Morgunblaðið - 08.03.1995, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 08.03.1995, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1995 49 BRÉF TIL BLAÐSINS Um mat á bið- listum á hjúkr- unarheimili Frá Sigurbirni Björnssyni: VEGNA fyrirspurnar og athuga- semda frú Gyðu Jóhannsdóttur í Morgunblaðinu 2. mars síðastliðinn um öldrunarstofnanir vil ég skýra málin hvað varðar hljúkrunarheimilin Skjól og Eir. Til þess að einstaklingur geti vist- ast til langdvalar á hjúkrunarheimili þarf í öllum tilvikum að liggja fyrir vistunarmat aldraðra og í því mati staðfest að viðkomandi sé í þörf fyr- ir hjúkrunarrými. Mér vitanlega hef- ur verið starfað samkvæmt reglugerð um vistunarmat frá því sú reglugerð sá dagsins ljós fyrir rúmum fimm árum bæði á ofannefndum heimilum og öðrum sambærilegum á Reykja- víkursvæðinu. Vistunarmat er fram- kvæmt af faghópum, í Reykjavík af matshópi aldraðra, í öðrum sveitafé- lögum af þjónustuhópum aldraðra auk þess sem öldrunarlækningadeild- ir sjúkrahúsanna framkvæma mat á skjólstæðingum sem sjúkrahúsunum tengjast. Undanfarin ár hefur verið umtals- verður skortur á hjúkrunarrými á Reykjavíkursvæðinu og því fyrir- liggjandi mun fleiri gildar umsóknir en möguleiki hefur verið að anna. Kemur þá til forgangsröðun, sem faghópar innan heimilanna annast með hliðsjón af upplýsingum sem fram koma í vistunarmatinu. Jafn- framt eru náin tengsl og samvinna við fulltrúa öldrunarþjónustudeildar Félagsmálastofnunar Reykjavíkur og öldrunarlækningadeildir sjúkrahús- anna. Þá eru fengnar nánari upplýs- ingar frá umsækjendum sjálfum, aðstandendum þeirra, heilsugæslu og heimaþjónustu. í undantekninga- tilvikum berast til okkar erfið mál þar sem opinber umönnunarþjónusta hefur einhverra hluta vegna ekki verið nýtt, en mikið starf verið ynnt af hendi, oft af vandamönnum. Hef- ur í slíkum tilvikum verið reynt að hlaupa fljótt undir bagga að fengnu tilskildu vistunarmati. Bæjaryfirvöld á Seltjarnarnesi hafa valið samstarf um byggingu Eirar og hafa umsóknir Seltirninga verið yfirfarnar með fagfólki þeirra og mál þeirra leyst eins og kostur hefur verið á. Vonandi mun síðar verða reist hjúkrunarheimili á Nesinu sem þjónað getur Nesbúum og Vest- urbæingum eins og upphafleg áform um Eirar samstarfið gerðu ráð fyrir. Flestir aðrir heimilismenn hjúkrunar- heimilanna eru Reykvíkingar enda vandi þeirra mestur. Og vissulega eru nýttar ábendingar aðila sem að- ild hafa átt að byggingu heimilanna, svo sem blindrasamtakanna, Félagi Hinn mannlegi þátt- ur hins opinbera Frá Guðrúnu Maríu Óskarsdóttur: GETUR það verið að fólk þurfi enn að vaða eld og brennistein erinda sinna í íslenska stjórnkerfinu til þess eins að réttlætið sé virt? Vinur minn einn var fastráðinn lögreglumaður á ísafirði 1986. Hann lifði af flugslys, annar tveggja, missti konu sína og barn, sjálfur mikið slasaður. Við tók tímabil þess að safna kröftum að nýju. Þrátt fyrir samkomulag emb- ætta um færslu hans í starf hjá lög- reglu í Reykjavík, var ekki soðið kálið þó í ausuna væri komið. Loks eftir þrautagöngu milli manna var samkomulagið efnt og honum boðin staða hjá lögreglu í Reykjavík í des- ember 1989. Það kemur síðan á dag- inn að hann fær ekki greidd laun sem lögreglumaður þ.e.a.s. hann lækkar í launum. í máli hans er vísað í sam- þykkt lög árið 1989 og hans kröfum vísað á bug, þrátt fyrir að lög þessi taki ekki gildi fyrr en í júlí 1990 og hans samningur við hið opinbera sé gerður fyrir gildistöku laganna. Hvað í ósköpunum á sér stað í íslenskum stjórnarháttum? Erum við að færast aftur í aldir á hinum ýmsu sviðum? Viðbótarákvæðið um tjáningarfrelsið vottar ef til vill hver vitund manna um siðferði er og hvað menn telja mannréttindi. Oft var þörf en nú er nauðsyn að fá upp á borð umræðu um mannréttindamál, ekki hvað síst til þess að marka skil á milli þess hvað séu almenn mannréttindi og hvað sérhagsmunagæsla þeirra er koma að framkvæmdavaldinu. Við hljótum að biðja um að rétt- læti í orði sé réttlæti á borði og að hinn mannlegi þáttur sé með í úr- lausn mála, ekki hvað síst er ein- staklingurinn þarf að ganga geng- um reynslu, þar sem hið hálfa væri nóg. GUÐRÚN MARÍA