Morgunblaðið - 08.03.1995, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Tillaga frá ráðgjöfum Bills Clintons, forseta Bandaríkjanna
Senuþjófur á SÞ-ráðstefnimni
„Námskynning 1995“
nk. sunnudag
Hvað eru mörg n í því?
Samskipti við Kúbu bætt
Washington. Reuter.
RÁÐGJAFAR Bills Clintons
Bandaríkjaforseta á vettvangi ut-
anríkismála hafa hvatt hann til að
freista þess að bæta samskiptin við
Kúbu. Að sögn bandaríska dag-
blaðsins The Washington Post
leggja ráðgjafamir til að fyrstu
skrefín felist í því að slakað verði
á efnahagsþvingunum sem stjóm-
völd á Kúbu hafa verið beitt frá því
í ágúst í fyrra.
Blaðið hafði eftir ónefndum
embættismönnum að lagt hefði
verið til við forsetann að aflétt
yrði banni við peningasendingum
kúbverskra útlaga til heimalands-
ins. Jafnframt yrði slakað á
ströngum reglum sem gilda um
ferðir bandarískra ríkisborgara til
Kúbu. í frétt blaðsins var tekið
fram að Bandaríkjaforseti hefði
enn ekki lagt blessun sína yfir
áætlun þessa.
30.000 flóttamenn
í fyrrasumar ákvað Fídel Castro
Kúbuleiðtogi að slaka skyldi á
eftirliti meðfram ströndum Kúbu
og leiddi það til þess að á að giska
30.000 manns kusu að flýja
heimaiandið á flekum og bátkæn-
um sem bára flóttafólkið að
ströndum Florida. Fólksflóttinn
skapaði mikinn vanda í Bandaríkj-
unum og ákvað Clinton loks að
heimila fólkinu að taka Iand í
Bandaríkjunum.
Bandaríkjastjóm ákvað hins
vegar að grípa til efnahagslegra
refsiaðgerða í þvi skyni að þvinga
Castro til að stöðva flóttamanna-
strauminn. í frétt Washington
Post var haft eftir háttsettum
bandarískum embættismanni að
tímabært væri að láta reyna á
hvort leiðtogi Kúbu væri nú tilbú-
inn til að innleiða umbætur á vett-
vangi efnahags- og stjórnmála.
Híllary þakkar
grasrótinni
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
EFTIR að hafa haft hægt um sig undanfarna mánuði ávarpaði Hill-
ary Clinton, forsetafrú Bandaríkjanna, í gær ráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna um félagslega þróun. Meginboðskapur hennar var að ýms-
ar breytingar til hins betra hefðu komið frá grasrótarsamtökum og
því var ávarpi hennar vel tekið á Hólmanum í Kaupmannahöfn þar
sem slík samtök hafa bækistöðvar sínar meðan á ráðstefnunni stendur.
Hillary Clinton kom með for-
setaþotunni í bítið í gærmorgun
og ávarpaði síðan ráðstefnuna.
Ræða hennar fjallaði mjög um
konur og henni var einkum beint
til grasrótarsamtakanna, sem fjöl-
menna á sína eigin hliðarráð-
stefnu. Hún minnti á mikilvægt
hlutverk þeirra með því að vekja
athygli á því sem betur mætti fara
og sagði dýrmæta reynslu felast
í starfsemi þeirra. Því ættu ríkis-
stjórnir heimsins að hlusta á þessi
samtök og byggja á starfi þeirra.
Stuðningur við konur í þriðja
heiminum
Afnám þrælahaldsins í Banda-
ríkjunum og aukið jafnrétti
kvenna væri eingöngu slíkum
samtökum að þakka. I hádeginu
snæddi forsetafrúin hádegisverð
með Poul Nyrap Rasmussen, for-
sætisráðherra Dana, og Lone Dyb-
kjör, þingmanni og eiginkonu for-
sætisráðherrans. Síðar um daginn
heimsóttí hún danskt tómstunda-
heimili. í dag mun forsetafrúin
kynna fyrirætlaðan stuðning
Bandaríkjastjórnar við konur í
þriðja heiminum.
Hólminn ekki öruggur
Upphaflega var áætlað að Hill-
ary Ölinton ávarpaði grasrótar-
samtökin í Hólmanum en ekki ráð-
stefnuna í Bella Center. Eftir að
öryggissérfræðingar höfðu skoðað
aðstæður í Hólmanum í síðustu
viku var þó horfið frá því, þar sem
ekki væri hægt að koma við nauð-
synlegri öryggisgæslu. Forset-
afrúin hefur ekki komið fram opin-
berlega undanfama mánuði og er
það rakið til mikillar gagnrýni sem
hún hefur orðið að þola fyrir af-
skiptasemi og hvassar skoðanir.
