Morgunblaðið - 08.03.1995, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1995 9
FRETTIR
Friðrik Sophusson fjármálaráðherra um afkomu ríkissjóðs á kjörtímabilinu
Þriðjungurinn af skuldasöfnun-
inni er vegna gengisbreytinga
AF UM 74 milljarða króna skulda-
aukningu ríkissjóðs á árunum
1992-1994 má rekja um 26,5 millj-
arða til gengisbreytinga á tímabil-
inu og 4 milljarða til innlendra
verðlagsbreytinga, að sögn Frið-
riks Sophussonar, fjármálaráð-
herra. Hann segir að þrálátur halli
á ríkissjóði hafi valdið skuldaaukn-
ingu ríkissjóðs og sífellt sé verið
að borga meiri vexti af hækkandi
lánatölu.
„Þetta er og verður eitt helsta
Nætur-
sundá
Islandi
ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð hefur
ákveðið að gerð verði tilraun með
nætursund um helgar. Hugmyndin
er að skapa unglingum nýjan, heil-
brigðan vettvang til skemmtana.
Sundhöll Reykjavíkur þótti
hentugust til þessa verkefnis því
þar eru aðstæður til að stjórna
streymi fólks og spila háværa tón-
list bestar.
Framkvæmd verkefnisins verð-
ur með því móti að öll föstudags-
kvöld í marsmánuði verður opnun-
artími sundhallarinnar lengdur til
kl. 3 að nóttu og eftir kl. 22 munu
starfsmenn verkefnisins taka við
en þeir verða allir undir 25 ára
aidri.
Sérstök áhersla verður lögð á
að aðstæður á þessum tíma verði
með því móti að unga fólkið geti
skemmt sér sem best. Má þar
nefna að komið hefur verið fyrir
nýju hátalarakerfi (til að hægt
verði að spila góða tónlist af fullum
krafti), brettin verða opin, sund-
laugamörk verða á staðnum og
sitthvað fleira verður á boðstólum.
Athygli skal vakin á því að öll
meðferð áfengis og annarra vímu-
efna verður stranglega bönnuð og
verður sérstakt eftirlit meðhaft til
að framfylgja banninu.
viðfangsefni þessarar þjóðar,
nefnilega að stemma stigu við
skuldaaukningu ríkissjóðs. Ef það
er ekki gert núna þá kemur það
einfaldlega niður á þeim sem búa
hér í framtíðinni og veldur aukinni
skattbyrði þeirra þegar þeir þurfa
að greiða niður þær skuldir sem
við stofnum til. Þetta er mál sem
enginn stjórnmálaflokkur getur
horft framhjá,“ sagði Friðrik í
samtali við Morgunblaðið.
Hann sagði að afkoma ríkissjóðs
á fjárlögum skýrði skuldasöfnun-
ina einungis að hiuta, og ekki
mætti gleyma því að ríkissjóður
hefði þurft að yfirtaka ýmsar
skuldbindingar utan fjárlaga, t.d.
vegna gjaldþrota sjóða sem fyrr-
verandi ríkisstjórn hefði stofnað
til í því skyni að bjarga atvinnulíf-
inu. Þar væri til dæmis um að
ræða milljarðatap Byggðasjóðs,
Framkvæmdasjóðs, Atvinnu-
tryggingadeildar Byggðasjóðs og
Verðjöfnunarsjóðs, auk þess sem
tveir milljarðar hefðu farið til
Landsbankans.
Skuldirnar meira en
tvöfölduðust 1988-1989
„Það er hárrétt sem kemur fram
í umfjöllun Morgunblaðsins síðast-
liðinn sunnudag að skuldir ríkisins
tvöfaldast á þessu kjörtímabili, en
þá verða menn að hafa í huga að
skuldirnar hafa áður tvöfaldast á
miklu styttra tímabili, eða jafnvel
á einu ári eins og gerðist milli
áranna 1988 og 1989 þegar skuld-
irnar meira en tvöfölduðust, en
þá fóru þær úr 20,7 milljörðum í
48 milljarða,“ sagði Friðrik.
Hann bendir á að samanlagður
halli ríkisins 1992-1994 hafi verið
tæplega 25,3 milljarðar króna, en
á tímabilinu 1989-1991 hafi sam-
anlagður hallinn á verðalagi ársins
1995 verið tæplega 27,7 milljarð-
ar. Þannig hafi greiðsluhalli ríkis-
sjóðs síðustu þriggja ára verið
minni en á valdatímabili Stein-
gríms Hermannssonar.
„Þá hefur það ekki gerst lengi
að hallinn á fjárlögum hafi verið
minni en áætlað var, en á síðast-
liðnu ári var þann tveimur millj-
örðum minni. í fjárlögum var hall-
inn þá áætlaður 9,5 milljarðar, en
þegar upp var staðið reyndist hann
vera 7,6 milljarðar,“ sagði Friðrik.
Lækkandi heildarskuldir
þjóðarbúsins
Árið 1991 var viðskiptahallinn
um 20 milljarðar króna, og segir
Friðrik að hafa verði í huga að
þessi halli, sem sé ekkert annað
en umframeyðsla þjóðarinnar, hafi
verið skattlagður í ríkissjóð. Nú,
þegar verið sé að greiða niður er-
lendar skuldir, greiðist ekki skatt-
ar af þeim peningum sem notaðir
séu til skuldagreiðslna til útlanda.
