Morgunblaðið - 08.03.1995, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1995 47
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Sverrir
Námskynning undirbúin
UNDIRBÚNINGUR að Námskynningu ’95 sem hald-
in verður á sunnudag í húsnæði Háskóla íslands,
Iðnskólans í Reykjavík og í húsnæði listaskólanna í
Laugarnesi, undir yfirskriftinni Leitið og þér munuð
finna stendur nú sem hæst. Starfsfólk Námsráðgjaf-
ar Háskóla Islands, undir stjórn Ástu Kr. Ragnars-
dóttur forstöðumanns, annast framkvæmd kynning-
arinnar og var það að ganga frá gögnum fyrir kynn-
inguna og senda út veggspjöld þegar myndin var
tekin fyrr í vikunni. Námskynningin stendur frá
klukkan 13 til 18 á sunnudag. Kynningin er ætluð
grunn- og framhaldsskólanemendum. Kynnt er nám
við háskóla og sérskólana. Þess má geta að kennara-
samtökin verða með sérstakan kynningarbás.
Krmglukast frá mið-
vikudegi til laugardags
I DAG hefst Kringlukast, sem eru sérstöku átta síðna blaði sem fylgdi
sérstakir markaðsdagar fyrirtækja í
Kringlunni. Þessa daga bjóða versl-
anir og sum þjónustufyrirtæki í versl-
unarmiðstöðinni ótal tilboð á nýjum
vörum og veitingastaðir hússins eru
einnig með sérstök tilboð.
Undangengin Kringluköst hafa
vakið athygli, aðsókn verið mikil og
margir notað tækifærið til að gera
kjarakaup á nýjum vörum, segir í
fréttatilkynningu. Af þessum sökum
er ákveðið að hafa opið lengur en
venjulega í Kringlunni á laugardegin-
um, en þennan laugardag verður opið
til kl. 18. Kringlukastið stendur ein-
ungis frá miðvikudegi til laugardags..
Á Kringlukasti eru verslanir og
flest þjónustufyrirtæki í Kringlunni
með sérstök tilboð og lögð áhersla á
að einungis sé boðið upp á nýjar
vörur, þannig að ekki er um útsölu
að ræða. Á sérstöku tilboði í hverri
verslun eru nokkrar vörutegundir,
eða einn eða tveir vöruflokkar og
gilda þessi tilboð einungis á meðan
Kringlukastið stendur yfir. Algeng-
ast er að veittur sé 20-40% afsláttur
af þeim vörum, sem eru á tilboðinu,_
en í sumum tilvikum er afslátturinn
meiri. Hluti tilboðanna er kynntur í
Kvennadagurinn 8. mars
Dagskrá í
Ráðhúsinu
MENNINGAR- og friðarsamtök ís-
lenskra kvenna, ASÍ, BSRB, Pélag
íslenskra leikskólakennara, Hið ís-
lenska kennarafélag, Leikfélagið
Hugleikur, Jafnréttisnefnd, Kenn-
arasamband íslands, Meinatækna-
félag íslands og Síung, félag barna-
bókahöfunda, standa fyrir fundar-
dagskrá í Tjarnarsal Ráðhússins í
kvöld, 8. mars, á alþjóðlegum degi
kvenna.
Dagskráin hefst klukkan 20 en
gestir fundarins verða forseti ís-
lands, frú Vigdís Finnbogadóttir,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri og Guðrún Helgadóttir alþing-
ismaður. Fjöldi ávarpa verður fluttur
en einnig munu tríó frá Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar,
Strengjasveit Zuzuki-skólans og
Tríóið leika tónlist og leikfélagið
Hugleikur flytja einþáttung.
Gengið með
Sundum
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
stendur miðvikudagskvöldið 8. mars
fyrir gönguferð inn með Sundum.
Mæting er við Hafnarhúsið kl. 20.
Við upphaf ferðar verður litið inn
hjá íslenskri grafík.
Hægt verður að velja um tvær
gönguleiðir, annars vegar að ganga
frá Miðbakka með sjónum inn á
Laugarnestanga og nýja leið að
Kleppsskafti, fyrirhuguðu útivistar-
svæði í Sundahöfn. Hins vegar er
hægt að fara með SVR inn á Laug-
ames og ganga sömu leið þaðan og
fyrri hópurinn að Kleppsskafti.
Farstjórar verða með báðum hóp-
unum. Áætlað er að báðir hóparnir
komi samtímis' að Kleppsskafti. Val
um að ganga til baka eða taka SVR.
Allir eru velkomnir.
Morgunblaðinu í gær.
