Morgunblaðið - 08.03.1995, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 08.03.1995, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1995 41 Þar var gott að alast upp og þar leið okkur öllum vel. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þðkk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Það var erfitt að kveðja. Elsku Einar, Sigurgeir, Katrín Tanja, mamma, pabbi, systkini, makar og frændsystkini. Þið hafið misst mikið og söknuðurinn er sár. Við vonum að með styrk hvert frá öðru getum við lært að lifa með sorginni. Minning um Hrefnu okkar lifir. Þín systir, Sigurlaug. í dag verður borin til grafar ást- kær vinkona okkar, Hrefna Einars- dóttir. Leiðir okkar lágu saman þegar hún og Snæbjöm fluttu í Vatnsdalinn og þar hófust kynnin. Hún eignaðist dreng sem heitir Sig- urgeir og við pössuðum hann oft þegar hann var lítill. Nú er hann orðinn 18 ára og á litla telpu sem heitir Katrín Tanja og vinátta okkar hefur staðið alla tíð síðan. Fyrir nokkrum árum veiktist hún af sjúkdómi og fór oft til útlanda af þeim sökum. Hrefna var tvígift. Seinni maður hennar er Einar Mar- teinsson og hefur hann reynst henni mjög vel. Það er sárt að Hrefna skuli vera farin. Okkur finnst það ekki vera réttlátt. Hún reyndist okkur mjög vel og var einlæg vin- kona. Við sendum samúðarkveðjur til Einars, Sigurgeirs, Katrínar, for- eldra, systkina, frændfólks og tengdafólks. Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með fijóvgun hreina fyrst um dags morgunstund á snðggu augabragði af skorið verður fljótt lit og blöð niður lagði líf mannlegt enda skjótt. (Hallgrímur Pétursson) Guð geymi þig, elsku Hrefna okkar. Alda og Bára. Elsku frænka og vinkona. Okkar langar til að kveðja þig með fáeinum orðum. Langri og erfiðri baráttu er lok- ið, baráttu sem stóð í tæp fimm ár og einkenndist öðru fremur af óskiljanlegum dugnaði og ósérhlífni þinni. Við þekktum þig aðeins sem litlu frænku þar til skömmu áður en þú veiktist og við kynntumst hinni fullvaxta og þroskuðu konu sem þú varst orðin. Með okkur tókst mikill vinskapur. Á kveðjustund streyma minning- arnar fram ljúfsárar og tregafullar. í byijun veikinda sinna er Hrefna stödd í Gautaborg vegna rann- sókna, það er farið í Tívolí með litlu dóttur okkar, mamman stendur hjá og þorir ekki fyrir sitt litla líf að stíga upp í leiktækin með þá litlu, en Hrefna tekur þá af henni ómak- ið og hefur gaman af þó sjúk væri, þá sá hún einnig um heimilið fyrir okkur þegar við fórum í frí sama ár. Lífskraftur og hæfileiki til að njóta o g gleðjast yfir hinum smæstu hlutum, hjálpsemi og umhyggja fyrir öðrum er það sem öðr-u fremur einkenndi skapgerð Hrefnu. Nú er kmið að Ieiðarlokum og aðeins eftir að þakka fyrir sam- fylgdina. Syninum unga og eigin- manninum sem á svo aðdáunarverð- an hátt studdi konu sína til hinstu stundar og fjölskyldu sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Af eilifðar ljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Ben.) Karen og Örn. Hrefna Einarsdóttir, móðursystir mín og vinur er látin. Ég á ótal minningar um Hrefnu sem allar skipa stóran sess í huga mínum. Margar minningar sem virðast af ólíkum toga en þegar ég lít yfir farinn veg með lífsferil Hrefnu í huga þá hafa minningarn- ar eitt sammerkt. Samnefnari þessi er sá þáttur í persónuleika hennar sem mun ávallt vera mér efstur í huga þegar ég minnist hennar. Kveikjan að greinarskrifum þessum er innri þörf til að deila þessum samnefnara með þeim er þekktu hana og fjallað verður um hér að neðan. Mínar fyrstu minningar um uppáhaldsfrænku mína, að öðrum ólöstuðum, eru frá því að ég var barn að aldri. Ellefu ár skildu okk- ur að og mínar fyrstu minningar eru óljósar glefsur um hana