Morgunblaðið - 22.01.1995, Side 24

Morgunblaðið - 22.01.1995, Side 24
24 B SUNNUDAGUR 22. JANÚAR1995 MORGUNBLAÐIÐ Strákar eru og verða strákar KAUPMANNAHAFNARBREF Bæði í Danmörku og Svíþjóð er stelpum og strákum á bama- heimilum og í skólum æ meir leyft að rækta með sér það sem þeim er eðlilegt. Stelpurnar fá frið til að dunda sér, strákarnir fá að hamast eins og Sigrún Davíðsdóttir rekur hér. I fram- haldi af því ættu þá pabbarnir ekki líka að fá að haga sér strákslega, án þess að þola hneykslun og vanþóknun mæðranna? UUNDANFARNA áratugi hefur það verið góð lenska í barnauppeldi á sænskum og dönskum barnaheimil- um og í skólum að láta stráka og stelpur endilega leika saman og gera það sama og reynt að halda aftur af stríðsleikjum og slags- málum, sem einkum strákarnir stunda. En þessar hugmyndir vekja nú vaxandi efasemd- ir. Strákum og stelpum er æ oftar kennt sitt í hvoru lagi og strákarnir fá að vera í stríðs- leikjum og slást og tuskast... eins og þeim er eðlilegt. Hvers vegna á framkoma þeirra að miðast við stilltu og prúðu stelpurnar? Og hvers vegna á ekki að leyfa stelpum að læra í friði fyrir strákunum? Og mega þá pabbarn- ir ekki líka vera strákar, en ekki bara karl- kyns mömmur? í Danmörku er æ oftar bent á það meðal uppeldisfrömuða að rangt sé að krefjast þess að strákar leiki sér eins og stilltar stelpur. Það sé misskilin jafnréttishugsun að álíta að strákar hafi gott af að vera skikkaðir tii að leika sér á þann hátt. í dagvistun þyki strák- ar oft fyrirferðarmiklir. Þeir þurfi að hamast og slást og tuskast, hafi ekki eirð í sér til að dunda, meðan stelpur leiki sér stilltar og prúð- ar og séu betri að dunda sér. Gallinn sé að yfirgnæfandi meirihluti fóstra og kennara í yngstu skólabekkjunum séu konur, sem ómeð- vitað haldi stelpunum fram sem fyrirmyndum og séu ekki eins duglegar að sinna strákunum og þörfum þeirra, auk þess sem strákana vanti fyrirmyndir á þessum vettvangi. Það hefur nánast verið helgisetning að óæskilegt væri að gefa strákum byssur og vopn sem leikföng. Það ýtti undir árásargirni og ofbeldishneigð. í vikunni var hluti af sænsku sjónvarpsfréttunum helgaður þessum breyttu viðhorfum og meðal annars rætt við fóstru á sænsku barnaheimili. Hún var af létt- asta skeiðinu og sagði að þarna á barnaheimil- j inu hefðu þau smám saman komist á þá skoð- un að ekki væri rétt að halda jafn mikið aftur af strákunum og áður. Þeir fengju nú að slást og tuskast, „við tryggar aðstæður", þannig að enginn færi illa út úr því, en þeim væri ekki lengur sagt að það væri rangt að haga sér svona. Hún yrði að viðurkenna að þetta virtist nú bara vera eðli þeirra og ekki væri rétt að krefjast þess að þeir hegðuðu sér eins og stelpurnar. Karlmannahallærið í fóstru- og kennara- stétt er mikið, en á mörgum stofnunum fyrir krakka hefur markvisst verið reynt að nota karlmennina til að vera með strákunum og sinna því, sem kvenfólkið er ekki eins duglegt við. Það eru nefnilega ekki aðeins stelpurnar, sem kjósa kyrrláta leiki. Konur eru iðulega ekki sérlega góðar í að tuskast, hlaupa um, klifra og hrópa og kalla, eins og karlmenn geta frekar gert. Á sumum stofnunum, til dæmis á svokölluðum tómstundaheimilum, sem eru athvarf eftir skóla, hafa fóstrarnir strákahópa, sem stelpur eiga ekki aðgang að. Þar er þá fengist við hluti, sem höfða fremur til strákanna en stelpnanna. Hugmyndin er auðvitað ekki að ala upp litla tarsana, sem ganga um, berja sér á bijóst og slá niður kvenfólk, heldur að gera þá meðvitaða um að þeir séu bara allt í lagi, þó þeir hnuðlist og láti í sér heyra. ■ í fyrrnefndum fréttatíma var einnig rætt við konu sem er læknir og sálgreinandi. Hún sagðist hafa áhyggjur af því að of mikið væri gert af að siða stráka til og kenna þeim að það væri rangt og illt að reiðast og vilja slást. í öllu umtalinu um vaxandi ofbeldi mætti ekki einblína á að hægt væri að kenna krökkum að vera góðir með því að banna þeim að slást og láta eins og neikvæðar tilfinn- ingar