Morgunblaðið - 08.03.1995, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 08.03.1995, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1995 29 AÐSENDAR GREINAR Réttur nemenda kjör kennara STJORNVOLD kennarar og foreldrar sjá fyrir sér bætta menntun barna í fram- tíðinni, lengri viðveru í skólunum og mögu- leika nemenda á að neyta málsverðar í minnst 30 mínútna matarhléi. Vissulega er þetta falleg framtíð- arsýn og gefur mörg- um von um lausn á því ófremdarástandi sem hefur verið eignað grunnskólanum. En ekki er allt sem sýnist. Áður hafa verið sett í lög háleit mark- mið um þjónustu grunnskólans. 1974 voru sett í lög ákvæði um vikulegan kennslutíma á hvern nemanda. 10 ára barn átti þá að fá 32 kennslustundir á viku. I dag, 21 ári síðar hefur þessu markmiði ekki verið náð. Menntamálaráðu- neytið gefur út öðru hveiju auglýs- ingu um fjölda kennslustunda (viðmiðunarstundaskrá) og hvernig þær skiptast milli námsgreina. Síð- asta auglýsing var gefin út 13. apríl 1992 og þar kemur m.a. fram að 10 ára barn skal fá að lágmarki 28 kennslustundir á viku. Úr 28 í 35 kennslustundir um næstu aldamót Samkvæmt því frumvarpi til grunnskólalaga sem nú liggur fyrir á Alþingi er gert ráð fyrir að 10 ára barn fái að lágmarki 29 kennslustundir á viku haustið 1995 og flölgi síðan um 1-2 kennslu- stundir á ári þar til markmiðinu 35 kennslustundir á viku er náð haust- ið 1999. Að fá þennan draum tii að ræt- ast er öllu erfiðara. í dag fær nem- andinn ekki nema um 25-28 kennslustundir á viku í grunnskól- um landsins. Hvers vegna? 1. Ríkissjóður reiknar út hversu margar kennslustundir hver skóli skal fá miðað við nemendafjölda. 2. Skóli hefur til ráðstöfunar 3 Sigurður R. Sigurbjörnsson kennslustundir á viku af þessum 28 sem hann nýtir til að skipta bekk milli verklegra greina t.d. smíðar/saumar, heimilisfræði/mynd- mennt eða tölvu- fræðsla/bókasafn. 3. Alls kyns aðrir þættir skólastarfsins skerða kennslustunda- fjöldann enn frekar t.d. safnaferðir, vettvangs- ferðir, þemavikur, læknisskoðun, tann- lækningar, leikæfing- ar, söngur á sal, dans- kennsla, vímuefna- fræðsla, umferðar- fræðsla, brunaæfingar, göngutúrar, jólaföndur, páskaföndur, kannanir, próf, skíðaferðir, skautaferðir skólaferðalög, heimsóknir utanað- komandi aðila, móttaka og lestur auglýsinga sem berast frá fjölmörg- um aðilum um námskeið eða tóm- stundastörf og svona mætti lengi telja. Samtals giska ég á að skerð- ingin geti verið 1-2 kennslustundir til viðbótar með framansögðu, svo að 10 ára barn fær ekki nema 23-24 hreinar kennslustundir á viku. Og foreldrar og menntamál- ráðherra undrast yfir illa nýttu skólaári. Sem sagt; í stað 32 kennslu- stunda eins og leidd voru í lög fyr- ir 21 ári, fær nemandinn aðeins 23-26 kennslustundir. Þessi kennslustundafjöldi er nálægt því sem danskt barn fær á viku í dag eða um 24 kennslustundir á viku, að vísu 10 mánuði ársins á móti 9 hjá okkur. Þol íslenskra skólabarna Haustið 1999 er gert ráð fyrir að 10 ára barn fái að lágmarki 35 kennslustundir á viku. Þær verða þá 6-7 kennslustundir á dag. At- hyglisvert er að ekkert hámark er tilgreint í frumvarpinu en í dönsku grunnskólalögunum sem tóku gildi 1. ágúst 1994 er kveðið á um há- mark 6 kennslustundir á dag fyrir 10 ára barn. Meiri hluti mennta- málanefndar virðist engar áhyggjur hafa af því hvort verið sé að of- bjóða íslenskum börnum með 7 kennslustunda setu á dag um næstu aldamót. Með hliðsjón af ákvörðun Dana um hámark kennslustunda- . fjölda og hins vegar ákvörðun ís- lenskra ráðamanna