Morgunblaðið - 05.10.1994, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Lögmannavaktin hefur starfsemi
að nýju eftir sumarfrí
Mestir leita að-
stoðar í skaða-
bótamálum
ALLS leitaði 31 til Lögmannavakt-
arinnar á Akureyri á tímabiliníi 18.
maí síðastliðinn þegar starfsemin
hófst og þar til henni var hætt í lok
júní, en lögmenn á Akureyri er nú
að byrja aftur eftir sumarfrí og
verður fyrsta vaktin í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju í dag, mið-
vikudag, 5. október. Veitt er ókeyp-
is lögfræðiráðgjöf hjá Lþgmanna-
vaktinni og eru alls 10 lögmenn
skráðir til þátttöku. Vaktin er á
miðvikudögum frá kl. 16.30 til
18.30.
Ólafur Birgir Árnason lögmaður
á Akureyri sagði að viðtökurnar
hefðu verið góðar og hann vissi
ekki til annars en ánægja væri
meðal þeirra sem ieitað hefðu eftir
aðstoð vaktarinnar.
Alls leituðu 18 karlar og 13 kon-
ur eftir aðstoð Lögmannavaktarinn-
ar, flestir voru á aldrinum 30-65
ára eða 18 manns, 6 manns voru
á aldrinum 20-30 ára ogjafnmarg-
ir 65 ára og eldri, en einn var und-
ir 20 ára aldri. Flestir þeirra sem
komu voru kvæntir, eða 13 manns,
Kyrrðarstund
KYRRÐARSTUND verður í hádeg-
inu í dag, miðvikudaginn 5. otkóber
frá kl. 12 tii 13 í Glerárkirkju. Or-
gelleikur, helgistund, altarissakra-
menti og fyrirbænir. Léttifl máls-
verður í safnaðarheimili að stund-
inni lokinni.
7 voru einhleypir, 8 í sambúð, 1
fráskilin(n) og ekkjur/ekklar voru
2.
Skaðabótamál
Hvað málaflokka varðar voru
skaðabótamálin fiest, samtals 7,
fjórir leituðu aðstoðar vegna
greiðsluerfiðleika eða skuldaskila
og einnig vegna fasteigna, þrír
komu vegna fjárskipta milli hjóna
eða sambúðarfólks, einnig þrír
vegna hjónaskilnaða eða sambúðar-
slita, dánarbús- eða gjaldþrota-
skipta og vátryggingamála.
Flestir þeirra sem ieituðu eftir
ráðgjöf hjá Lögmannavaktinni á
tímabilinu voru verkamenn og sjó-
menn, alls 8, og þá voru 6 atvinnu-
lausir, 4 húsmæður og 3 atvinnu-
rekendur eða sjálfstætt starfandi
en í öðrum hópum voru færri.
„Það kom okkur á óvart hversu
fáir leituðu til okkar vegna greiðslu-
erfiðleika, í Reykavík hefur reynsl-
an orðið önnur þar sem margir
koma vegna þess og þar leituðu
margir aðstoðar vegna fasteigna-
mála en það var lítið um slík mál
hjá okkur. Þá var reynslan syðra
sú að margir úr hópi opinberra
starfsmanna leituð ráðgjafar á Lög-
mannavaktmni en enginn hjá okk-
ur,“ sagði Ólafur Birgir.
Stór hluti þeirra sem leituðu til
vaktarinnar með sín mál lauk mál-
inu með þeirri ráðgjöf sem veitt
var, eða 17 manns, 13 var ráðlagt
að leita lögmannaaðstoðar og þrem-
ur var ráðlagt að leita til stjórn-
valda.
MJOG GOÐ KAUP
TIL SÖLU GÓÐ RÚML. 100 FM 4RA HERB. ÍBÚÐ Á
3. HÆÐ í BLÖNDUBAKKA 18,
VERÐ AÐEINS 6,6 MILU.
SÍMI 888 222
BORGAREIGN FASTEIGNASALA
21150-21370
LARUS Þ. VALDIMARSS0N, framkvæmdastjori
KRISTJAN KRISTJANSS0N. loggiltur fasteignasali
Til sýnis m.a. athyglisverðra eigna:
Sunnan Háskólans - hagkvæm skipti
Gott timburhús, ein hæð, um 150 fm. Ræktuð eignarlóð rúmir 800 fm.
