Morgunblaðið - 08.03.1995, Side 44
44 MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
STEINGRÍMUR
JÓNSSON
+ Steingrímur
Jónsson var
fæddur í Reykjavík
6. janúar 1917.
Hann lést í Reykja-
vík 15. febrúar síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru þau hjón-
in Arnfríður Áma-
dóttir, ættuð úr
Dölunum, og Jón
Jónsson, ættaður
frá Hvoli í Ölfusi.
Steingrímur átti
einn bróður, Fertr-
am að nafni, en
hann lést á unga
aldri. Þá átti hann
eina systur sem Sól-
veig hét.
Steingrímur
kvæntist árið 1938
Ragnheiði Ingi-
bergsdóttur, ætt-
aðri úr Vestur-
Skaftafellssýslu.
Þau hjónin eignuð-
ust þijá syni. Þeir
em: Ellert, f. árið
1943, kona hans var
Guðlaug Stein-
grímsdóttir; Ámi,
MINNINGAR
f. árið 1946, kvæntur Steinunni
Sigurðardóttur; og Jón, f. 1948,
en kona hans er Krístin Sigurð-
ardóttir. Þess má geta, að þær
svilkonur, Steinunn og Krístín,
era systur. Barnabörn Stein-
gríms em tíu talsins og langafa-
börnin níu.
ÞEGAR við fréttum um andlát
Steingríms Jónssonar rifjuðust upp
ýmsar gamlar, góðar endurminn-
ingar. Steingrímur starfaði hjá Ell-
ingsen hf. í 45 ár en hafði áður
verið á fraktskipum frá 16 ára aldri.
Hann var ákaflega dagfarsprúður
maður, traustur og mikið snyrti-
menni.
Steingrímur var bílstjóri hjá fyr-
irtækinu í rúm 30 ár en varð þá
afgreiðslumaður og hóf skömmu
seinna einnig að stilla út í glugga
og naut fyrirtækið þar snyrti-
mennsku og smekkvísi hans.
Þeir sem unnu með honum fundu
að þar fór maður með mikla kímni-
gáfu og á góðum stundum var hann
glettinn og gamansamur. Stein-
grímur átti mörg áhugamál svo sem
við tafl, spil, Ijósmyndun, silungs-
veiði og naut þess mjög að ferðast
um landið.
Steingrímur var vel hagmæltur
enda hafði faðir hans, Jón frá Ölf-
usi, gefíð út ljóðabók sem orðin er
ófáanleg.
Steingrímur hóf búskap með konu
sinni Ragnheiði Ingibergsdóttur í
Selásnum og byggði þar hús af mikl-
um dugnaði. Þá var lítið um bygg-
ingarefni eins og margir þurftu að
reyna, á skömmtunarárunum.
Þau hjónin eignuðust þrjá syni
sem allir eru miklir atorkumenn.
Þau slitu samvistir og seinna hóf
hann búskap með Maríu Guð-
mundsdóttur en þau slitu einnig
samvistir.
Við sem unnum með Steingrími
minnumst góðs manns og vinar sem
ávallt var reiðubúinn að rétta hjálp-
arhönd ef þörf krafði. Við þökkum
honum fyrir samstarfið og biðum
honum Guðs blessunar. Við vottum
ættingjum hans og öðrum aðstand-
endum innilega samúð.
Samstarfsmenn hjá
Ellingsen hf.
Vegna mistaka í vinnslu birtist
röng mynd með minningargrein
þessari um Steingrím Jónsson í
blaðinu í gær. Greinin er því
endurbirt hér og hlutaðeigendur
innilega beðnir afsökunar á mis-
tökunum.
RAÐAl/Gi YSINGAR
Bílasala - sölumaður
Heiðarlegur, röskurog reglusamursölumaður
með bílasöluréttindi óskast strax.
Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl., merktar;
„Bílasala-sölumaður- 16035“, fyrir 13. þ.m.
Fasteignasala til sölu
Af sérstökum ástæðum er virt og þekkt fast-
eignasala í Reykjavík til sölu. Frábært tæki-
færi fyrir fríska og dugmikla aðila að skapa
sér arðbæra, sjálfstæða atvinnu. Besti sölu-
tíminn framundan. Stór söluskrá. Mikil og
góð viðskiptasambönd. Kaupandi þarf ekki
að hafa réttindi til fasteignasölu, þar sem
löggiltur fasteignasali getur verið til staðar.
Lítil útborgun. Má greiðast með skuldabréfi
að mestu. Farið verður með allar fyrirspurn-
ir sem trúnaðarmál.
Fyrirspurnir, með upplýsingum um fyrirspyrj-
anda, berist til afgreiðslu Mbl., merktar:
„Besti sölutíminn - 3579", fyrir kl. 15.00,
næstkomandi föstudag 10. mars.
KIPULAG RÍKISINS
Lagning Mývatnsvegar nr. 848 um
brú á Laxá hjá Arnarvatni,
Skútustaðahreppi
Mat á umhverfisáhrifum
Samkvæmt lögum nr. 63/1993 um mat á
umhverfisáhrifum, er hér með kynnt fyrirhug-
uð lagning Mývatnsvegar nr. 848 um brú á
Laxá hjá Arnarvatni í Skútustaðahreppi.
Um er að ræða 200 m langan vegkafla, þar
af 52 m langa brú yfir Laxá, um 130 m neð-
an við núverandi brýr hjá Arnarvatni.
