Morgunblaðið - 05.10.1994, Page 16

Morgunblaðið - 05.10.1994, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ___________________LISTiR „Island er landið“ — í Arósum íslandsvika í Árósum vakti athygli enda dagskráin fjölbreytt með myndlistar- og sögusýningum, leiksýningu, tónleikum, íslenskum bíómyndum og samtímabók- menntum að ógleymdri matargerðarlist. Sigrún Davíðsdóttir segir frá ---------------------------------------- Islandsvikunni í Danmörku. ÍSLAND var landið í Árósum í síð- ustu viku og ýmiss konar íslenskt efni setti svip sinn á bæinn, sem er háskólabær og annálaður fyrir öflugt menningarlíf. íslandsvikan var formlega opnuð á mánudegin- um að viðstöddum Ólafi G. Einars- syni menntamálaráðherra og ís- lenskum sendiherrahjónunum í Kaupmannahöfn, þeim Ólafi Egils- syni og Rögnu Ragnars. Það er Norræna húsið í Reykjavík sem stóð að baki framtakinu og Torben Ras- mussen forstjóri hússins hefur verið helsti hvatamaður þess. Íslandsvik- unni hafa verið gerð góð skil í dönskum fjölmiðlum og meðal ann- ars var Torben Rasmussen nafn dagsinsí „„Berlingske Tidende" í vikunni, þar sem sagt var frá störf- um hans hingað til í tilefni ísland- svikunnar. Við opnun íslandsvikunnar í ráð- húsi Árósa var Torkild Simonsen borgarstjóri viðstaddur. Um leið voru opnaðar íslenskar sýningar í ráðhúsinu, ein á íslenskri myndlist, þjóðbúningasýning frá Þjóðminja- safninu, sögusýning og ljósmynda- sýning með gömlum myndum, bæði um lífið áður fyrr og um stríðsárin. Sýningamar voru bæði áhugaverð- ar og fallega og glögglega settar upp. Sama dag opnaði grafíksýning í Áby-bókasafninu, sýning á ís- lenskum listmunum í tónlistarhús- inu og myndlistarsýning í húsi við höfnina. í glugga Den Danske Bank beint á móti ráðhúsinu er stillt út glermunum eftir Sigrúnu Einars- dóttur og Sören S. Larsen. Auk þessa eru svo tvær íslenskar mynd- listarsýningar í bænum, annars vegar í Galleri Profilen og hins veg- ar í gamalli byggingu við höfnina. Opnunardeginum lauk með tón- leikum í nýlegu tónlistarhúsi Árósa, sem er annálað fyrir fallega hönnun og fyrir að vera að öllu leyti vel heppnað. Þar spiluðu Erling Blön- dal Bengtsson sellóleikari og tengdadóttir hans Nina Kavtaradze píanóleikari. Erling Blöndal spilaði meðal annars einleiksverk eftir Atla Heimi Sveinsson, Úr ríki þagnarinn- ar, sem er tileinkað sellóleikaran- um. Áður en hann flutti verkið sagði Erling Blöndal áheyrendum að þó hann væri annars öldungis á móti því að kynna verk á tónleikum, þá gæti hann ekki staðist að segja frá hvað Atli Heimir hefði sagt sér um verkið og hve hann sjálfur væri hrifinn af því. Vart þarf að taka fram að flutningurinn var einstak- lega áhrifamikill, enda verkið sjald- gæflega faliegt. Dúóinu var vel fagnað og tónleikarnir voru glæsi- leg byijun vikunnar. Dagskrá vikunnar var einkar fjölbreytt og vel til þess fallin að kynna ísland og íslenska menningu almennt. Bandamannasaga í upp- færslu Sveins Einarssonar var sýnd nokkrum sinnum á vikunni. Eins og oftar þegar íslenskir leikflokkar hafa komið saman snjöllum sýning- um sem eftirspum er eftir erlendis frá er það rétt með herkjum að þátttakendum sýningarinnar tekst að fá sig lausa úr verkefnum sínum til að leggja í leikför. Hróður sýn- ingarinnar hefur nú spurst víða út og hópurinn á víða boð, sem því miður er ekki hægt að sinna vegna anna. íslenskar bókmennir voru kynntar I fyrirlestri sem Erik Sky- um-Nielsen fyrrum sendikennari á Islandi og þýðandi margra íslenskra bóka hélt. Rithöfundurnar Einar Már Guðmundsson, Einar Kárason, Sjón og Vigdís Grímsdóttir komu fram í vikunni og kynntu verk sín. Fornbókmenntirnar gleymdust ekki og Eyvindur Eiríksson rithöfundur fór í skóla og sagði frá íslendinga- sögum, auk þess sem hann flutti fyrirlestur um Ásatrú. í tilefni vikunnar var tekin saman sýning um íslenska byggingarlist á Arkitektaskólanum í Árósum. Sýn- ingin er sú fyrsta sinnar tegundar og