Morgunblaðið - 08.03.1995, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 08.03.1995, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ - FRÉTTIR Morgunblaðið/Árni Sæberg Prófastar í kirlguhúsinu ÁRLEG prófastastefna þjóð- kirkjunnar hófst í gær, og var hún í fyrsta sinn haldin í kirkju- húsinu við Laugaveg 31. Biskup íslands herra Olafur Skúlason setti stefnuna við athöfn í Dóm- kirkjunni og þar var séra Ragnar Fjalar Lárusson settur inn í emb- ætti prófasts í Reykjavikurpróf- astsdæmi vestra. Meðal efnis á stefnunni að þessu sinni verður umfjöllun um verk- stjórn, eftirlitsskyldu og umsjón prófasta. Prófastarnir séra Bragi Friðriksson og séra Ingi- berg J. Hannesson hafa fram- sögu. Þá mun séra Tómas Guð- mundsson prófastur fjalla um skipuiag þjónustu við gesti í or- lofshúsum og ferðamenn í próf- astsdæmunum, en tillaga um skipulega kirkjulega þjónustu af þessu tagi var samþykkt á síð- asta kirkjuþingi. Fræðslu- og þjónustudeild kirkjunnar mun kynna viðfangsefni sín á pró- fastastefnunni. Loks verður kynnt nýtt erindisbréf fyrir sóknarnefndir og reglur um kirkjur og kirkjubyggingar. Kosning í Dagsbrún um nýja kjarasamninga kærð til ASI Vilja að kosningin verði dæmd ógild KOSNING á félagsfundi í verka- mannafélaginu Dagsbrún þar sem nýgerðir kjarasamningar voru samþykktir hefur verið kærð til miðstjómar Alþýðusambands Ís- lands og er þess krafist að kosn- ingin verði ógilt og fari fram á nýjan leik. Samningamir voru samþykktir á Dagsbrúnarfundin- um með 290 atkvæðum gegn 252, 16 seðlar vom auðir og 21 seðill var dæmdur ógildur. Dreift var á fundinum 583 atkvæðaseðlum, skiluðu 4 seðlar sér ekki, þannig að talin atkvæði vom 579. Kæran var afhent Alþýðusam- bandinu í hádeginu í gær. Tveir Dagsbrúnarmenn hafa forgöngu um að kæra kosninguna, en hún er auk þess studd undirskriftal- ista sem 103 Dagsbrúnarmenn hafa skráð sig á og er þar einkum um að ræða starfsmenn skipafé- laga, olíufélaga, Pósts og síma og annarra ríkisstofnana, að sögn Friðriks Ragnarssonar, annars þeirra sem stendur fyrir kærunni. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að lög Dagsbrúnar hefðu verið brotin á fundinum. Samkvæmt lögunum ætti að safna atkvæðaseðlum saman í læstan kjörkassa og í öðru lagi hefðu at- kvæðaseðlar verið dæmdir ógildir, sem ekki hefði átt að dæma ógilda þar sem seðlarnir hefðu borið með sér hvernig viðkomandi hefði viljað haga atkvæði sínu. Hringur í staðinn fyrir kross Um væri að ræða 18 seðla, þar sem menn hefðu viljað fella samn- ingana, en ekki sett krossinn fyrir framan nei-ið heldur sett hring utan um það eða auðkennt það með öðrum hætti. Það hefði hins vegar ekki komið fram fyrr en búið var að dreifa atkvæðaseðlum að setja ætti krossinn fyrir framan já eða nei og þá hefðu margir verið búnir að greiða atkvæði. „Við viljum ekki koma af stað verkfalli eða neitt slíkt heldur vilj- um við að farið sé eftir reglum félagsins," sagði Friðrik. Halldór Björnsson, varaformað- ur Dagsbrúnar, var fundarstjóri á félagsfundinum. Hann sagði að það hefði verið farið í einu og öllu eftir lögum Dagsbrúnar á félags- fundinum og þrautreyndir menn séð um kosninguna og talninguna á eftir. Kærendur