Tillaga að þessari framkvæmd liggur frammi
til kynningar frá 8. mars til 13. apríl 1995 á
eftirtöldum stöðum:
Skipulagi ríkisins, Laugavegi 166, Reykjavík,
kl. 8-16 og skrifstofu Skútustaðahrepps,
Hlíðarvegi 6, Mývatnssveit, kl. 9-15,
mánudaga til föstudaga.
Frestur til að skila athugasemdum, ef ein-
hverjar eru, við þessa framkvæmd rennur
út þann 13. apríl 1995 og skal skila þeim
skriflega til Skipulags ríkisins, Laugavegi
166, 150 Reykjavík. Þarfást ennfremur nán-
ari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.
Skipulagsstjóri ríkisins.
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
Laufásvegi 2, sími 17800.
Vefnaður - litun og hönnun
Guðrún Kolbeins, vefnaðarkennari, verður
með fjögurra vikna námskeið í ullarlitun og
vefnaði. Kennt þrisvar í viku, mánudags-,
þriðjudags- og fimmtudagskvöld. Námskeið-
ið hefst 13. mars og líkur 6. apríl.
Upplýsingar á skrifstofu Heimilisiðnaðarskól-
ans í síma 17800.
Bessastaðasókn
Aðalsafnaðarfundur Bessastaðasóknar verð-
ur haldinn í samkomusal íþróttahússins
sunnudaginn 12. mars 1995 og hefst með
guðsþjónustu í Bessastaðakirkju kl. 14.00.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður gerð
grein fyrir stöðunni í kirkjugarðsmálum
Bessastaðasóknar.
Flutt verður einnig tillaga um fjölgun nefndar-
manna í sóknarnefnd.
Boðið verður upp á kaffiveitingar á fundinum.
Sóknarnefnd.
Vinnuveitendasamband
íslands
Hvernig reiknast
launahækkanirnar?
Vinnuveitendasamband íslands boðar til
kynningarfundar um framkvæmd nýgerðra
kjarasamninga. Fundurinn ereinkum ætlaður
þeim, sem sjá um launaútreikninga í aðildar-
fyrirtækjum VSÍ.
Fundurinn verður haldinn í Átthagasal Hótels
Sögu fimmtudaginn 9. mars nk. og hefst
kl. 8.30.
Vinnuveitendasamband íslands.
FÉLAGSSTARF
Konur, Vestmannaeyjum
Drífa Hjartardóttir talar um fjölskyldu og
skólamál i Ásgarði í dag, miðvikudaginn
8. mars, kl. 20.30.
Hafnfirðingar - Reyknesingar
Fjármálaráðherrá á fundi
í HafnarfirðL
Opinn fundur með Friðriki Sophussyni í
„Gafl-lnn" við Reykjanesbraut fimmtudag-
inn 9. mars kl. 20.15.
Umræðuefni:
Ríkisfjármál - kosningastefna Sjálfstaeðis-
flokksins.
Kjósendur fjölmennið.
Landsmálafélagið Fram.
Hvöt - skemmtikvöld
Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt heldur skemmtikvöld I Valhöll fimmtu-
daginn 9. mars nk. kl. 20.30.
Fram koma:
Elín Ósk Óskarsdóttir, óperusöngvari,
og Kjartan Ólafsson, tónlistarmaður,
en þau munu syngja valin lög úr ýmsum áttum við undirleik Hólm-
fríðar Sigurjónsdóttur. Einnig verður tiskusýning frá verslununum
Evu og Joss.
Glæsilegt ostahlaðborð - léttar veitingar. Happdrætti og óvæntur
glaöningur við inngang. Aðgangseyrir kr. 500.
Sjálfstæðiskonur og gestir þeirra velkomnar.
Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt.
I.O.O.F. 9 = 176388'/2 = 9.I
□GLITNIR 599503081911 FRL.
ATKV.
l.O.O.F. 7 = 388‘/2 = 9.0
I.O.O.F. 18 = 1763108 N.K.
□ HELGAFELL 5995030819
Vl/V 1
SAMBAND ISŒNZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58-60
Samkoma í kvöld kl. 20.30 I
Kristniboðssalnum. Ræöumaður
Friðrik Hilmarsson.
Allir velkomnir.
Pýramídinn -
^ andleg
miðstöð
Anna Karia Ingva-
dóttir, miðill, er
komin til starfa í
Pýramídanum.
Hún býður upp á
einkatíma, nám-
skeið o.fl.
Tímapantanir og upplýsingar
í Pýramídanum, Dugguvogi 2,
slmar 588 1415 og 588 2526. /
Sjábu
hlutina
ívíbara
sambengll
Hörgshlíð 12
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Skrefið kl. 18.00 fyrir 10 til 12
ára krakka. Bibllulesturkl. 20.30.
Ræðumaður Hafliði Kristinsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
ÝMISLEGT
Norðurljósin
heilsustúdíó,
Birna Smith,
Laugarásv. 27,
sími 91-36677.
Öflugt sogæðanuddtæki og
cellolite-olíunudd losar líkama
þinn við uppsöfnuö eiturefni,
bjúg, aukafitu og örvar ónæmis-
kerfið og blóörásina. Trimm
Form og mataræðisráðgjöf inni-
falin. Acupuncture-meðferð við
offitu, reykingum og tauga-
spennu.
Vöðvabólgumeðferð
Með léttu rafmagnsnuddi, acu-
puncture-meðferð og leisertæki
opnum við stíflaðar rásir. Heilun-
arnudd með ilmkjarnaolíum inni-
falið. Góður árangur við höfuð-
verk, mígreni og eftir slys.
- kjarni málsins!