Morgunblaðið - 19.02.1995, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1995 19
Nýjar
voru
Prjónafatnabur, Peysur, pils og vesti
Bómullarfatnabur
Langerma bolir og leggings buxur upp í stærb 52
30% afsláttur vib kassa af
samkvæmis- og kvöldklæbnabi
marion
Reykjavíkurvegi 64 • Hafnarfirði • Sími 651147
NH0P
persónu-
legnr
JAZZ
Gcisladiskur
Geisladiskur með tríói
Niels-Hennings Orsteds
Pedersens.
Flyljendur: Niels-Henning 0rsted
Pedersen, kontrabassi, Ulf Wake-
nius, gítar, Adam Nussbaum
trommur.
FÁIR erlendir tónlistarmenn hafa
komið jafnoft til íslands og Niels-
Henning 0rsted Pedersen, danski
kontrabassasnillingurinn, og fáir
norrænir djasstónlistarmenn hafa
markað jafn djúp spor í djasssöguna
og hann. Niels-Henning hefur átt
þátt í gerð yfír 500 platna á sínum
ferli og leikið með mörgum af þekkt-
ustu djasstónlistarmönnum sam-
tímans. Fyrir nokkru kom út geisla-
diskur með tríói Niels-Hennings sem
rétt og skylt er fjalla um hér. Tríóið
er auk bassaleikarans skipað úrvals-
hljóðfæraleikurunum Ulf Wakenius,
sem lék með Niels-Henning í Há-
skólabíói árið 1992, og Adam Nuss-
baum trommuleikara, sem eins og
Wakenius, hefur leikið mikið með
bræðrunum dönsku Niels Lan Doky
planista og Christian Minh Doky
bassaleikara. Auk þess hefur Nuss-
baum töluvert leikið með Michael
Brecker.
Diskurinn nefnist To A Brother
og er gefínn út af danska útgáfufyr-
irtækinu Pladekompagniet. Á hon-
um eru átta lög. Diskurinn markar
engin tímamót á ferli Niels-Henn-
ings en hann er ákaflega notalegur
áheyrnar og persónulegur. Eins og
nærri má geta býður hljóðfæraskip-
unin um fram allt upp á mýkt og
ljóðrænu og kontrabassinn er í sóló-
hlutverki ekki síður en gítarinn.
Diskurinn hefst á faliegri ballöðu
eftir NH0P sem jafnframt er titillag
disksins. Bassinn kynnir laglínuna
og Nussbaum fer léttum bursta-
strokum um settið en Wakenius gríp-
ur inn í með tilfínningríkum spuna.
Wakenius er einn af athyglisverðari
gítarleikurum norrænum, hefur ein-
staklega skýran og fallegan hljóm
og hugmyndaríkan spuna. Stella by
Starlight er líka á ljóðrænu nótunum
en Nussbaum lætur það svinga í
hægu tempói með smekklegum
simbalaleik.
Annar standard, Alone Together,
er mikið í uppáhaldi hjá djasspilurum
um þessar mundir og honum er alls
ekki ofaukið á To a Brother. Lines
er eftir Wakenius og sýnir gítarleik-
arann I bíboppham en í Dancing
Girls eftir NH0P kveður við dálítið
fönkaðan tón. Jeg gik mig ud en
sommerdag sem er útsetning NH0P
á dönsku þjóðlagi er magnaðasta
verkið á disknum þar sem ljós þess-
ara hæfileikaríku spilara skín hvað
skærast.
To a Brother er eigulegur diskur,
tregafullur á köflum og persónuleg-
ur og fallegur.
Guðjón Guðmundsson
Frá fimmtudegi til fimmtudags
Opið virka daga 9 - 20 laugardag 10-17 sunnudag 13-17
s-
/
I húsi Ingvars Helgasonar hf. að Sœvarhöföa 2.
Þar fœrð þú
á frábæru
og jafnvel
!l!t fyrstu 6-8 mánuðina.
Visa eða Euro greiðslukjör.
jyrsta hálfa árið fylgir bílnum og
bttmsfn fram á surrtar
miðað við meðalakstur á meðalbíl.
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
Sími 674848