Morgunblaðið - 08.03.1995, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 08.03.1995, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1995 17 EVROPA Tollabandalag* kallar á lýð- ræðisumbætur Ankara. Reuter. TYRKIR fögnuðu í gær samningnum um tollabandalag • við Evrópusam- bandið, sem staðfestur var á utanrík- isráðherrafundi ESB á mánudag. Fréttaskýrendur vöruðu þó við því að Tyrkir yrðu að taka sér tak ef samningurinn ætti að nýtast þeim. Mehmet Ali Birand, helsti Evrópu- fréttaskýrandi dagblaðsins Sabah, benti á að ef Tyrkir breyttu ekki ýmsu í viðskiptalöggjöf sinni, s.s. varðandi einkarétt á hugmyndum og huglægum verkum, myndi það leiða til þess að samningurinn nýttist þeim ekki að fullu. Þá yrði að fella ýmis ólýðræðisleg ákvæði úr stjórnar- skránni, er sett voru af herstjóminni árið 1982. Aukinna mannréttinda krafist Annar dálkahöfundur Sabah, Cengiz Candar, sagði andstæðinga samningsins óttast að evrópskar framleiðsluvörur ættu eftir að flæða yfír tyrkneska markaðinn en gerðu sér ekki grein fyrir að tyrknesk fyrir- tæki fengju að sama skapi aðgang að hinum risavaxna Evrópumarkaði. „Tollabandalagið mun krefjast end- urnýjunar tyrkneskrar löggjafar. Það verður ekki lengur hægt að dæma Yasar Kemal í fangelsi fýrir að rita grein í Der Spiegel,“ sagði Candar. Vísaði hann þar til máls Yasars Kemals, eins þekktasta rithöfunds Tyrklands, sem á yfír höfði sér allt að fímm ára fangelsisdóm vegna greinar um málefni Kúrda, er hann ritaði í þýska víkublaðið. Evrópuþingið hefur gagnrýnt Tyrki harðlega fyrir mannréttinda- brot þeirra og hótað að neita að sam- þykkja samningin um tollabandalag fyrr en úrbætur verða gerðar. Murat Karayalcin, utanríkisráð- herra Tyrklands, benti í ræðu við undirritun samkomulagsins á mánu- dag, á að ekkert Evrópuríki hefði þurft að takast á við mál af þessu tagi undanfarin fímmtán ár. „Ekkert Evrópuríki býr við stjórnarskrá sem sett var af hemum. Ekkert annað ríki er undir stöðugum árásum hryðjuverkamanna," sagði Karayalc- in. StjórnarandsUtðan andvíg Dagblaðið Yeni Yuzi sagði sam- komulagið við ESB kosta sitt..„Evr- ópusambandið hefur gert það sem af því var ætlast þó að það hafí ver- ið erfiðleikum bundið. Nú vill það fá aukið lýðræði í Tyrklandi í staðinn," sagði blaðið. Helsti stjómarandstöðuflokkur- inn, Föðurlandsflokkurinn, hefur lýst yfir andstöðu við samkomulagið við ESB og sömu sögu er að segja af flokki heittrúaðra múslima og marx- ista. Velferðarflokkur múslima sagðist mundu ógilda samninginn kæmist hann til valda. „í þessu felst uppgjöf og það er verið að koma á nýlendu- stjóm,“ sagði Oguzhan Agilturk, flokksformaður. : : . . V:': W , •*« •• ' V\..........■ 4 Wfíívííyyo.vx ■■■* BRIAN Tobin, sjávarútvegráðherra Kanada, með kort af lögsög- unni við austurströnd landsins. Kanadískum lögum hefur verið breytt þannig að nú er heimilt að taka fiskiskip utan landhelginn- ar til að koma í veg fyrir rányrkju. Grálúðustríð við Kanada? Ottawa, London. Reuter. STJÓRNVÖLD í Portúgal mót- mæltu í gær þeirri ákvörðun Kanadastjórnar að banna grálúðu- veiðar utan kanadísku lögsögunnar í tvo mánuði en hún hótar því einn- ig að beita valdi til að koma í veg fyrir veiðar spánskra og portúgal- skra skipa. Brian Tobin, sjávarútvegsráð- herra Kanada, sagði á mánudag, að Kanadastjórn væri staðráðin í að koma í veg fyrir rányrkju á illa stöddum fiskstofnum utan lögsög- unnar, til dæmis með því að færa erlend fiskiskip til hafnar í Kanada. Utanríkisráðherrar Evrópusam- bandsins hafa mótmælt þessari yfír- lýsingu Kanadastjórnar, sem þeir segja, að sé brot á alþjóðalögum, og þeir segjast ekki geta fallist á, að grálúðuveiðarnar verði bannaðar í tvo mánuði. Hefur Emma Bonino, sem fer með