Morgunblaðið - 05.10.1994, Page 37

Morgunblaðið - 05.10.1994, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994 37 ________BREF TIL BLAÐSINS_ Agaleysi og upplausn Frá Ólafi Ormssyni: FRÉTTIR fjölmiðla undanfarnar vikur og mánuði hafa fjallað um síaukin afbrot og hvers kyns mis- ferli í meðferð fjármuna. Fjórir pilt- ar á aldrinum 15 til 17 ára réðust nýlega inn í verslun við Nóatún við Kleifarsel og ógnuðu starfsfólki með hníf, hrifsuðu peninga úr pen- ingakassa og hurfu út í myrkrið. Allir áttu þeir langan afbrotaferil að baki og höfðu ítrekað komið við sögu lögreglu í árásarmálum og hlotið dóma. Einn piltanna hafði áður ráðist á sjötugan mann, bak- ara, þar sem hann var við vinnu sína í sama húsi og verslunin Nóa- tún er í. Tók hann taki um háls hans og ógnaði honum með hnífi. Slíkar fréttir eru því miður allt of oft í fjölmiðlum og fólk ef til vill hætt að veita þeim athygli. í Morgunblaðinu birtist t.d. eftir helgar yfirlit yfir mál sem upp koma hjá lögreglunni helgina á undan og lýsa því ástandi sem við er að etja þegar hundruð höfuðborgarbúa undir áhrifum áfengis og fíkniefna breytast í villidýr sem hvorki virða umferðarreglur né umgengnisregl- ur, aka drukknir í bifreiðum sínum og láta hendur skipta innbyrðis í átökum á götum úti eða gangstíg- um og í versta tilfelli verða valdir að fólskulegum líkamsárásum á saklausa vegfarendur. Ástæður þess að þannig er kom- ið í þjóðfélaginu eru sennilega margar og það er alvarlegt að aga- leysi og hvers kyns upplausn gerir stöðugt meira vart við sig og virð- ingarleysi fyrir lögum og reglum. Ef til vill er orsakanna að leita til þeirrar staðreyndar að afbrota- menn, forhertir glæpamenn, sleppa með tiltölulega milda dóma þegar mál þeirra koma fyrir dómstóla. Dómar Það hefur sjálfsagt vakið athygli margra að nýlega voru kveðnir upp dómar í Héraðsdómi Reykjavíkur yfir tveimur mönnum fýrir að hafa staðið að innflutningi, sölu og dreif- ingu á eitt þúsund skömmtum af stórhættulegu ofskynjunarlyfi, LSD. Dómurinn hljóðaði uppá 24 mánaða fangelsi og 18 mánaða fangelsi og er auðvitað hneyksli. Ogæfa íjölda ungmenna sem lenda á glapstigum stafar t.d. af áfengis- og eiturlyfjanotkun og ábyrgð þeirra manna sem halda fíkniefnum að áhrifagjömu og óupp- lýstu æskufólki er mikil. Sala og dreifing eiturlyija sem vitað er að geta valdið notendum miklum skaða og í mörgum tilfellum dauða er einn helsti glæpur sem um getur og víða erlendis eru menn sem standa að sölu slíkra eiturlyfja dæmdir til dauða eða í lífstíðarfangelsi. Ekki benda á mig Líklega verða menn seint sam- mála um það hvað valdi breyttri þjóðfélagsmynd hér á íslandi á síð- ari árum. Þó hafa glöggir menn lengi gert sér grein fyrir skaðvald- inum og eru þeim mun vissari með hverju árinu sem líður. Og glöggt er gests augað. Ás- geir Sigurvinsson hinn kunni knatt- spyrnumaður sem lengi hefur búið erlendis viðhafði í viðtali við fjöl- miðla hér á landi ekki alls fyrir löngu ummæli sem eru minnisstæð. Hann gagnrýndi agaleysi og óstundvísi í íslensku samfélagi og það viðhorf sem hér hefur lengi ríkt varðandi atvinnurekstur og óábyrga aðila sem þar fjölgar sífellt og virð- ast varla ábyrgðarmeiri en börn að leik í sandkassa. Það er þetta við- horf að allt reddist, reddist einhvem veginn og engin ástæða sé til að bera nokkra ábyrgð þó allt fari á hausinn og gjaldþrot blasi við. Og skaðvaldinn sem hér var minnst á að framan er t.d. að