lætur ekki staðar numið í Árós- um, heldur fer hún næst á arktitekt- amiðstöðina í Gammel dok í Kaup- mannahöfn. Þaðan er svo í undir- búningi að hún fari víðar. Tveir þeirr arkitekta, sem eiga verk á sýningunni, þeir Guðmundur Gunn- arsson og Guðni Pálsson, héldu fyr- irlestra í vikunni um íslenska bygg- ingarlist. Alla vikuna voru sýndar íslenskar kvikmyndir í kvikmyndahúsinu- „„Öst for Paradis", sem er eitt af betri kvikmyndahúsum í Dan- mörku. í samtali við Morgunblaðið sagði Ole Björn forstöðumaður hússins að aðsóknin hefði verið miklu betri en venjulega, þegar haldnar væru svona sérsýningar. Börn náttúrunnar hefði verið mjög vel sótt. Á föstudaginn var byijað að sýna Karlakórinn Heklu, sem var frumsýnd bæði þarna og í Kaup- mannahöfn. Aðsóknin í Árósum var mun betri en í Kaupmannahöfn, sem Ole Björn sagði að væri öfugt við það sem venjulega væri. Skýr- ingin væri örugglega sú að svo mikið annað íslenskt hefði verið á boðstólnum þessa vikuna og það hefði dregið athyglina að kvik- myndunum. Aðsókn að íslenskum stuttmyndum var einnig þokkaleg og góð aðsókn að Rokki í Reykja- vík og þar var Björk örugglega mikið aðdráttarafl. Og fyrst minnst er á rokk þá kom hljómsveitin Stingandi strá fram á Islandsvik- unni. íslensk matargerð gleymdist heldur ekki. I veitingahúsi tónlist- arhússins var íslenskt hráefni á boðstólunum, matreitt af hinum slynga kokki René Knudsen, ásamt Sören Gericke, sem er einn af stjörnukokkum Dana og vísast einn sá þekktasti, ekki síst vegna þess að hann hefur oft komið fram í sjón- varpinu. Eitt kvöld var svo íslenskt kvöld með íslenskum mat, tónlist og litskyggnum á vegum íslendinga- félagsins og Norræna félagsins. Aðstandendur vikunnar mega sannarlega vel við una, því það tókst að koma íslandi að í Árósum þessa vikuna og eitthvað situr vísast eft- ir. Það tókst vel að fá marga aðila til að leggja saman krafta sína og standa að einstaklega fjölbreyttri dagskrá. Samstillingar litrófsins MYNPLIST Listaskáli alþýdu MÁLVERK VALGERÐUR HAFSTAD Opin frá kl. 14-19 alla daga til 16. október. Aðgangur ókeypis. SVO VIRÐIST sem Parísarskóli eftirstríðsáranna sitji mjög djúpt í þeim sem lifðu tímabilið á vett- vangi. Það á við um marga ís- lenska myndlistarmenn sem eru enn á kafi í módernismanum svo- nefnda, þótt ótal listbylgjur hafa gengið yfir og þeir hafi ítrekað verið ásakaðir um stöðnun og íhaldssemi. Án efa má rekja ástæðuna til þess hve sterkt og hreint þetta málverk var, og hve menn þurftu að leggja á sig mikla vinnu til að ná umtalsverðum árangri, og eðli- lega voru þeir ekki reiðubúnir til að varpa þessu erfiði og jafnframt sannfæringu sinni fyrir róða á alt- ari tímabundinna listbylgja. Um skeið hurfu ýmsir bógar Parísarskólans eins og úr sviðsljós- inu, en á seinni tímum hefur veg- ur þeirra aftur vaxið og hefur aldr- ei verið meiri í sumum tilvikum, það á t.d. við Poliakoff, Atlan, Hartung og jafnvel Deyrolle, sem á tímabili var nær gleymdur. Allir þessir bógar og margír fleiri hafa verið endurreistir, og verk eftir þá eru aftur eftirsótt og seljast á háu verði á listamarkaði. Valgerður Hafstað kom til Par- ísar þegar vegur þessara manna og margra fleiri framúrskarandi málara var hvað mestur, var um „Hljómleikur" nr. 35 á sýning- arskrá (akryl á pappír). árabil búsett í borginni en fluttist svo til New York, þar sem hún hefur haft starfsvettvang í tvo áratugi. Og jafnvel þótt listakonan hafi búið í hringiðu amerískrar listar allan þennan tíma, þá eru áhrif frá Parísarskóla áranna meira en greinileg við skoðun sýningar hennar í Listaskála alþýðu. Þau eru helst á Ijóðræna kantinum, og BRÍET Héðinsdóttir í hlutverki Karenar Blixen í leikritinu Dóttir Lúsífers. Dóttir Lúsífers á Litla sviðinu Bríet Héðinsdóttir leikur Karen Blixen DÓTTIR Lúsífers, einleikur byggður á ævi og ritverkum dönsku skáldkon- unnar Karenar Blixen, verður frum- sýndur á Litla sviði Þjóðleikhússins