ÓSKARSDÓTTIR, Látraströnd 5, Seltjarnarnesi. Um sérhæfingxi og manneskjulegt viðmót aðstandenda alzheimersjúklinga og verkalýðsfélaga enda væri jafn víð- tækt samstarf og tekist hefur til lít- ils fyrir þessa aðiia ef mál skjólstæð- inga þeirra væru ekki tekin til at- hugunar við forgangsröðun. Eins og sjá má er um vandmeðfar- in mál að ræða þar sem gæta þarf margra þátta. Ekki síst snýr málið að vali á hentugu plássi fyrir vænta- legan heimilismann m.t.t. óska hans og þarfa, val á stofufélaga og stað- setningu m.t.t hreyfigetu og annarra sérþarfa. Því er góð innsýn í aðstæð- ur á heimilinu grundvallarforsenda þess að val úr forgangshópum verði farsælt. Er það von mín að heimilis- fólki, aðstandendum og samstarfs- fólki í öldrunarþjónustu hafí þótt vel að málum staðið á áðurnefndum hjúkrunarheimilum. SIGURBJÖRN BJÖRNSSON, læknirá hjúkrunarheimilunum Skjóli og Eir. Frá Guðm. Helga Þórðarsyni: NÝLEGA birtist í Morgunblaðinu lesendabréf frá Benedikt Gunnars- syni, Vallarási 5, Reykjavík, þar sem kvartað er undan „ómanneskjulegu viðmóti við sjúkling" og ófullnægj- andi upplýsingum til sjúklings. Málið fjallaði um mann, sem lær- brotnaði og lagðist inn á sjúkrahús, þar sem gert var að broti hans. Ekki verður annað séð en að iækningin hafí gengið samkvæmt áætlun. En hann kvartar um kuldalegt viðmót og einkum þó um skort á upplýsing- um frá læknunum, sem þarna komu við sögu. Honum var að vísu sagt, að þetta væri allt í góðu lagi og brot- ið yrði gróið eftir sex mánuði, en upplýsingarnar voru snubbóttar og virðast ekki hafa sannfært sjúkling- inn. Hann þurfti nánari útskýringar, en fékk þær ekki. Og þetta endaði með því, að honum fannst hann vera gleymdur. Hann hafði reynt að halda uppi sambandi, en það hafði rofnað að því er virðist vegna sinnuleysis sérfræðinganna, sem hlut áttu að máli. Þetta er raunaleg saga. En eitt er athyglisvert. Það kemur hvergi fram, að hann hafi leitað til heimil- islæknisins um aðstoð í málinu. Heimilislæknar eiga að vera fulltrúar skjólstæðinga sinna gagnvart heil- brigðiskerfinu. Sjúklingar eiga að geta leitað til þeirra með öll heilbrigð- isvandamál og þeir eiga að greiða úr þeim með einum eða öðrum hætti. í því tilviki, sem hér um ræðir, á heimilislæknirinn að hafa fengið læknabréf um sjúklinginn fyrir löngu, og á því að geta skýrt málið fyrir honum. Ef eitthvað vantar þar á, er auðvelt fyrir heimilislækninn að afla frekari upplýsinga, það er ekki svo mikil hætta á, að hann „gleymist". Það er mikið talað um tilvísanir þessa dagana. Hluti af tilvísana- skyldunni er skylda sérfræðings til að senda heimilislækni sjúklings skýrslu um þá þjónustu, sem hann hefur veitt honum. Fagleg forsenda tilvísunarskyldunnar er sú, að heim- ilislæknirinn gegnir lykilhlutverki í heilbrigðiskerfinu. Hann á að vera fulltrúi sjúklingsins í kerfinu og gæta þar hagsmuna hans. Það er þess vegna, sem hann á kröfu á upplýsingum frá sérfræðingum, og það er þess vegna, sem það er talið nauðsynlegt, að sjúklingurinn ráðgist við hann, áður en hann leitar til sér- fræðings, ef þess er kostur. Það verður ekki annað séð, en að sérfræðingur sá, sem hér um ræðir, hafí skilað sínu handverki óaðfínnan- lega. En sérfræðingurinn er fyrst og fremst handverksmaður. Öll sérfræði- vinna er fyrst og síðast tæknivinna, tæknileg lausn á afmörkuðu vanda- máli. Þegar sérfræðingurinn hefur leyst þann vanda, verður ekki meira af honum krafist. Hið „manneskju- lega samband" við heilbrigðiskerfið á hann svo að fá gegnum sinn heimilis- lækni og samstarfsfólk hans. GUÐM. HELGIÞÓRÐARSON, fyrrv. heilsugæslulæknir, Smáraflöt 5, Garðabæ. Sirkusinn guddómlegi iiiiiniiiiiHii •Morskci óperan ° Borgarleikhúsið 9. og 10. mars 1995 kl. 20:00 Frumflutningur á nýrri uppfærslu óperunnar Sirkusinn guðdómlegi eftir danska tónskáldið Per Nprgárd. Leikstjóri Per Fosser. Óperan segir frá lífshlaupi Adolfs Wölfli ( 1864-1930) sem í verkum sínum skapaði sér nýja persónu og nýja æsku til að bæta sér upp ömurlegan og illbærilegan raunveruleikann. Aðeins þessar tvær sýningar Miðapantanir hjá Borgarleikhúsinu í síma 680 680 Norden i fsland
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.