væru af hinu illa. Það leiddi einungis til að æ fleiri hræddust viðbrögð sín, til dæm- is reiði, og hræddust að vera ekki algóðir. Slíkt skapaði bara sálarflækjur, en leysti ekki vandann. Kynskipt kennsla Kynskipt kennsla virðist eiga vaxandi fylgi að fagna í Danmörku, þó enn séu ekki til neinar tölur um hversu útbreidd hún sé. Ekki er um að ræða að skipt sé í bekki eftir kynj- um, heldur er blönduðum bekkjum skipt upp hluta af skólatímanum, tvo eða fleiri tíma á viku. Þessi stefna hefur smátt og smátt rutt sér til rúms, ekki með neinum undanfarandi fagnaðarboðskap, heldur fremur að kennarar hafi sjálfir fikrað sig áfram hægt og sígandi. Niðurstaðan hefur þá gjarnan verið að skipt- ingin auðveldaði þeim að ná til nemendanna og friðsamara yrði í tímunum. Skiptingin er algengust í móðurmálstímum og stærðfræði, en er líka gjarnan viðhöfð í eðlisfræði, handa- vinnu, leikfimi og kynfræðslu. Oft er þá sá hátturinn hafður á að konur kenna stelpunum og menn strákunum. Um leið er horfið frá kennisetningu undanfarinna áratuga að því meira sem strákum og stelpum væri nuddað saman, því líkari yrðu þau og jafnrétti ykist. Forsendur kennaranna fyrir að skipta bekkjum eftir kynjum eru einkum að þannig nái þeir betur til hvers og eins. í eldri bekkj- um eru það oft strákarnir, sem hafa yfirhönd- ina í stærðfræði, en með því að skipta bekkn- um tekst betur að ná til stelpnanna í þessu fagi. Þeir sem stunda slíka kennslu gera sér vonir um að þar með öðlist þær meira sjálfs- traust í faginu og hugsanlega fari fleiri í raun- greinar síðar meir, en eins og kunnugt er hlutfall kynjanna mjög ójafnt þar. Kennarar, sem hafa reynt skiptingu bekkja eftir kynjum þar sem konur kenna stelpum og karlar strákum, segja að þannig fáist and- rúmsloft í hópinn, sem henti þeim. Stelpurnar gleðjist yfir að geta rætt við kennslukonurnar í ró og friði, án látanna í strákunum, og kunni að meta innilegt andrúmsloft sem skapist í kvennafansinum. Strákunum fellur vel að geta talað við karlmennina á svolítið hráan hátt og karlkyns kennarar, sem hafa reynt þetta segjast líka kunna að meta að nýta strákslegar hliðar sínar og hamast svolítið, sem annars sé ekki rúm fyrir í daglega lífinu. En heima fyrir? Heima fyrir eru það oft mæðurnar, sem eru alls ráðandi hvað uppeldið varðar, fyrir nú utan að þær eru oft aleinar um það. Af því að kvenfólk er gjarnan stillt og prútt, eins og stelpur eru oft, eiga eiginkonur og mæður ekki alltaf auðvelt með að skilja löngun og þörf eiginmanna og feðra til að hamast og láta öllum illum látum með afkvæmum sínum. Það er þá ekki aðeins að þær sussi á börnin, heldur einnig á eiginmennina. Ef kvenfólk kann iðulega að meta frið og ró eins og stelpur, þá er ekki ósennilegt að með karlmönnunum blundi stráksskapurinn, sem fær bara svo sjaldan löggilt tækifæri til útrásar. En samkvæmt þeirri kenningu að eðlið eigi að fá að njóta sín, þá ættu mæðurn- ar fremur að hvetja pabbana en letja næst þegar þeir nota sér samveruna við krakkana sem ástæðu til að sleppa stráknum í sér laus- um. Þar sem uppeldið á auðvitað að vera sameig- inlegt framlag foreldra heyrast mæður stund- um kvarta yfir að pabbarnir geti því miður ekki verið eins og þær. En einnig á þeim vett- vangi ættu foreldrar að leyfa hvort öðru að vera með börnunum á þann hátt, sem hveijum hentar. Ef strákar þurfa að fá að vera strák- ar, þurfa pabbar kannski líka að fá að vera pabbar, en ekki bara karlkyns móðurútgáfur... Málþing um samleik íslenskrar ferðaþjónustu og menningar Málþingið hefst kl. 13.30 í félagsheimilinu Festi, Grindavík, föstudaginn 27. janúar nk. Kl. 13.30 Setning. Kristbjörn Albertsson, form. Ferðamála- samtaka Suðurnesja. Kl. 13.40 Jón Böðvarsson, ritstjónlðnsögu íslendinga. Kl. 14.00 Magnús Oddsson, ferðamálastjóri. Kl. 14.15 Elíza Guðmundsdóttir, markaðsráðgjafi. Kl. 14.30 Helga Ingólfsdóttir, semballeikari. Kl. 14.45 Jóhannes Viðar Björnsson, framkv.stj. Kl. 15.00 Kaffi. Kl. 15.30 Þórdís