væru að rugla saman reglum sem giltu um kjör til stjórnar félagsins, sem gætu staðið í fleiri daga, við kosningu á fundum. Hann skildi ekki hvað mönnum gengi til því þó svo at- kvæðaseðlarnir sem úrskurðaðir voru ógildir hefðu verið teknir gild- ir myndi það ekki breyta niður- stöðu atkvæðagreiðslunnar. Halldór sagðist hafa áhyggjur af því að með svona framkomu og að sætta sig ekki við niðurstöðu löglegra kosninga væru menn að skaða félagið og orðstír þess og það væri mjög slæmt. I f i i Morgunblaðið/Sigurgeir JÓHANN Guðmundsson og Ingibergur Einarsson, starfsmenn Flugmálasljórnar í Eyjum, við nýja ruðningstækið framan við nýbyggða tækjageymsluna á flugvellinum í Eyjum. Ný tæki og geymsla við flugvöllinn í Eyjum Flýtir snjómokstri til mikilla muna Vestmannaeyjum. Morgunblaðið. Einn fluttur á slysadeild TVEIR bílar skullu saman á gatnamótum Miklubrautar og Bústaðavegar rétt fyrir klukkan níu í gærkvöldi. Báðir bílar voru óökufærir eftir áreksturinn. Ökumaður annars bílsins var færður á Slysadeild Borgarspítalans til rannsóknar. Talið var í gær- kvöldi að um lítils háttar meiðsl hafi verið að ræða. Brenndist þegar kvikn- aði í feiti í potti SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var kallað til um kl. 21 í gærkvöldi. Kviknað hafði í feiti í potti í íbúð við Álfta- hóla í Breiðholti. Er slökkviliðið kom á vett- vang hafði tekist að ráða nið- urlögum eldsins að mestu leyti. Maður sem var í íbúð- inni var fluttur á slysavarð- stofuna með lítils háttar brun- asár. TÆKJABUNAÐUR Vestmanna- eyjaflugvallar hefur aukist til muna síðustu ár og nú er unnið við lokafrágang á nýrri tækja- geymslu sem risin- er við flugvöll- inn. Tækin og tækjageymslan valda byltingu í allri umsjón vallar- ins og tekur snjómokstur á vellin- um nú mun skemmri tíma en áður. Tækjageymslan sem byggð hef- ur verið er 400 fermetrar að flatar- máli og þar inni rúmast öll tæki sem flugmálastjórn er með á veli- inum. Ýmsum frágangi innandyra er ólokið en farið er að nota geymsluna fyrir tækin. Nýlega bættist nýr Man-vörubíll í tækja- flota vallarins og verður hann að- alruðningstækið og mun sjá um að draga á eftir sér sóparann. Leysir hann af hólmi 40 ára gamla bifreið sem þjónað hefur þessu hlutverki hingað til en sú bifreið mun þó verða áfram til staðar í Eyjum. Að sögn Jóhanns Guðmundssonar, flugvallarstjóra, er völlurinn nú mjög vel tækjum búinn. Nýi bílinn verður aðalruðn- ingstækið en auk þess verður sá gamli notaður og blásari er á enn öðrum bíl. Þá eru sópari og sand- burðartæki á vellinum auk nýlegs slökkvibíls. Jóhann sagði að um síðustu helgi hefði verið 45 sentímetra jafnfallinn snjór á vellinum, sem er með því mesta sem verið hefur á vellinum, en ekki hafi liðið nema klukkutími frá því ruðningur hófst þar til fyrsta vélin fór í loftið og eftir tvo og hálfan tíma var Fok- ker-vél Flugleiða lent á vellinum. Jóhann sagði einnig að nýja tækja- geymslan ylli hreinlega byltingu í umhirðu við tækin. Þar til í vetur hefðu þau alltaf staðið úti og stundum verið hálf- full af snjó og óþæg í gang á vetr- um auk þess sem allt viðhald og umönnun hefði farið fram úti á plani oft við erfiðar aðstæður, því það gæti