvóti gefinn. Eins og ástandi stófnsins er nú háttað er talið ólík- légt að nokkrar veiðar verði leyfðar úr honum fram undir aldamót. Forsætisráðherra sagðist í ræðu sinni telja að samningsstaða íslend- inga í fiskveiðideilunni við Norð- menn væri „sterk að því leyti til að sanngirnisrök mæli með því að komið verði til móts við sjónarmið íslendinga", en einnig yrði ísland að gæta þess að sýna ekki óbil- girni í samningskröfum. „Við munum auðvitað krefjast kvóta, sem tryggi okkur reglubund- inn afla og varanlegan aðgang að veiðum í Barentshafi. Með þeim hætti verður slegið á órökstuddar fullyrðingar um, að íslendingar stuðli að því að þorskur sé ofveidd- ur á þessu hafsvæði," sagði Davíð. ■ Jóhanna boðar/2

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.