Morgunblaðið - 08.12.1994, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 65
STÆRSTA
TJALDIÐ MEÐ
m Q íS
SÍMI 19000
GALLERI REGNBOGANS: SIGURBJORN JONSSON
★★★ Ó.T. Rás 2
★★★ G.S.E. Morgun
pósturinn
★★★ D.V. H.K
HX
R
msk
Komdu og sjáðu THE MASK,
skemmtilegustu, stórkost-legustu,
sjúklegustu, brjáluðustu, bestu,
brengluðustu, fyndnustu, fáránlegus-
tu, ferskustu, mergjuðustu,
mögnuðustu og eina mestu
stórmynd allra tíma!
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Sýnd
kl
Bönnuð bornum yngri
11
16
°y
en
ara
Skemmtileg erótísk gamanmynd með Hugh Grant ur
„Fjögur brúðkaup og jarðarför."
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i. 12 ára
^.vcoJas
CAGE
Jon
LOVITZ
Dana
CARVEY
^ak/caJbr^ðvirJ
PARADIS
TRAPPED IN PARADISE
BAKKABRÆÐUR
í PARADÍS
Splunkuný og
sprenghlægileg grín-
mynd sem frumsýnd
er samtímis í
Bandaríkjunum og á
íslandi. Myndin segir
af þremur treg-
gáuðum bræðrum
sem álpast til að
ræna banka í
smábænum Paradís á
jólunum og sannköl-
luðum darraðardansi
sem fylgir í kjölfarið.
Frábær mynd sem
framkallar jólabrosið
í hvelli!
Aðalhlutverk: Nicholas
Cage (Red Rock West,
Guarding Tess og It
Could Happen To You),
Jon Lovitz (Loaded
Weapon, Wayne's
World, City Slickers 2)
og Dana Carvey
(Wayne’s Worid).
Sýndkl. 5, 7, 9
og 11.
FOLK
Burt og Loni náðu samkomulagi
►BURT Reynolds og Loni Anderson
föðmuðust innilega eftir að þau náðu
samkomulagi um meðlagsgreiðslur síð-
astliðinn þriðjudag. Eftir að málið hafði
verið tekið fyrir í rétti í tvo daga náðu
þau samkomulagi. Þau vildu þó ekki
giefa upp hvað fælist í samkomulaginu,
en sögðu að hamingja Quintons væri
fyrir mestu.
_ Aður hafði Reynolds borgað Loni
rúma milljón króna á mánuði til að
styðja hana í uppeldi á syni þeirra Quin-
ton sem er sex ára. Hann hafði farið
fram á lækkun meðlagsins i hálfa millj-
ón króna og borið við fjárhagsörðug-
leikum. Hún hafði hinsvegar krafist
einnar til einnar og hálfrar milljónar
króna í meðlagsgreiðslur, allt eftir tekj-
um Reynolds á hvetjum tíma.
Burt Reynolds
Loni Anderson
★★★★★ e.H., Morgunpósturinn.
★★★★ ö.N. Tíminn.
★★★Vj Á.Þ., Dagsljós.
★★★Vi A.I. Mbl.
★★★ Ó.T., Rás 2.
REYFARI
Quentin
Tarantino, höf-
undur og leik-
stjóri Pulp Fiction,
er vondi
strákurinn i
Hollywood sem
allir vilja þó eiga.
Pulp Fiction er
ótrúlega mögnuö
saga úr
undirheimum
Hollywood.
Sýnd kl. 5,
7, 9 og 11.
B.i. 16 ára.
I' *\/v/»nmnnrt«rvfvínn
Undirleikarinn
Gagnrýnendur
hafa í hástert
lofað þessa
átakamiklu
mynd er segir af
frægri
söngkonu og
uppburðar-
litlum
undirleikara
hennar undir
þýsku hernámi í
París.
ro
CLAUöTMttiER
Sýnd kl. 5,
7, 9 og 11.
LILLI ER TÝNDUR
Tæplega 15.000 manns á öllum
aldri hafa þegar fylgst með
ævintýrum Lilla. Meðmæli sem
engan svíkja.
ALLIR HEIMSINS
MORGNAR
Sýnd kl. 5.
S v i k r á ð
(RESERVOIR
DOGS)
Sýnd kl. 9 og11.
B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 5 og 7.
Miðevrópsk
rómantík
Leikhústónlist hefur á sér sérstakan blæ mið-
evrópskrar rómantíkur. í dag kemur út geisla-
diskur með hljómsveitinni Skárren ekkert,
sem á er tónlist sem flokkurinn samdi fyrir
Kirsuberjagarð Tsjekhovs.
Morgunblaðið/Þorkell
SKÁRREN ekkert, Frank Þ. Hall, Eiríkur Þórleifsson
og Guðmundur Steingrímsson.