má álykta sem svo að íslensk börn þoli miklu lengri skóladag en dönsk börn. En hvers vegna setja íslensk yfirvöld sér svona háleit markmið? Danmörk - ísland Fróðlegtr er að bera saman rétt nemenda hvað varðar lengd skóla- árs, fjölda kennslustunda á dag, viku og ári í Danmörku annars veg- ar og hér á íslandi hins vegar. At- hugið að þrátt fyrir færri kennslu- daga og kennslustundir á ári stefnir í yfirgnæfandi fleiri kennslustundir íslenskra skólabarna eða í um 244 kennslustundum fleiri en danskra barna. Þrátt fyrir lægri laun grunnskólakennara á íslandi er þeim ætlað að kenna 10 ára nem- endum 118 kennslu- stundum fleiri en dönsk- um grunnskólakennur- um, segir Sigurður R. Sigurbj örnsson. Einnig er fróðlegt að sjá hvernig kjör kennara eru í dag miðað við nágrannaþjóð og hvernig þau koma til með að breytast í haust og um aldamót. Byijunarlaun kennara hækka úr 45.000 kr. í 74.000 kr. ef stjómvöld standa við aukningu kennslustunda. En stjórnvöld hafa áður sýnt að þau geta ekki uppfyllt eigin væntingar um lágmark kennslustundafjölda handa nemend- um svo reikna má með að þær verði aðeins 32 eins og stefnt var að 1974 og umsjónarkennarinn fái þá 21 kennslustund með 5. bekk og hafí þá aðeins um 65.000 kr. í mánaðar- Íaun. Þrátt fyrir miklu lægri laun gmnnskólakennara á íslandi er þeim ætlað strax á næsta ári að kenna í Danmörku Á íslandi Mismunur Réttur neniandans: Lágmarks kennslust.fj. á viku í dag: 24 28 +4 Lágmarks kennslust.fj. á viku í haust: 24 29 +5 Lágmarks kennslust.fj. á viku haustið '99: 24 35 +11 Hámarks kennslustundafjöldi í dag: 6 Kennsludagar á ári i dag: 200 159 -41 Kennsludagar á ári í haust og haustið ’99: 200 172 -32 Kennslustundirááriídag: 960 890 -70 Kennslustundir á ári í haust; 960 998 +38 Kennslustundir á ári haustið ’99 960 1204 +244 Skylda kennarans: (Kennsluskylda) Fjöldi kst. á viku í dag: 22 29 +7 (Fullt starf) Fj. kst. á ári í dag: 880 922 +42 (Fullt starf) Fj. kst. á ári í haust og haustið 99: 880 998 +118 Kjör kennarans: Laun eins og þau eru í dag að frádregnum stéttarfélagsgjöldum og án samninga við kennara. Sú vinna sem býðst kennara í einsetnum skóla í dag. í Danmörku Á Islandi Mismunur Fyrir kennslu á 5. bekk, 20 kst. Byijunarlaun umsjónarkennara á mánuði 162.000 45.000 -117.000 Laun eftir 15 ára starfsreynslu á mánuði: 184.000 58.000 -126.000 Laun eins og þau verða um aldamótin að meðtöldu 740 millj. kr. framlagi ríkisins (fjölg- un kennsludaga um 12 og aukningu kennslustunda í 35 á viku) og að meðtaldri krónutölu- hækkun ASÍ frá 21. feb. ’95 Fyrir kennslu á 5. bekk, 24 kst. Byijunarlaun umsjónarkennara á mánuði: 192.000 74.000 -118.000 Laun eftir 15 ára starfsreynslu á mánuði: 218.000 91.000 -127.000 10 ára nemendum 118 kennslu- stundum fleiri en dönskum grunn- skólakennurum. Eftir gaumgæfilegan lestur þess- arar greinar ætti enginn vel læs íslendingur að velkjast í vafa um að kennarar geta hreinlega ekki lengur látið traðka á sér með því að bæta á sig vinnu í stað þess að minnka kennsluskylduna úr 29 kst. í það sem nemur fjölda klst. í bókleg- um greinum eins bekkjar í grunn- skóla, eða niður í 18-23 kst. á viku. Það telja kennarar sem reynsluna hafa, vera fulla vinnu og vel það. Þess eru dæmi að kennslukonur hafa hætt kennslu og snúið sér að leikskólakennslu, róluvallargæslu, störfum dagmæðra og öðmm störf- um sem bjóðast til að losna við yfír- ferð verkefna, prófa og undirbúning sem oftast verður kvöld- og helgar- vinna vegna skorts á vinnuaðstöðu í skólunum eða nauðsyn á gæslu eigin