á ungl- ingsárum hennar. Á þeim tíma passaði hún mig mikið, sem hún gerði reyndar oft á mínum æskuár- um, þó ég muni ekki eftir því í smáatriðum. Hrefna kynntist fyrri sambýlis- manni sínum, Snæbirni Sigurgeirs- syni, í gagnfræðiskóla og ekki liðu mörg árin þar til þau eignuðust barn, hann Sigurgeir, góðvin minn og frænda. Framtíðin blasti við litlu fyölskyldunni og stórhuga foreldrar tóku þá stefnu að flytjast af möl- inni og hefja búskap þrátt fyrir ungan aldur. Úr sveitinni hef ég margs að minnast. Ég dvaldi hjá þeim fimm til sex sumur og líður varla sú vika að minningar frá þeim tíma komi ekki upp í hugann. Spennandi hlutir eins og hesta- mennska, mannamót og heyskapur. Þegar mikið lá við yfirgaf Hrefna eldhússtörfin og með dugnaði sínum dreif hún alla áfram og skóp hvetj- andi vinnuanda í hópnum svo að þreyta var eitthvað huglægt sem engum datt í hug að nefna. Hjá Hrefnu og Snæbirni var ávallt mjög gestkvæmt því þetta unga og mynd- arlega par hleypti fersku blóði í sveitunga og eignuðust þau þar marga góða vini. Mikil forréttindi þótti mér og hinum er dvöldu á bænum yfir sumartímann að vaka svolítið fram eftir kvöldi og hlusta á sögur fullorðna fólksins. Það var mátulega oft en þrátt fyrir vilja okkar yngra fólksins tókst henni og þeim ávallt að hafa á okkur reglu án nokkurs vanda né leiðinda. Þegar ég lít til baka þá er mér ofarlega í huga hve mikil þolin- mæði mér var sýnd á þessum tíma. Aldrei var óréttlæti né pirringur til staðar heldur hlýr hugur húsbónda og húsfreyju í garð ungs manns er fullur var spurninga um lífið og til- veruna. Árið 1985 urðu þáttaskil í lífí Hrefnu er hún og Snæbjörn slitu samvistum og Hrefna og Sigurgeir fluttu til okkar foreldra minna í Engjaselið. Ég var þá að stíga mín fyrstu spor í menntaskóla og á þeim tíma fór ég að upplifa Hrefnu sem stóru systur, sem hafði verið í eins- konar „móðir-vinur“ hlutverki fram að þeim tíma og Sigurgeir sem við- bótarbróður og það lítillega á kostn- að bróður míns. Á þeim tíma urðu samverustundir okkar fleiri og fyöl- breyttari en áður. Ég fór stundum með Hrefnu og vinum hennar út að skemmta mér eða öfugt. Hrefna var ávallt til taks þegar ég þurfti á henni að halda. Tii að ræða mál- in og njóta samverustundanna og einnig til að nálgast þá veraldlegu hluti sem unglingar sækjast i er þeir standa við jaðar tilveru full- orðna fólksins. Þetta og margt ann- að gerði hún af heilum huga því þolinmæði, seigla og að setja sig í spor annarra hefur ávallt verið ein af sterku hliðum hennar persónu- leika. Á þeim tíma voru einnig al- varlegri hlutir að gerast í huga Hrefnu því hún varð ástfangin á nýjan leik, af ungum manni og miklum gleðigjafa, Einari Marteins- MINIMINGAR syni, sem hún hafði kynnst er hún bjó í sveitinni. Þau voru mjög sam- rýnd, ekki aðeins í markmiðum lífs- ins heldur einnig í leiðum til að ná þeim markmiðum. Þau bjuggu í nokkur ár í kjallara ömmu og afa á Ásveginum áður en þau fluttu í Grafarvoginn og alltaf var gaman að heimsækja þau, sama fjörlega andrúmsloftið sem ávallt fýlgdi henni. Það eru nú liðin nokkur ár frá því ég uppgötvaði hvers vegna ná- vist Hrefnu var ætíð svo skemmti- leg. Þar þurfti ekki tilefni, umræðu- efni eða eitthvað áþreifanlegt held- ur var það útgeislunin sem ég fann fyrir í návist hennar. Það er ekki öllum gefið að hafa slíka útgeislun sem ekki er ósvipuð tilfinningu ungra elskenda er ástvinurinn er í nánd. Þetta er sá samnefnari sem minnst var á í byijun greinarinnar og allar minningar mínar um hana Hrefnu mína lifa í þessum búningi vel varðveittar. Ég er ekki einn okkar frændsystkinanna sem þótti mikið til hennar koma því allir hændust að henni og öllum tók hún opnum örmum og allir voru í