Morgunblaðið - 23.10.1994, Blaðsíða 5
MQRGJJlýiBMÐÍÐ
, SUNMUÐAGUJÍ l§.OKTÓREyRJ994| 5
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Húnversk himnafegurð
Gullroðin netjuský sindruðu yfir Húnaflóa þegar rækjuskipið Nökkvi lagðist að bryggju á
Blönduósi eftir góða veiðiferð..
Seifur slítur sam-
starfi við Arnes hf.
FORSVARSMENN fiskútflutnings-
fyrirtækisins Seifs hf. í Reykjavík
hafa ákveðið að slíta samstarfi sem
þeir hafa átt við Árnes hf. í Þorláks-
höfn um sölu og útflutning á flat-
fiski til Evrópu.
Ævar Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Seifs segir Árnes
ekki hafa staðið við gerða samninga
og auk þess sé vilji fyrir því meðal
útgerða sjö báta sem fyrirtækið
hefur verið í viðskiptum við allt frá
1987 að vinna aflann í heima-
byggð. Pétur Reimarsson fram-
kvæmdastjóri Árness segir þetta
ekki hafa veruleg áhrif á fyrirtækið.
Seifur hefur verið í viðskiptum
við sjö báta sem hafa veitt flatfisk
í Faxaflóa. Fyrirtækið seldi Árnesi
aflann og flutti hluta hans út til
Hollands. Ævar segir að leyfin sem
upphaflega voru gefin fyrir þessari
veiði hafi verið bundin því að aflan-
um væri landað á Reykjavíkursvæð-
inu.
„Útgerðir bátanna vilja eðlilega
að aflinn verði unninn hér í heima-
byggð en honum ekki ekið út á land.
Það er ein af ástæðunum fyrir því
að við slítum samstarfinu en hin
er sú að Árnes hefur ekki staðið
við gerða samninga,“ segir Ævar.
Seifur flutti út á síðasta ári fisk
fyrir 2,3 milljarða króna. Ævar
segir að hugmyndin sé sú að Seifur
sjái framvegis um þau mál. Hann
segir að væntanlega verði aflinn
seldur til Englands, meginlands
Evrópu, Japans og Bandaríkjanna.
Hann telur að hráefnið sem hér um
ræðir sé nálægt 3 þúsund tonnum
á ári.
Pétur Reimarsson framkvæmda-
stjóri Árness segir afstöðu Seifs
engin veruleg áhrif hafa á starfsemi
fyrirtækisins. „Útflutningsstarf-
semi Seifs skiptir okkur nánast
engu máli. Þeir hafa í raun útbúið
fyrir okkur útflutningspappírana en
sölustarfsemin hefur í raun verið á
okkar höndum,“ segir Pétur.
Ráðstefna á Hótel Loftleiðum 29. október nk.
\M/ MAMV-
gf RÉTTHVTDI
■ BARM
Fímm ára afmæli Barnaheilla á Ári fjölskyldunnar
LAUGARDAG 29. OKTÓBER 1994 KL. 9-17
Ráðstel'nustjóri: Guðný Guðbjörnsdóttir, uppeldissálfræðingur
Setning: Arthur Morthens, formaður Barnaheilla
Ávarp forseta fslands, frú Vigdísar Finnbogadóttur
Ávarp Þorsteins Pálssonar, dóms- og kirkjumálaráðherra
IMannréttindi og alþjóðahjálparstarf:
Jón Baldvin Uannibalsson. utanríkisráðherra
Barnasáttmáli SÞ og velferð barna á Norðurlöndum:
Lars H. Gustafsson, varaformaður Radda Barnen í Svíþjóð
Viðhorf til barna í sögulegu Ijósi:
Loftur Guttormsson, prófessor við KHÍ
Barnavernd og sérfræðiþróun:
Guðrún Kristinsdóttir, verkefnisstjóri KHÍ
Vanmáttug barnavernd og staða barna:
Bragi Guðbrandsson. félagsfræðingur
Heimilisofbcldi:
Karl Steinar Valsson, afbrotafræðingur
Barnavernd/kynferðislegt olbeldi:
Aðalsteinn Sigfússon, félagsmálastjóri Kópavogs
Kynfcrðislegt ofbeidi gegn börnum:
Guðrún Jónsdóltir, Stígamótum
Börn og réttarkerfið. Viðiiorf og staða barna:
Ragnar Aðalsteinsson, lögfræðingur
Nefnd um kynningu á Barnasáttmála SÞ:
Hrólfur Kjartansson, deildarstjóri
Rauði kross íslands:
Sigríður Guðmundsdóttir, alþjóðadeild RKÍ
Iljálparstofnun kirkjunnar:
Jónas Þórisson, framkvæmdastjóri
Þróunarsamvinnustofnun íslands:
Þórdís Sigurðardóttir, slarfsmaður
Barnaheili:
Sólveig Ásgrímsdóttir, stjórnarmaður Barnaheilla
IVlannréttindaskrifstofan:
Ágúst Þór Árnason, framkvæmdasljóri
Mannréttindl barna í fslensku samfélagi:
Pallborðsumræður undir stjórn Einars Gylfa Jónssonar, sál-
fræðlngs. Þátttakendur: Ragnar Aðalsteinsson. Guðrún
Kristinsdótlir, séra Jakob Iljálmarsson, Bragi Guðbrandsson.
Aðalsleinn Sigfússon og Guðrún Jónsdóttir
T
illlr hjarlanlega velkomnir! Mnsamlegast tilkynnid
þatttöku á skrifstofu Barnaheilla í síma
91-610545. Þátttökugjald er 1200 kr.
Ný 3ja herbergja íbúð 6.480. 000 - Ný 4ra herbergja íbúð 7.080. [223H
Það er ekkert jafn mikilvægt og traust þak yfir höfuðið
þegar börnin eru komin til sögunnar. Verðmætamatið
breytist, áherslunar breytast, lífið allt breytist. Og þá
breytir Permaform miklu. Permaform er ódýr, áreiðan-
leg og einföld leið til að búa börnunum öruggt heimili.
Rétt eins og þau eiga skilið.
Þú færð allar nánari upplýsingar á
skrifstofu okkar Funahöfða 19
í síma 873599 mmmmm
Ármannsfell hf. ÍK3
Funahöfða 19 • Sími 873599
- flutti inn 08.07. 94
Nútíminn kallar á nýjar leiðir