Morgunblaðið - 17.12.1994, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1994 49
BREF TIL BLAÐSINS
Misskilningnr leiðréttur
Frá Guðbrandi Arna Isbérg:
ÞANN 19. nóvember sl. útskrifaði
Endurmenntunarstofnun Háskóla
Islands fyrstu nemendurna í sjávar-
útvegsfræðum að loknu eins árs
námi með starfi. Þetta nám svarar
til 12 'h einingar í háskólanámi en
veitir nemendum ekki rétt til að
kalla sig sjávarútvegsfræðinga.
Þann titil bera þeir hins vegar sem
ljúka 4 ára (120 eininga) námi í
þessum fræðum frá Háskólanum á
Akureyri. í fréttatilkynningu varð-
andi útskriftina stóð m.a. að náminu
væri ætlað „að leysa úr brýnni þörf
fyrir þekkingu í sjávarútvegsfræð-
um sem Fiskvinnsluskólinn, Stýri-
mannaskólinn og Vélskólinn hafa
ekki sinnt sem skyldi“. Þar sem
orðalag þetta hefur valdið talsverð-
um misskilningi er full ástæða til
að skýra nánar hvað við var átt.
Forsaga málsins er _sú að Endur-
menntunarstofnun H.í. bað undir-
ritaðan að senda fréttatilkynningu
til ijölmiðla varðandi útskriftina.
Ofangreind ummæli voru sett í til-
kynninguna til að skýra hvers
vegna Endurmenntunarstofnun
H.I. hefði ráðist í að bjóða upp á
nám í sjávarútvegsfræðum. Ætlun-
in var ekki að gera lítið úr Stýri-
mannaskólanum, Fiskvinnsluskol-
anum eða Vélskólanum. Alls ekki.
Ummælin fólu ekki í sér neikvætt
mat á starfi skólanna þriggja og
síst af öllu voru þau til þess ætluð
að upphefja Háskóla íslands á
kostnað annarra menntastofnana
þjóðarinnar. Háskólinn veit að þess-
ir skólar sinna ágætlega þeim þátt-
um sem þeir hafa kosið að bjóða
upp á. Fyrrnefnd ummæli þýddu
einungis að vegna aðstæðna byðu
þessir skólar ekki upp á það fjöl-
breytta nám í sjávarútvegsfræðum
sem þjóðin þarfnast. Það gerir Há-
skólinn ekki heldur, en með því að
bjóða upp á nám í sjávarútvegs-
fræðum með starfi er hann að reyna
á sinn hátt að koma til móts við
þessa þörf og sinna um leið þeim
sem eiga ekki heimangengt vegna
anna.
í annan stað reiknast ofangreind
HJALPRÆÐISHERINN
Látum sjóða í
jólapottunum!
Frá Pétri Sigurgeirssyni:
MÉR ER ljúft að verða við beiðhi
Hjálpræðishersins að minna fólk á
jólapottana, sem eru á vegi okkar
bæði í Reykjavík og á Akureyri fyrir
þessi jól sem endranær.
Það ætti öllum að vera ljóst hve
Hjálpræðisherinn vinnur gott og göf-
ugt starf fyrir hina minnstu bræður
og systur, sem þurfa á hjálp og ná-
ungakærleik að halda.
Eitt af mörgu sem Hjálpræðisher-
inn gerir á hveiju aðfangadags-
kvöldi, er að bjóða þeim til jólafagn-
aðar í húsakynnum sínum sem ein-
mana eða heimilislausir eru og eiga
því hvorki von á húsaskjóli eða jóla-
gleði á þessari hátíð ljóss og friðar.
Hjálpræðisherinn er ein af merk-
ustu líknarstofnunum kirkjunnar um
víða veröld. En hann þarf á hjálp
okkar að halda til þess að hjálpa.
Ef við tökum höndum saman um að
setja nokkra aura í jólapottinn, þá
gerir margt smátt eitt stórt, þ.e. að
í pottinum „sýður“. Það ertilgangur-
inn. Gerum okkar til þess að svo
megi verða.
Guð blessi Hjálpræðisherinn fyrir
alla hjálp til handa þeim hjálpar-
lausu, ekki aðeins á jólum, heldur
árið um kring.
Guð elskar glaðan gjafara.
PÉTUR SIGURGEIRSSON,
biskup.
ummæli fyrst og fremst á kostnað
undirritaðs. Ég samdi fréttatilkynn-
inguna en þar sem ég hóf fyrst
störf um mitt sumar var mér alls
ókunnugt um þau viðbrögð sem
sams konar ummæli kölluðu fram
í byijun þessa árs sem og svar
hákólarektors við þeim. Ég bið hlut-
aðeigandi aðila velvirðingar á þeirri
óánægju sem ofangreind ummæli
hafa valdið og vona að samvinna
allra þeirra skóla sem bjóða upp á
nám tengdu sjávarútvegsfræðum
verði hvort tveggja góð og gæfurík
í framtíðinni.
GUÐBRANDUR ÁRNIÍSBERG,
kynningafulltrúi Háskóla íslands.
Lokasmölun
Lokasmölun verður í haustbeitarlöndum Fáks sunnu-
daginn 18. desember. Sú nýbreytni er að hestarnir
verða keyrðir í bæinn og afhentir úr reiðgerðinu milli
kl. 15.00 og 17.00. Þau hross, sem ekki verður vitjað
um, er litið á sem óskilahross.
Starfsmaður
Starfsmann vantar í hlutastarf við hirðingar í vetur.
Upplýsingar á skrifstofunni í síma 672166
milli kl. 10-12 og 14-17.
Fákur.
BJARTMAR GUÐLAUGSSON
S
„Otrúlegciflott „come-back“. Nýr og betri Bjcirtmai; kemur svo
scmnarlega á óvart. “
Guðmundur Rúnar Heiðcirsson, blaðamaður.
„ Frábœr tög, textarnir aldrei verið betri, pottþéttur hljóðfœraleikur
og gott „ sound“. Bjartmcir springur svo sannarlega út á þessari plötu. “
Rúnar Júlíusson, tónlistarmaður.
„Þaðyrkja fáir betur í tónlistarbransanum en Bjartmar. Húmor, innsœi
og beitt háð, allt þetta flœðir úr penna stráksins - og ekki skemma þessar
fínu melódíur fyrir heldur. “
Bubbi Morthens, tónlistarmaður
„Kemur manni ígott skap - stórskemmtilegt!“
Sigurður Hróarsson, leikhússtjóri.
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
Morgunblabib
fæst á Kastrupflugvdli
og Rábhústorginu
-kjarni málsins!
Kjötfat
kr. 4.600
Brauðkörfur
frá kr. 3.400
Sítrónupressa Flautuketill kr. 7.300
kr. 3.980 n .
Urval
Húsgögn 9iafavöru ALESSI
Blaðagrindur
Glerskálar
Mörkinni 3, sími 5880640
(við Suðurlandsbraut)
Opið laugardag frá kl. 10-22
Sunnudag frá kl. 13-17