Morgunblaðið - 08.03.1995, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1995 11
FRETTIR
Fyrsta loðnuskipið til Siglufjarðar á árinu
Morgunblaðið/Sigríður Ingvarsdóttir
KRISTJÁN L. Möller forseti bæjarstjórnar Siglufjarðar og Viðar Karlsson
skipstjóri á loðnuskipinu Víkingi AK með tertuna góðu á milli sín.
Morgunblaðið. Siglufirði.
„LOKSINS, loksins“ stóð meðal
annars átertu þeirri, sem Krist-
ján L. Möller, forseti bæjar-
stjórnar Siglufjarðar, afhenti
Viðari Karlssyni, skipstjóra á
Víkingi AK, þegar skipið land-
aði á Siglufirði sl. föstudag.
Víkingur er fyrsta loðnuskip-
ið, sem landar á Siglufirði á
þessu ári og þótti heimamönn-
um löngu orðið tímabært að
loðnuskipin færu að leggja leið
sína til Siglufjarðar, en vegna
veðurs hefur það reynst erfið-
leikum háð. Reyndar höfðu
sanddæluskipin Sóley og Skúfa-
nes, sem notuð hafa verið til
loðnuflutninga, flutt nokkra
loðnufarnta til Siglufjarðar svo
að bræðslan hefur verið í gangi
síðan 1. mars sl.
Víkingur landaði 1.350 tonn-
um af góðri Ioðnu, sem veiddist
út af Grindavík. Að sögn Viðars
„Loksins,
loksins“
Karlssonar, skipstjóra, er
vandamálið nú ekki það að veiða
loðnuna heldur að losna við
hana. Hann kvað slæmt að geta
ekki nýtt betur verksmiðjuna á
Siglufirði þar sem hún væri
stærsta og afkastamesta loðnu-
bræðsla landsins, en þangað
hafi ekki verið fært vegna veð-
urs. „I vitlausum veðrum er
varla hægt að taka sjensinn á
því að sigla með fullfermi lang-
ar leiðir. Venjulega tekur þessi
sigling sólarhring, en að þessu
sinni tók ferðin alls 34 tíma. í
þeirri norðanátt, sem ríkjandi
hefur verið, er versti kafli leið-
arinnar frá Horni að Húnaflóa."
Annars sagði Viðar að erfitt
væri að gera loðnusjómönnum
til geðs því þeir vildu hafa
norðanátt við veiðarnar, en
sunnanátt á siglingu til hafnar.
Að lokum sagðist Viðar víða á
landinu hafa fengið loðnutert-
ur, en þær frá bakaríinu á Siglu-
firði væru þær albestu enda
væri þetta í fjórða skiptið sem
hann hreppti loðnutertuna úr
höndum forseta bæjarstjórnar.
Aftur á móti þurfti að þessu
sinni að bíða dálítið eftir tert-
unni meðan verið var að ryðja
veginn til Siglufjarðar því
mjólkur- og ijómalaust var í
bænum, en sem betur fór komst
mjólkurbíllinn í bæinn og Baldi
bakari gat skellt vel af rjóma á
tertuna góðu handa áhöfn Vík-
ings.
Lögreglufélög á höfuðborgarsvæðinu
Niðurskurður
endurspeglast
í fjölgun glæpa
FELAGSFUNDUR Lögreglufé-
lags Reykjavíkur, sem haldinn var
3. mars sl., samþykkti ályktun þar
sem niðurskurði á fjárveitingum
til löggæslu er mótmælt. Hann er
sagður endurspeglast í þjóðfélag-
inu; fíkniefnaneysla og glæpatíðni
séu að aukast og með fjársvelti
sé vegið að öryggishagsmunum
lögreglumanna og þegna landsins.
Á aðalfundi Lögreglufélags
Hafnarfjarðar var niðurskurður
fjárveitinga til löggæslu einnig til
umræðu.
í ályktun Lögreglufélags
Reykjavíkur segir að ástandið sé
orðið þannig að stór verkefni lami
lögregluna í langan tíma á eftir
vegna þess að þá sé ekkert fjár-
magn eftir til að halda uppi venju-
bundinni löggæslu.
