Morgunblaðið - 05.10.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994 9
FRÉTTIR
Sigurjón í þekktu tímariti
og auglýsingu Kodak
í NÝJASTA tölublaði bandaríska
tímaritsins Interview er viðtal við
Sigurjón Sighvatsson, kvikmynda-
gerðarmann, þar sem hann er
kynntur sem frumkvöðull í gerð
tónlistarmyndbanda og fullyrt að
fyrirtæki hans, Propaganda Films,
hafi hvatt fjölda ungra, hæfileika-
ríkra leikstjóra til dáða. Þá birtist
Sigurjón í heilsíðuauglýsingum
Kodak-fyrirtækisins, meðal annars
í kvikmyndablöðunum The Holly-
wood Reporter og Daily Variety.
Viðtalið við Sigurjón birtist í 25
ára afmælisútgáfu tímaritsins Int-
erview. í viðtalinu rekur hann for-
sögu þess að nokkrir ungir menn
stofnuðu Propaganda Films, sem í
fyrstu einbeitti sér að gerð tónlist-
armyndbanda. Þá fjallar hann um
þá þróun sem orðið hefur í gerð
slíkra myndbanda og nefnir dæmi
um tónlistarmenn, sem náðu langt
á skömmum tíma með aðstoð góðra
myndbanda. í lok viðtalsins er Sig-
uijón spurður hvort starfið sé enn
jafn skemmtilegt, eftir að Propa-
ganda Films hófu að framleiða kvik-
myndir í fullri lengd. Siguijón svar-
ar því til, að þar sé ólíku saman
að jafna. Nú sé fyrirtækið eins og
stórt orrustuskip og ef reynt sé að
beygja af leið sé það mun þyngra
INTERVIEW, þekkt banda-
rískt tímarit um listir og
menningu, birtir viðtal við
Sigurjón Sighvatsson í októ-
berhefti sínu.
í vöfum en lítill seglbátur. Hins
vegar sé mikilvægt að takast á við
stærri verkefni. Menn verði að vera
sveigjanlegir ef þeir ætli að viðhalda
sköpunargáfunni.
Heilsíðuauglýsing
I heilsíðuauglýsingu Kodak er
andlitsmynd af Siguijóni og texti
hafður eftir honum um starf hans
við tónlist á íslandi og myndbanda-
og kvikmyndagerð í Bandaríkjun-
um. Neðst í auglýsingunni segir að
Propaganda Films hafi framleitt um
500 tónlistarmyndbönd og unnið til
rúmlega 30 verðlauna tónlistarsjón-
varpsins MTV. Þá sé Propaganda
Films stærsti framleiðandi sjón-
varpsauglýsinga í Bandaríkjunum,
auk þess sem fyrirtækið hafi fram-
leitt þekkta sjónvarpsþætti og kvik-
myndir á borð við Wild at Heart,
Red Rock West, Kalifomia, Twin
Peaks og Tales of the City. Loks
segir að Siguijón hafi árið 1993
unnið svokölluð Frumkvöðlaverð-
laun samtakanna Music Video
Association.
Auglýsingin verður birt í fleiri
tímaritum á næstunni, meðal ann-
ars International Photographer,
Fiim & Video og American Cine-
matographer. Kodak hefur áður
fengið þekkta kvikmyndagerðar-
menn til liðs við sig í auglýsingum,
til dæmis Jon DeBont, James Ivory,
Sven Nykvist, Aaron Spelling og
Vittorio Storaro.
Viðgerðir
á öllum tegundum
af töskum.
Fljót og góð þjónusta.
TÖSKU-
VIÐGERÐIN
VINNUSTOFA SlBS
Ármúla 34, bakhús
Sími 814303
SÍLDARRÉTTIR
ÞÝSKAR BJÓRPYLSUR
HAKKAÐ BUFF
ÓTRÚLEG VEFp'"*
^&WDIÍÍ^It^ST
ÖLLKVÖLD
KRINGLUKRÁIN
164 kr.
á dag koma
sparnabinum
í lag!
Heiðursgestur: KRISTJÁN JÓHANNSSON
óperusöngvari, stígur á svið með Björgvini
Matseðill
Forréttur: Sjávarrétta fantasía
Aðalréttur: Rósmarínkryddaður lambavöðvi
Eftirréttur: Framkur kirsuberja ístoppur
Verð kr. 4.600 - Sýningarverd kr. 2.000
Dansleikur kr.800
Hljómar og Lónlí Blú Bojs
leika íyrir dansi eftir sýningu.
Borðapan tanir
í síma 687111
Hótel Island kynnir skemmtidagskrána
BJORGVIN HALLDORSSON - 25 ARA AFMÆLISTONLEIKAR
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON lítur yfir dagsverkið sem dægurlagasöngvari á
hljómplötum í aldarfjórðung, og \ ið heyrum nær 60 lög frá
glæstum ferli - frá 1969 til okkar daga
^AU-C
Gestasöngvari: ,
SIGRÍÐUR BEINTEINSDÓ
Leikmynd og leikstjórn:
BJÖRN G. BJÖRNSSON
Hljóinsveitarstjórn:
GUNNAR ÞÓRÐARSON
ásamt 10 manna hfjómsveit
Kynnir:
JÓN iÝXEL ÓLAFSSON
Danshöfundur:
HELENA JÓNSDÓTTIR
Dansarar úr BATTU flokknum
Það þarf aðeins 164 kr. á dag til að
spara 5.000 kr. á mánuði með áskrift
að spariskírteinum ríkissjóðs. Ef þú
bíður með að spara þangað til þú
heldur að þú hafir „efni" á því
byrjar þú aldrei. Líttu á sparnað sem
hluta af reglulegum útgjöldum
þínum, þannig verður sparnaðurinn
auðveldari en þú heldur.
Ert þú búin(n) ab spara
164 kr. í dag?
Hringdu í Þjónustumiðstöð
ríkisverðbréfa og byrjaðu
reglulegan sparnað með áskrift
að spariskírteinum ríkissjóðs.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, sími 91-626040