Skipti æskileg á 3ja herb. íb. íVesturbæ, Heimum, Hlíðum. Gott verð.
Móti suðri og sól - útsýni
Vel byggt vel með farið steinhús, ein hæð, 165 fm auk bílsk. 25 fm.
Sólríkar stofur, viðarkl. 4 svefnh. m. innb. skápum. Glæsileg ræktuð
lóð 735 fm. Vinsæll staður skammt frá Árbæjarskóla.
Á Högunum - stór og góð
Endurnýjuð 2ja herb. íb. 65,5 fm. Nýtt parket. Nýtt gler. Allt sér. Lít-
ið niðurgr. í kj. í fjórbh. móti suðri og sól.
Nýtt eldhús - sérhiti - kjherb.
Mjög góð 4ra herb. endaíb. á 1. hæð 108,6 fm við Hraunbæ. Góð
sameign. Kjherb. fylgir með snyrtingu. Tilboð óskast.
Gott steinhús - 3 íb. - stór bílskúr
Á vinsælum stað i austurborginni, grunnfl. um 90 fm. 3ja herb. íb. á
hæð, 3ja herb. íb. í risi, 2ja herb. íb. í kj. Bílsk. - verkstæði 42,8 fm.
Eignaskipti möguleg.
Suðuríbúð - frábær greiðslukjör
3ja herb. íb. á 2. hæð við Súluhóla. Öll eins og ný. 40 ára húsnæðislán
kr. 3,3 millj. Um kr. 2,0 millj. af útb. má greiða á 4 árum.
• • •
Fjöldi fjársterkra kaupenda.
Margskonar eignaskipti.
Almenna fasteignasalan sf.
var stofnuð 12. júlí 1944.
ALMENNA
FASTEIGNASMAH
uÚIgAvÍÍgM^^
AKUREYRI
Morgunblaðið/Magnús J. Mikaelsson
Framkvæmdir við höfnina í Hrísey fyrir 27 milljónir
Stálþil leysir ónýta
trébryggju af hólmi
FRAMKVÆMDIR við höfnina í Hrísey standa nú yfir
en gert er ráð fyrir að þessum áfanga verkefnisins
verði lokið um áramót.
Jónas Vigfússon sveitarstjóri í Hrísey sagði kostnað
við framkvæmdirnar áætlaðan um 25 milljónir króna
en að auki verður sjóvarnargarður sem eyðilagðist
fyrir tveimur árum lagfærður og bætast þá við um 2
milljónir króna þannig að heildarverkið kostar um 27
milljónir króna. Verkið var boðið út og var samið við
Guðlaug Einarsson á Fáskrúðsfirði.
Nú er verið að reka niður stálþii, 65 metra langt,
þar sem áður var ónýt trébryggja í kverkinni svoköll-
uðu. Fram til áramóta er síðan áætlað að fylla á ba-
kvið þilið og steypa kant en á næsta ári verður þekjan
steypt. Það er samkvæmt tveggja ára áætlun um hafn-
arframkvæmdir í eynni og líka lenging svokallaðs
Norðurgarðs.
„Þessar framkvæmdir bæta vissulega úr brýnni þörf,
þær lengja viðleguna en ekki var hægt að liggja við
gömlu trébryggjuna," sagði Jónas en innifalið í verkinu
er að höfnin verður dýpkuð fram við stálþilið sem
gerir að verkum að stærri bátar geta legið þar. í fram-
tíðinni er þannig fyrirhugað að færa legustað Hríseyjar-
fetjunnar Sævars þangað. „Hafnaraðstaðan hér verður
orðin viðunandi þegar þessum framkvæmdum er lok-
ið,“ sagði Jónas.
Fækkun á at-
vinnuleysisskrá
EIGNAHÖLLIN
FASTEIGNASALA
Suðurlandsbraut 20
68 OO 57
Breiðholt. Stórgl. 2ja herb.
