Morgunblaðið - 08.03.1995, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.03.1995, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Þríhliðaviðræður um veiðar í Smugunni hefjast á föstudag Engar óformlegar viðræður farið fram Bókagerðar- menn sam þykktu kjara- samningana FÉLAGAR í Félagi bókagerðar- manna attu í gær með sér félags- fund í Ásbyrgi á Hótel íslandi, þar sem nýgerðir kjarasamningar fé- lagsins og Samtaka iðnaðarins voru til umfjöllunar. Við atkvæða- greiðslu í lok fundar voru samn- ingamir samþykktir með 54 at- kvæðum gegn 16 og voru sex at- kvæði auð. Samningamir em á sömu nót- um og aðrir kjarasamningar sem gerðir hafa verið við iðnaðar- mannafélög, þ.e.a.s. þeir fela í sér 2.700 króna grunnkaupshækkun á alla efri taxta, þ.e. þá sem eru yflr 84 þúsundum. Hlutfallslega hærri hækkun kemur á lægri taxta. Um áramót taka taxtar 3% hækkun. Þá urðu nokkrar kjara- bætur fyrir prentnema. Sólin blindar ALDREI er nógsamlega brýnt fyrir ökumönnum að aka var- Iega, þegar sól er lágt á lofti og hún blindar. Það eru ófá slysin, seni orðið hafa við slíkar aðstæður. Sólin fer nú hækk- andi með hverjum degi sem líð- ur, rís að morgni klukkan rúm- lega 8 og sest klukkan rúmlega 18. Á þessum tíma, þegar hún skín nær lárétt inn um bílrúð- ur, er alla jafna mest umferð og gjarnan eru rúður rykugar og gerðir það útsýnið enn verra. Því skulu menn hafa í senn hreinar bílrúður og aka varlega. Nokkur tímamunur er á sólarupprás og sólarlagi eftir því hvar menn eru staddir á landinu. Fyrir norðan er sólar- upprás t.d. um 8 mínútum síðar og sólarlag um hálfri klukku- stund fyrr. ENGAR óformlegar viðræður hafa farið fram milli Islands, Noregs og Rússlands til undirbúnings þeim samningaviðræðum um veiðar í Bar- entshafi sem hefjast í Moskvu nk. föstudag að sögn Helga Ágústsson- ar, formanns íslensku samninga- nefndarinnar. Helgi sagði að reiknað væri með að viðræðumar stæðu í einn dag. Hann sagði útilokað að svara því fyrirfram hvort líklegt væri að geng- ið yrði frá samkomulagi á fundinum. „Við göngum að sjálfsögðu bjartsýn- ir til þessa fundar, en um niðurstöð- una er ekki hægt að spá fyrir um.“ Sjávarútvegsráðherra sagði við Morgunblaðið í fyrradag að Rússar og Norðmenn hefðu verið að reyna að samræma afstöðu sína og myndu eiga viðræður fyrir fundinn I Moskvu. Helgi sagðist ekki vita hvort Norð- menn og Rússar myndu mæta til viðræðna við íslendinga með sameig- inlega kröfugerð. Helgi sagði að þó að óformlegar viðræður hefðu ekki farið fram fyrir fundinn þekktu samningamenn vel afstöðu þjóðanna til málsins. Hann sagði óvíst hvort eða að hvað miklu leyti innlegg norska stjómmála- mannsins Sveins Ludvigsen um að íslendingar fengju 30 þúsund tonna kvóta í Barentshafi skilaði sér í við- ræðunum. Ummæli hans væru hins vegar eftirtektarverð. I viðræðunefnd íslands verða emb- ættismenn frá forsætisráðuneyti, ut- anríkisráðuneyti og sjávarútvegs- ráðuneyti. Sendiherra íslands í Moskvu mun einnig verða í viðræðu- nefndinni. Fr amkvæmdastj óri Osvarar hf. Markmið rekstrar- ins sama og áður MARKMIÐ Ósvarar hf. í Bolungar- vík verður eftir sem áður að standa að fískveiðum og vinnslu í Bolung- arvík, að sögn Björgvins Bjarnason- ar, framkvæmdastjóra fyrirtækis- ins, en hann er meðal þeirra sem standa að Heimaafli hf., sem keypti 22 milljóna króna áður óseldan hlut í Ósvör hf., þegar tilboð hafði bor- ist frá Bakka hf. í Hnífsdal í hluta- bréf bæjarins í fyrirtækinu. Heiðrún, annað tveggja skipa Ósvarar hf., hefur verið við veiðar upp á síðkastið, en að sögn Björg- vins er vinna í gangi við að und- irbúa breytingu á hinu skipinu, Dagrúnu, í frystiskip. Dagrún hefur legið bundin við bryggju upp á síð- kastið og hefur kvóti skipsins verið leigður. Áætlað er að lengja Dag- rúnu, skipta um vél og togbúnað í skipinu og setja í það frystilest og heilfrystibúnað. Að Heimaafli hf. standa Vél- smiðja Bolungarvíkur, Vélsmiðjan Mjqlnir, vöruflutningafyrirtæki Ár- manns Leifssonar og þrettán ein- staklingar. Meðal þeirra eru Björg- vin Bjarnason, framkvæmdastjóri Ósvarar hf., Lárus Benediktsson, stjórnarmaður í Verkalýðsfélagi Bolungarvíkur, Hafþór Gunnars- son, pípulagningameistari, Karl Gunnarsson, fiskverkandi, Kristján Jón Guðmundsson, útgerðarstjóri, Ásgeir Sólbergsson, bókari, og Guð- mundur Halldórsson, fyrrv. skip- stjóri og