Morgunblaðið - 19.02.1995, Side 44
44 SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KÖRFUKNATTLEIKUR
Fyrsti sigur Warriors
í Phoenix í átta ár
Drexler
á ferd
SNILLINGURINN Clyde
Drexler hjá Houston
Rockets á hér lúmska
stoðsendingu framhjá
Anthony Tucker, leik-
manni Washington Bul-
let, sem mátti þola tap
á heimavelll.
„MÍNIR menn sýndu mikið
keppnisskap þegar þeir komu
tvíefldir til leiks í framlenging-
unni,“ sagði Bob Lanier, þjálf-
ari Golden State Warriors, þeg-
ar liðið kom heldur betur á
óvart með því að leggja Char-
les Barkley og félaga hans hjá
Phoenix Sun að velli, 139:128,
íframlengdum leik — þetta var
fyrsti sigur Warriors i Phoenix
í átta ár, eða síðan liðið vann
þar 21. mars 1987.
Tim Hardaway skoraði fimm af
30 stigum sem hann skoraði
fyrir Warriors, í framlengingunni.
Það var mikil gleði í herbúðum
gestanna, enda fögnuðu þeir lang-
þráðum sigri á útivelli, eftir nítján
ósigra á útivöllum í röð. Latrell
Sprewell fór einnig á kostum í fram-
lengingunni og skoraði þá sex stig,
en alls skoraði hann 33 stig í leikn-
um. „Ég er'mjög ánægður með
strákana, því að þeir mættu til leiks
með því hugarfari að gefa allt sem
þeir áttu,“ sagði Lanier. Það leit
allt út fyrir að leikmenn Warriors
myndu gera út um leikinn fyrir
venjulegan leiktíma, en það var
Wesley Person, leikmaður Phoenix,
sem sá til þess að leikurinn fór í
framlengingu — þegar hann jafnaði
121:121 með þriggja stiga körfu á
síðustu mín. leiksins.
Charles Barkley skoraði 38 stig
fyrir heimamenn og Elliot Perry 24
stig — þeirra mesta stigaskor í leik
í vetur.
„Þetta var stórkostleg stund fyr-
ir okkur — að fagna sigri, eftir
erfíðan leik, gegn einu besta liði
deildarinnar," sagði Sprewell, leik-
maður Golden State.
Það þurfti einnig að framlengja
leik Los Angeles Clippers og Boston
Celtic — ekki einu sinni, heldur
tvisvar — í Los Angeles, 127:121.
Heimamaðurinn Malik Sealy skor-
aði átta af þeim 28 stigum sem
hann skoraði í leiknum, í seinni
framlengingunni. Loy Vaught skor-
aði 25 stig og tók sextán fráköst
fyrir Clippers, en Eric Montross
skoraði mest fyrir Boston, eða 28
stig — svo mörg stig hefur hann
ekki áður skorað í leik í deildinni.
Sigur hjá New York, en Riley
óhress
Frá Los Angeles höldum við til
New York, þar sem Hubert Davis
hóf leikinn fyrir New York Knicks,
þar sem John Starks er meiddur.
Hann hélt upp á kvöldið með því
að skora 21 stig og Greg Anthony
skoraði 19 stig þegar Knicks vann
Miami Heat 100:91. Pat Riley,
þjálfari New York var ekki ánægð-
ur, þó svo að hann fagnaði sínum
tvöhundraðasta sigri sem þjálfari
Knicks — ástæðan fyrir því var að
hans menn misstu niður 25 stiga
forskot. „Ég hef verið þjálfari í
fimmtán ár, en aldrei orðið vitni
að öðru eins — það sem gerðist er
ekki mönnum sæmandi," sagði Ri-
ley.
Loks sigur hjá Portland
Portland Trail Blazer, se'm hafði
tapað sex leikjum í röð gegn Se-
attle SuperSonics, fagnaði loksins
sigri, 114:109. James Robinson
náði sér aftur á strik og skoraði
26 stig fyrir heimamenn, Buck
Williams skoraði 24 stig og Rod
Strickland 21. Otis Thorpe lék sinn
fyrsta leik fyrir Portland — skoraði
sjö stig og tók þrjú fráköst á þeim
þrettán mín. sem hann lék. Thorpe
kom til liðsins frá Houston í skiptum
fyrir Clyde Drexler og Tracy
Murray á þriðjudaginn var. Shawn
Kemp skoraði 30 stig fyrir Seattle.
Toni Kukoc fór á kostum í
Reuter
Chicago, þegar hann skoraði 33
stig fyrir Bulls, sem vann Detroit
Pistons 117:102. Þetta er mesta
stigaskor Kukoc í leik í NBA-deild-
inni. Scottie Pippen, skoraði 13 stig,
tók átta fráköst og átti níu stoð-
sendingar. Það var ekki aðeins
Kukoc sem setti persónulegt stiga-
met — það gerði einnig Allan Hous-
ton, sem skoraði 33 stig fyrir Detro-
it, sem hefur tapað tíu leikjum í röð
í Chicago.
í Washington skoraði Hakeem
Olajuwon 30 stig og Pete Chilcutt
átján, tók einnig fjórtán fráköst,
þegar Houston Rockets vann,
109:92, Washington Bullets, sem
hefur tapað átta af síðustu níu leikj-
um sínum. Chris Webber skoraði
20 stig, tók fimmtán fráköst og
átti sjö stoðsendingar, fyrir heima-
menn.
Magic vann með 46 stiga mun
Orlando Magic lagði Philadelphia
76ers að velli með 46 stiga mun,
129:83, sem er félagsmet — áður
var munurinn mest 41 stig, gegn
Atlanta 1992. Anfernee Hardaway
skoraði 31 stig og Shaquille O’Neal
30. Orlando hefur náð bestum ár-
angri í austurdeildinni — er með
39 sigra og ellefu töp. Árangur liðs-
ins á heimavelli er góður, þar sem
liðið hefur aðeins tapað einum leik
af 26.
Rik Smits skoraði 24 stig fyrir
Indiana Pacers, sem vann Minne-
sota Timberwolves, 110:78.
IMBA
Leikir aðfaranótt laugardags:
New York - Miami........100: 91
Orlando - Philadelphia..129: 83
Washington - Houston..... 92:109
Phoenix - Golden State...128:139
•f framlangdum leik.
Chicago - Detroit........117:102
Dallas - Atlanta.....„.... 90:110
Portland - Seattle.......114:109
LA Clippers - Boston.....127:121
•f tvíframlengdum leik.
Minnesota - Indiana...... 78:110