sjávarútvegsmál í framkvæmdastjórninni, hótað hörð- um viðbrögðum án þess að nefna í hveiju þau yrðu fólgin. NAFO, Norðvestur-Atlantshafs- fískveiðinefndin, sem 15 ríki eiga aðild að, leggur til, að grálúðukvót- inn á þessu ári verði 27.000 tonn eða næstum helmingi minni en á síðasta ári. Þar af er Kanada út- hlutað 16.300 tonnum en Evrópu- sambandsríkjum, aðallega Spáni og Portúgal, aðeins 3.400 tonnum. A síðasta ári veiddu skip frá þessum tveimur ríkjum um 50.000 tonn. Á þetta vill Evrópusambandið, ESB, ekki fallast og hefur úthlutað sjálfu sér 18.630 tonna grálúðukvóta. Kanadastjóm bendir á, að ESB hafí áður virt tillögur fiskifræðinga að vettugi og með þeim afleiðingum, að spænsk skip hafi eyðilagt fisk- stofna á þessum slóðum, meðal ann- ars nyrðri þorskstofninn. Það kaupir sér enginn rúm og dýnur lengur nema að skoða fyrst og síðast Dýnu Gallerí Húsgagnahallarinnar. Á 2200 fm2 verslunarhæð er að finna allar hugsanlegar dynur frá Ameríku, Evrópu og íslandi ásamt rúmum, svefnsófum, bekkjum, hirslum í svefnherbergi ofl. ofl. Þægilegt viðmót og mikil vöruþekking starfsfólks gerir þér valið auðvelt og skemmtilegt þegar þú vilt sofa vel. Hér fyrir neðan getur að líta fimm sýnishorn af hinum sænsku dýnum frá Scandisleep sem hafa notið mikilla vinsælda. Dýna með einföldu gormakerfi. Frekar þétt og hentar léttu fólki, börnum og unglingum. Dýna sem er á góðu verði og yfirdýna fylgir. 80 cm kr 12.860,- 120 cm kr 19.500,- 90 cm kr 12.860,- 140 cm kr 21.750,- 105 cm kr 16.500,- Hún er alveg eins og Komfort en með tvöföldu gorma- kerfi og með bómullardúk. Hún er líka heldur mýkri en Komfort en telst samt frekar stíf. Þykk yfirdýna fylgir. 80cmkr 22.360,- 120 cm kr 38.700,- 90 cm kr 22.360,- 140 cm kr 46.950,- 105 cm kr 32.100,- 160 cm kr 48.600,- 90x210 kr.28.110,- Super dýnan er með tvöföldu gormakerfi en efra gorma- lagið er þéttara en í Medió dýnunni og því er dýnan mýkri. Super dýnan er líka með mjúka kanta og lagar hún sig vel að líkamanum. Þykk yfirdýna fylgir í verði. 90 cm kr 33.280,- 120 cm kr 47.700,- 105 cm kr 39.600,- 140 cm kr 53.400,- Þessi dýna er öll með tvöföldu gormakerfi. Hún er með svampstyrkta kanta þannig að betra er að sitja á brúninni. Vattefni er á milli laga sem er hljóðdeyfandi. Tilvalin dýna fyrir bakveika og þungt fólk . Ultraflex er til bæði í stífri gerð og mjúkri. þykk yfirdýna fylgir. 90 cm kr 42.960,-120 cm kr 60.300,- 105 cm kr 52.950,-140 cm kr 68.550,- 160 cm kr 76.800,- 90x210 kr 50.700,- 105x210 kr 55.500,- Dýna með tvöföldu gormakerfi. Efra gormalagið er úr svokölluðum pokafjöðrum en þá er hver einstakur gormur klæddur í fíltpoka. Þessir pokagormar eru sjálfstætt starfandi þ.e. þeir draga ekki gorminn við hliðina niður þó ýtt sé á hann. Þessi dýna er mjúk og styður vel við bakið og heldur hryggnum beinum. Mjög góð t.d fyrir eldra fólk. Þykk yfirdýna fylgir. 90 cm kr 45.120,-120 cm kr 68.850,- 105 cm kr 58.150,-140 cm kr 81.450,- 160 cm kr 92.850,- 90x21 Okr 55.560,- | 105x21 Okr 61.950,- ; Allar þessar dýnur geta staðið sjálfstætt og stundum þurfa hjón sitthvora dýnuna og er það allt í lagi því hægt er að skeyta þær saman; Þegar búið er að finna sér dýnu þá er að velja sér lappir og fást þær í ýmsum og gerðum t.d. hvítar, svartar, beyki ofl. Við bjóðum einnig mikið úrval af fallegum rumum, höfðagöflum og nánborðum sem hægt er að nota með dýnunum. Fyrir börn og unglinga er mjög vinsælt að setja rúmábreiðu með púðum á dýnuna og getum við boðið mjög falleg rúmteppaefni sem við saumum að eigin vali hvort sem er á einstaklingsrúm eða hjónarúm. Húsgagnahöllin i BILDSHOFÐA 20 -112 REYKJAVIK - SIMI 5871199 - Þegar þú vilt sofa vel
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.