blásið hressilega á flug- vellinum í Eyjum. „Það hefur hreinlega orðið bylting hér við völlinn á síðustu árum og með til- komu nýrra tækja og tækja- geymslu er enn eitt stórmálið hér að komast í höfn,“ sagði Jóhann. Forsætisráðherrar Noregs og íslands Reglubundnir fundir með forysturíki ESB UTANRÍKISRÁÐHERRA kynnti ríkisstjórn í gær drög að bréfi sem ESB hefur samþykkt að Frakkar, sem nú eru forysturíki ESB, sendi íslendingum og Norðmönnum, með tilboði um nánara pólitískt sámstarf EES-ríkjanna. Ríkisstjórnin féllst fyr- ir íslands hönd á tilboð ESB, sem Norðmenn, núverandi forystuþjóð EFTA, hafa þegar lýst yfír að þeir telji fullnægjandi, en í því felst m.a. að forsætisráðherrar íslands og Nor- egs eigi reglubundna fundi með for- seta framkvæmdastjórnarinnar og leiðtoga forysturíkis ESB hveiju sinni. Talið er hugsanlegt að slíkir fund- ir yrðu haldnir í tengslum við alla leiðtogafundi sambandsins og gætu orðið tvisvar á ári. í yflrlýsingu ESB felst einnig að teknar yrðu upp viðræður milli ís- lands og Noregs annars vegar og framkvæmdastjórnar ESB hins vegar um mögulega samvinnu á sviði dóms- mála, löggæslu og tollgæslu og gert er ráð fyrir að komið verði á sam- ráði og skoðanaskiptum aðilanna á vettvangi alþjóðastofnana og milli sendimanna í svonefndum þriðju ríkj- um, þ.e. ríkjum sem standa utan EES. Einnig eru gefín vilyrði um að ís- land og Noregur fái upplýsingum um það sem fram fer á fundum leiðtogar- áðs og ráðherraráðs ESB og boðið upp á regiulega fundi utanríkisráð- herraríkjanna til að skiptast á skoð- unum varðandi EES. Ráðherraráð ESB samþykkti í fyrradag drög að orðalagi bréfs þess sem Frökkum var falið að koma áleið- is til Norðmanna, forysturíkis EFTA. Jón Baldvin Hannibalsson utanrík- isráðherra kynnti málið í ríkisstjórn í gær og að sögn Kristins T. Árnason- ar hjá viðskiptaskrifstofu utanríkis- ráðuneytisins samþykkti ríkisstjómin að fallist yrði á tilögur þær sem sett- ar eru fram í bréfí ESB um hið póli- tíska samráð EES-ríkjanna. Norðmönnum verður gerð grein fyrir samþykkt ríkisstjórnarinnar og mun utanríkisviðskiptaráðherra Nqi-- egs, Greta Knudsen, koma jákvæðum viðbrögðum beggja ríkjanna, íslands og Noregs, á framfæri við leiðtoga ESB. Bændur endur- nýja mjólkurkæla VEGNA banns á innflutningi á kælimiðlinum freon 12, sem tók gildi um síðustu áramót, þurfa bændur að endumýja flesta mjólk- urkæla, keypta á ámnum 1965 til 1975. Framleiðslu freons 12 hefur verið hætt og sá kælimiðill, sem virðist ætla að verða ráðandi í framtíðinni fyrir mjólkurkæla, nefnist R-134a. Hann hefur verið í notkun nokkur undanfarin ár, t.d. í Svíþjóð. Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá Áræði hf., sem flytur inn Mueller og SSP-mjólkurkæla. Þar segir að samkvæmt könnun, sem gerð var árið 1991, hafi 1.920 mjólkurkælar verið taldir í notkun hér á landi. Einnig segir að samstarf við mjólkursamlögin og samkaup mjólkurframleiðenda hafi gert Áræði hf. mögulegt að lækka verð á Mueller og SSP-mjólkurkælum vemlega. Þá segir að mjólkurfram- leiðendur geti fengið lán hjá Stofn- lánadeild landbúnaðarins fyrir 50% af kaupverði mjólkurkæla.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.