Morgunblaðið - 19.02.1995, Side 48
póst gíró 1 ^t ^ti ^t KJÖRBÓK
Ármúla 6 • 150 Reykjavík © 563 7472 ^lf M Landsbanki ■Á islands ÁítÍM. /lu,.' Banki allra landsmanna
MORGUNBLADID, KRINQLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SlMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 86
SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Loðnufrysting hafin í Eyjum
Fryst á
fimm
stöðum
Vestmannaeyjar. Morgunblaðið.
LOÐNUFRYSTING hófst í Eyj-
um á föstudag ogvar þá fryst
á fimm stöðum. I Isfélaginu
voru fryst 130 tonn en um 150
tonn hjá Vinnslustöðinni í
tveimur húsum og tveimur
frystitogurum sem liggja í höfn
og var unnið við frystingu hjá
báðum frystihúsunum um
kvöldið. Engin frysting var í
gær vegna þess hversu mikil
áta var í loðnunni.
Byrjað var af krafti í loðnu-
frystingunni hjá báðum
vinnslustöðvunum á föstudag
og var frystur afli af fjórum
bátum, Hugin, Guðmundi, Kap
og Heimaey. Einar Bjarnason,
hjá Isfélaginu, sagði um kvöld-
matarleytið að þeir væru búnir
að frysta um 90 tonn og reikn-
aði hann með að unnið yrði
fram að miðnætti við frysting-
-i una. Hann sagði að loðnan væri
ekki nægjanlega góð, talsvert
blönduð og áta í henni, en
hrognafyllingin væri um 15,5%.
Einar sagði að hjá Isfélaginu
gætu þeir fryst um 180 tonn á
sólarhring og þeir hefðu vonast
til að ná að frysta 2.500 tonn á
vertíðinni en ómögulegt væri
að segja til um hvernig það
gengi.
Frystiskipin notuð
Viðar Elíasson, framleiðslu-
stjóri Vinnslustöðvarinnar,
sagði á föstudagskvöld að búið
væri að frysta 150 tonn þjá
þeim. Fryst var í húsi Vinnslu-
stöðvarinnar og gömlu Fiskiðj-
unni auk þess sem fryst var um
borð í frystiskipunum Bylgju
og Þórunni Sveinsdóttur sem
liggja í Friðarhöfninni í Eyjum.
Frystiskipin vinna sem verk-
takar hjá Vinnslustöðinni, fá
flokkaða loðnu um borð og fá
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
UNNIÐ var af kappi við
loðnufrystingu um borð í
Bylgju VE í Vestmanna-
eyjahöfn í gær og lagði
Hafþór Axel Einarsson 12
ára gjörva hönd á plóginn.
fast verð fyrir þær afurðir sem
þeir skila af sér til baka.
Viðar sagði að loðnan væri
ekki nógu góð. Hún væri blönd-
uð, ekki nógu stór og mikið af
karlsili þannig að illa gengi að
flokka hann frá og auk þess
væri áta í henni. Hann sagðist
ekkert of bjartsýnn á vertíðina
og ástandið væri allt öðruvísi
en í fyrra. Hann sagði þó að
vertíðin í fyrra hefði verið sér-
lega góð og ef til vill væri þetta
nú bara eins og á meðalvertíð
en menn vildu oft gleyma með-
alvertíðunum eftir góða vertíð
eins og í fyrra en þannig vertíð
væri einstök.
Viðar sagði að yfirleitt hefði
besta loðnan til frystingar verið
fremst úr göngunni en nú væri
loðnan fremst í göngunni ekki
góð og því væri hann ekki of
bjartsýnn á framhaldið. Hann
sagði að markaður væri nægj-
anlegur fyrir afurðir og hann
hefði því ekki áhyggjur af að
geta selt það sem þeir frystu.
Það yrðu frekar náttúruleg
skilyrði loðnunnar sem stopp-
uðu frystinguna en ónógur
markaður.
Sérmálum ASI-félaga að mestu lokið
Stefnt að við-
ræðum við rík-
isstjórn í dag
VIÐRÆÐUM um öll megin atriði
sérkrafna landssambanda og ein-
stakra félaga innan ASÍ var lokið í
húsnæði ríkissáttasemjara um há-
degisbilið í gær. Forystumenn lands-
sambanda og verkalýðsfélaga innan
ASÍ og samtaka vinnuveitenda fóru
yfir stöðuna upp úr hádeginu og að
sögn Magnúsar Gunnarssonar, for-
manns VSÍ, var gert ráð fyrir að
viðræður um launaramma nýrra
kjarasamninga hæfust eftir hádegi.
í fyrrinótt tókst að ljúka að mestu
leyti sérkjaraviðræðum verslunar-
manna og vinnuveitenda að sögn
Ingibjargar Guðmundsdóttur, for-
manns Landssambands íslenskra
verslunarmanna. Samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins stóðu von-
ir samningsaðila til þess að niður-
staða gæti legið fyrir í samningavið-
rifiðunum um helgina og gert var
ráð fyrir að viðræður við ríkisstjórn-
ina hæfust í dag um kröfur lands-
sambanda ASÍ á hendur stjórnvöld-
um.
Hægt miðar í kennaradeilunni
Viðræðunefndir kennarafélag-
anna og samninganefnd ríkisins
komu saman til sáttafundar í gær-
morgun og miðaði hægt í viðræðun-
um sem snerust aðallega um vinnu-
tíma og skipulag skólastarfs.