náð- inni. Enginn deyr fyrr en minningin hverfur úr huga þeirra sem eftir lifa. Mun meira afl þarf til að minn- ing um góða manneskju hverfi en fylgir dauða sömu manneskju. Því verðum við sem eftir lifum að taka vel á móti þeim minningum sem upp i huga koma. Þrátt fyrir að hægt sé að rétt- læta Guðsvilja þá tekur það mig mjög sárt að Hrefna er dáin. Hún og Einar áttu svo margt ógert í þessum heimi. Hann hafði beðið um hönd hennar og ætlunin var að ganga í það heilaga þegar Hrefnu heilsaðist betur. Nýlega fluttu þau í glæsilegt hús og áttu eftir að njóta þeirrar uppbyggingar þegar veik- indin, sem hún hafði gengið með í nokkur ár, fóru að segja til sín í líkama Hrefnu sem síðar urðu henni að aldurtila eftir fyögurra ára hetju- lega baráttu. Einar er ungur og sterkur persónuleiki sem á eftir að njóta lífsins og fylgja þeim straum- um sem hugur hans leitar hveiju sinni þrátt fyrir þetta mikla áfall sem ástvinamissir er. Okkur mönnunum er tamt og eðlilegt að syrgja þann sem frá okkur deyr en hversu djúpt og hve lengi eigum við að dvelja í sorg okkar? Við viljum sýna lífí sem hér kveður virðingu og óska sálinni heilla á nýjum og framandi slóðum. Við viljum einnig trúa að þetta hafi allt haft tilgang, að Hrefna þurfi ekki lengur að vera í hlut- verki huggara og hafí nú losnað undan þeim líkamlegu viðjum sem hún var komin í. Mér finnst gott að hugsa um þessa hluti nú þegar ég hef misst náinn vin og ættingja. Líkami okkar er talinn mjög full- kominn. Einn af þeim þáttum sem sýnir styrkleika hans eru viðbrögð við alvarlegum veikindum eða áverka. Ef ekki tekst að lækna það sem bjátar á veitir hann mannfólk- inu lausn síns vandamáls. Lausnin felst í brotthvarfí sálarinnar úr þessum heimi sem gefst síðan tæki- færi til að mæta aftur til leiks, frísk- ari og endurnærð. Þetta köllum við dauða og endurholdgun mannkyns. Það er erfítt að ímynda sér hvað sé í huga fólks sem veit sína ævi á enda. Skömmu fyrir andlátið seg- ir Hrefna við móður sína: „Mamma mín, nú er mér alveg að batna.“ Hrefna vissi að fulltrúar læknavís- indana voru ráðþrota og móðir hennar (amma mín) líka og Hrefna vissi einnig um vitund móður sinnar að sjúkdómurinn ætlaði að hafa betur. Var barátta hennar slík eða nefndi hún þetta eingöngu móður sinni til hughreystingar eða eygði hún lausn sinna mála? Þetta og margt annað er okkur hulin ráð- gáta en eitt er víst að hún Hrefna mín yfirgaf þennan heim með mik- illi reisn og friðsemd í viðurvist Ernu, systur sinnar, er hélt um hönd hennar þegar hún fór leið hinna réttlátu og hóf nýtt líf. Ég vil að lokum votta Einari eig- inmanni hennar, Sigurgeiri syni hennar og nánum aðstandendum, mína dýpstu samúð og vona að þeir eigi eftir að fínna fyrir ljósinu sem dvelst í myrkri þessarar miklu sorgar. Þórður Birgir Bogason. Þegar Einar Örn, bróðir Hrefnu, færði mér fréttina af láti hennar hvarf ljósið sem hún bar með sér sýnum okkar. Við vissum öll að það myndi hverfa. Við vissum að það yrði líkn frá allri þeirri ólýsanlegu þjáningu sem Hrefna hefur gengið í gegn um síðustu árin. Þjáningu sem Hrefna bar með þeirri reisn sem þeim einum er gefið sem hefur til að bera mikinn sálarstyrk og þroska. Hrefna var langyngst systkin- anna, sólargeislinn og eftirlæti allra. Hún var ljós yfírlitum, alltaf í fínasta kjólnum í jólaboðum og afmælum. Hún var sannkölluð draumaprinsessa foreldra sinna og systkina. Hún var umvafín ástríki og gleði, yndislegur fyorkálfur, mið- punktur fyölskyldunnar. Hún hefði átt að verða gerspillt og ég man ekki betur en að fullorðna frænd- fólkið hefði af því áhyggjur. En hún var betur gerð en svo. Hrefna varð fullorðin og þroskaðist ekkert síður en eldri systkini hennar sem öll eru einstaklega vel