útgerðarmaður. --------------- Súðavík Fyrsta húsið afhent í dag FYRSTA bráðabirgðahúsið, sem til- búið er til íbúðar í Súðavík, verður afhent í dag og mun þá fyrsti íbú- inn flytjast inn í húsið. Sveitarstjórn Súðavíkurhrepps leitaði til verkalýðsfélaga um fíár- mögnun bráðabirgðahúsanna, sem verið er að setja upp á staðnum. Fyrsta félagið, sem tók jákvætt í málaleitan sveitarstjórnarinnar, var Rafiðnaðarsamband íslands og munu fulltrúar þess fara vestur í dag og afhenda fyrsta húsið. Utanríkisráðherra sýknaður af bótakröfu Samheija hf. vegna útflutnings á karfa HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur sýknaði í gær Jón Baldvin Hanni- balsson, utanríkisráðherra, af 6,5 milljóna króna bótakröfu útgerðar- fyrirtækisins Samheija hf. á Akur- eyri, sem krafðist bótanna þar sem það taldi að synjun utanríkisráðu- neytisins um leyfí til handa fyrir- tækinu til að flytja út ísaðan karfa í gámum á Þorláksmessu 1993 hafi verið ólögmæt og valdið fyrirtækinu bótaskyldu tjóni. Því hafnaði hér- aðsdómurr. Ólögmætt framsal á valdi Samheiji hélt þvf fram að synjun- in hafi verið ólögmæt og orðið til þess að fyrirtækið varð af tekjum vegna sölu á afla togarans Víðis EA í Evrópu, þar sem talsvert hærra verð var að fá fyrir aflann en hér á landi. Utanríkisráðherra bæri ábyrgð á.því tjóni fyrir hönd ríkisins. Fyrirtáekið hafði staðið í deilum við stjóm Aflamiðlunar og sótt um Ieyfí beint til ráðuneytisins. Það vísaði málinu frá sér og til Aflamiðlunar sem synjaði um Ieyfí Ekki grundvöllur fyrir bótakröfu á ráðherra vegna téðrar veiðiferðar. Rök Samheija fyrir að synjunin hafí verið ólögmæt voru fjórþætt: Um ólögmætt framsal á valdi sé að ræða, þegar ráðherra fái vald til að takmarka eða stöðva atvinnu- starfsemi, því samkvæmt 69. grein stjórnarskrárinnar þurfi lagaboð til að leggja bönd á atvinnufrelsi en hafí ráðherra þessa heimild, þá fái framsal hans á valdi til Aflamiðlun- ar ekki staðist. Þá þverbijóti lagaákvæði um tak- markanir á útflutningi alla fjölþjóð- lega samninga, sem íslendingar hafí gert um frelsi í viðskiptum milli þjóða. Þriðja röksemdin var að jafnvel þótt valdþurrð kæmi ekki til væru ákvarðanir Aflamiðlunar ógildar vegna vanhæfís, þar sem sumir stjórnamianna eigi hagsmuna að gæta varðandi útflutning og loks byggði fyrirtækið mál sitt á því að í fyrstu hafi því verið haldið fram að synjunin væri til komin vegna þess að skip sem frystu afla um borð gætu ekki fengið heimild til útflutnings á ísuðum físki en síðan hafi Aflamiðlun haldið fram að ástand á markaði veitti ekki svig- rúm til þess að veita útflutnings- leyfi. Hins vegar hafi eftirspum á mörkuðum í Þýskalandi, Belgíu og Frakklandi verið mjög góð á þessum tíma og hátt verð fengist fyrir karfa. í niðurstöðum Sigurðar Halls Stefánssonar héraðsdómara segir á þá leið að löggjafínn hafí með lögum um útflutningsleyfí takmarkað út- flutning og metið það svo að þær takmarkanir horfðu til almennings- heilla og því uppfylli lögin skilyrði stjómarskrárinnar. Ekki hafi verið færð fullnægjandi rök að því að fjölþjóðlegir samning- ar sem íslenska ríkið sé aðili að veiti Samheija rétt sem taki lögun- um fram. Utanríkisráðherra hafi samþykkt og stutt samkomulag hagsmunaað- ila í sjávarútvegi um að koma á fót aflamiðlun til að greiða fyrir fisk- viðskiptum innanlands og aðlaga útflutning á óunnum fiski nýtingu ferskfískmarkaða fyrir neyslufísk. Með Aflamiðlun hafí útflutningi í j gámum í raun verið bætt við þá skipan sem viðurkennd hafí verið um árabil en Aflamiðlun sé ekki stjómsýsluhafi og hafí ekki fengið framselt vald frá utanríkisráðherra. Neitun ekki kærð til ráðuneytis Samherji hafí ekki látið reyna á úrlausn ráðuneytisins vegna synj- unar Aflamiðlunar um útflutning afla í þeirri veiðiferð sem bóta- I krafan var reist á heldur hafí fram- i kvæmdastjóri fyrirtækisins, vænt- anlega í trausti þess að útflutnings- leyfí fengist, lýst því yfir að engar aðgerðir yrðu hafðar uppi vegna þeirrar ákvörðunar. Ljóst sé að sala afla Víðis, sem komið var með að landi á Þorláksmessu 1993, hefði orðið fyrirtækinu hagfelldari en raunin varð við sölu innanlands en gmndvöll bótakröfu á hendur utan- ríkisráðherra skorti með öllu. I Því var ráðherra sýknaður og | Samheija gert að greiða honum 400 þúsund krónur í málskostnað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.