barna hálfan daginn. Oft er spurt. Hvers vegna hættið þið þá ekki að kenna úr því starfið er svona illa launað? Loksins höfum við svarið. Við höfum lagt niður vinnu og byijum ekki aftur fyrr en samið hefur verið við okkur um sanngjörn laun fyrir þá vinnu sem við innum af hendi, með tilliti til þess að við getum ekki bætt okkur upp tekjumissi vetrarins með sum- arvinnu eins og áður var hægt. Það má ekki gleymast að við kennarar erum ekki aðeins að beij- ast fyrir eigin kjörum. Kennarar hafa síðustu áratugina gert meira en þeim bar skylda til að bæta úr námsbóka- og verkefnaskorti. Á áttunda áratugnum varð kennari menntamálaráðherra sem beitti sér fyrir endurnotkun kennslubóka sem grunnskólunum var árlega úthlut- að. Þetta var gert í sparnaðarskyni og þótti alveg sjálfsagt. Það fylgdi með að þessi sparnaður myndi nýt- ast á annan hátt í skólastarfi. Síð- ustu fimm árin hefur framkvæmda- fé Námsgagnastofnunar dregist saman um 144 milljónir eins og kemur fram i grein forstjóra Náms- gagnastofnunar í Mbl. 25. feb sl. Hvernig yrði ástandið í skólum landsins ef kennarar legðu niður námsgagnagerð? Hvað þyrfti ríkið að greiða kennurum árlega ef þeir krefðust greiðslu fyrir þessa vinnu? Þrátt fyrir alla þessa sjálfboðavinnu eru kennarar með djúpa sektar- kennd þessa dagana vegna þeirra barna sem verkfallið bitnar mest á. Höfundur er kennari. Athugasemd við aðfinnslu Svar til Jóhanns Gunnars Arnarsonar ÉG varð undrandi þegar ég las grein eftir þig, Jóhann Gunnar Arn- arson, í Morgunblaðinu 7. febrúar sl. Ég var hissa á því að þú telur danskeppni sem þú fjallar um skrípa- leik, en hefur ekki leitað til mín eft- ir upplýsingum um keppnina. Ummæli og athugasemdir sem ég hef fengið eftir þessa danskeppni minna mig á söguna um litlu gulu hænuna. Þar sem ég hef undanfarin ár ýtt á aukið samstarf við áhugamenn og fullyrt að þar hefðum við góðan hóp aðila sem hjálpað gæti við ýmiskon- ar vinnu tengda danskeppnum lang- ar mig að vitna í orð Brynjars M. Valdimarssonar, formanns SIÁ, Sambands íslenskra áhugadansara, en hann sagði að þörf væri á _að virkja áhugamenn í ýmis verk. Ég er viss um að við hefðum fengið fleiri aðila tíl að hjálpa við þá vinnu sem framkvæmd var hefðu þeir vitað hvað var verið að gera fyrir dansara framtíðarinnar. Það hefði mátt koma fram í fréttatilkynningu um keppn- ina að búast mætti við töfum vegna þess að verið væri að þjálfa áhuga- menn í tölvuvinnslu og láta þátttak- endur og aðra vita um væntanlega nýtt fyrirkomulag á fjáröflun fyrir dansara en sú tillaga sem verið er að þróa er að hluta eftirfarandi: Með smávægilegum breytingum gætum við í samvinnu við áhuga- menn aukið tekjur, dregið úr kostnaði og búið til keppnis- og af- reksmannasjóð og safn- að með því fé sem nota mætti í sjóði og til greiðslu á ýmsum gjöld- um, s.s. félagsgjöldum hjá erlendum sambönd- um áhugamanna og at- vinnumanna. Keppnis- sjóður yrði fyrir at- vinnudansara og áhugadansara sem fara utan. Tveir sjóðir yrðu stofnaðir, til að mynda félagsgjalda- og Blackpool- sjóður. a) Tölvuvinnsla í höndum áhuga- manna, sparnaður frá kr. 160- 350.000 yfir veturinn. Verðlaun, keppnisdagskrá, tímatafla og sala á auglýsingum í skrána. Þeir aðilar sem sjá um þessa vinnu eru aðstand- endur áhugamanna í samvinnu við danskennara. b) Afreksmannasjóður. Veittur verði styrkur úr A-sjóði til Blackpo- ol-fara, miðað við getu sjóðsins. Veittur verði styrkur úr B-sjóði til þeirra sem unnið hefðu sér rétt til að taka þátt í heimsmeistara-, Evrópu- og Norður- landamótum