UM ÞESSAR mundir sýnir leikfé-
lagið Frú Emilía leikrit Tsjekhovs
Kirsuberjagarðurinn. Snar þáttur í
þeirri uppfærslu er tónlist sem tríó-
ið Skárren ekkert samdi fyrir verk-
ið og hefur vakið athygli leikhús-
gesta. I dag kemur svo út geisla-
diskur með helstu stefjum úr verk-
inu, sem er fyrsta plata Skárren
ekkert, en verkin á disknum eru
og það fyrsta sem hljómsveitarmeð-
limir segjast hafa samið.
Ljúf skemmtitónlist
Skárren ekkert skipa þeir Eiríkur
Þórleifsson sem leikur á kontra-
bassa, Frank Þ. Hall sem leikur á
gítar og Guðmundur Steingrímsson
sem leikur á harmonikku. Hljóm-
sveitin hefur vakið athygli fyrir leik
á kaffihúsum og í samkvæmum af
ýmsu tilefni, enda tónlist sem þeir
félagar leika ljúf skemmtitónlist og
síst ögrandi, þó hún þoli einnig yfir-
legu og hlustun. Þeir félagar segj-
ast reyndar hafa verið í ýmsu hljóm-
sveitastússi í menntaskóla, og þá
fengist við popp og rokk af ýmsum
toga, en þegar þeir byijuðu af al-
vöru undir þessu nafni einbeittu
þeir sér að evrópskri kvikmynda-
og kabaretttónlist.
Þeir segjast hafa verið iðnir við
að safna í sarpinn lögum frá ýmsum
áttum. Eins og áður segir hefur
flokkurinn og vakið athygli fyrir
fjölbreytt efnisval í kaffihúsaspila-
mennsku sína, en þeir segja að
þetta hafí mestmegnis þróast af
sjálfu sér. „Við fengum lánaða
harmonikku og tókum nokkur lög
úr Godfather, síðan vorum við beðn-
ir að spila á einhveijum stað og þá
pikkuðum við upp nokkur lög til
viðbótar og þannig kom hvað af
öðru.“
Úr frumsýningarpartíi
í leikhúsið
Þeir félagar segjast hafa verið
fengnir til að spila í frumsýningar-
partíi Frú Emilíu fyrir nokkru eftir
það hafi aðstandendur leikhússins
farið þess á leit við þá að þeir
myndu semja tónlist við Kirsubeija-
garðinn. Þeir segjast ekkert hafa
samið áður að ráði, „en þegar við
byrjuðum gekk það eins og í sögu
og þessi lög bara runnu út; við
sömdum alla tónlistina á þremur
dögum, þannig að við vorum í meira
lagi reiðubúnir að fara að semja,
enda höfðum við mikið rætt um það
hvernig við myndum vilja hafa okk-
ar eigin tónlist.
Upphaflega átti þetta bara að
vera tvö þijú lög, en svo vatt þetta
upp á sig og við spilum meira og
minna allt verkið," segja þeir, en á
disknum er úrval, tæpur hálftími
af tónlist, sem þeir leika, og tekin
var upp í leikhúsi Frú Emilfu í
Héðinshúsinu á einum degi. Einnig
syngja leikendur, Harpa Arnardótt-
ir, Eggert Þorleifsson og Helga
Braga Jónsdóttir, og Valgeir Skag-
fjörð leikur á píanó í tveimur lag-
anna.
Langar að stækka
hljómsveitina
Skárren ekkert hefur eðlilega
verið nokkuð bundið við spila-
mennsku á sýningum á Kirsubeija-
garðinum, en hefur einnig gefið sér
tíma til að spila þess á milli og
þeir félagar segjast hafa bætt frum-
sömdu lögunum inn á tónleikadag-
skrána með góðum árangri, þá helst
tangóinn Wie Schakale, sem er eina
eiginlega sönglagið. Þeir segjast
reyndar gjarnan vilja bæta fleiri
sönglögum á dagskrána, en til þess
þurfi þeir söngvara því ekki treysta
þeir sér til að syngja sjálfir; segjast
raularar en alls ekki söngvarar.
„Okkur langar að stækka hljóm-
sveitina og við höfum leikið með
fiðluleikara undanfarið, sem hefur
verið afskaplega skemmtilegt. Okk-
ur langar líka til að spila með
trommara og svo að finna einhvern
skemmtilegan karakter sem gæti
sungið með okkur,“ segja þeir en
leggja áherslu á að þeir stefni ekki
á að breytast í poppsveit eða fara
að flytja einhver popplög. „Við
erum dálítið hrifnir af klunnalegum
hlutum í tónlist, trumbuslætti og
næstum fölskum tónum eins og
heyra má hjá Tom Waits og líka i
raun hjá Nino Rota og fleiri. Þann-
ig eru nokkrir falskir tónar á plöt-
unni, sem eiga vel heima þar.“
Þeir félagar segjast hafa nóg
fyrir stafni eins og er; til viðbótar
við Kirsuberjagarðinn og tilfallandi
spilamennsku eru þeir að semja
tónlist fyrir kvikmynd, sem þeir
segja að sé afskaplega skemmtilegt
og allt öðruvísi en að semja fyrir
leikhús.