Húsbréfaútgáfan
15,3 milljarðar
Vaxtalækkunin olli því að útgáfan í fyrra
varð verulega meiri en áætlað var
SAMTALS voru gefin út húsbréf fyrir 15,3 milljarða króna hjá húsbréfa-
deild Húsnæðisstofnunar ríkisins á síðasta ári, sem er tæpum fjórum
milljörðum króna umfram það sem áætlanir gerðu ráð fyrir og þarf að
fara allt aftur til ársins 1991 til að finna dæmi um jafn mikla húsbréfa-
útgáfu á einu ári. Sigurður Geirsson, forstöðumaður húsbréfadeildar
Húsnæðisstofnunar, segir að ástæðan fyrir þessari aukningu sé fyrst og
fremst sú vaxtalækkun sem varð hér á landi síðla árs 1993.
Veruleg aukning varð á lánum í
öllum flokkum íbúða, en þó jukust
umsóknir um lán til nýbygginga á
vegum einstaklinga mest, eða um
33%. Umsóknir um lán til kaupa á
notuðum íbúðum jukust um 22%,
umsóknir um lán til nýbygginga frá
byggingaraðilum jukust um 19%
og umsóknir um lán vegna endur-
bóta húsnæðis jukust um 26%.
Húsbréfaútgáfan á árinu 1993
var 11,5 milljarðar króna og gerðu
áætlanir ráð fyrir að hún yrði sú
sama árinu 1994, en þær áætlanir
voru gerðar áður en vextir lækkuðu
fyrir tilverknað stjórnvalda um
mánaðamótin október/nóvember,
en eftir það lækkuðu vextir á hús-
bréfum úr 6% í 5%. Húsbréfaút-
gáfan árið 1992 var 12,2 milljarðar
króna og 15,2 milljarðar króna árið
1991 og er þá meðtaldir 2,8 millj-
arðar vegna greiðsluerfiðleikalána.
Meðal húsbréfalán er rétt tæpar
þrjár milljónir króna.
Umsóknum fjölgaði
Sigurður Geirsson sagði að í febr-
úar/mars á síðasta ári hefði verið
ljóst að fyrri áætlun um húsbréfa-
útgáfu var of lág, enda hefði um-
sóknum fjölgað mikið í kjölfar
.vaxtalækkunarinnar og þá strax
hefði verið varað við því. Það væri
fyrst nú í desember síðastliðnum
sem aftur hefði dregið úr fjölgun
umsókna og sama þróun hefði einn-
ig verið upp á teningnum í janúar.
Skýringar á þessari fækkun væru
að öllum líkindum annars vegar
nýjar og strangari reglur um
greiðslumat og hins vegar og ekki
síður að hans mati óvissa vegna
lausra kjarasamninga og átaka á
vinnumarkaði, en slík óvissa yrði
alltaf til þess að draga úr fasteigna-
viðskiptum.
Sigurður sagði að í ár væri gert
ráð fyrir að útgáfa húsbréfa yrði
um 13 milljarðar króna, en reiknað
sé með að strangari reglur um
greiðslumat verði til þess að draga
úr útgáfunni.
------» ♦ ♦-----
Bíleig-
andi bæti
stóðhest
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt bíleig-
anda til að greiða eiganda hests 480
þúsund krónur til að bæta það að
hesturinn drapst eftir að hafa orðið
fyrir bílnum á Eyrarbakkavegi í
október 1990. .
í héraðsdómi hafði bíleigandinn
verið sýknaður og tjónið rakið til
gáleysis eiganda hestsins. Bíleigand-
inn ók ekki bílnum í umrætt sinn
en ber samkvæmt umferðarlögum
hlutlæga ábyrgð á því tjóni sem af
notkun bílsins kann að leiða.
Ekki gáleysi eiganda
Á þeim forsendum var hann dæmdur
til að greiða bæturnar með dómi
Hæstaréttar en þar var ekki fallist
á að gáleysi hesteigandans væri um
að kenna að hesturinn slapp úr girð-
ingu en hlið hennar hafði verið skil-
ið eftir opið af óljósum ástæðum.
Hesteigandinn hafði gert samning
um hagagöngu fyrir hestinn við Fé-
lag búfjáreigenda á Eyrarbakka, sem
hafði afnot af beitarlandi á tilteknum
jörðum Eyrarbakkahrepps. Eigandi
hestsins þurfi ekki að þola skerðingu
bótaréttar á hendur bíleigandanum
vegna atvika sem Félag búfjáreig-
enda á Eyrarbakka kunni að bera
ábyrgð á og ekki þurfi að skera úr
því hvort rekja megi brotthlaup
hestsins til vanrækslu vörslumanns
hestsins eða hvort félagið hafi haldið
hrossum þarna til beitar í andstöðu
við ákvæði reglugerðar um búfjár-
hald á Eyrarbakka.
■ ■■ —— ------i
M ' * " ' ' r S* 1
Morgunblaðið/RAX
Selir í sólbaði
FROSIÐ yfirborð lónsins í Jök-
ulsá á Breiðamerkursandi er
ákjósanlegur staður til að sóla
sig á og hvíla lúna hreifa. Það
vita þessir selir sem lágu í
mestu makindum og nutu góð-
viðrisins síðastliðinn finuntu-
dag uppundir Öræfajökli.