áhuga- manna og atvinnu- manna. Á danskeppninni sem var 5. feb. si. var mitt verk fyrst og fremst að þjálfa lið áhugamanna í tölvuvinnslu og var reiknað nieð því að tafir yrðu á dagskrá. Sett voru ýmis hlé í keppn- inni til að geta lagfært tafir vegna þessa. Jó- hann Gunnar, nú vísa ég í það sem þú ritaðir í Mbl. 30. nóv. sl.: „Seinkanir á tíma- töflu eru ávallt slæmar og valda því að nánast ómögulegt er að segja keppendum til um það hvenær þeir dansi næsta „round“. Ég myndi einnig mæla með að í næstu tíma- töflu yrðu sett fleiri smáhlé inn á milli, ef tlmataflan fer þá eitthvað úr skorðum er hægt að sleppa hléum eða lengja, eftir því sem við á.“ Undanfarin ár hefur tímatafla staðist tvisvar og var það í nóvem- ber 1993 og október 1994. Ég var við tölvuna frá kl. 11.00 til kl. 19.30 I sjálfboðavinnu og fékk 15 mín. hlé á öllum þeim tíma, ég tel að ég hafi lokið þeirri leiðsögn sem ætlast var til af mér kl. 13.00 en það vantaði fólk í vinnu svo ég var áfram. Hér svarar Níels Ein- arsson gagnrýni á framkvæmd danskeppni 5. febrúar sl. Vegna þeirra aðila sem voru ósátt- ir við gang á þessari danskeppni og vissu ekki um þær breytingar og nýtt fyrirkomulag á íjáröflun og sparnaðaraðgerðum skal ég bera alla ábyrgð og biðjast afsökunar á þeim þáttum sem sneru að mér. Aftur á móti langar mig að upplýsa um aðrar ástæður en þjálfun á starfsfólki fyrir töfum á þessari dan- skeppni. Breytingar á riðlum voru þannig, að skráðir þátttakendur í riðla voru ekki samkvæmt mætingu í keppnina. Breytingar voru einnig að gerast eftir að danskeppni hófst. 33% töf á innslætti má rekja til þess að númer keppenda voru frá 800 sem segir að í stað þess að slá inn tvær tölur þá þurfti að slá inn þijár og það í hærri kantinum. Tilfelli þegar dómarar skráðu sama parið í tvígang töfðu vinnslu. Eftir að danskeppni hefst er ekki hægt að skrá nýjan þátttakenda, þegar þátttakendur glata númerum sínum og fá annað númer þá tefst keppnin, því það þarf að handskrá viðkomandi undir röngu keppnisnúmeri. Tölvuprentari var of hægur. Fleira fólk vantaði í vinnu. Níels Einarsson. Eitt til viðbótar er að nú var í fyrsta skipti sjö manna dómaralið, en undanfarin ár hafa dómarar að- eins verið þrír til fimm. Tvö gengi voru af dómaraliði og var skipt um dómara á milli keppnisriðla. Þessir dómarar voru flestir að dæma í fyrsta skipti og má rekja hluta af töfum til nokkurra þeirra. Nú tel ég að danskennarar og þeir áhugamenn sem starfa að skipulagi og vinnu við danskeppnir, ættu að skoða alla iiði úr þessari danskeppni og reyna að fyrirbyggja tafir og mistök. Ég vil þakka þeim danskennurum sem unnu að velgengni keppninnar, áhugamönnum sem lögðu fram vinnu og því fólki sem bauð fram óeigingjarna aðstoð við að gera þessa danskeppni sem besta. Svanhildur Sigurðardóttir dans- kennari og Brynjar M. Vaidimars- son, formaður SIÁ, eiga skildar sér- stakar þakkir fyrir sitt framlag. Sérstakar þakkir ættu þeir að fá sem tengjast íþróttafélaginu á Sel- tjarnarnesi, því þeir voru komnir í fulla vinnu við störf sem ekki var ætlast til af þeim. Þeim fannst fróð- Iegt og gaman að sjá hve mikil umsvif það eru þegar haldin er dan- skeppni. Varðandi fréttatilkynningu um danskeppnina langar mig að segja, að ekki kom neitt fram á fundum hjá keppnisráði um Hermannsbik- arinn, allir dansskólar gáfu bikar. Henný Hermannsdóttir sá um hvaða bikar færi í hvaða hóp. Keppninni lauk á réttum tíma, þrátt fyrir tafir í upphafi dagsins. Höfundur er dnnskcnnnri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.