í raun og veru hafði því ríkissjóð-
ur heldur minna úr að moða, og
það komi m.a. fram í því að skatt-
tekjur ríkissjóðs hafi lækkað sem
,/0' Utankjörstaðaskrifstofa
Sjálfstaeðisflokksiiis
Valhöll, Háaleitisbraut 1, 3. hæð
ÁX Símar: 588-3322, 588-3323, 588-3327
Utankjörfundaratkvæ&agreiðsla fer fram hjá
sýslumanninum í Reykjavík, Skógarhlíð 6,
3. hæö, virka daga kl. 9.30-15.30.
Skrifstofan gefur upplýsingar
um allt sem lýtur að kosningunum 8. apríl.
Sjálfstœðisfólk!
Hafið sambancl ef pið verðið ekki heima á kjördag
m w
Okumað-
ur gefi
sig fram
RANNSÓKNADEILD lögreglunn-
ar í Reykjavík leitar að ökumanni
fólksbíls sem ekið var á gangandi
vegfaranda á mótum Austurstræt-
is og Pósthússtrætis 22. febrúar sl.
Maður var að ganga yfir gang-
brautina milli London og Reykja-
víkurapóteks þegar dokkgráum
fólksbíl var ekið á hann. Hann
kastaðist upp á vélarhlíf bílsins.
Eftir að hafa rætt stuttlega við
manninn ók ökumaður fólksbílsins
á brott án þess að segja á sér deili.
Gangandi vegfarandinn hefur
verið undir læknishendi eftir
óhappið og er nauðsynlegt fyrir
ökumanninn að hafa tal af rann-
sóknadeild lögreglunnar í Reykja-
vík vegna málsins.
Hótel Island kynnir skemmtidagskrána
ÞÓ LÍOI ÁR 06 ÖLD
BJÖRGVIN HAIJJ)ÓRSSON - 25 ÁRA AFMÆLJSTÓNIJEIKAR
BJÖRGVIN IIAI.I.DORSSON lítur ytlr dagsvcrkið sem dægurlagasöngvari á
liljómpliitum í aldarfjórðung, ogvið hcyrum nær 60 lög t'rá
glæstum ferli - frá 1969 til okkar daga
hlutfall af landsframleiðslu á kjör-
tímabilinu.
„Það sem skiptir mestu máli,
og er einn mikilvægasti árangur
efnahagsstjórnar ríkisstjórnarinn-
ar, er að erlendar skuldir þjóðar-
búsins í heild, þ.e. ríkis, sveitarfé-
laga, fyrirtækja og heimila, fara
nú lækkandi. Þjóðin er að borga
niður skuldir sínar og það er orð-
inn afgangur af viðskiptum við
útlönd þijú ár í röð. Þetta er auð-
vitað gjörbreyting á allri efna-
hagsstjórn íslands, og það er þetta
sem hefur mesta þýðingu,“ sagði
Friðrik Sophusson.
syningar:
Gestasöng\ari:
SIGRÍÐUR BEINTEINSDÓ'mR '
Lpikiiiynd og lciksijorn:
BJÖRN G. BJÖRNSSON A
Hl,jóms\(‘itarsljórn: ^H
Gl’NNAR I»ÓRI)ARSON jH
ásaml 1(1 manna lil,joms\cil
Kynnir: ,^H
JÓN AXEL ÓLAFSSON
Islands- nu Noiöm lamlamcislarar i
>amk\a-misdönsnm Ira Dansskola
\ndar llaralds s\na dans.
Sértilboð á gistingu,
sími 688999.
Matseðill
Koníakstónerub humarsúpa meö rjómatopp
Lamba-piparsteik meö gljáöu grænmeti,
kryddsteiktum jaröeplum og rjómapiparsósu.
Grand Marnier ístoppur meö hnetum og
súkkulaöi karamellusósu og ávöxtum.
Verd kr. 4.600 - Súningarverd kr. 2.00(F
Dansleikur kr.800
HÖTEL ÍáIÁND
Bordapantanir
i sima 687111
Gengistiyggð spariskírteini
ECV spariskírteini með erlendri vaxtaviðmiðun
• Þú þarft ekki að kaupa erlendan gjaldeyri með tilheyrandi kostnaði.
• Þú þarft ekki að taka árlega við vaxtamiðunum og hafa fyrir því að fjárfesta þá aftur.
• Þú getur alltaf selt skírteinin þegar þörf krefur, á þínum heimamarkaði.
• Það er auðvelt að innleysa skírteinin.
• Þú greiðir engin há þjónustugjöld.
• Þú nýtur ákveðins skattfrelsis.
• Þú fjárfestir erlendis hér heima á þægilegan og öruggan máta.
Útboð á ECU-tengdum spariskírteinum fer fram í dag
kl. 14:00. Hafðu samband við ráðgjafa
Þjónustumiðstöðvar ríkisverðbréfa með tilboð í vexti
ECU-tengdra spariskírteina.
Leitaðu ekki langt yfir skammt.
Ráðgjafar Þjónustumiðstöðvar
ríkisverðbréfa veita þér upplýsingar
um ECU-tengd spariskírteini.
Síminn er 562 6040.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Meö ECU-tengdum spariskírteinum ríkissjóðs fjárfestir þú í sameiginlegri mynteiningu Evrópuríkja, meö erlendri vaxtaviðmiðun, rétt eins og þegar þú
fjárfestir í erlendum skuldabréfum. Munurinn er sá að með ECU-tengdum spariskírteinum ertu á þínum eigin heimamarkaði og þú þekkir skuldarann!
Hverfisgötu 6,2. hæð (neðsta húsið við Hverfisgötu)
sími 562 6040, fax 562 6068
Hvað sem þú gerir - sparaðu með áskrift að spariskírteinum