Eiríksdóttir, Ferðaþjónustu bænda. Kl. 15.45 Guðrún Jónsdóttir, framkv.stj. Markaðsráðs Borgarness. Kl. 16.00 Tryggvi Gunnar Hansen, listamaður. Kl. 16.15 Umræðurog fyrirspurnir. Kl. 17.30 Slit. Sætaferðir frá BSÍ kl. 12.15 og til baka eftir málþingið. Hvernig getur ferðaþjónustan og lista- og fræðifólk skapað ný atvinnutækifæri byggð á menningu og menningararfi landsins. Er nóg gert til að koma þessum hópum saman um verkefni eða verður hver áfram í sínu horni? Þarf ekki að vinna betur úr málunum og koma þeim skilvirkar á framfæri? Er hægt að skapa uppbyggjandi afþreyingu fyrir ferðamenn sem heimafólk með þessum samleik íslenskrar menningar og ferðaþjónustu. Málþingið er öllum opið. Skráning er hjá Ferðamálasamtökum Suðurnesja í síma 92-15575 eða með símbréfi 92-14308. Þátttökugjald er kr. 500,- Sama kvöld verður Þorrablót með „fornu“ ívafi haldið í Festi og hefst það kl. 20.00, öllum opið. __________- kjarni málsins! Framhaldsmenntun sjúkraliba á vorönn 1995 e FJOLBRAUTASKOLINN VIÐ ÁRMÚLA Fjölbrautaskólinn við Ármúla hefur skipulagt eftirtalin framhaldsnámskeið fyrir sjúkraliða á vorönn 1995. Námskeiðin eru opin öðrum með sambærilega menntun, en sjúkraliðar njóta forgangs. Lyfhrifafræði I 20 kennslustundir. Kennari: Eggert Eggertsson, lyfjafræðingur. Tími: 12.-16. febrúar á Suðurlandsbraut 6, 5. hæð, kl. 17-20. Lyfjalög og eiturefni 20 kennslustundir. Kennari: Bryndís Þóra Þórsdóttir, lyfjafræðingur. Tími: 18.-22. febrúar á Suðurlandsbraut 6, 5. hæð, kl. 17-20. Næringarfræði 20 kennslustundir. Kennari: Guðbjörg Andrésdóttir, hjúkrunarfræðingur. Tími: 18.-22. febrúar í stofu 17 í Fjölbrautaskólanum við Ármúla kl. 17-20. Aðhlynning geðsjúkra 20 kennslustundir. Kennari: María Einisdóttir, hjúkrunarfræðingur, deildarstjóri á geðdeild Landspítala. Tími: 18.-22. febrúar í stofu 16 í Fjölbrautaskólanum við Ármúla kl. 17-20. Viðtalstækni, tjáning og skýrslugerð 40 kennslustundir. Kennarar: Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir og Una Þóra Steinþórsdóttir. Tími: 4.-8. mars og 11 -15. mars í Fjölbrautaskólanum við Ármúla í stofu 17 kl. 17-20. Heilbrigðisfræði á ofnæmisöld 20 kennslustundir. Kennari: Svava Þorkelsdóttir, hjúkrunarfræðingur. Tími: 15.-19. apríl í Fjölbrautaskólanum við Ármúla í stofu 17 kl. 17-20. Sjúkdómafræði og sýklafræði 40 kennslustundir. Kennari: Bogi Ingimarsson, líffræðingur. Tími: 18.-22. mars og 25.-29. mars í Fjölbrautaskólanum við Ármúla í stofu 29 kl. 17-20. Tannhirða og munnsjúkdómar 40 kennslustundir. Kennari: Kristrún Sigurðardóttir, tannfræðingur. Tími: 22.-26. apríl og 6.-10. maí i Fjölbrautaskólanum við Ármúla í stofu 17 kl. 17-20. Siðfræði 20 kennslustundir. Kennari: Halldóra Bergmann, námsráðgjafi og sálfræðikennari. Tími: 13.-17. mars í Fjölbrautaskólanum við Ármúla kl. 17-20. Enska fyrir heilbrigðisgreinar 40 kennslustundir. Kennari: Eva Hallvarðsdóttir M.A. Tími: Kennsla hefst 2. mars kl. 17 í stofu 12 i Fjölbrautaskólanum við Ármúla og kennt verður tvisvar í viku eftir samkomulagi þátttakenda og kennara þrjár kennslustundir i senn. Tölvufræði I 40 kennslustundir. Windows-vinnuumhverfið og ýmis forrit. Kennari: Þórunn Óskarsdóttir, tölvufræðikennari. Tími: 20.-24. mars og 27.-31. mars kl. 17-20 i stofu 27 í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Tölvufræði II 20 kennslustundir. Framhaldsnámskeið í Windows og forritum fyrir Windows. Kennari: Þórunn Óskarsdóttir, tölvufræðikennari. Tími: 24.-28. apríl kl. 17-20 í stofu 27 í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Innrítun á námskeiðin er hafin á skrifstofu Fjölbrautaskólans við Ármúla, sími 814022. Námskeiðsgjöld verða í samræmi við fjölda þátttakenda, en lágmarksfjöldi er 15 á hvert námskeið. Innritunarfrestur er til 15. febrúar á öll námskeiðin nema lyfhrifafræði I, innritun á það námskeið lýkur 6. febrúar. _____________Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans. Skólameistari.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.