Fulltrúi Bandaríkjsstjórnar á leið-
togafundi ráðstefnunnar í vikulok-
in verður A1 Gore varaforseti.
Reuter
Samiðí
Þýskalandi
WERNER Neugebauer, forseti
stéttarfélagsins IG Metall, Karl
Bayerr, fulltrúi stéttarfélagsins
VBM, og Rainer Hildman, aðal-
samningamaður málmframleið-
enda, undirrita nýjan kjarasamn-
ing í Mtinchen í gærmorgun. Með
undirritun samkomulagsins var
bundinn endi á fyrsta verkfall í
þýskum málmiðnaði í ellefu ár. í
samningunum felst fjögurra pró-
senda kauphækkun og vöruðu
efnahagssérfræðingar við að
hætta væri á að þeir myndu
kynda undir verðbólgu. Verð á
þýskum hlutabréfum hækkaði
nokkuð í kjölfar kjarasamning-
anna.
Aftöku
sjón-
varpað
TÓLF lögreglumenn í Rio de Jan-
eiro verða sóttir til saka fyrir morð
og aðild að morði eftir að sjónvarps-
stöð sýndi myndir þar sem einn
þeirra sést skjóta ræningja í bakið
þrisvar sinnum meðan aðrir héldu
honum niðri. Ræninginn hafði þá
verið afvopnaður.
Tugmilljónir manna sáu útsend-
inguna og hún vakti mikla umræðu
um starfshætti lögreglunnar, að
sögn fréttastofunnar AP.
Þrír vopnaðir menn höfðu reynt
að ræna brynvarða bifreið sem var
að flytja peninga úr verslanamið-
stöð i Rio de Janeiro á laugardag.
Lögreglumennimir komu á vett-
vang áður en mennimir komust
undan. Einn þeirra, bílstjóri, var
skotinn til bana. Sjónvarpsmennirn-
ir voru staddir þama vegna annarr-
ar fréttar og náðu myndum af því
þegar lögreglumennirnir köstuðu
öðrum ræningja á götuna og drógu
hann síðan að bílnum. Svo virðist
sem lögreglumaðurinn, sem skaut
ræningjann, hafi vitað af sjón-
varpsliðinu.
------------
Jackson í
framboð?
London. Reuter
BLÖKKUMAÐURINN Jesse Jack-
son segist vera hæfur til að verða
næsti forseti Bandaríkjanna og
kveðst hafa áhuga á embættinu.
í samtali við útvarpsstöðina BBC,
sem sent verður út næstkomandi
sunnudag, sýnir hann visst fálæti í
garð Bills Clintons forseta en segir
þó ekki afdráttarlaust hvort hann
muni keppa eftir útnefningu demó-
krata fyrir kosningarnar á næsta ári.
Clinton og Jackson, sem kunnur
er fyrir baráttu sína fyrir réttindum
blökkumanna, hefur margsinnis
greint á um lausn mála. Hann' segir,
að forsetaframboð af sinni hálfu
myndi snúast um „efnahagslegt ör-
yggi, atvinnumál, heilbrigðismál og
að öllum verði tryggð fullnægjandi
menntun."
Reuter
HILLARY Clinton flytur ræðu sína á ráðstefnunni um félags-
lega þróun. í dag mun hún boða stuðning Bandaríkjastjórnar
við menntun kvenna í þriðja heiminum.
Kossa-
laust
svæði
Edinborg. The Daily Telegraph.
SKÓLASTJÓRI einkaskóla í
Skotlandi hefur sett þá reglu
að ástfangnir nemendur haldi
sig í að minnsta kosti 15 sm
fjarlægð hver frá öðrum í
grennd við skólann vegna þess
að „það er vor í lofti“.
Skólastjórinn, sem tók við
embættinu í fyrra, setti „sex
tommu regluna“ eftir að sést
hafði til nemenda kyssast á
götunum við skólann. Einn
nemendanna sagði að fyrir-
mæli skólastjórans hefðu kom-
ið mjög á óvart.
Veltust um af hlátri
„Við voram í samkomusaln-
um þegár hann stóð upp og
sagðist hafa sett þessa „sex
tommu reglu“ vegna þess að
það væri „vor í lofti“,“ sagði
nemandinn. „Hann hélt síðan
áfram og útskýrði hvað þetta
þýddi. Nemendurnir bókstaf-
lega veltust um af hlátri þegar
þeir komu út.“
Skólinn er í bænum Dollar
og nefnist Dollar Academy.
Hann var stofnaður árið 1818
og lengi þekktur fyrir siða-
vendni en aukins fijálslyndis
fór að gæta þar fyrir nokkrum
áram. Því ætlar nýi skólastjór-
inn að breyta.