Morgunblaðið - 05.10.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994 17
_______LISTIR____
Bersögli
og listræn tök
BOKMENNTIR
Söjjur
TUNDUR DUFL. ERÓ-
TÍSKAR SÖGUR
eftir 13 höfunda Forlagið, 1994 -
174 síður. Tilboðsverð 1.750 kr.
Verð frá 1. nóvember 2.490 kr.
ERÓTÍK og erótískar sögur
skilgreinir hver og einn fyrir sig.
Kannski má flokka þær undir
nytjabókmenntir eða skemmtibók-
menntir eða eiga þær að teljast
fullgild bók-
menntaverk.
Þetta allt kem-
ur vissulega til
greina.
Tundur dufl
er skemmtilegt
heiti á erótísk-
um sögum,
segir mátulega
mikið. Forlagið
mun hafa leitað
til höfunda í því
skyni að fá frá
þeim munúðar-
fullar smásög-
ur, helst sem
djarfastar.
Höfundarnir
átta sig mis-
jafnlega á til-
ganginum,
sumir leggja
mesta áherslu á bersögli, aðrir
beita listrænum tökum fyrst og
fremst. Svo eru þeir sem sameina
þetta tvennt.
Vandasöm bókmenntagrein
Smásagan er vandasöm bók-
menntagrein. Eitt af því sem
mönnum hættir við þegar þeir setj-
ast niður til að semja smásögu er
að ýkja um of, verða banalir í tján-
ingu sinni. Hið ósagða er afar
mikilvægt í smásögu, að því leyti
líkist hún Ijóði þótt hún eigi ekki
að vera ljóð. Eitt er víst: Sá sem
getur samið boðlega smásögu
kann ýmislegt fyrir sér.
Tilgangur og væntingar
Lítum við á tilganginn og vænt-
ingar flestra lesenda kemst Hall-
grímur Helgason nærri í Freilass-
ing, ferðaævintýri ungra Islenskra
karlmanna í Þýskalandi. Hallgrím-
ur notast við flæðistíl þar sem
hugrenningar eru í jafn miklu gildi
og söguþráður sem er einfaldur.
Þetta er fyndin saga og vitnar um
hugkvæmni höfundarins.
Fyrstu og áreiðanlega síðustu
kynni ungs Islendings og miðaldra
þýskrar veitingakonu verða í senn
kátleg og neyðarleg: „Grófir en
mjög hollir alpakossar. Saðsamir.
Erlend kona. Eg reyni að bæta
þá upp með fálmi. Áfengur í fullu
fangi. Þéttvaxin. Ekki feit heldur
great. Sú kann aldeilis að hneppa
með einni hendi. Kemur mér úr
að ofan. Ég gefst upp í bili og hún
dreifir kossum niður eftir mér.
Vantar fleiri bringuhár. Ég horfi
á eftir hári hennar niður að belti“.
Um endurtekna fundi eftir Guð-
berg Bergsson er líkt og stokkin
út úr síðustu skáldsögu hans, Sú
kvalda ást sem hugarfylgsnin
geyma, en er hrárri á yfirborðinu
og laus við mannleik. Fyrirlitning-
in skín í gegn.
Árni Bergmann (Menningar-
sagan lárétt) og Einar Kárason
(Fríða Fríða) lýsa tilburðum ungs
fólks, líklega eins og þeir voru
einu sinni. Báðir gera þeir það
laglega. Sjón má frekar flokka
með konunum.
Undir vængjum valkyijunnar,
löng saga Sjónar, er gott dæmi
um ímyndaheim kynlífsins þar sem
samtímaefni
blandast eða
ruglast saman
við kenndir,^
Ekki í mikilli
fjarlægð frá
Sjón er _Nína
Björk Árna-
dóttir sem á
eina bestu sög-
una í bókinni,
mystíska og
rómantíska ást-
arsögu sem
sþeglar líka
hrollkaldan
veruleika. Nína
Björk er betri
prósaisti en
margur hyggur
og hefur áður
sýnt tilþrif í
erótískum
skrifum, samanber skáldsöguna
Móðir kona meyja.
Hróp í óbyggðum eftir Súsönnu
Svavarsdóttur er vel byggð saga
þar sem hið fínlega og hijúfa renn-
ur saman án grófleiks. Nótt
Kristínar Ómarsdóttur er á mörk-
um draums og veruleika, skynjun-
in barnsleg, en sagan slungin og
leynir á sér.
Aðdragandi Auðar Haralds og
Góður skáti Guðrúnar Guðlaugs-
dóttur eru sögur sem menn búast
við að finna í safni af þessu tagi,
saga Guðrúnar lipurleg, skýr og
afmörkuð, en þó ekki án dýpri
merkingar.
Saga Rögnu Sigurðardóttur,
Apríkósa eða laukur?, er vel skrif-
uð og óvænt, en nokkuð utangátta
á þessum stað. Frávik í spegli eft-
ir Úlfhildi Dagsdóttur og Augað
eftir Berglindi Gunnarsdóttur eru
tilraunir til að sýna nýjar hliðar,
sérstaklega sannfærandi sem slík
er saga Berglindar í hálf-súrreal-
ísku myndmáli sínu: „Augað forð-
ast að líta þangað sem hljóðin
berast, hálfkæfð, andstutt, líkt og
kveinandi“.
Húrrahróp spöruð
Eigi Tundur dufl að vera til
marks um hvar íslensk smásagna-
gerð er á vegi stödd er ekki ástæða
til húrrahrópa. Ljóst er þó að
menn kunna til verka þegar best
lætur. Kannski hefur það truflað
suma höfundana, lamað andríki
þeirra, að efnið hefur sett þá í
vanda, þeir hafa ekki verið alveg
vissir um hvaða leið ætti að fara.
Það er sennilega tímanna tákn
að konur eru í meirihluta í safninu.
Jóhann Hjálmarsson
Rýmingarsala á kjólum
Verð frá kr. 4.000,-
aðeins í nokkra daga
ELÍZUBÚÐIN
Skipholti 5.
B í L H E I M A R
□PEL
Innifalið í verði:
- útvarp og segulband meb
þjófavarnarkvóta og 6 hátölurum
- vökva- og veltistýri
- stillanleg hæb ökumannssætis
- toppbogar - (sjá mynd)
- heilkoppar
- samlæsingar og þjófavörn
5 gíra eða
sjálfskiptur
m/þremur
stillingum.
@ sparnaðar
stilling
(D spymu/
sportstilling
(§) spólvörn/
vetrarstilling
Fossliáls 1 110 Reykjavik Sími 634000
Opel Astra
skutbill,
þú fœrð ekki
betn bil a
kr, 1355.000,-
Argerö 1995
Opel
öryggi
tvö-
faldir
styrktarbitar
í hurðum.
meö ryövörn, skráningu og fullan tank af bensíni.
Vinsælasti
skutbíll Evrópu.
Yfir 41% seldra skutbíla
í Evrópu er Opel Astra.
Forskot Opel Astra er
svo afgerandi ab þó svo
næsti bílaframleiðandi í
röbinni tvöfaldabi sölu
sína á skutbílum myndi
hann ekki ná Opel Astra.