Þeir, sem koma á Kringlukast,
geta tekið þátt í kaupleik, Stóra af-
slætti. í leik þessum bjóða fjögur
fyrirtæki í Kringlunni jafnmarga
hluti með ótrúlegum afslætti. Hlutir
þessir eru allir í dýrum verðflokki
og veittur er 40-70% afláttur, þann-
ig að afslátturinn nemur tugum þús-
unda króna. Á hveijum degi meðan
Kringlukastið stendur eru dregnir
út fjórir heppnir kaupendur, sem fá
að kaupa viðkomandi hlut á þessum
mikla afslætti. Tímasetningar og
leikreglurnar eru nánar kynntar í
viðkomandi verslunum, á Bylgjunni
og fylgiblaði Morgunblaðsins. Að
þessu sinni eru það Byggt & búið,
Heimskringlan, Japis og Skífan sem
taka þátt í leiknum og í boði eru
Aiwa- og Panasonic-hljómflutnings-
samstæður, Ariston-þvottavél og
Mercury-rafmagnsgítar.
Verslanir og þjónustufyrirtæki
Kringlunnar eru opnar frá mánudegi
til fimmtudags frá kl. 10-18.30,
föstudaga frá kl. 10-19. Vegna
Kringlukastsins verður opið lengur á
laugardaginn 11. mars, en þá verður
opið til kl. 18.
Fyrirlestur
um sorg
karlmanna
NÝ DÖGUN, samtök um sorg og
sorgarviðbrögð, standa að fyrirlestri
um sorg karlmanna í Gerðubergi
fímmtudagskvöld kl. 20.
Sr. Bragi Skúlason flytur erindi
um sorg karlmanna. Bragi hefur
kynnt sér þetta málefni bæði innan-
lands og utan á undanförnum árum.
Umræðan um sorg karlmanna hef-
ur farið heldur lágt í okkar samfélagi
og því vill Ný dögun leggja sitt af
mörkum til að breyting verði þar á.
Fjöldi karlmanna hefur leitað til Nýrr-
ar dögunar og er ljóst að þeir þurfa
ekki síður aðstoðar við í sorgum sínun
en konur, segir í fréttatilkynningu.
Fyrirlestur
um vistfræði
laxaseiða í sjó
KONRÁÐ Þórisson og Jóhannes Stur-
laugsson flytja fyrirlestur fímmtudag-
inn 9. mars á vegum Líffræðifélags-
ins í stofu 101 í Odda, húsi Háskóla
íslands. Fyrirlesturinn hefst kl. 20.30
og er öllum opinn. Heiti hans er Vist-
fræði laxaseiða í sjó.
Þann tíma sem Atlantshafslax dvel-
ur í ferskvatni eru umhverfi hans og
aðstæður tiltölulega vel þekkt. Þetta
á jafnt við um seiðastigið og hrygning-
arlax að lokinni sjávargöngu.
I kjölfar aukinnar hafbeitar á laxi
hérlendis í lok síðasta áratugar stór-
efldist áhugi á vistfræði laxa í sjó.
Á þeim árum hófst samstarf Veiði-
málastofnunar og Hafrannsóknar-
stofnunar um rannsóknir á laxaseið-
um í sjó. Athyglinni var einkum beint
að fæðu og fari seiðanna en stórtæk-
ar sleppingar Silfurlax hf. í Hrauns-
firði gerðu kleift að fylgja seiðum
eftir langt út í Breiðafjörð.
■ AÐALFUNDUR Öldrunar-
fræðafélags íslands verður haldinn
fimmtudaginn 9. mars kl. 13 í Þjón-
ustumiðstöð aldraðra, Vesturgötu
7. Á dagskrá verða venjubundin aðal-
fundarstörf.
■ FÉLAGSLEG samskipti og
styrkt sjálfsímynd barna. Kristín
Hallgrímsdóttir sálfræðingur ræðir
um félagsleg samskipti og hvernig
styrkja má sjálfsímynd barna á
grunnskólaaldri á félagsfundi For-
eldrafélags misþroska barna mið-
vikudaginn 8. mars kl. 20.30 í sal
Æfingadeildar Kennaraháskól-
ans, gengið inn frá Bólstaðarhlíð.
Aðgangur er ókeypis og öllum heim-
ill.
■ / MÁLSTOFU Umhverfis- og
byggingaverkfræðiskorar Háskóla
íslands miðvikudaginn 8. mars kl.
16.15-18 í stofu 158 verður fjallað
um sveiflugreiningu burðarvirkja í
vökva. Erindið flytur Jens Bjarna-
son, dósent. Umræður og fyrir-
spurnir að erindi loknu.
■ OA SAMTÖKIN, Overeaters
Anonymous, sem eru samtök fólks
með ofátsvandamál standa fyrir
kynningarfundi í Gerðubergi
fímmtudaginn 9. mars kl. 20. Gestur
fundarisns verður OA félagi frá ísra-
el sem heimsótt hefur OA deildir
víðsvegar í heiminum. Erindi hennar
verður flutt á ensku en fyrirspurnir
og umræður verða á íslensku á eftir.