íb. v. Orrahóla. Fráb. útsýni.
Einst. eign. Athyglisv. verð.
Vesturbær. 2ja herb. íb. m.
bílskýli á eftirsóttum stað. Áhv.
byggsj. 3,4 millj. Verð aðeins
5,7 millj.
Víðimelur - hæð og ris.
Stofa, eldhús og snyrting á
hæð. 3-4 svefnherb., bað og
sjónvhol í risi. Allt nýtt lagnir
og tilheyrandi. Góðar svalir.
Gott útsýni. Eignaskipti mögul.
Kópavogur. 3ja herb. íb. v.
Engihjalla. Skemmtil. (b. m.
góðum innr. á góðum stað.
Miðbærinn. Sérstök eign á
tveimur hæðum í góðu steinh.
135 fm. Allt endurn. Eignaskipti
möguleg.
Vesturberg. Góð 5 herb. íb.
i grónu hverfi. Stutt i alla þjón.
Eignaskipti mögul.
Kögursel. 180 fm einbhús
m. 23 fm bílsk. Tvær hæðir og
risloft. 4 stór herb., stofur, gott
eldhús, hornstofa, þvhús og
búr. Vandaðar innr. Vel stað-
sett nál. útivistarsvæði. Áhv.
byggsj. og húsbr. 5,1 millj.
Eignaskipti rnögul.
Höfum góðan kaupanda
að 10-11 millj. kr. eign helst
nál. Skólavörðuholti eða Þing-
holtunum. Útsýni skilyrði.
Staðgreiðsla.
VANTAR EIGNIR
Á SKRÁ
AF ÝMSUM GERÐUM
Jóhann Valdimarsson, sölustjóri.
FÆKKAÐ hefur á atvinnuleysis-
skrá á Akureyri milli mánaðamóta,
en um nýliðin mánaðamót voru 317
á skrá en voru í lok ágúst 375.
Fækkunin er fyrst og fremst til
komin vegna þess að fólk hefur
fengið vinnu í sláturhúsi og eins
eru nokkrar ígulkeravinnslur af
hefja starfsemi um þessar mundir
samkvæmt upplýsingum á Vinnu-
miðlunarskrifstofu Akureyrarbæj-
ar.
Nokkru færri eru skráðir at-
vinnulausir nú á haustmánuðum
þegar miðað er við sama tíma í
fyrra, en í septemberlok á síðasta
ári voru 377 skráðir án atvinnu.
Langflestir þeirra sem skráðir
BORGARSTJÓRNIN í Randers,
vinabæ Akureyrar í Danmörku,
hefur óskað eftir við bæjarstjórn
Akureyrar að fá sendan stóran stein
úr bæjariandinu, en á Nordens Torv
í miðbæ Randers er áætlað að setja
upp fjóra stóra steina frá hveijum
hinna norrænu vinabæjum ásamt
minni steini úr nágrenni Randers
en þeim er ætlað að minna á tengsl
eru atvinnulausir eru félagsmenn í
Verkalýðsfélaginu Einingu eða 106
talsins um mánaðamótin. Þá voru
46 félagsmenn í Iðju atvinnulausir
og 83 úr Félagi verslunar- og skrif-
stofufólks á Akureyri.
Nýtt átak
Enn eru 29 manns að störfum
við atvinnuátak frá því í sumar en
því er að ljúka þessa dagana. Sótt
hefur verið um að hefja nýtt at-
vinnuátaksverkefni, 105 manna-
mánuði, eða í 35 heilar stöður, en
endanlegt samþykki Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs hefur ekki borist.
Verði það samþykkt má gera ráð
fyrir að það hefjist I þessum mán-
uði og standi til áramóta.
vinabæjanna.
Bæjarráð er reiðubúið að stuðla
að framgangi málsins og hefur fal-
ið yfirverkfræðingi og skipulags-
stjóra að sjá um framkvæmdina.
Árni Ólafsson skipulagsstjóri sagði
að leit að umræddum steini væri
ekki hafin, fyrst væri að ræða við
menn þar ytra og fá nánari vitn-
eskju um málið.
Akureyrskur steinn
til Randers