Lögreglan getur ekki
sinnt hlutverki sínu
Notkun hjálparsveitarmanna til
löggæslustarfa er gagnrýnd og í
því sambandi minnt á þegar þeir
hafi í síðustu viku verið notaðir
til að leita að ræningjum. Á sama
tíma sé með niðurskurði verið að
minnka getu sérsveitar lögregl-
unnar til að fást við verkefni sín.
„Það er mat fundarins að nú
sé svo komið að almenningur get-
ur ekki treyst því að lögreglan
geti alltaf sinnt hlutverki sínu þeg-
ar mikið liggur við,“ segir í
ályktuninni.
Aðalfundur Lögreglufélags
Hafnarfjarðar, sem haldinn var
Náttúrulagaflokkur íslands býður fram í Reykjavík við alþingiskosningarnar
SJÁLFSTÆTT stjórnmálaafl und-
ir heitinu Náttúrulagaflokkur ís-
lands býður sig fram í Reykjavík
til komandi Alþingiskosninga.
Náttúrulagaflokkurinn leggur
áherslu á að komið verði á fót svo-
kölluðum samstillingarhóp og nýti
hann áhrifamikla, sannprófaða vit-
undaraðferð „TM-shidhi-kerfið“,
til að eyða streitu úr andrúmsloft-
inu, bæta tíðarandann og skapa
grundvöll til framfara á íslandi að
því er segir í fréttatilkynningu.
Sköpunarhæfni skortir
Uáttúrulagaflokkurinn hyggst
bæta þjónustu heilbrigðiskerfisins
Streitu eytt úr
andrúmsloftinu
og spara tilkostnað með náttúru-
legri heilsugæslu og náttúrulækn-
ingum og með því að bæta tíðar-
andann með samstillingarhópnum.
í menntamálum verður lögð
áhersla á vitund nemandans sem
grundvöll til alls náms.
Um atvinnumál segir meðal
annars í fréttatilkynningu að vandi
atvinnuveganna og lág laun á ís-
landi stafi alfarið af skorti á sköp-
unarhæfni íslenskra atvinnurek-
enda og launafólks. Stöðva á glæpi
með því að skapa andrúmsloft þar
sem afbrot þrífast ekki. „Um 40
rannsóknir hafa sýnt að samstill-
ingarhópar sem eyða streitu úr
huga eða vitund þjóðarinnar
minnka tíðni glæpa, slysa og sjúk-
dóma en auka bjartsýni og sköp-
unarhæfni samfélagsins," segir í
fréttatilkynningunni.
Á N-listanum eru Jón Halldór
Hannesson, framkvæmdastjóri,
Örn Sigurðsson, kerfisfræðingur,
Ingimar Magnússon, garðyrkju-
maður, Edda Kaaber, bókavörður, ■
Halldór Birgir Olgeirsson, vél-
stjóri, Rúna Björg Garðarsdóttir,
leiðsögumaður, Árni Sigurðsson,
jarðeðlisfræðingur, og Guðjón
Björn Kristjánsson, framkvæmda-
stjóri.
15. febrúar sl., lýsti áhyggjum sín-
um vegna þess öryggisleysis sem
niðurskurður á fjármagni til lög-
gæslu leiðir til. „í þeim tilgangi
að skera niður kostnað við auka-
vinnu og rekstur löggæslu í veik-
inda og forfallatilfellum, hefur það
viðgengist að þriðjungur þeirra
lögreglumanna sem eftirlitsstörf-
um sinna yfir háannatímann að
deginum til, tveir lögreglumenn
af sex, hafi verið látinn vanta á
vaktir.
Niðurskurður þessi leiðir til þess
m.a. að eftirlit með umferð minnk-
ar til muna. [... ] Jafnframt
þessu dregst saman eftirlit við
skóla og á skólaleiðum og lögregl-
an verður illa eða vart í stakk
búin að takast á við stór og viða-
mikil verkefni sökum manneklu, á
sama tíma og viðurkennd er sú
staðreynd að í samfélaginu fjölgar
jafnt og þétt afbrotum ýmiskonar,
að því er virðist í réttu hlutfalli
við niðurskurð til löggæslu," segir
í ályktun fundarins.