finna í uppeldi bama hér á landi sem er oft á tíðum í molum. Foreldrar eru uppteknir í lífsgæðakapphlaupinu og hafa ekki tök á að sinna börnum sínum og sé haft orð á því að þetta gangi ekki mikið lengur, þá er sagt sem svo: Ekki benda á mig. Ábyrgðaleysið er algjört þó svo að það muni vera nokkuð um það að börn alist upp nánast á götunni, eða þá við þær aðstæður sem sí- fellt ijölgar að afruglari Stöðvar 2 sé eins konar barnfóstra á íslensk- um heimilum. Það er líka að koma æ betur í ljós með hveiju árinu sem líður sú ábyrgð sem kvikmyndaiðnaðurinn og einkum sá bandaríski og banda- rískt sjónvarp bera á þróun mála í samfélögum á Vesturlöndum. Það var t.d. nýlega getið um það í út- varpsþættinum Samfélagið í nær- mynd á Rás 1 að samkvæmt banda- rískum rannsóknum eru framin átta þúsund morð í bandarísku sjónvarpi árlega og hundrað þúsund ofbeldis- aðgerðir. Sjónvarpið Á Stöð 2 líður engin helgi svo að ekki séu sýndar fimm til sex bíómyndir, bandarískar og strang- lega bannaðar börnum. Hver er annars dagskrárstefna þeirrar sjónr varpsstöðvar? Er hún ef til vill sú að elta uppi lágkúruna í bandarísku sjónvarpi? Ég spyr þar sem það er sjaldgæft að sjá íslenskt efni á dag- skrá Stöðvar 2, vandað íslenskt efni. Slíkir þættir hafa þó einstaka sinnum borið fyrir augu áskrifenda, hitt er miklu algengara að sjá á dagskrá Stöðvar 2 þætti þar sem kynt er undir fégræðgi manna, samanber nýja bingóþáttinn. Við lifum jú í spilltum heimi. Einmitt þess vegna er full ástæða til þess að hvetja ljölmiðla, sjónvarpsstöðv- ar t.d., að gæta að sér. Sjónvarpið er áhrifamikill miðill í nútímasamfé- lagi. Það er full ástæða til að gera forráðamönnum sjónvarpsstöðva grein fyrir þeirri ábyrgð sem á þeim hvílir. Afþreyingariðnaðurinn verð- ur að átta sig á því að til er sem betur fer fagurt mannlíf. Það er möguleiki á að bjarga mörgum unglingum frá glapstigum ef þeim er gerð grein fyrir því að sjónvarp- ið er eitthvað annað og meira en skóli fyrir tilvonandi afbrotamenn. En til þess að svo geti orðið þarf gjörbreytta dagskrárstefnu í sjón- varpi nútímans. Ekki minnist ég þess t.d. að nokkurn tímann hafi verið fjallað um kristna trú á Stöð 2. Mér er ekki kunnugt um að sjón- varpsstöðin hafi nokkurn tímann sýnt t.d. frá guðsþjónustu í ís- lenskri kirkju. ÓLAFUR ORMSSON, rithöfundur, Eskihlíð 16a, Reykjavík. ^að er eitthvað bogið við nviu | 'sskápalínuna frá Whirlpool | 204/60 h 150 Bogadrcgin línan í hurðunum á nýju ískápalfnunni frá Whirpool gefur nútímalegt yfirbragð. Um leið er |>að afturhvarf til fortíðar og því má scgja að gamli og nýi tíminn mætist í nýju Soft Look línunni frá Whirlpool. KOMDU oo Heimilistæki hf SÆTÚNl a SÍMI 69 15 OO Innan veggja heimilisins Sunnudagsblaði Morgunblaðsins 23. október nk., fylgir blaðauki sem heitir Innan veggja heimiiisins. í þessum blaðauka verður m.a. fjallað um gömul hús og ný, innréttingar og húsbúnað, gólfefni og málningu. Ýmsar hentugar lausnir fyrir heimilið verða kynntar auk þess sem ríkjandi tískustraumar verða kannaðir. Þeim sem áhuga hafa á ab auglýsa í þessum blabauka er bent á ab tekib er vib auglýsingapöntunum til kl. 17.00 mánudaginn 17. október. Nánari upplýsingar veita Agnes Erlingsdóttir, Dóra Gubný Sigurbardóttir og Petrína Ólafsdóttir, starfsmenn auglýsingadeildar, í síma 69 11 11 eba símbréfi 69 11 10. - kjarni málsins! Umboðsmenn um land allt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.