nk. föstudagskvöld. Höfundur verks- ins er bandaríska leikskáldið William Luce, sem þekktur er fyrir leikverk um frægar skáldkonur. Það er Bríet Héðinsdóttir sem leik- ur Blixen, Ólöf Eldjárn þýddi verkið, um leikmynd og búninga sér Hlín Gunnarsdóttir og Ásmundur Karls- son annast lýsingu. Leikstjóri er Hávar Siguijónsson. Karen Blixen lifði mjög viðburða- ríku lífi og þykir meðal fremstu rit- höfunda aldarinnar. Hún bjó lengi í Afríku, á kaffiplantekru í eigu fjöl- skyldunnar og byggir sín helstu verk á minningum þaðan. Ung að árum veiktist Karen af ólæknandi sjúkdómi sem hægt og bítandi leiddi hana til dauða, en stormasöm ævi hennar einkenndist af óbifandi viljastyrk og lífsgleði þessarar einstöku konu. Meðal þekktustu verka Karenar Blix- en má m.a. nefna Jörð í Afríku, Skuggar í grasinu og Gestaboð Ba- bette. Leikritið Dóttir Lúsífers segir frá ævikvöldi skáldkonunnar, þar sem hún er að búa sig undir mikla fyrir- lestrarferð um Bandaríkin og heim- komuna úr því ferðalagi. Brugðið er upp myndum úr lífi Karenar Blixen, við kynnumst fjölskyldu hennar, vin- um, ástum, gleði og sorgum. Ekki síst frásagnargleði þessa mikla sagnaþular, gamansemi og einstöku innsæi. Einþrykk í Úmbru MAGDALENA Margrét Kjart- ansdóttir opnar sýningu á ein- þrykkjum_ í Galleríi Úmbru fimmtudaginn 6. október kl. 17. Magdalena Margrét stund- aði nám í Myndlista- og handíðaskóla íslands, grafík- deild. Hún er félagi í ís- lenskri grafík og hefur tekið þátt í sýningum þar auk annarra samsýn- inga á Norðurlöndum, víða í Evrópu, Japan, Kína og Bandaríkjunum. Þetta er sjötta einkasýning hennar. Verkin á sýningunni eru öll unnin á þessu ári, dúkristur þrykktar í oiíu á pappír. Þau fjalla um lífið og tilver- una, samspil forms og tilfinninga á táknmáli myndarinnar. Gallerí Úmbra er opið þriðjudaga til laugardaga kl. 13-18, sunnudaga kl. 14-18. Sýningin stendur til 26. október. þannig einkennir hæg og mild stíg- and vinnubrögð hennar, ásamt vandvirkni sem jaðrar við nostur. Þannig virðist stutt í vefinn í sum- um myndunum, en önnur eru byggð upp á örsmáum litabrotum og minna á uppköst að glerverkum eða mósaík, en Valgerður vann einmitt í gleri og mósaík um skeið. Mikið af verkunum virðast eins konar myndrænar þreifingar sem vega salt á milli myndlistar og list- iðnaðar, en þetta eru mjög hrein og heiðarleg vinnubrögð og laus við alla tilgerð. Myndmálið, sem Valgerður hrærðist í á Parísarár- unum, hefur hún þannig haldið tryggð við, býr sjálf að auki ekki yfír skapgerð sem hvetur til snöggra hamskipta og mikilla um- brota. Hógværð, hæg þensla og yfírvegun eru grunneiningar mynd- málsins sem minnir ekki svo lítið á form- og litrænar samstillingar eða kyrrur. Þannig hættir hún sér aldrei á hálan ís, gætir þess vand- lega að hafa vaðið fyrir neðan sig, sleppir síður öruggri haldfestu. Það er drjúgur fjöldi myndverka á sýningunni, sem eru unnin í hin aðskyldustu efni svo sem olíu, akrýl á striga og pappír svo og vatns- og þekjuliti. Flestar mynd- irnar eru af smærri gerðinni eða meðalstærð og þannig hvergi sterk rof. þetta gerir að verkum að hæg stígandi er á heildarmyndinni, en samt er einhver óróleiki í henni og má það vera fyrir það að mynd- verkin eru gerð á löngu tímaskeiði en skoðandinn áttar sig síður á því, vegna þess að ártöl vantar í sýningarskrá. Hér er á ferðinni vönduð og yfirveguð listakona, sem á stund- um slær á strengi sem eru afar sjaldséðir í íslenskri myndlist nú til dags, sem sér einkum stað í verkunum „Kyrrur“ (11), „Sam- stilling" (33), Hljómleikur“ (35), „Ómælt“ (42) og „Hreyfing“ (59). Sýningarskráin er einföld og hand- hæg, en að ósekju hefði mátt fjalla svolítið um það sem til sýnis er og aðdraganda að ýmsum breyt- ingum á myndmálinu, sem hefði skapað meiri nálgun. Skýrt sitt- hvað sem áhorfandinn annars velt- ir fyrir sér og gerir sýninguna mun ósamstæðari en skyldi. Bragi Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.