gerð. Ung að árum gerðist Hrefna bóndakona norður í Húnavatns- sýslu. Það hljóta að hafa verið mik- il viðbrigði fyrir borgarbamið Hrefnu að hefja búskap í sveit. Ekki veit ég þó annað en að henni hafi farizt það vel úr hendi eins og allt sem hún tók sér fyrir hendur. Ég var á þessum árum búsettur erlendis og gat því ekki fylgst náið með þessum þætti í lífí hennar. Fyrir norðan eignaðist Hrefna einkasoninn Sigurgeir. Fyrir tæpum 10 árum fluttist ég aftur heim og um sama leyti fluttust Hrefna og Sigurgeir til Reykjavíkur en Hrefna og fyrri maður hennar höfðu þá slitið samvistum. Gat ég því aftur fylgst betur með fjölskyldunni en verið hafði næstu 16 árin á undan. Fyrir tæpum fimm árum fékk Hrefna fyrstu einkenni þess sjúk- dóms sem nú hefur dregið hana til dauða. Fljótlega varð ljóst að um var að ræða sjaldgæfan, alvarlegan lifrarsjúkdóm sem ekki væri hægt að lækna og að eina von hennar til langframa væri að fá nýja lifur. Hófst nú sú barátta fyrir bata og bjartari framtíð sem Hrefna hefur háð á einstakan hátt og sem vakið hefur aðdáun okkar allra sem fylgst höfum með. i huga Hrefnu var uppgjöf aldrei á dagskrá enda þótt henni væri alltaf ljóst að stefnt væri í tvísýnu við lifrarskipti. En það verður dð segjast að lífið er stundum hræðilega ósanngjarnt. Eftir erfiðar ferðir til Gautaborgar til rannsókna varð Hrefna að bíða í eitt ár eftir heppilegri lifur. Þetta var gert til að tryggja auknar líkur á að aðgerðin heppnaðist sem bezt. Engu að síður urðu margvísleg at- vik til þess að nýja lifrin eyðilagðist og eina vonin var að fá enn nýja lifur. Þessi síðari aðgerð var gerð snemma á síðasta ári. í kjölfarið kom upp sýking sem engin leið reyndist til að lækna með þekktum lyfjum og lá Hrefna mánuðum sam- an á gjörgæzludeild í Gautaborg og var ekki hugað líf. Baráttuþrek það sem hún sýndi í öllum þessum hörmungum þótti með miklum ólík- indum. Hrefna var ákveðin í að gefast ekki upp. Ég gat fylgst með gangi mála, ekki aðeins gegn um mann Hrefnu, Einar Marteinsson, systkini hennar og foreldra heldur einnig lækna hennar og hjúkrunar- fólk í Gautaborg þar sem ég þekki til. Aðdáun hjúkrunarfólksins á Hrefnu, sálarstyrk hennar og reisn í baráttunni fyrir lífíð, Sigurgeir sinn og Einar, svo og fjölskylduna alla, leyndi sér ekki. Mér er kunn- ugt um að Hrefna á stórt pláss í hjarta þessa fólks, það gleymir hvorki Hrefnu né hennar nánustu sem dvöldu vikum og mánuðum saman hjá henni á sjúkrahúsinu í Gautaborg. Allt þar til fyrir örfáum mánuð- um kom ekkert annað til greina hjá Hrefnu en fullur bati. Með ótrú- legri þrautseigju og viljastyrk komst hún í gegn um hin miklu veikindi og kom heim á miðju síð- asta sumri. Nú tók við erfið endur- hæfíng sem vitað var að yrði löng. Hrefna lagði upp í þá för með sama jákvæða hugarfari og ávallt. Það var því fullkomið reiðarslag þegar í ljós kom að þrátt fyrir að sýking- in hefði yfírunnizt voru afleiðing- amar svo alvarlegar að hin nýja lifur myndi ekki endast miklu leng- ur. Hrefnu voru kynntir hinir væg- ast sagt tvísýnu möguleikar í þess- ari stöðu og þótt hún vissi fullkom- lega hvað í vændum var gerði hún læknum sínum þegar ljóst að nú léti hún staðar numið, nú tæki hún því sem að höndum bæri. Hrefna stóð hnarreist þar til yfir lauk. Það er merkilegt hve mikill glæsileiki SJÁ NÆSTU StÐU ENSKA ER OKKAR MÁL SÉRMENNTAÐIR ENSKIR KENNARAR - LIFANDI NÁMSKEIÐ FJÖLBREYTT NÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN, UNGLINGA OG FULLORÐNA V.R. OG FLEIRI VERKALÝÐSFÉLÖG TAKA ÞÁTT í NÁMSKEIÐSKOSTNAÐI ■ Áhersla á talmál ■ 10 kunnáttu stig ■ Hámark 10 nem. í bekk Enskuskólinn TÚNGATA 5 - SÍMI 25330 Julie Samuel Victoria
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.