Ekki niðurskurður
Þorsteinn Pálsson dómsmála-
ráðherra segir þaá á misskilningi
byggt að um niðurskurð á fjár-
heimildum til lögreglunnar í
Reykjavík sé að ræða á þessu ári,
þær hafi aukist um 30 milljónir
króna á milli áranna 1994 og
1995.
Aðspurður um það hvort ekki
þurfi að styrkja löggæslu í ljósi
aukinna glæpa, svo sem fram komi
í ályktunum félaganna, sagði Þor-
steinn að að því væri unnið með
margskonar skipulagsbreytingum
og nefndi sem dæmi að á þessu
ári væri verið að styrkja rann-
sóknarlögregluna varðandi rann-
sóknir á efnahagsbrotum.
„Auðvitað geta menn alltaf ósk-
að sér að hafa meiri fjármuni en
í þessum efnum verða menn líka
að horfa á það að ná fram þeim
áherslum sem nauðsynlegar eru
taldar með bættu og betra skipu-
lagi og meiri hagræðingu. Og ég
minni á að lögreglan í Reykjavík
hefur haft það að forgangsverk-
efni að styrkja grenndarlöggæslu
úti í hverfunum og með forvarnar-
starfi. Við erum ekki í nokkrum
vafa um að það hefur skilað veru-
legum árangri,“ sagði Þorsteinn.
NYJA BILAHOLLIN
FUNAHOFDA V
S: 5
Toyota Double Cap diesel Turbo árg.
93, ek. 58 þús. km., rauöur, hús, 31"
dekk. V. 1.990.000. Ath. skipti.
AMC Cherokee Laredo 4,0 I árg.'90,
ek. 89 þús. km., hvítur, sjálfsk., álfegur.
.V. 1.890.000. Ath. skipti.
AMC Cherokee Laredo 4,01 árg. ‘87,
ek. 128 þús. km., vínrauður, sjálfsk.,
álfelgur, sumar- og vetrardekk, upph.
V. 1.250.000. Ath. skipti
Mazda 626 GLXi 2,0 árg. '92, grár, R/R
cen., álfelgur, sjálfsk. V. 1.590.000.
Ath. skipti.
M. Benz 230E árg. '91, ek. aöeins
4.500 km., grár, R/R cen, sóllúga, ABS,
CC, 4-H, H-sæti o.fl. V. 3.500.000.
Ath. skipti.
Nissan Sunny 1,6 SLX árg. ‘92, ek. 49
þús. km., hvítur, sjálfsk., R/R cen,
spoiler. V. 890.000. Ath. skipti.
FUNAHOFÐA I
S: 5
MMC Pajero Super Wagon árg. '92,
grænsans./gullsans., sjálfsk., álfelgur,
sóllúga, ek. 54 þús. km. V. 3.150.0 00.
Skipti á ódýrari Toyota Landcrusier.
Nissan Sunny Wagon 4WD árg. '95,
silfurgrár, álfelgur, upph., ek. 50 þús.
km. V. 1.590.000.
Toyota Corolla 1600 XLi árg. '93,
rauður, sjálfsk., ek. aðeins 21 þús. km.
V. 1.090.000. Skipti á ódýrari.
Hyundai Pony GLSi árg. '94, sjálfsk.,
vökvastýri, ek. aðeins 11 þús. km.
V. 1.090.0 00. Skipti.
Nissan Terrano diesel árg. '94,
grænsans., álfelgur, sóllúga, ek. 26
þús. km. V. 3.150.000. Skiptj.
MMC Pajero árg. '88, hvítur, diesel,
krómfelgur, 31" ný dekk, ek. 160 þús.
km. V. 1.350.0 00. Toppbfll.
NU ER BESTI SOLUTIMINN FRAMUNDAN VANTAR ALLAR GERÐIR BILA A STAÐINN